Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
13
sonar. Eftir að hafa bent á að
landsmenn ættu að breyta eftir
góðum dæmum í stað þess að gera
sér úr þeim efni í víl og harmatöl-
ur, skrifar Jón: „Þá munum vér
sjá, að ísland mun renna upp og
blómgast eins og fyrr og sýna oss
að gallar þess voru meiri hjá oss
og í atorkuleysi voru, kunnáttu-
leysi og handvömmum en hjá
landinu sjálfu."
Markist stjórnmálin ekki af
mannanna verkum, heldur fyrst
og fremst ákomum náttúruafl-
anna, er von að þar sé höggvið í
harðan skalla að krefjast dyggða i
athöfnum forsvarsmanna. Er því
að vonum að í ávarpi sinu láti for-
sætisráðherra súpu í grautinn
með því að geta þess hvergi hvern-
ig auka beri þjóðartekjurnar, en
segja þess í stað að glæða beri
málsmekk og „varðveita lögmál ís-
lenzkrar ljóðlistar". Er nú mál að
fara aftur í smiðju til Jóns Sig-
urðssonar. Það er gott, segir Jón,
að líta aftur fyrir sig eins og ís-
lendingum er tamt. „En menn
mega samt ekki gjöra of mikið af
þessu, því annars fer svo fyrir oss,
að meðan vér horfum aftur á bak
á fornöld vora og undrumst hana
glápandi og starandi, en gjörum
lítið eða ekkert sem gjöra þarf, þá
fer móður vorri, Islandi, aftur, svo
það gengur lifandi ofan í jörðina,
það er: eyðist og hrörnar fyrir
ódugnað barna sinna og getur ekki
framfært þau, því þau hafa ekki
lag á að ganga sér að mat.“
I hartnær þrjú ár hefur þjóðin
búið við siðblinda ríkisstjórn. Mun
það teljast til afbrigða á Vestur-
löndum að óhlutvöndum hlaupa-
læknum skuli haldast uppi að
hreykja sér eftir að sýnt er að þeir
kunna engin ráð við landsins
versnandi meinum. Meira er þó
um vert að slíkur sjálfbirgingur
stangast á við lungann úr Islend-
ingseðlinu. Það eru ekki náttúru-
öflin, heldur „einbúa viljinn, sem
harður og hreinn á að hefja til
vegs þessar strendur." Fallandi
gengi ætti ekki að verða okkur
efni til að áfellast landið, heldur
gera okkur ljóst að verk er að
vinna og mál að hefja stjórnmálin
til virðingar á ný:
„Osnjallur maAur
hyggst munu ey lifa,
ef hann við víg varast;
en elli gefur
honum engi frirt,
þótt honum geirar gefi.“
ygNKSS7KIV<------------
"STEINGRÍMUR HLÝTUfl AP HRFR
LÝ5T YFlR RFTUR R9 Þffl) W\
EN6IN GEMFELLING11
Skidoo
Citation
4500E
Léttur, lipur, hress
og þægilegur
Skidoo Nordik
Þetta er alhliða sleöi duglegur í brekkum og að draga.
Skidoo Skandik
Vinnuþjarkur á óvenju löngu belti, duglegur í djúpum snjó og
drætti.
Skidoo Everest 500E
Stór kraftmikill og hraöskreiöur lúxussleöi. 500 kúbik-161/2“ belti.
Skidoo Blizzard 9700
521,2 kúbik mótor. Tveir Mikuni VM-40. Ægilegur kraftur, en samt
léttur. 161/2“ belti.
Eini 2 belta sleðinn
á markaönum. 640 kúbik mótor. Dregur meir og brattar en aörir. 2
gira áfram og afturábak.
Beltabfll
frá Bombardie. Sumar og vetrarbelti. Fordvél, 4 gírar áfram, ýtu-
tönn fáanleg.
Blizzard 5500 MX
VP-2000
Nýr undirvagn á 161/2“ belti, algjörlega einstæö fjöörun. 500
kúbik mótor.
Franskur, 6 hjól á beltum meö bílvél og 4 gírar áfram, kemst
næstum allt á sjó og landi.
GÍSLI JÓNSS0N & co hf„
Sundaborg 41,
sími 86644.