Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 Skólahald liggur ennþá niðri í Lauga- gerðisskóla llorg, Miklahollshreppi, 10. janúar. EKKI viröist vera lát á veðurofsan- um ennþá. Þótt upp rofni smástund, þá er það bara hlé meöan veðurátt er að breytast, það virðist koma stormur og úrkoma úr öllum áttum á hverjum einasta sólarhring. Allar leiðir eru ófærar, því alltaf bætir við hvern dag. Ekki hefur skólahald í Lauga- gerðisskóla getað hafist ennþá vegna samgönguerfiðleika og veð- urvonsku. Á föstudag var sótt mjólk frá Borgarnesi og komið með vörur af mikilli hörku og dugnaði bílstjóranna. Var brotist á marga bæi og komu þeir ekki úr þeirri ferð fyrr en seint á laug- ardag. Á laugardag tókst að koma á símasambandi í Staðarsveit. Það voru sendir menn frá Borgarnesi og unnu þeir við það verk við afar erfiðar aðstæður. Einnig hafa áætlunarbifreiðir frá Reykjavík ekki getað komist vegna ófærðar. Sem betur fer hafa engin slys orðið hér og heilsufar fólks og fénaðar í bezta lagi. PáH. Um áramótin voru að venju upplýst ártöl í hlíð Geirseyrarmúla við Patreksfjörð. Morgunbladid/ Jón Pétursson. íslenzkur hjúkrunar- fræðingur til Thailands Nýtt flutninga- fyrirtæki stofn- að í Siglufiröi Siglufirdi, 10. janúar. STOFNAÐ hefur verið hér í Siglu- firði flutningafyrirtækið Siglu- fjarðarleið hf., en það eru vöru- bifreiðastjórarnir Sigurður Hilm- arsson og Hilmar Sigursteinsson, tveir ungir menn, sem stofnuðu fyrirtækið nú um helgina. í raun og veru er hér um sam- runa tveggja vöruflutningafyr- irtækja að ræða. Hefur hið nýja fyrirtæki yfir þremur vöru- flutningabílum að ráða, og verð- ur afgreiðslustaður þeirra í Reykjavík hjá Vöruflutninga- miðstöðinni í Borgartúni. Fyrirhugaðar eru tvær viku- legar ferðir til Reykjavíkur yfir vetrarmánuðina, en auk þess eftir því sem til fellur hverju sinni. Frél larilari. FIMMTUDAGINN 6. janúar barst Rauða krossi íslands beiðni frá Al- þjóða Kauða krossinum um að senda hjúkrunarfræöing til Thai- lands til að starfa þar með norræn- um læknahópi. Hildur Nielsen hjúkrunarfræðingur var ráðin til fararinnar. Hún var lögð af stað til Thaiiands á laugardagsmorgun, tveimur sólarhringum eftir að beiðnin barst. Frá þessu er sagt í fréttatil- kynningu frá Rauða krossi ís- lands. Ennfremur segir: „I Thailandi ríkir nú neyðar- ástand af völdum ófriðar. Sem dæmi um það má nefna að starfshópur lækna og hjúkrunar- fræðinga, sem verið hefur í land- inu að undanförnu á vegum Al- þjóða Rauða krossins, gerði á einni viku að meiðslum 200 manns sem særst höfðu í átök- um. Hildur Nielsen starfaði áður fyrir þremur árum um þriggja mánaða skeið í Thailandi á veg- um Rauða krossins. Á síðasta ári barst Alþjóða Rauða krossinum 26 sinnum beiðni um aðstoð vegna neyðar- ástands víða um heim. Rauða krossinum hafa aldrei fyrr borist á einu ári jafnmargar beiðnir af þessu tagi. Oftast var óskað aðstoðar vegna náttúruhamfara eða hung- ursneyðar af völdum þurrka en einnig var beðið um hjálp vegna flóttamanna, bæði þeirra sem hafa flúið land og annarra sem hyggjast snúa aftur til heim- kynna sinna. Hildur Nielsen Athugasemd við frétt um atvinnuleysi á Fáskrúðsfirði fiskiskipin hætta veiðum rétt fyrir jól og fara ekki aftur á veiðar fyrr en eftir áramót. Kemur af þessum sökum nokkur frítími hjá verka- fólki og sjómönnum á Fáskrúðs- firði um jól og áramót. Þessi stöðvun um jólin hefur mælst mjög vel fyrir hjá fólkinu, en hér er atvinna ekki stöðvuð í annan tíma á árinu. En ekki sitja allir auðum höndum um þennan tíma því þessir dagar eru rækilega nýttir í viðhald á atvinnutækjun- um, svo sem í vélarupptektir og málningu á húsum og skipum o.fl. Þeir 84 sem skráðir voru atvinnu- Ærkjötið kom- ið til Póllands TVÖHUNDRUÐ tonnum af ær- kjöti var í gær skipað upp úr Bæjar- fossi í Gedynia, en kjöt þetta er gjöf til Pólverja á vegum Hjálparstofnun- ar kirkjunnar í samvinnu við land- bú<iaðaráðuneytið, ASÍ, Kaþólsku kirkjuna og Rauða krossinn. Frá þessu er skýrt í fréttatilkynningu frá Hjálparsofnun kirkjunnar, sem Morgunblaðinu barst í gær. Þar segir ennfremur: „Kjötinu verður dreift vítt um landið til þurfandi fólks þar. Um næstu mánaðarmót er ákveðið að 100 tonn fari til viðbótar, og í febrú- ar fari um 55 tonn af síld, en fyrir síldina greiðir Alkirkjuráðið, en það greiðir einnig fyrir flutningana á kjötinu. Þess skal getið, að Reykvísk endurtrygging hefur gefið tryggingar vegna flutnings á kjötinu. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Gísla Jónatanssyni, kaupfélagsstjóra á Fáskrúðsfirði, við frétt frá fréttarit- ara blaðsins um atvinnuástandið þar í bæ í síðustu viku: „Ég undirritaður leyfi mér að gera eftirfarandi athugasemd við frétt sem birtist í Morgunblaðinu þann 6. janúar um atvinnuleysi á Fáskrúðsfirði. Greinin ber yfir- skriftina „84 skráðir atvinnulausir í jólamánuði". Það hefur verið hefð á Fáskrúðsfirði í mörg ár, að Húsavík: „Gaf engin loforð um kaup og kjör“ — segir umboösmaöur Búlandstinds í Kanada „ÞAÐ ER rangt að ég hafi gefið einhver loforð varöandi kaup og kjör, eins og haldið hefur verið fram. Ég boðaði þetta fólk á sínum tíma heim til mín og skýrði frá hvað tekjurnar væru og hverju þær samsvöruðu í dollurum, en í millitíðinni hafa gengisbreytingar raskað hlutfallinu. Einn- ig sagöi ég frá hver aðbúnaðurinn á Djúpavogi væri. Það vil ég að komi skýrt fram, að ég lofaöi ekki einu eða neinu varðandi kaup og kjör, enda hafði ég enga heimild til þess,“ sagði Garðar Garðarsson í Stonewall Manitoba í Kanada í samtali við Morgunblaðið, en hann hafði milligöngu við ráðningu Kanadamannanna til Búlandstinds á Djúpavogi. „Ég viðurkenni að það var ekkert mál og hlutirnir færðir úr slæmt að hafa ekki meiri gögn lagi,“ sagði Garðar. handa á milli um hvernig staðið skyldi að ráðningu útlendra verkamanna til landsins. En þeir sem eru á Djúpavogi eru þar hæstánægðir og aðbúnaðurinn er góður. Mér sýnist allt til fyrirmyndar hjá Búlandstindi. Þetta er leiðindamál allt saman og þykir mér miður að blaða- fulltrúi Alþýðusambandsins skyldi segja af sér vegna þess, þar sem þetta er í raun og veru Garðar var með í fórum sínum bréf sem 14 Kanadamenn hjá Búlandstindi undirrituðu vegna blaðaskrifa um brottför fjögurra stúlkna þaðan. í bréfinu er stað- fest að Garðar lofaði Kanada- mönnunum engu varðandi laun, heldur hafi hann einungis upp- lýst hver launin væru miðað við þá gengisskráningu sem þá lá fyrir. Jafnframt lýsa fjórtánmenn- ingarnir ánægju sinni með að- búnað í hótel Framtíð og að- stæður í samræmi við það sem þeim hafi verið sagt fyrir brott- för til Islands. Fjórtánmenning- arnir lýsa því einnig yfir að þeir telji umboðsmanninn í Kanada (Garðar) í engu hafa brotið lög við ráðningu þeirra til Djúpa- vogs. Garðar kvaðst vilja leiðrétta það, sem staðið hefði í Mbl. að hann væri ræðismaður íslands í Kanada. Svo væri ekki, heldur væri það Birgir Brynjólfsson Jó- hannessonar leikara. Sagði Garðar Birgi hafa haft mikinn áhuga á ráðningu Kanadamann- anna til Djúpavogs og fylgst með málinu frá byrjun, þar sem hann hefði mikinn áhuga á auknum samskiptum Vestur-íslendinga við ísland. lausir um áramótin eru að lang- mestu leyti starfsfólk, sem ekki er í vinnu af fyrrgreindum ástæðum. En á sama tíma í fyrra voru 73 skráðir atvinnulausir eftir toppár í framleiðsiu sjávarafurða 1981. Greinin frá 6. janúar sl. er því mjög villandi og gefur alranga hugmynd um atvinnuástand á Fáskrúðsfirði, sem hefur verið hið traustasta árum saman og tekjur á einstakling með þeim hæstu sem þekkjast í þessu landi." Gísli Jónatansson. Lögregla flutti börn af barna- skemmtun llúsavík, 10. janúar. f FYRRAKVÖLD brast hér á norðan- hríðarveður svo að lögreglan varð að flytja barnaskólabörn heim af skemmt- un kvenfélagsins. Mikinn snjó setti niður í fyrrinótt svo að flestar götur í bænum voru ófærar í gær. Og með kvöldinu birti og fór þá sérleyfisbíllinn til Akureyrar samkvæmt áætlun og gekk nokkuð vel. Mjólkurflutningar hafa gengið vel þó erfitt hafi verið að komast heim að einstaka bæjum. Bíll kom frá Kópaskeri í dag um Tjörnes til að sækja mjólk en Kópaskersbúar og Raufarhafnarbúar fá alla sína mjólk frá Húsavík. Enginn bátur hefur róið síðast- liðna viku vegna ógæfta. FrétUriUri. Framsóknarflokkurinn: Skoðanakönnun í Norður- landi vestra um næstu helgi UM NÆSTU helgi fer fram skoðanakönnun innan kjördæmis- ráðs Framsóknarflokksins á Norður- landi vestra. Á Austfjörðum og Vest- fjörðum fara fram skoðanakannanir síðustu helgi janúarmánaðar. Skoðanakönnunum framsóknar- manna er lokið á Norðurlandi eystra og í Suðurlandskjördæmi. Á Vestur- landi er uppstillingarnefnd að störf- um og ekki reiknað með að þar fari fram skoðanakönnun að sögn Hauks Ingibergssonar blaðafulltrúa Framsóknarflokksins. í framboði á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins á Norður- landi vestra, sem fram fer nk. laugardag, eru eftirtaldir: Ingólf- ur Guðnason alþingismaður, Jón Ingi Ingvarsson Skagaströnd, Páll Pétursson alþingismaður, Stefán Guðmundsson alþingismaður og Sverrir Sveinsson Siglufirði. Kjör- dæmisþingið verður haldið í Mið- garði. í skoðanakönnuninni eru úrslit bindandi fyrir þrjá efstu menn. Framsóknarmenn á Norð- urlandi vestra eiga nú þrjá alþing-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.