Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 Greiöslufyrirkomulag gatnagerðargjalda lóða við Grafarvog: 47% vextir greiðast af eftirstöðvum gjaldanna Tillögu Alþýðuflokks um verðtryggingu eftirstöðva vísað frá „TILLAGA borgarstjóra, sem borg- arstjórn hefur samþykkt um greiðslufyrirkomulag gatnageróar- gjalda, gerir ráó fyrir að þeir úthlut- unarhafar, sem úthlutun fá 1983 á lóðum sem verða til afhendingar 1984 og 1985, greiði hæstu lögleyfðu skuldabréfavexti af seinni hlutum gatnagerðargjaldanna. Þessir vextir eru nú um 47% á ári, sem er mun lægra en almennar verðbólguspár," segir í frávísunartillögu meirihluta borgarstjórnar, við tillögu Sigurðar E. Guðmundssonar borgarfulltrúa 63.233 lestir bárust á land í Eyjum 1982 Veslmannaeyjum. 10. janúar. Heildarsjávarafli lagður á land í Vestmannaeyjum á síðasta ári nam 63.233 lestum, en það er um 58 þús- und lestum minni afli en árið 1981. Þennan mikla mun má alfarið rekja til loðnubrestsins, því að árið 1981 var landað hér rösklega 66 þúsund lestum af loðnu, en aðeins 4 þúsund lestum árið 1982. Afli síðasta árs skiptist annars þannig, að bátar lönduðu alls 44.976 lestum en togarar 14.002 lestum. Bátaaflinn er rúmum 4 þúsund lestum meiri en 1981, en togaraaflinn 480 lestum minni, miðað við óslægðan fisk. Hlutfall þorsks í aflanum minnkaði um 27% miðað við 1981. Fjórir togarar eru gerðir út frá Eyjum. Þeirra aflahæstur varð Breki með 4.4435,6 lestir. Afla- verðmæti var 25 milljónir. Sindri fékk 3.741,6 lestir og aflaverðmæti 17.7 milljónir. Klakkur fékk 3.257.7 lestir og aflaverðmæti 15,7 milljónir og Vestmannaey fékk 3.251,3 lestir og var aflaverðmætið 17,2 milljónir. Gæftir hafa verið afleitar það sem af er þessu ári, en þó höfðu sex bátar lagt netin nú fyrir helg- ina. Afli hefur verið tregur þá sjaldan þeir hafa getað vitjað um netin. Þrír togaranna fóru til veiða strax eftir áramótin, en hafa lítið getað athafnað sig vegna veð- urs. Breki landaði hér í dag 80 lestum eftir viku veiðiferð. Fjórði togarinn, Klakkur, hefur verið frá veiðum frá miðjum desember vegna bilunar í spili. — Hermann Alþýðuflokksins, en tillaga Sigurðar var þess efnis að gatnagerðargjöld lóða, sem úthlutaö verður á þessu ári, en afhendast árið 1984 eða 1985, skuli vera vísitölubundin og taki auk þess vexti. Tillaga Sigurðar E. Guðmunds- sonar kom til atkvæða við síðari umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, en hún var samþykkt snemma á föstudags- morgun. í frávísunartillöginni segir ennfremur, að greiðslufyrirkomu- lag það, sem samþykkt hafi verið, sé hvetjandi, þar sem úthlutun- arhafar greiði í raun lægri gatna- gerðargjöld en gjaldskrá segir til um. Því feli tillaga borgarfulltrúa Alþýðuflokksins það í sér, að um- sóknir væntanlegra lóðarhafa framreiknist með vöxtum og verð- bótum til afhendingartíma lóð- anna. Við þær aðstæður væri heppilegra fyrir lóðarhafa að skila inn lóðinni, fá aðra lóð gegn stað- greiðslu og hirða mismuninn. Til- lagan sé spor aftur á bak og því vísað frá. Ljósm. Ól.K.M. Flotaforingi NATO í Reykjavík Wesley McDonald, aðmíráll, yfirmaður Atlantshafsherstjórnar NATO, dvaldist hér á landi í gær. Aðmírállinn er nýtekinn við störfum í höfuðstöðvum Atlantshafsherstjórnarinnar í Norfolk í Bandaríkjunum. Á meðan á dvöl hans stóð ræddi hann meðal annars við Olaf Jóhann- esson, utanríkisráðherra, og var myndin tekin af þeim í Ráðherra- bústaðnum við Tjarnargötu. Niðurskurði fjárveitingar til tækjakaupa Borgarspítalans mótmælt: Ríkið skuldar borginni tugi milljóna vegna framkvæmda og tækjakaupa Hætta á flóð- um þegar hlánar EF hlánar skyndilega þá getur skapast hætta á flóðum, því nú eru óvenju mikil snjóalög. Rétt er að benda fólki á að hreinsa niðurfoll hjá húsum sínum og fylgjast með því að þau haldist opin ef að hlánar. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið aflaði sér, þá nær húseigendatrygging og heimilistrygging ekki yfir tjón af völdum vatns, sem kemur utan frá og ekki er vitað til að hægt sé að tryggja sig fyrir tjóni af þessu tagi. — segir Davíð Oddsson „VIÐ teljum engan vafa leika á í þeim efnum, að ríkið á að greiða helming kostnaðar við tækjakaup Borgarspítalans á móti borginni lögum samkvæmt, en það hefur ríkið ekki gert. Reyndar skuldar ríkið Reykjavíkurborg, vegna Borgarspítalans, stórkostlegar fjáruppæðir og ef Grensásdeild Borgarspítalans er þar talin með, þá nemur skuld ríkisins tugum milljóna," sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið, en borgarstjórn samþykkti að fjárframlag til tækjakaupa fyrir Borgarspítalann yrði 8,3 milljónir i ár í stað 18,6 milljóna, eins og lagt hafði verið til. Í bréfi sem yfirlæknar Borgar- spítalans rituðu borgarstjórn fyrir afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlun- ar segir, að þeir hafi lagt til að lágmarksupphæð til viðhalds og kaupa á tækjum fyrir spítalann yrði 18,6 milljónir króna. Tækja- kaupanefnd Borgarspítalans hefði komist að sömu niðurstöðu og til- laga þar um hefði síðan verið sam- þykkt í stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar. Læknarnir lýsa furðu sinni á niðurskurði borgarstjórnar á þessum lið og telja að með því sé starfsemi spít- alans stefnt í hættu. Einnig benda þeir á, að á síðasta ári hafi 7 millj- ónir runnið til tækjakaupa. Stór hluti tækja sé keyptur á dollara- verði, sem hafi hækkað um meira en 100% á tímabilinu og sýni þessi gengisþróun hversu niðurskurðurinn sé. háskalegur Davíð Oddsson gat þess, að skuld ríkisins kæmi til bæði vegna 85% reglunnar svokölluðu, en ríkinu ber að greiða 85% byggingarkostnaðar við sjúkrastofnanir, en einnig væri um talsverða skuld að ræða varð- andi kaup á tækjum. Því væri hag- ur Borgarspítalans þrengri en ella væri. Þær 8,3 milljónir sem veitt væri til tækjakaupa á núverandi fjárhagsáætlun væru framlag borgarinnar einnar, framlag frá ríkisvaldinu kæmi þar ekki á móti eins og lög kvæðu á um. Davíð var spurður um þá skoðun sem fram hefur komið, að borgin gæti gefið fé til líknarfélaga, sem síðan gætu keypt tæki fyrir spítal- ann og komist þar með hjá að greiða opinber gjöld af tækjunum, en samkvæmt núverandi kerfi tek- ur hið opinbera talsverðan hluta Færð víðast að batna nema á Vestfjörðum Margeir varö annar í Hamar MARGEIR Pétursson hafnaði í 2/3 sæti ásamt Kudrin hinum landflótta Sovétmanni, sem nú býr í Bandaríkjunum, á alþjóðlegu skákmóti í Hamar í Noregi og lauk um helgina. Þeir hlutu 6'/a vinning í 9 umferðum en DeFirmi- an sigraði, hlaut 7' 2 vinning. Margeir vann Norðmanninn Bjerke í 8. umferð og gerði jafntcfli við Ilavis, Englandi í siðustu umferð. Karl Þorsteins hlaut 5 vinninga og náði með því FIDE—áfanga. Sævar Bjarnason hlaut 4 vinninga í mótinu. Um helgina hófst svo al- þjóðlegt skákmót í Gausdal í Nor- egi og eru þeir Margeir, Karl og Sævar meðal þáttakenda ásamt Guðmundi Sigurjónssyni. Þremur umferðum er lokið og hafa úrslit orðið: Guðmundur Sig- urjónsson gerði jafntefli við Wed- berg og Helmers og á biðskák við Hawksworth frá Englandi. Mar- geir vann Bletz frá V—Þýzkalandi í 1. umferð og á betri biðskákir gegn Westerinen, Finnlandi og Kristiansen, Noregi. Sævar Bjarnason gerði jafntefli við Davis, Englandi, Wedberg Sví- þjóð og Donaldsson, Bandaríkjun- um og Karl Þorsteins vann Schol- seth og Bjerke frá Noregi en tap- aði fyrir Kudrin, Bandaríkjunum. í GÆRKVELDI var góð færð um Reykjanesbraut suður til Keflavík- ur og annarra staða á Suðurnesj- um, samkvæmt upplýsingum er Morgunblaðið fékk hjá vegaeftirliti Vegagerðar ríkisins. Þá var einnig góð færð frá Reykjavík austur í Árnessýslu um Þrengsli og þaðan allt til Víkur í Mýrdal. Frá Vík var stórum bílum og jeppum fært allt til Hafnar í Hornafirði. Sæmileg færð var um HvaL fjörð og til Akraness og Borgar- ness og í dag á að moka veginn norður til Akureyrar, Siglufjarð- ar og Hólmavíkur og á Snæ- fellsnesi og um Dali vestur í Reykhólasveit. í dag á einnig að moka í uppsveitum Árnessýslu og vegi austur á Austfirði. Oddsskarð verður einnig mokað í dag, en Fjarðarheiði og Fagridal- ur voru mokuð í gær. Frá Akureyri var í gær ágæt færð austur um Dalsmynni til Húsavíkur og þaðan í Mý- vatnssveit og um Tjörnes til Raufarhafnar. Á Vestfjörðum voru vegirnir milli Bolungarvíkur og ísafjarð- ar og Súðavíkur opnaðir í gær- morgun, en vegir milli allra ann- arra þéttbýlisstaða eru enn lok- aðir. fjárins í opinberum gjöldum. Davíð sagðist ekki hafa hugleitt þá skoð- un, en hún sýndi glöggt hverskonar skrípaleik um væri að ræða, ef menn þyrftu að fara þannig að. Lítið flogið INNANLANDSFLUG til og frá Reykjavík lá að mestu niðri í gær vegna veðurs, en millilandaflug gekk vel ef undan eru skildar tafir, sem urðu vegna þess að rútum úr Reykjavík sóttist ferðin til Keflavík- urflugvallar seint. Flugleiðum tókst að fara eina ferð til Egilsstaða í gær en vél sem hélt til ísafjarðar varð að snúa við þar sem ekki tókst að lenda vestra. Til stóð að fljúga á Boeing-þotum milli Keflavíkur og Akureyrar, en veður leyfði það ekki. Arnarflugi tókst að fljúga til Siglufjarðar og Stykkishólms í gær. Veðurspá var örlítið hagstæðari flugi í gærkvöldi og því búist við að takast mætti að fljúga eitthvað á flugleiðum innanlands í dag. Féll í höfnina á Flateyri: „Ég var ekki feig- ur í þetta sinn“ „ÉG VAR á leið út í bátinn, sem lá við legufæri um 10 faðma frá landi. Fór á bátskænu út, cn ekki tókst betur til en svo, að kænunni hvolfdi og ég steyptist í sjóinn. Ég hóf þegar að krafla mig í land — rekís var í höfninni og sjór kaldur. Mér tókst að komast að kantinum, sem er rúmlega tveggja metra hár og klifra upp. Ég var orðinn örmagna af þreytu þegar ég loks komst á þurrt,“ sagði Aðalsteinn Guðmundsson, 46 ára, útgerðarmaður á Flateyri, í samtali við Mbl. en hann sýndi mikla karlmennsku eflir að hafa fallið í höfnina á fimmtudagsmorgun, Tókst að krafla sig í land og ganga heim til sín í erfiðri færð. „Enginn var sjáanlegur. Mín fyrsta hugsun eftir að vera kom- inn á þurrt var að hvíla mig en ég féll ekki í þá freistni. Annaðhvort var aö duga eða drepast og halda heim. Allt var á kafi í snjó og færð erfið. Mér tókst að komast heim en var þá orðinn helvíti slæptur. Ekki þurr þráður á mér og stígvélin full af sjó og kalt úti. Ég held að allir geti verið sam- mála um, að betur fór en á horfð- ist. Segja má, að ég hafi ekki verið feigur í þetta sinn,“ sagði Aðal- steinn Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.