Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
7. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Milljónir
ítala lögðu
niður vinnu
í 2 klst.
Mílanó, 10. janúar. Vl'.
MILLJÓNIR italskra verkamanna
lögðu niður vinnu í 2 klukkustundir
í gær til að lýsa vanþóknun sinni á
fjármála- og efnahagsstefnu hinnar
mánaöargömlu samsteypustjórnar
Amintore Fanfani. Verkamennirnir
lögðu niður vinnu i trássi við óskir
verkalýðsleiötoga sinna og þótt flest-
ir héldu sig á vinnustöðum sínum
meðan á skyndiverkfallinu stóð,
fóru aðrir í kröfugöngur og trufluðu
umferðar- og lestarsamgöngur. Að-
gerðir þessar fóru fram aðeins þrem-
ur dögum eftir mjög viðtækar og
ófriölegar aðgerðir sem voru af
sama toga spunnar.
Efnahagsaðgerðirnar sem um
ræðir eru fólgnar í því að stjórnin
ákvað að ná inn upphæð sem nem-
ur 7,7 milljörðum dollara með nýj-
um skattakvöðum. Þá lagði stjórn
Fanfanis fram ýmsar aðgerðir til
að draga úr einkaneyslu í landinu.
Aðgerðir stjórnarinnar miða að
því að ná verðbólgunni niður í 13
prósent á hinu nýhafna ári, en ár-
ið 1982 var verðbólgan í landinu
16,3 prósent. Methalli var á ríkis-
fjárlögum Ítalíu á síðasta ári,
hallinn nam 49,6 milljörðum doll-
ara.
Mótmælaaldan var ekki ákveðin
fyrirfram, heldur tóku verka-
mennirnir sig sjálfir saman og
efndu til mótmælanna. Verka-
lýðsleiðtogar reyndu að fá verka-
mennina ofan af aðgerðum sínum,
til dæmis tilkynnti ítalski Komm-
únistaflokkurinn sérstaklega að
hann ætti engan þátt í mótmælun-
um. Sá flokkur stendur á bak við
eitt af þrejnur stærstu verkalýðs-
félögum landsins. Talsmaður
Kommúnistaflokksins sagði hins
vegar: „Vaxandi reiði almennings
er eðlileg og við þurfum ekki að
beita okkur fyrir henni." Flokkur-
inn lá undir grun um að hafa
stuðlað að aðgerðunum til að
grafa undan fjögurra flokka
samsteypustjórn Fanfanis.
Er áttaviti
í nefinu?
I/ondon, 10. jan. Al’.
ÞRÍR vísindamenn viö Háskól-
ann í Manchester telja, að mað-
urinn hafi prýðilegan áttavita
innbyggðan í nefinu, en vegna
breytinga á lifnaðarháttum hafi
hann gleymt hvernig nota á fyrir-
bærið. Ýmis dýr önnur, svo sem
dúfur og höfrungar hafa þróaða
seguláttavita í vitum sínum sem
þau nota óspart.
Þefvísi og áttaöryggi margra
frumstæðra þjóðflokka og
eyðimerkurbúa bendir til til-
vistar innbyggðra áttavita og
til þess að sanna mál sitt, tóku
vísindamennirnir þrír 7 höfuð-
kúpur og möluðu þær mélinu
smærra. Því næst var raf-
skauti komið fyrir í duftinu og
það svo fjarlægt til þess að sá
hvort segulmagnið ykist eða
ekki. í ljós kom, að fimm haus-
kúpur voru mjög segulmagn-
aðar í kring um nefgöngin.
Járn er í blóðinu og því er það
skoðun umræddra vísinda-
manna, að nefsegullinn fái
járn sitt úr blóðinu.
AP.
Thatcher vel fagnað
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Breta, kom óvænt til Falklandseyja sl. laugardag og var henni innilega fagnað af íbúum höfuðstaðarins, Port
Stanley. Hér tekur hún við hvítri rós frá 12 ára gamalli stúlku, Carol Eynon að nafni. Sjá „Thatcher ákaft fagnað ...“ á bls. 18.
Líkur á
Arafats
Amman, Khaldc, 10. janúar. Al*.
JÓRDANÍUMENN og fulltrúar PLO, Frelsisfylkingar Palestínumanna, eru nú
sagðir vera að ná samkomulagi um sameiginlega sendinefnd í væntanlegum
viðra'ðum um frið í Miðausturlöndum en Arafat, leiötogi PLO, er nú í Amman
til viðræðna við Hussein Jórdaníukonung. Samningamönnum Bandarikjanna,
Israels og Libanon mistókst í dag enn einu sinni að ná saman um dagskrá
viðræðufundanna um brottflutning erlends herliðs frá Líbanon en Bandaríkja-
menn ætla að leggja fram nýja málamiðlunartillögu.
samkomulagi
og Husseins
Arafat og Hussein áttu með sér
fund í gær, sunnudag, og annan í
dag og er haft eftir áreiðanlegum
heimildum, að þeir hafi komið sér
ásamt um sameiginlega stefnu í
væntanlegum viðræðum um fram-
tíð Vesturbakkans og Gazasvæðis-
ins. Ekki er þó búist við tilkynningu
um þetta samkomulag að sinni og
ekki fyrr en eftir skyndifund þjóð-
arráðs Palestínumanna í Alsírbórg
14. febrúar nk. Meginefni sam-
komulagsins mun vera byggt á til-
lögum Reagans Bandaríkjaforseta
um sjálfsstjórn Palestínumanna á
Vesturbakka og í Gaza gegn viður-
kenningu þeirra á ísrael. í dag
kvaðst einn helsti leiðtogi Palest-
ínumanna á Vesturbakkanum vera
fús til að taka höndum saman við
Hussein í friðarviðræðum við ísra-
ela „að fengnu samþykki PLO“.
Ekki tókst í dag samkomulag um
dagskrá fundanna um brottflutning
erlends herliðs frá Líbanon og er
ekki vitað hvorir höfnuðu mála-
miðlun Bandaríkjamanna, Líbanir
eða ísraelar. Bandaríkjamenn eru
tilbúnir með nýja sáttatillögu og
munu fulltrúar þjóðanna taka af-
stöðu til hennar á sjötta fundinum
nk. fimmtudag.
í dag var allt kyrrt í hafnarborg-
inni Trípólí, í fyrsta sinn í tvo mán-
uði, og höfðu palestínskir skærulið-
ar gengið á milli vígamannanna,
sem hvorirtveggju eru múhameðs-
trúarmenn. Er önnur fylkingin and-
víg Sýrlendingum en hin þeim með-
mælt.
Fyrstu fjárlög Palme-stjórnarinnar:
„Þriðja leiðin“ farin
við fjárlagagerðina
111 ianúar \ 1» ^ *
Siokkhólmi, 10. janúar AP.
RÍKISSTJÓRN Olofs I’alme lagði í dag fram sitt fyrsta fjárlagafrumvarp og er
gert ráð fvrir, að hallinn á þeim nemi la-pum þriðjungi fjárlagauppha'ðarinnar. Að
sögn stjórnarinnar var farin „þriðja leiðin" við gerð fjárlaganna en þau eru
samhland af ströngum aðhaldsaðgerðum og eyðslu að öðru leyti.
Sænska stjórnin stefnir að því að
takmarka einkaneyslu, hafa taum-
hald á fjárlagahallanum og auka
samtímis því fjárfestingu í landinu,
iðnframleiðslu og atvinnu. I tilkynn-
ingu fjármálaráðuneytisins sagði, að
við fjárlagagerð hefðu einkum tvær
leiðir verið farnar að undanförnu.
Þensla að dæmi Frakka eða niður-
skurður og strangt aðhald eins og í
Bretlandi og Bandaríkjunum. Sagði í
tilkynningunni, að báðar þessar leið-
ir væru ófullnægjandi og því hefði
„þriðja leiöin" verið valin. Eftir
henni myndi sænska þjóðin komast
út úr kreppunni með sparnaði og
skynsamlegum vinnubrögðum.
I fjárlögunum er gert ráð fyrir, að
útgjöld ríkisins verði 294,3 milljarð-
ar skr. en tekjurnar 204,1 milljarður.
Hallinn er 90,2 millj. og fer rúmlega
helmingur hans til greiðslu afborg-
ana og vaxta af þjóðarskuldinni, 377
milljörðum skr., en af henni eru 72
milljarðar erlend lán. Afborganir og
ve.xtir eru 56,5 milljarðar skr. eða
meira en allur tekjuskattur sænska
ríkisins, skattar af bensíni, tóbaki og
áfengi.
Talið er, að kaupmáttur launa
muni minnka um 4%, einkaneyslan
um 2,5% og að atvinnuleysið verði
áfram 3,2%. Verðbólgan er sögð
munu verða um 11,5%, var 10% á
síðasta ári, en því er spáð, að þjóðar-
framleiðslan muni aukast um 1,4%.
Engar félagslegar umbætur er að
finna í fjárlagafrumvarpinu, sem er
nýlunda hjá sænskum jafnaðar-
Kyrrt var í líbönsku borginni
Trípólí í gær en þar hafa verið
stanslaus vígaferli í tvo mánuði.
Um 200 manns hafa látist í þeim.
Það eru múhameðstrúarmenn
sem borist hafa á banaspjót,
stuðningsmenn Sýrlendinga og
andstæðingar þeirra.
AP.