Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 46
Fólk og fréttir í máli og myndum
Þetta hafði Rossi að segja
RÉTT FYRIR JÓLIN kom út mjög vönduð bók hjá Bókhlödunni um
heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem fram fór á Spáni síðasta
sumar. Höfundur bókarinnar er hinn kunni blaðamaður Sigurður
Sverrisson. Hann fókk engan annan en sjálfan knattspyrnusnillinginn
Paolo Rossi til þess aö segja álít sitt á keppninni og frammistöðu sinni
þar. Með leyfi Sigurðar birtum við nú hér hluta af því sem fram kemur
í formála bókarinnar. Rossi hafði meöal annars þetta aö segja:
Fyrstu viðbrögð mín eftir sigur-
inn voru ósköp eölilega mikil gleði.
Ég var ákaflega hamingjusamur yf-
ir því að hafa lagt mitt af mörkum
til þessa ánægjulega árangurs,
sem kom verulega á óvart. Þá var
gleöilegt til þess aö vita, aö viö
hefðum unniö mikiö afrek og glatt
hug og hjörtu allra íþróttaunnenda
a Ítalíu og e.t.v. enn fleiri. Mér þótti
þó vænst um þetta allt saman frá
tilfinningalegu sjónarmiöi.
Ég var ekki svo undrandi á því
aö ég skyldi veröa valinn í lands-
liöshópinn fyrir lokakeppnina, þótt
val mitt hafi komið mörgum öörum
mjög á óvart. Ég var heppinn.
Þjálfari minn, Bernotti, hjá Juvent-
us er maöur sem ég á mikið að
þakka. Hann stappaöi í mig stálinu
og færði mér sjálfstraustið á nýjan
leik. Þaö er hann sem er maðurinn
aö baki velgengni minni í dag.
Velgengni mín byggist í sjálfu sér
ekki á þeim mörkum, sem ég hef
skoraö, heldur hvernig ég leik
hverju sinni. Ég hef breytt um
leikstíl fyrir tilstilli þjálfarans, en
það er fyrst og fremst sjálfstraust-
iö, sem hann hefur fært mór á ný,
sem ég á honum aö þakka. Þaö er
ómetanlegt.
Sjálfur var ég ekki í neinum vafa
meö eigin getu þrátt fyrir tveggja
ára hlé. En eftir tvö ár veit aö
sjálfsögðu enginn og þá heldur
ekki ég sjálfur hvort hægt er aö
komast í fulla æfingu á nokkrum
mánuöum fyrir svo mikilvæga
keppni. Viö mætum erfiðleikum
alls staöar á lífsleiöinni. Mín
heppni var aö koma inn í gott lið á
réttum tíma, liö sem hjálpaði mér
ákaflega mikiö.
Jú, auövitaö var ég alsaklaus af
öllum ákærum j hneykslismálinu,
sem upp kom fyrir þremur árum.
Ég held ekki aö þaö sé til neins aö
vera aö rifja það mál upp rétt eina
feröina. Það er oröiö gamalt og
þreytt og heyrir fortíöinni til. Ég hef
alltaf haldið fram sakleysi mínu og
get vel ítrekað þaö enn einu sinni.
Bannárin voru ömurlegur tími.
Fyrra áriö æföi ég bara tvisvar í
viku. Ég á byggingaverktakafyrir-
tæki í Vicenza og notaöi þann
tíma, sem ég haföi aflögu til aö
sinna því gagngert. Síöara áriö
flutti ég til Tórínó frá Vicenza og þá
æföi ég auðvitað daglega.
Þeirri hugsun skaut aldrei upp
aö banniö væri endalok ferils
míns. Ég var búinn aö leika
knattspyrnu frá því á unga aldri og
fannst ég eiga svo mikiö eftir sem
knattspyrnumaöur.
Hvaö mörkin mín í lokakeppn-
inni varöar, sex aö tölu, finnst mér
vænst um þaö fyrsta. Þaö var mér
persónulega mest viröi enda
greiddi þaö götu þeirra, sem á eftir
komu. Auðvitað glöddu hin mörkin
mig óumræðilega og reyndar ekki
bara mig, heldur var almennt mikil
ánægja meö þau á meðal liösins
og áhangenda okkar. Þaö var hins
vegar fyrsta markiö, sem var mór
dýrmætast og veitti mér mesta
ánægju.
Ég held ekki aö nokkur okkar
hafi átt von á því aö heimsmeist-
aratitillinn félli okkur í skaut í bar-
áttunni viö bestu liö heimsins. Viö
gerðum okkur reyndar góðar vonir
um aö standa okkur vel, en ekki
beinlínis vonir um sigurlaunin. Nei,
alls ekki.
I lífi knattspyrnumannsins skipt-
ast á skin og skúrir. Ég geri mór
vonir um aö halda mér í góöri
þjálfun þaö sem eftir er af knatt-
spyrnumannsferli mínum, en þaö
er erfitt aö halda þeim gæöa-
stimpli, sem festist viö mann við
þaö aö veröa heimsmeistari í
knattspyrnu.
Auövitaö fylgja því vissir erfiö-
leikar aö vera oröinn heimsmeist-
ari, álagiö er meira. Sú ábyrgö,
sem hvílir á heröum okkar, sem
heimsmeistarar, er talsverö. Maö-
ur finnur vel fyrir þessari ábyrgö
og er þess mjög meövitaður aö til-
heyra liöinu, sem vann heims-
meistaratitilinn í knattspyrnu.
Þessi titill leggur manni vissar
skyldur á heröar og nauöbeygir
mann til þess aö berjast enn betur.
Þetta er hlutur sem ég verö aö
sætta mig viö. Þaö er starf mitt á
knattspyrnuvellinum aö standa
mig vel og skora mörk.
• Sundsamband íslands hélt mikið námskeið á síðasta ári fyrir sund-
þjálfara. Einn þekktasti þjálfari Svía, Ake Hansson, kom hingað til
lands og hélt hér fyrirlestra og var meö verklega kennslu. Á efri
myndínni má sjá Ake við útskýringar. En á neðri myndinni þann mikla
fjölda af sundþjálfurum sem námskeiðiö sótti. En þeir voru víðsvegar
af landinu.
• Jim Hoiton hélt fyrir nokkru
upp á það að þá voru liðin tvö ár
síðan hann spilaði síöast í deild-
arleik. Holton, sem hefur leikið 15
leiki fyrir Skotlands hönd, fékk
árið 1980 tveggja vikna leikbann
og komst síöan ekki í aðallið
Coventry er hann fékk að leika á
ný. Síðasta sumar var hann svo
seldur til Sheffield Wednesday,
en vegna meiðsla gat hann ekki
leikið fyrst um sinn. Þegar hann
var svo orðinn keppnisfær var
annar tekinn við stööu hans hjá
liöinu.
• Manuel Bento, landsliðsmark-
maður Benfica, fékk þriggja mán-
aða bann fyrir að hafa ráðist á
landsliösframherjann Manuel
Fernandes sem spilar með Sport-
ing Lissabon, er liöin áttust við.
• Sagt er að hver leikmaöur it-
alíu hafi fengið 270.000 krónur aö-
eins fyrir það aö komast í millirið-
il HM á Spáni.
• í HM á Spáni voru um 7500 fjöl-
miðlamenn mættir á staöinn, eöa
u.þ.b. 1000 Ijósmyndarar, 3000
sjónvarps- og útvarpsmenn, og
3500 blaöamenn, en auk þess
fjöldinn allur af tæknimönnum.
• Laszlo Fazekas, 34 ára gamall
og með 85 landsleiki að baki,
naut ekki mikils af peningum
þeim er hann fékk fyrir að koma
Ungverjalandi ( HM-keppnina.
Hann ákvaö að gefa vini sínum
JUrgen Götz þá alla eftir að liðið
sem hann hafði veriö forseti hjá
fór á hausinn, en við þaö tapaði
hann nærri tveim milljónum kr.
• Leikmenn Kuwait fengu fín-
ustu tegund af Cadillac auk einn-
ar milljónar króna fyrir að komast
áfram í HM-keppnina á Spáni.
• Leikmenn Frakklands dvöldu í
Pýreneafjöllum yfir jólin og nýár-
ið síðasta við æfingar. Höföu þeir
alla sína fjölskyldu með sér og
líkaði vistin vel. Æfíngar voru
fólgnar í skíðahlaupum.
• Þegar Ijóst var að N-írland
kæmist áfram í HM-keppninni var
samningur við framkvæmda-
stjóra liðsins, Billy Bingham,
framlengdur til þriggja ára og
laun hans hækkuö úr 100.000
krónum á ári upp í 250.000 krón-
ur.
• Socrates, sem var fyrirliöi
Brasilíu á Spáni í sumar, virðist
vera margt til lista lagt. Þessum
28 ára gamla barnalækni var gert
tilboð um aö leika í kvikmynd um
siðvenjur í Brasilíu, og hófust
upptökur um leíö og hann kom
heim frá Spáni, en handritiö fékk
hann til lestrar í maí síðastliðn-
um, þegar undirbúningur lands-
liðsins stóö sem hæst.
Paolo Rossi er nú sá knattspyrnumaöur heimsins, sem óumdeilanlega
nýtur mestrar hylli. Frammistaða hans með ítalska landsliðinu í loka-
keppni HM á Spáni var slík, að hún færði honum hinn eftirsótta
markakóngstitil keppninnar og nafnbótina „besti knattspyrnumaður
heimsmeistarakeppninnar“ að auki.
KSÍ hefur borist bréf frá Allen
Wade, sem um tveggja áratuga
skeiö var yfirmaöur tæknimála hjá
enska sambandinu.
Allen býöst til að skipuleggja
námskeiö um hin ýmsu sviö knatt-
spyrnunnar fyrir Islendinga í ein-
hverju þekktu knattspyrnulandi í
Evrópu, t.d. í janúar eöa febrúar
nk.
Hér er um mjög athyglisvert mál
aö ræöa og ætti aö athuga fljótt og
vel, hvort sem námskeiöin yröu
hér á landi eða erlendis.
— O —
Borist hefur bréf frá Professor
Dr. Paul Mojzes, Rosemont,
Pennsylvaníu, USA. Hann þjálfar
lið drengja, 12—14 ára, Suburban
Soccer Club. Liöinu hefur verið
boöiö til V-Þýskalands á næsta ári.
Liðið hefur áhuga á aö leika a.m.k.
einn leik hér á landi á heimleiö, þar
sem þeir munu feröast meö Flug-
leiöum. Áætlaöur komutími hingaö
er 11,—12. júní.
• Norbert Nigbur hefur fram-
lengt samning sinn við Schalke
04 út þetta tímabil.
• AEK Athen hefur keypt Hector
Martinez, hinn 27 ára argentínska
framherja frá River Plate.
• Martin Chivers, fyrrum fram-
herji hjá Tottenham og South-
ampton, ásamt landsliðinu, geröi
slíka lukku með annarrar deildar
liðinu Vard í Noregi að honum var
boðið að spila meö liðinu aftur og
nú vera framkvæmdastjóri einn-
■g-
• Agostino di Bartolomei, fyrir-
■iöi AS Roma, sem oft hefur veriö
kallaður „kaldi kjúklingurínn"
hefur gert samtals 36 mörk beint
úr aukaspyrnu, en hann hefur
spilað í 13 ár í deildinni. „Ég æfi
mig sérstaklega í þessu, en
vandamálið er bara það að and-
stæðingarnir eru aldrei neina 9,15
metra frá boltanum eins og regl-
ur gera ráð fyrir.“