Morgunblaðið - 29.12.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982
Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals:
Engar mótmælastöð-
ur við Long John Silver
„SUMAR þær forsendur, sem stjórn
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
leggur til grundvallar hvatningu sinni
til ríkistjórnarinnar um að mótmæla
ekki samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins um bann við hvalveiðum í
atvinnuskyni frá 1986, eru beinlínis
rangar," sagði Kristján Loftsson,
framkvæmdastjóri Hvals hf. í samtali
við Mbl. vegna fréttar í blaðinu þess
efnis að stjórn SH hefði gengið á
fund Steingríms Hermannssonar og
hvatt til að banni við hvalveiðum
verði ekki mótmælt.
„Það sem átti sér stað er að
stjórn SH hélt fund 14. desember
síðastliðinn. Þá var mættur Þor-
steinn Gíslason, forstjóri Coldwat-
er, dótturfyrirtækis SH í Banda-
ríkjunum. Þorsteinn fékk stjórn
SH til að samþykkja téða sam-
þykkt og lá svo mikið á að afgreiða
þetta mál strax, að ekki kom til
greina að stjórnarmenn gætu svo
mikið sem kynnt sér allar hliðar
málsins.
Þegar ég var á ferð í Bandaríkj-
unum i lok nóvember og byrjun
desember siðastliðnum, ræddi ég
við Þorstein Gíslason og fleiri aðila
sem tengjast fiskiðnaði í Bandríkj-
unum, um þessi mál. Ég verð að
segja að ýmislegt af því er Þor-
steinn Gíslason er að fóðra stjórn
SH með og kemur fram í frétt af
hvatningu SH og viðtali við Guð-
mund H. Garðarsson, blaðafulltrúa
SH, er rangt. Til dæmis að þegar
það var kannað af hlutlausum aðila
hjá Long John Silver, þá könnuðust
þeir ekki við mótmælastöður við
veitingahús sín.
Það er með ólíkindum hve af-
staða Þorsteins Gíslasonar til
hvalveiða Islendinga hefur breyst
snögglega, en fram til þessa hefur
hann talið, samkvæmt blaðaviðtöl-
um, að áróður hvalaelskenda hafi
hverfandi áhrif á almenning í
Bandaríkj unum.
Aróður gegn hvalveiðum í
Bandaríkjunum er ekkert nýr af
nálinni og hefur ekki tekið þeim
stakkaskiptum síðustu misserin að
það réttlæti kúvendingu af þessu
tagi. Hvað hér hangir á spýtunni er
mér erfitt að ráða í en helst er ég á
því, að Þorsteinn vilji með þessum
sinnaskiptum þóknast einhverjum
hvalaelskendum þar í landi.
En ef Þorsteini Gíslasyni tekst
ætlunarverk sitt, þá er ég viss um
að Adam verður ekki lengi í Para-
dís er hvalaelskenduir fara að lesa
selapóstinn sinn og komast að þvi,
3^
hver sé aðalaðmírállinn í Hring-
ormanefndinni frægu.
Öllum er kunnugt um ástand
nytjafiskstofna hér við land og
væri það að bæta gráu ofan á svart
að fara að friða algjörlega þau
sjávardýr sem keppa við okkur um
nyt þeirra. Benda má á að Norð-
menn gera sér fyllilega grein fyrir
þeirri hættu sem í því felst að al-
friða svo afkastamikinn keppinaut
sem hvalurinn er.
Þetta sést best af því, að þrátt
fyrir að hvalveiðar séu lítill hluti
þjóðartekna Norðmanna, hika þeir
ekki við að bjóða hvalaelskendum í
Bandaríkjunum birginn og hafa
samkvæmt fréttum hafið kynningu
á sjónarmiðum sínum þar í landi.
Ljóst er að hvalir taka sinn stóra
toll af lífríki sjávar og ef svo ofan á
það bætist við að ekki megi skjóta,
til að mynda sel, þá held ég að eng-
inn vafi leiki á því hver þróun verði
á fiskveiðum og fiskvinnslu hÓr á
landi,“ sagði Kristján Loftsson að
lokum.
Vegna sérstakra samninga við MAZDA verksmiðjurnar
getum við nú boðið takmarkað magn af MAZDA bílum
á hreint ótrúlegu verði:
MAZDA 929 SuperDeLuxe
verð áður kr. -208.-300" VERÐ NÚ kr. 177.700
MAZDA 323 1300 DeLuxe 3 dyra
verð áður kr. .163.600" VERÐ NÚ kr. 151.200
Notið þetta einstaka tækifæri og tryggið ykkur bíl strax
meðan þetta lága verð helst, því aðeins er um takmarkaðan
fjölda af bílum að ræða.
(Gengisskr. 21.12. 1982)
BILABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99
ó
!