Morgunblaðið - 29.12.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982
Brigitte Bardot
slær enn í gegn
París, 28. dosember. AP.
BRIGITTE Bardot, franska kyn-
táknid sem skauzt upp á stjörnuhim-
ininn fyrir þremur áratugum, hefur
nú rofið þann þagnarmúr sem hefur
umlukið hana að undanfornu, og er
orðin vinsælasta sjónvarpsstjarna
Frakka.
Þessi fræga leikkona, sem oftast
var aðeins nefnd upphafsstöfun-
um B.B., kemur nú fram í þriggja
þátta sjónvarpsdagskrá um
kvikmyndir hennar, sem urðu 28,
um misheppnuðu hjónaböndin
þrjú, hatur hennar á „paparazzi",
eða fréttaljósmyndurum, og um
störf hennar til varnar selkópum.
Sjónvarpsdagskráin hefur verið
á skermum Frakka undanfarna
tvo sunnudaga, og síðasti þáttur-
inn verður sýndur 2. janúar. Ekki
eru gerðar neinar kannanir í
Frakklandi á því hvaða dagskrár-
liðir sjónvarps eru vinsælastir, en
hitt er víst að um enga þætti hafa
dagblöð skrifað jafn mikið og
„Brigitte Bardot: Þannig er hún“. I
þáttunum eru notaðir bútar úr
kvikmyndum B.B., viðtöl við hana,
og við ýmsa þá, sem komið hafa
við sögu í lífi hennar.
Anatoli Zotov
Zotov sakaöur
um kynvillu
I/ondon, 28. desember. AP.
KYNVILLINGUR kveðst hafa haft
kynmök við sovézka flotamálafull-
trúann Anatoly Zotov, sem Bretar
vísuðu úr landi fyrr i þessum mánuði
fyrir njósnir, að sögn blaðsins Sun.
Blaðið hefur eftir kynvillingn-
um, Vikki de Lambray, að hann
hafi ákveðið að leysa frá skjóð-
unni þegar brezka leyniþjónustan
hafði yfirheyrt hann um meint
samband þeirra.
Hann kvaðst ekki hafa vitað
hvað Zotov hét þegar þeir voru
saman í þrjá tíma í íbúð hans
fyrir tveimur árum.
Brigitte Bardot fæddist í París
28. september 1934, og 16 ára að
aldri gerðist hún sýningarstúlka.
Tveimur árum síðar giftist hún
kvikmyndaframleiðandanum Rog-
er Vadim. Eiginmaður nr. 2 var
leikarinn Jacques Charrier, og
með honum átti hún einkabarn
sitt, soninn Nicolas Jaques
Charrier, sem er að verða 23 ára.
Þriðji eiginmaðurinn var svo
vestur-þýzki auðmaðurinn Gúnth-
er Sachs.
B.B. leggur mikla fæð á frétta-
ljósmyndara, sem aldrei létu hana
í friði. Minnist hún sérstaklega
tveggja tilvika í því sambandi í
sjónvarpsþáttunum, þ.e. þegar
sonurinn fæddist og þegar hún
reyndi að fremja sjálfsmorð. Dag-
ana fyrir fæðingu sonarins, 11.
janúar 1960, var íbúð hennar í
París umsetin 250 ljósmyndurum
og blaðamönnum, sem létu hana
engan frið fá, og segir leikkonan
að umfjöllun öll hafi verið mjög
ómannúðleg. Sömu söguna var að
segja tíu mánuðum síðar þegar
hún reyndi að svipta sig lífi með
því að taka of stóran skammt af
svefntöflum og skera sig á púls-
inn. Þá beið hennar skari frétta-
ljósmyndara þegar hún nokkrum
dögum síðar kom út úr sjúkrahús-
inu í Nice.
„Það getur stundum verið ban-
vænt að leika í kvikmyndum,"
sagði Brigitte Bardot. „Það varð
Marilyn að bana,“ bætti hún við,
og átti þar við annað kyntákn,
bandarísku leikkonuna Marilyn
Monroe, sem svipti sig lífi árið
1962.
Svíi sem týndi milljón
lofar 10% fundarlaunum
EINNI milljón danskra, eða tæpum tveimur milljónum íslenzkra króna, í
dönskum og öðrum erlendum gjaldeyri var stolið um jólin af 49 ára
gömlum Svía á bar í flughöfninni á Kastrup. Hann hefur heitið 10%
fundarlaunum.
Svíinn, Sigmund Abaffy, segir
að hann hafi átt þessa peninga
og safnað þeim þegar hann
stjórnaði rannsóknar- og þróun-
aráætlun á vegum SÞ í Tyrk-
landi. Blaðið Berlingske Tidende
segir hins vegar að sendiráð Sví-
þjóðar í Ankara kannist ekki við
nokkurn sænskan forstöðumann
áætlunar á vegum SÞ í Tyrk-
landi. Önnur blöð segja að hann
hafi einnig stjórnað áætlunum
SÞ í Sýrlandi.
Að sögn Affaby stjórnaði
hann starfi á vegum SÞ frá 1974
til marz 1982, fyrst í Ankara og
síðan í Damaskus, þar sem hann
hafi haft 8.000 dollara í laun á
mánuði. Peningarnir væru spari-
fé eftir átta ára starf. Samning-
úr hans rann út í marz og var
ekki endurnýjaður, þar sem ekki
var þörf fyrir mann með hans
menntun í rafmagnsverkfræði
og stjórnun að hans sögn.
• Affaby kveðst hafa verið á
þriggja mánaða ferðalagi um
Evrópu og síðast verið í Ham-
borg, þar sem hann hafi leitað
sér að atvinnu. Hann hafði pen-
ingana meðferðis allan þennan
tíma. Affaby segist hafa komið
til Danmerkur í bifreið á Þor-
láksmessu og hafi ætlaði til Sví-
'þjóðar með spariféð, sem hann
geymdi í brúnni leðurtösku.
í töskunni voru 260.000 þýzk
mörk í þúsund marka seðlum,
þar af mörg í splunkunýjum
búntum, 6.000 svissneskir frank-
ar og 4.500 danskar krónur. Ætl-
un hans var sú að kaupa eigin
íbúð í Helsingborg fyrir pen-
ingana.
Tvær dætur Affabys, 17 og 19
ára, voru í fylgd með honum og
þau fóru til Kastrup til að sækja
farangur. Þau geymdu bílinn á
bílastæði og gengu inn í barinn
„Royal Pub“ til að fá sér að
borða.
Einhver misskilningur reis
upp þegar feðginin ætluðu að
fara frá barnum. Önnur dóttirin
þurfti að fara á salernið. Þegar
hún kom aftur stóð faðirinn og
hin dóttirin á fætur, tóku saman
pjönkur sínar og gengu út að
bflnum.
Þegar þau komu út uppgötv-
uðu þau að þau höfðu gleymt
töskunni með peningunum þar
sem hún hafði staðið á borðinu
sem þau höfðu setið við. Affaby
hljóp inn, en taskan var horfin.
Royal Pub á Kastrup þar sem Affaby gleymdi brúnu
töskunni með milljóninni.
Svíinn Sigmund Affaby, sem býður 100.000 d.kr. i
verðlaun fyrir milljónina sem hann týndi.
19
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
GOOLE:
Arnarfell 'i '1 -
Arnarfell 7/J/1
Arnarfell .. 31 /1 >
Arnarfell 14/2
ROTTERDAM:
Arnarfell 5/1
Arnarfell 19/1
Arnarfell 2/2
Arnarfell 16/2
ANTWERPEN:
Arnarfell 7/1
Arnarfell 20/1
Arnarfell 3/2
Arnarfell 17/2
HAMBORG:
Helgafell 13/1
Helgafell 7/2
HELSINKI:
Disarfell 31/1
LARVIK:
Hvassafell 4/1
Hvassafell 17/1
Hvassafell 31/1
Hvassafell 14/2
GAUTABORG:
Hvassafell 5/1
Hvassafell 18/1
Hvassafell 1/2
Hvassafell 15/2
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell 6/1
Hvassafell 19/1
Hvassafell 2/2
Hvassafell 16/2
SVENDBORG:
Hvassafell 7/1
Helgafell 15/1
Hvassafell 20/1
Hvassafell 3/2
AARHUS:
Helgafell 18/1
Helgafell 11/2
GLOUCESTER MASS.
Jökulfell 29/1
Jökulfell ....'—29/10 1
HALIFAX, KANADa:
Jökulfell ........ 31/12
SKIPADEILJj
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
ÚRVAUÐ ALDREI FJÖLBREYTTARA
waQa™ ©.aitmaaaBa ca?
ÁNANAUSTUM. SÍMAR 28855.