Morgunblaðið - 29.12.1982, Page 30

Morgunblaðið - 29.12.1982, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982 Minning — Guðrún Agústa Jónsdóttir Fædd 23. júní 1899 Dáin 15. desember 1982 „Kveikt er Ijós vió Ijós, hurl 'er sortans svið. Augaó rós við rós, opnast himins hlió. Niður stjörnum stráð, engill fram hjá fer. Drottins na‘j{ð og náð hoðin alþjóð er.‘* (Stefán frá Hvíladal) I myrkasta skammdeginu eftir langa erfiða hausttíð, vitjaði eng- ill náðarinnar móðursystur minn- ar, Ágústu, og flutti hana á ljóss- ins svið. Guðrún Ágústa, sem alltaf gekk undir seinna nafni, var fædd og uppalin á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri, dóttir hjónanna Jóns Brynjólfssonar, bónda sama stað, Eiríkssonar og Sigurveigar Sig- urðardóttur, bónda Þykkvabæj- arklaustri, Nikulássonar. Móðir Sigurveigar var Rannveig Bjarna- dóttir, bónda Þykkvabæjar- klaustri, Jónssonar. Móðir Jóns Brynjólfssonar var Málfríður Ögmundsdóttir, bónda Rofum í Mýrdal, Árnasonar. Árið 1919 giftist Ágústa Oddi Jónssyni, f. 26.3. 1894, en hann dó 15.5. 1968. Foreldrar hans voru Jón Eyjólfsson bóndi og Þuríður Oddsdóttir. Ágústa og Oddur bjuggu fyrsta árið á Þykkvabæj- arklaustri, 2 ár .í Vestmannaeyjum og 4 ár í Hraunbæ, Álftaveri, þar sem Oddur var við kennslu. Oddur var listaskrifari og mátti þekkja á skriftinni þá Álftveringa, sem höfðu lært að draga til stafs hjá honum. í Vík i Mýrdal bjuggu þau 1926-1938, í Reykjavík 1938—1960 og síðan í Kópavogi. Síðustu árin dvaldi Ágústa á elli- heimilunum Ási og Grund. Ágústa og Oddur eignuðust 3 börn, Rannveigu húsmóður í Reykjavík, Þuríði húsmóður í Kópavogi og Jón Rafn skipstjóra á Isafirði. Á þeim árum, sem Ágústa og Oddur bjuggu í Vík, voru einu Móðir okkar, HALLDÓRA ÓLAFSDÓTTIR, lést 28. desember. Grettisgötu 26, Ólafur Alexandersson, Edda Alexandersdóttir. + Faðir okkar, HINRIK JÓRMUNDUR SVEINSSON, Granaskjóli 5, lést í Landspítalanum 26. desember sl. Jaröarförin auglýst síöar. Guórún Hinriksdóttír, Margrét I. Hinriksdóttir, Ólafur Ólafsson. t Utför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, AGNARS KOFOED-HANSEN, flugmálastjóra, fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 30. desember kl. 3.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Flugbjörgunarsveitina. Björg Kofoed-Hansen og fjölskylda. + Útför eiginmanns míns, SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR, myndhöggvara, veröur gerð frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 30. desember, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á Bygg- ingarsjóð Listasafns Islands. Birgitta Spur Ólafsson. + JÓN EDVARÐSSON, múrari, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. desem- ber kl. 10.30 f.h. Guóbjörg Hjartardóttir, Harpa og Andrea Jónsdætur, Helga María Bjarnadóttir. + Bróöir minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi, HRÓBJARTUR OTTÓ MARTEINSSON, sem andaöist 23. des. verður jarösunginn fimmtudaginn 30. des. kl. 15.00 frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Sveinn Marteinsson, Svanbjörg Hróbjartsdóttir, Guðlaug Hróbjartsdóttir, Erlendur Guömundsson og barnabörn. samgöngutæki bænda austan Mýrdalssands hestar og hestvagn- ar. Farið var í kaupstaðarferð til Víkur tvisvar á ári, á vorin með ullina og á haustin, þegar reka varð sauðfé yfir Mýrdalssand til slátrunar. Ekki var húsið stórt, sem þau bjuggu í, en þar var alltaf nóg húsrými fyrir hrakta og lúna ferðalanga. Algengt var að næt- urgestir væru milli 10 og 20 og það dögum saman í sláturtíðinni. Eng- um var úthýst. Það var þó ósjald- an, að húsmóðirin og börnin þyrftu að sofa í flatsæng á eld- húsgólfinu. Ágústa sá til þess, að alltaf væri kaffi á könnunni og matur á borðum án þess að krefja greiðslu fyrir beinann. Svo sönn var gestrisni og glaðværð Ágústu, að allir fundu að þeir hefðu verið henni aufúsugestir. í Reykjavík bjuggu Ágústa og Oddur lengst af í risíbúð á Vestur- götu 3 og voru þau því enn í miðri þjóðbraut, það þótti sjálfsagt hjá þeim fjölmörgu, sem þekktu þau, að koma við þegar farið var í bæ- inn og njóta gestrisni þeirra og glaðværðar. I þessari vinalegu íbúð var hvorki hátt til lofts né vítt til veggja en aldrei þraut þar gistirýmið. Fjölmörg ungmenni austan úr Skaftafellssýslu gistu þar sínar fyrstu nætur í höfuð- borginni og sum dvöldu þar lang- tímum saman og var undirritaður einn úr þeirra hópi. Ómetanleg var handleiðsla þeirra og um- hyggja og alla tíð var heimili þeirra Ágústu og Odds athvarf okkar og skjól. Ógleymanlegar eru hinar mörgu gleðistundir, sem við áttum hjá þessum hugljúfu hjón- um. Eins og fram hefur komið var Ágústa mjög félagslynd og glað- lynd. Strax við komuna til Reykja- víkur gengu þau hjónin í stúkuna Víking nr. 104 og lögðu þau fram mikið starf í þágu stúku sinnar og góðtemplarareglunnar í heild. Oddur gerðist síðar félagi Muster- isriddara og tók Ágústa einnig þátt í félagsstörfum þar. Þrátt fyrir langan vinnudag þeirra hjóna safnaðist þeim ekki veraldlegur auður, enda deildu þau afrakstri vinnu sinnar jafnóð- um til meðbræðra sinna og systra. Auður þeirra var þó mikill, auður gjafmildi, vináttu og kærleika. Við systkinin frá Þykkvabæj- arklaustri minnumst þess, þegar Ágústa frænka kom í heimsókn. Þá flutti þessi glæsilega fallega kona glaðværð og birtu í bæinn. Við þökkum henni fyrir allt það, sem hún miðlaði okkur af auðlegð hjartans á lífsleiðinni. Guð blessi minningu hennar. Einar S.M. Sveinsson Mig langar að minnast móður- systur minnar, Ágústu Jónsdótt- ur, með nokkrum orðum, en hún verður borin til grafar í dag. Ágústa er fædd að Þykkvabæj- arklaustri í Álftaveri 23. júní árið 1899. Foreldrar hennar voru Sig- urveig Sigurðardóttir og Jón Brynjólfsson, bóndi þar. Þau Jón og Sigurveig áttu fjögur börn, Hildi, Rannveigu, Sigurð og Ág- ústu, og eru þau nú öll látin, en eftir lifir fósturdóttir og frænd- systir, Lilja Jónsdóttir, sem var yngst barnanna. Hún er nú ört að kveðja sú kynslóð, sem stóð fyrir undrinu mikla, þegar þjóðin reis úr örbirgð til bjargálna og síðar til alls- nægta. Það er hollt að gera sér grein fyrir því, hve eljusemi þessa fólks bar ríkulegan ávöxt, sem við niðjar þeirra höfum síðan notið, en það eru gömul sannindi, að sjaldan njóta þeir eldanna, sem fyrstir kveikja þá. Ágústa var sannarlega að því leyti barn síns tíma og alltaf tókst henni að vera veitandi en aldrei þiggjandi, þrátt fyrir takmörkuð efni. Þennan fagra eiginleika veit ég, að þau Klausturssystkinin höfðu erft og borið með sér úr föð- ur og móður garði. Þær systurnar þrjár náðu allar Fædd 8. nóvember 1923 Dáin 21. desember 1982 Það flugu margar minningar í huga minn er heyrði ég lát Jónu Sigurjónsdóttur frá Berghyl í Hrunamannahreppi, að hún væri horfin inn í annað líf. Þegar ég kom að Berghyl sl. haust heilsaði ég Jónu sem væri hún systir mín, var hún afar kát að sjá mig. Það voru búin að líða svo mörg ár frá því ég hafði kom- ið. „Nú er orðin mikil breyting, Eiríkur sýnir þér þær,“ sagði hún. hárri elli, en Sigurður bróðir þeirra, sem var rafvirki í Reykja- vík, lézt úr lungnabólgu langt um aldur fram, aðeins 42 ára. Ágústa giftist Oddi Jónssyni frá Holti á Síðu sumarið 1919. Fyrsta giftingarárið bjuggu þau að Þykkvabæjarklaustri, fluttust þá um tveggja ára skeið til Vest- mannaeyja. Síðan var Oddur við kennslu í Hraunbæ í Álftaveri og Vík í Mýrdal um 16 ára skeið, en 1938 fluttu þau til Reykjavíkur, þar sem Oddur starfaði sem efn- isvörður og afgreiðslumaður til æviloka, 1968, lengst af hjá Bræðrunum Ormsson hf. Þegar Ágústa er kvödd er margs að minnast og margt að þakka. Þeim, sem ritar þessi orð, fannst ávallt sem Hildur, Ágústa og Lilja væru honum aðrar mæður ekki síður en systir þeirra Rannveig. Ágústa og Oddur voru vissulega sínir eigin gæfu smiðir. Sam- heldni og gagnkvæm ást og virð- ing þeirra var hverjum ljós, sem umgengust þau. Að leiðarlokum bið ég Guð að blessa minningu þeirra Klaust- urssystkina og þakka samfylgdina af heilum hug. Karl Eiríksson Heimilisstörf voru henni ánægja hvort sem var úti eða inni, allt hafði hún í lagi hvað sem það nefndist. Nú hverfur hún án þess að geta sagt gleðileg jól, hún hefur vafalaust verið búin að undirbúa jólin eins og svo oft áður. Hún gat ekki tilkynnt að hún væri að fara héðan og ekki hvatt sína vini, svo var dauðinn fljótur að koma. Nú hvílir hún í nýjum heimi og annir dagsins horfnar. Jóna og Eiríkur ólu upp fjögur börn, Jóna stóð við hlið mannsins síns í einu og öllu. Ég átti marga glaða stund á Berghyl, þar átti ég jól og var eins og heima hjá mér. Vil ég þakka Jónu á Berghyl fyrir góð kynni og óska henni góðs inn í nýjan heim. Guð blessi minn- ingu hennar. Nú hvílir hún og svífur yfir jarðnesku lífi. Milt hofurt, guð, ég hneigi að hjartað stíga megi í Ijúfri bæn til þín, lát heims ei glys mér granda en gef mér hænaranda af hjartans andvörp heyr þú mig.“ (Úr Sálmabókinni) Kristján S. Jósefsson + Þökkum Innilega öllum þeim sem auösýndu okkur samuö og vinar- hug viö andlát og útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, HALLDORSAUDUNSSONAR, fyrrverandi ökukennara, Faxaskjóli 18, Reykjavík. Ingileif M. Halldórsdóttir, Reynir Ólafsson Jóhann Páll Halldórsson, Fríöfinnur Halldórsson, Bjarney A. Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. SVAR MITT eftir Billy Graham Góðir innst inni? Ég held, að innst inni séu allir menn góðir. Samt segir sumt trúrækið fólk, að sitthvað, sem ég geri, sé rangt. Það er skammgóður vermir að hugga sig við slíkar skoðanir. Oft heyrum við fólk segja: „Þeir koma illa fram, en þeir eru góðir inni við beinið." Guð dæmir okkur ekki samkvæmt flöktandi tilfinningum, en verkin lýsa okkur, hann dæmir í samræmi við þau. Hann hefur sagt hvernig maðurinn er í raun og veru innst inni: „Svikult er hjartað fremur öllu öðru og spillt er það.“ Hin beztu á meðal okkar gætu orðið morðingjar, fjársvikarar, þjófar. Þetta er ástæðan til þess að Jesús Kristur var krossfestur — til þess að endurleysa okkur og bjarga okkur frá þessari glötun. Ef við hefðum öll verið „góð inni við beinið", hefði Kristur ekki verið gefinn sem fórn fyrir syndir heimsins. Það gildir einu, hvað „sumt trúrækið fólk“ segir um yður. Allt veltur á því, hvernig Guð lítur á málin. Hann sagði — og þér eruð meðtalinn: „Allir hafa syndgað og skortir dýrð Guðs.“ Hann sendi frelsara til þess að frelsa okkur frá syndinni. Hygginn er sá, sem veitir honum viðtöku sem frelsara sínum. Jóna Sigurjónsdóttir frá Berghyl — Minning

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.