Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 Unnið að byggingu skrifstofu sýslumanns Flskifirði, 4. janúar. ÞAÐ ER fremur sjaldgæft ad unn- ið sé við að steypa hús hér á miðj- um vetri. Nú er unnið við byggingu á nýjum embættisbústað sýslu- mannsembættis S-Múlasýslu hér á Eskifirði. Byrjað var á húsinu síð- astliðiö haust og seinasta steypu- vinnan var núna rétt fyrir jól. Hús- iö, sem kemur í stað gamals timb- urhúss, stendur í hjarta bæjarins við Strandgötu og í því veröa skrifstofur sýslumannsembættis- ins, lögreglustöð, fangageymslur og fleira. Byggingunni á að vera lokið haustið 1983. Ævar Varði doktorsrit- gerð í veirufræði HINN 16. desember sl., varði Ari K. Sæmundsen doktorsritgerð sína i veirufræði við Karolinska Institutet i Stokkhólmi. Ritgerðin nefnist „Ac- tivation of Epstein-Barr virus in vivo and in vitro“ og fjallar í stórum dráttum um samskipti Epstein-Barr veirunnar (EBV) og hýsilfrumu hennar. Náttúrulegar hýsilfrumur EBV eru hvítar blóðfrumur, svokallað- ar B-frumur. Flestir sýkjast ungir að aldri án nokkurra sjúkdóms- einkenna. Sýkist fólk hinsvegar seint á gelgjuskeiðinu eða á full- orðinsárum, þá getur veiran vald- ið svokallaðri kirtlaveiki (infect- ious mononucleosis). Eftir frum- sýkingu er erfðaefni veirunnar til staðar í sýktum B-frumum, en framleiðsla veiru á sér ekki stað. Talið er að ónæmiskerfið, sér- staklega hið frumubundna, haldi veirunni í skefjum. Fólk með vissa meðfædda erfðagalla í ónæmis- kerfinu eða hvers ónæmiskerfi er hamið með lyfjum, t.d. vegna líf- færaflutninga, hefur meiri líkur á að fá illkynja sjúkdóma (lymph- oproliferative diseases/malignant lymphomas (LD/ML) en annars. Margir þessara sjúkdóma stafa af hröðum, óviðráðanlegum vexti B-frumna. Frumurnar hafa um- breyst (transformed) í illkynja frumur, og er talið, að EBV eigi þar hlut að máli, en veiran um- breytir auðveldlega B-frumum í frumuræktunum. Fyrri hluti ritgerðarinnar fjall- ar um aðferðir til að nema erfða- efni EBV í vefjasýnum úr sjúkl- ingum með LD/ML. Niðurstöðurn- ar styrkja þá tilgátu að EBV geti verið orsakavaldur þessara sjúk- dóma. Ýmis efni (inducers) eru notuð til að hvetja framleiðslu veiru í frumuræktunum, þar sem veiru- framleiðsla á sér venjulega ekki stað, eða í mjög litlum mæli. Seinni hluti ritgerðarinnar fjallar um rannsóknir á lífsferli veirunn- ar í frumuræktunum og hvernig hvatar hafa áhrif á frumurnar, þannig að þær verða viðkvæmari fyrir sýkingu. Ari K. Sæmundsen er fæddur í Reykjavík 30. mars 1951, sonur hjónanna Péturs heitins Sæm- undsen bankastjóra og Guðrúnar HAPPDRÆTTISÍBS: Drsettí frestað vegna ófazrðar VH) DRÖGUM FIMMTlíDAG 13.JANUAR! Héma kaupirþú tniða í Reykjavik og nágrenní Athugaðu að vinningum hefur nú verið fjölgað í Happdrætti SÍBS. Hver miði kostar 50 kr. en kaupirðu ársmiða sparar þú ómælda fyrirhöfn. Snúðu þértil þessara aðila: Aðalumboð, Suðurgötu 10, sími 23130. Halldóra Ólafsdóttir, Grettisgötu 26, sími 13665. Sjóbúðin, Grandagarði 7, sími 16814 Hreyfill bensínsala, Fellsmúla 24, sími 85632. Versl. Straumnes, Vesturbergi 76, sími 72800. S. í. B. S.-deildin, Reykjalundi, Mosfellssveit. Borgarbúðin, Hófgerði 30, sími 40180. HAPPDRÆTTi SÍBS Meira en fjórði hver miði hlýtur vinning. Bókabúðin Gríma, Garðaflöt 16-18, Garðabæ, sími 42720. Vilborg Sigurjónsdóttir c/o Bókabúð, Olivers Steins, Strandgötu 31, Hafnarfirði, sími 50045. Lilja Sörladóttir, Túngötu 13, Bessastaðahreppi, sími 54163. Dr. Ari K. Sæmundsen Sæmundsen. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1971, og B.Sc. prófi í líffræði frá Háskóla íslands 1974. Að loknu B.Sc. námi starfaði hann m.a. undir handleiðslu Margrétar Guðnadóttur prófessors við Rann- sóknarstofu Háskólans í veiru- fræði. Árið 1976 hóf hann nám við Virginia Polytechnic Institute & State University og lauk þaðan M.Sc. prófi í örverufræði, með veirufræði sem aðalgrein, 1978. Hann hélt síðan til Stokkhólms, þar sem hann hefur unnið að dokt- orsverkefni undir handleiðslu Dr. Georg Klein við Institutionen för Tumbörbiologi, Karolinska Institutét. Ari er tvíkvæntur Sigríði Á. Skúladóttur og eiga þau tvö börn. Tólf ára enskur piltur með marg- vísleg áhugamál óskar að skrifast á við pilta á sínu reki: Richard Schneider, 71 Redway Drive, Whitton, Middlesex, England TW2 7NN. Þrettán ára stúlka í Ghana með áhuga á tónlist, íþróttum, ljós- myndun og póstkortasöfnun: Jemimah Mercer Ricketts, P.O.Box 38, Cape Coast, Ghana. Þrítugur karlmaður í Óman, er safnar frímerkjum, mynt, pen- ingaseðlum, fyrstadagsumslögum, og hefur mikinn áhuga á bréfa- skriftum og tónlist, óskar að skrif- ast á við fólk á öllum aldri: Domnic D’souza, P.O.Box 3580, Ruwi, Sultanate of Oman. Þrettán ára sænsk stúlka með áhuga á hestum, skíðaíþróttum og teiknun: Maria Granberg, Blomsterkungsv. 140, 162 43 Vállingby, Sweden. Nítján ára nýsjálensk stúlka, sem safnar frímerkjum og póstkortum, og hefur áhuga á tónlist, íþróttum og garðyrkju: Sharon Burnett, 23 Sawyers Arms Road, Papanui, Christchurch 5, New Zealand. Nítján ára piltur í Ghana með íþróttaáhuga: Kwesi Vasco Hayford, Ekwamasi Methodist Mission, Box 2, Abeadzi-Dominase, Via Saltpond clr, Ghana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.