Morgunblaðið - 29.12.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.12.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982 31 Helgi S. Jónsson Keflavík - Minning Fæddur 21. ágúst 1910 Dáinn 18. desember 1982 Þjóðkunnur Keflvíkingur, Helgi S. Jónsson — lézt á Landspítalan- um 18. desember sl. eftir stutta dvöl þar, aðallega til rannsóknar. Til stóð, að hann fengi jólaleyfi frá sjúkrahúsinu yfir komandi há- tíðar — en þá kom sá gesturinn í heimsókn, sem hvorki fer í manngreinarálit né gerir boð á undan sér. Og ævin var öll. Dögum áður, staldra eg við á stofunni hjá Helga. Og eins og fyrri daginn, er við finnumst, get- ur svo sem allt borið á góma — allt nema sjúkleika hans sjálfs. — Mér líður vel, svarar hann aðeins, aðspurður. Samt veit eg, að hann hefur ekki gengið heill til skógar undanfarin ár. Og oftar en einu sinni verið lagður inn á sjúkrahús. En vol og víl framgekk ekki af hans munni, hvorki við sína nánustu né aðra. Handtakið er að venju hlýtt og létt yfir kveðjuorðum. Eg kveðst koma bráðlega aftur. En þá er hann, skátaforinginn, ekki lengur í tjaldstað: Farinn heim. Helgi Sigurgeir Jónsson fæddist 21. ágúst 1910 í Hattardal í Álfta- firði vestur og hafði því tvo um sjötugt, er hann lézt. Foreldrar hans voru þau Hattardalshjón, Sigríður Sigurgeirsdóttir og Jón Helgi Ásgeirsson, bóndi og tré- smiður. Bræður Helga voru, Olgeir skrifstofumaður, Frið- steinn veitingastjóri og Björn verkstjóri, allir látnir. Uppeldis- systur þeirra voru, Guðrún Helga- dóttir, sem er látin, en á lífi er Sigríður Benjamínsdóttir. Á bernskuárunum í Hattardal varð skólaganga Helga aðeins tíu vikur einn veturinn. En því betur lærði hann á bók náttúrunnar og kom að góðu haldi síðar, er hann gerðist meðal annars skáti og fjallgöngugarpur. En til Reykja- víkur fluttist Helgi með foreldrum sínum 1925. Um það leyti veiktist hann af liðagigt og lá rúmfastur á annað ár. Nam hann þá af bókum þau fræðin, sem hugurinn stóð helzt til, en framhaldsnámið var í skóla lífsins. Þar var margt prófið þreytt og sum hver með ágætum. I Reykjavík verður sveinninn úr Hattardal þekktur sem Helgi hjá Tómasi — að Laugavegi 2. Þar reiðir hann kjötöxina fimlega til höggs á skrokk eftir skrokk — í spað fyrir uppábúnar frúr með slegið sjal og skotthúfu. Fleira verður þó til að gera nafn hans munntamt um þessar mundir heldur en kjöt í pott: Litla leikfé- lagið — en Helgi var formaður þess og lék í barnaleikritum Óskars Kjartanssonar við loflegan orðstír. Og svo var það pólitíkin. Þá var nú líf í þeim tuskunum — rauðum, bláum eða brúnum. Marsérað á Lækjartorg eða austur að kola- bing. Og talað allt að því tungum. Helgi var í fylkingarbrjósti — þá liðlega tvítugur, ritstýrði eld- fimu, hápólitísku blaði og fór i framboð við bæjarstjórnarkosn- ingar. En dag nokkurn 1934, er hann á burt úr bænum. Sagður kominn suður með sjó. í Keflavík hófst nýr og varan- legur kapítuli í lífi og starfi Helga S. Jónssonar. Hann kvæntist eftir- lifandi eigínkonu, Þórunni Ólafs- dóttur, þann 7. desember 1940. Dóttir þeirra er Guðrún Sigríður, búsett á Bermúda, en dóttir Helga frá fyrri tíð er Ingibjörg, búsett í Reykholti. Foreldrar Þórunnar voru Guðrún Einarsdóttir frá Sandgerði og Ólafur J.A. Ólafsson, kaupmaður í Keflavík. En eftir lát hans, rak Guðrún verzlunina áfram í áratugi ásamt póstaf- greiðslu. Helgi gerðist skrifstofustjóri hjá hf. Keflavík, rak verzlunina Vatnsnes 1941—’52, þá skrifstofu- maður, heilbrigðisfulltrúi og slökkviliðsstjóri, síðar heiðursfé- lagi þess. Hann gegndi og ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Keflavík- urbæ og fleira mætti telja, svo sem fréttamennsku fyrir útvarp og Morgunblað. En félagsstörf og framfaramál Keflavíkur áttu jafnframt hug hans óskiptan. Andi skátahreyfingarinnar heillaði Helga sem ungan mann og fylgdi honum að endadægri. Skátafélagið Heiðabúa stofnaði hann 1938, ásamt sjö efnispiltum og var félagsforingi næsta aldar- fjórðung, þá heiðursfélagi. Hlaut einnig heiðursmerki skáta, „svastikka". Varða er merki Heiðabúa, en Helgi var ótrauður að varða ungmennum veg um sína daga. Ritari Ungmennafélags Kefla- víkur var hann í tíu ár — en í þann tíð lét félagið mjög að sér kveða, svo sem í íþróttamálum, byggingu sundlaugar, leikstarf- semi og stofnun byggðasafns. Heiðursfélagi UMFK varð Helgi 1979. Hann var einn af stofnend- um Rótarýklúbbs Keflavíkur 1945 og Hringfara 1964, en þeir lögðu jafnan öræfin undir fót og komst sá garpskapur á þrykk í bundnu sem óbundnu máli. Samstarf okkar Helga, á Kefla- víkurárum mínum, var bæði náið og víðtækt. Og batt okkur tryggðaböndum, sem brustu ekki þótt skylfu lönd. Báðir vorum við í félögum, sem töldust hafa fram- fara- og menningarmál að leið- arljósi. Og báðir þeirrar náttúru að varpa fram hugdettum, sem þóttu fráleitar og fóru beint í vaskinn. Sumar hverjar sáu þó dagsins ljós í framkvæmd, er frá leið. Dæmi um skelegga framgöngu og snör handtök Helga, þegar mikið lá við — er sögusýningin Mjallhvíta móðir, á ársafmæli lýð- veldisstofnunar 17. júní 1945. Hreppsnefndin fól okkur að velja bókmenntaefni, semja og æfa fjölda fólks — með einnar viku fyrirvara. Það tókst og varð tveggja tíma yerk í flutningi. Svo sannarlega var Helgi í essinu sínu, þá sólbjörtu sólarhringa. Á ferðalögum okkar, utanlands sem innan, miðlaði Helgi af þekk- ingu sinni og fórnfýsi — hvort heldur sem fararstjóri, yfirbryti eða óbreyttur. Enda rómuðu þeir, er reyndu. Maðurinn var líka svo bráðskemmtilegur. Nei, það leiddist engum í návist Helga S. Allmargir leikþættir liggja eftir Helga, svo og greinar í blöðum og tímaritum. Hann málaði einnig og eru myndir hans víða á veggjum. Heimilið sem Didda bjó fjöl- skyldunni, fallegt og hlýlegt, stóð ætíð opið. Fjölmörgum ráðum var þar ráðið á mestu umsvifaárum húsbóndans. Og glaðst með glöð- um. Geymdar eru minningar og órofa vinátta í þakklátum huga þess, er þetta ritar. Löng og oft þungbær sjúkdóms- ár eru liðin í aldanna skaut. En þá byrði bar Helgi ekki einn. Sú ham- ingja hlotnaðist honum að eignast þann lífsförunaut, sem í engu mátti vamm sitt vita. Og aldrei brást, þó að á móti blési. Ástúð- arrík umönnun Diddu á erfiðum stundum manns síns, er aðdáunar- og þakkarverð. Við greinarlok í minningu Helga S. Jónssonar, verður mér gengið að glugga undir skemmst- um sólargangi. Myrkur himinninn grúfir yfir. En sem ég rýni dýpra í hvolfið, blikar mér stjarna stök. Síðan er einsog tendrist stjarna af stjörnu, lýsandi vörður leiðina upp — og áleiðis út í ómælið. Ég óska mínum gamla vini góðrar ferðar. Diddu, dætrum og ástvinum öðrum, votta ég dýpstu samúð mína og barna minna. Kristinn Reyr Er ég frétti, að frændi minn og vinur væri allur, fóru ljúfar minn- ingar að hrannast upp í huga mín- um, minningar, sem allar voru fagrar um góðan dreng. A hans yngri árum var hann sá kraftur, sem ungum mönnum þótti æskilegur, hann tengdist fé- lagshópum og stefnum af hugsjón og var þeim trúr til æviloka. Er hér hægt að nefna skátahreyfing- una, leiklist o.fl. Ernir var það skátafélag, sem Helgi tengdist og hann var hinn sanni skáti til æviloka, eins og skátaheitið ber með sér, en jafn- framt var hann stofnandi og aðal- hvatamaður að stofnun Heiðabúa í Keflavík og unni þeim félagsskap og viðgangi hans, jafnframt sem hann var leiðbeinandi foringja- efna. Ég minnist þess hversu líf- legir þeir voru, meðstofnendur hans í Heiðabúum, sem nú reynd- ar eru farnir að týna tölunni. Er þeir fóru helgargönguferðir hér um slóðir komu þeir m.a. við hjá okkur í Hveragerði. Leiklist var Helga S. Jónssyni hjartfólgin og starfaði hann í Reykjavík með Litla leikfélaginu og síðar í Keflavík með Ungmennafélaginu, en þar mun hann hafa verið mjög virkur fé- lagi. Helgi var hagur vel og lék allt í höndum hans, mótaði og málaði fallegar myndir. Var hann einn af þátttakendum sýninga Félags fristundamálara í gamla Lista- mannaskálanum, átti gott bóka- safn og var víðlesinn, sjálfmennt- aður vel, enda skólaganga stutt, ritfær, hafði góða hönd og var vel máli farinn. Heimsóknir mínar til afa og ömmu á Klapparstíg í Keflavík á sínum tíma voru ávallt skemmti- legar, svo og sú aukna ánægja, sem hann veitti okkur öllum bræðrabörnum sínum í heimsókn- um okkar þangað suður. Rætur hans urðu hvað sterkastar í Kefla- vík. Veit ég, að hann unni þeim bæ, en jafnframt átti hann hlýjar tilfinningar til æskustöðvanna í Álftafirði við ísafjarðardjúp. Hin seinni ár voru erfið, en sami eldmóðurinn var í samræðum, sem við áttum og þegar eilífðar- málin bar á góma, kom hin bjarg- fasta trú hans fram. Minningar mínar munu því ávallt verða fagrar um leiðbein- anda og góðan dreng. Megi því all- ar góðar vættir fylgja Helga S. Jónssyni til hins eilífa austurs. Umhyggjusamri eiginkonu, Þór- unni, votta ég samúð mína og minna, svo og börnum og barna- börnum. K.F. Þegar við fluttumst til Keflavík- ur árið 1938 var Helgi S., eins og hann var ávallt kallaður, kominn þangað nokkrum árum áður. Við könnuðumst lítillega við Helga úr Reykjavík, en þekktum hann ekk- ert. Við vorum ekki búin að vera lengi í Keflavík, þegar við vorum leidd í allan sannleika um hver maðurinn væri. Hann var bók- staflega allt í öllu að okkur fannst. Hann var nú fyrir það fyrsta mik- ill listamaður og málaði fjölda mynda og gaf þær flestar. Málverk Hel^a prýða mörg heimili. Ef hann hefði af alvöru helgað sig málaralistinni eingöngu, er ekki að efa að hann hefði orðið stór- kostlegur málari. Hann hélt nokkrar málverkasýningar, en þá alltaf að tilhlutun annarra, því hann var mjög hlédrægur á þessu sviði, taldi að hann málaði sér að- eins til skemmtunar. Skátaforingi var hann í Keflavík og dáðu ungu skátarnir hann mjög og mín börn nutu þar handleiðslu hans í þess- um féiagsskap. Hann starfaði af lífi og sál að leikhússtarfseminni í Keflavík, bæði með börnum og fullorðnum, málaði leiktjöldin, bjó oft til leikritin og lék sjálfur ef svo bar undir. Ef prýða átti bæinn af einhverju tilefni eins og t.d. for- setaheimsóknum, sem voru tvær meðan ég bjó í Keflavík, þá var það auðvitað hann sem sá um all- ar skreytingar. Helgi var fljúg- andi greindur og las mikið, enda átti hann stórt og gott bókasafn. Hann var mikið fyrir fjallgöngur og útivistarferðalög og stundaði slíkt meðan heilsan leyfði. Honum tókst meira að segja einu sinni að fá eiginmann minn, sem annars var ákaflega lítið fyrir fjallgöng- ur, til að fara með sér upp á Keili, eina fagra Jónsmessunótt og fóru þeir fjórir saman og var Kristinn Reyr skáld einn af þeim og orti hann kvæði um þetta skemmtilega ferðalag. Þegar Tónlistarfélag Keflavíkur var stofnað, var hann auðvitað með í því og var frá upp- hafi þar í stjórn. Hann unni öllum fögrum listum. Þegar samkeppni fór fram um bæjarmerki Kefla- víkur, þá tók Helgi þátt í henni, en samkeppnin var leynileg og auð- vitað vann Helgi samkeppnina. Helgi fylgdi Sjálfstæðisflokknum að málum og var oft í gamla daga gaman að vera með Helga á fram- boðsfundum sem tíðkuðust þá. Hann var mjög mælskur og talaði alltaf blaðalaust og oft var gaman að heyra hvað hann gat verið eldfljótur að svara andstæðingun- um, en aldrei ódrengilegur, því það átti hann ekki til. En eitt var það sem Helgi vinur minn tók sér fyrir hendur, þar sem hann var örugglega á rangri hillu og það - var þegar hann fór að versla. Verslunin var auðvitað falleg, en það er nú einu sinni ekki hægt að reka versiun upp á það, að við- skiptavinirnir „borgi bara seinna þegar vel stendur á“, enda hætti hann verslunarrekstri því á hon- um hafði hann engan áhuga. Aldr- ei öll þessi ár sem ég hefi þekkt Helga, hefi ég heyrt hann tala illa um nokkurn mann. Helgi vildi öll- um greiða gera, en krafðist aldrei neins fyrir sjálfan sig. Helgi lagði grunninn ef svo má segja að Byggðasafni Keflavíkur. Hann áttaði sig fljótt á því að vert væri að halda til haga ýmsum gömlum raunum og hafði mikinn áhuga á þeim málum. Það er mikill missir fyrir bæ eins og Keflavík, þegar svona maður hverfur af sjónar- sviðinu. Það er sagt að það komi alltaf maður í manns stað, en ég er ekki viss um að það eigi alltaf við. Helgi var um margt svo sér-1 stæður persónuleiki að mér finnst í huganum hann eiginlega engum vera líkur sem ég hefi kynnst. Ég hugsa að margir taki undir þetta með mér. Helgi bar veikindi sín með sérstakri karlmennsku og vildi sem minnst um þau tala. Ef hann var spurður hvernig honum liði, þá leið honum alltaf ágætlega þó vitað væri að hann var sárþjáð- ur. Þórunn kona hans hefur líka svo sannarlega staðið við hliðina á honum í þessum veikindum og gert allt sem í hennar valdi stóð til að honum liði betur. Helgi og Alfreð eiginmaður minn voru ákaflega góðir vinir og unnu mikið saman í Sjálfstæðisfélaginu og Rotaryklúbbnum. Það er óhætt að segja að við hjónin áttum góða og trausta vini þar sem Helgi og Þór- unn voru. En það er svona eins og hann sagði sjálfur við son minn, þegar hann heimsótti hann á sjúkrahús- ið fyrir nokkrum dögum: Þú veist ég er forlagatrúar og stundin er komin. Ég og börn mín og tengdabörn sendum Þórunni vinkonu minni og allri fjölskyldunni innilegar sam- úðarkveðjur. Vigdís Jakobsdóttir t Jaröarför eiginkonu minnar, INGIGERDAR GUDNADÓTTUR, Logalandi 8, fer fram frá Bústaöakirkju fimmtudaginn 30. desember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameinsfélag Islands. Bjarni Þjóöleifsson. Skrifstofur vorar verða lokaðar fimmtudaginn 30. desember vegna útfarar AGNARS KOFOED-HANSEN flugmálastjóra. Flugmálastjórn. t Utför sonar míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, HAFSTEINS AXELSSONAR, Holtsgötu 18, Njarövík, sem lóst 24. desember, fer fram fimmtudaginn 30. desember kl. 14.00 frá Ytri-Njarðvíkurkirkju. Ingunn Ingvarsdóttir, Baldur Matthíasson, Hilmar Hafsteinsson, Guörún Hafsteinsdóttir, Elsa Hafsteinsdóttir, Ingunn Hafsteinsdóttir, Hafdís Hafsteinsdóttir, Sigurjón Hafsteinsson, Matthildur Hafsteinsdóttir og barnabörn. Margrét Bergsdóttir, Svala Sveinsdóttir, Edward G. Moore, Gunnar Sigurösson, Hreinn Guömundsson, Minningarspjöld Bygging- arsjóðs Listasafns Islands fást í skrifstofu safnsins, Bókabúö Máls og menning- ar, Laugavegi 18, og Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar, Austurstræti 18. Listasafn íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.