Morgunblaðið - 11.01.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983
5
Óskar Vigfússon:
Ekki hlaupið úr Verðlagsráði
með vísitölubindingu fiskverðs
„GINS og kom fram hjá mér í bókun
minni í Verðlagsráði sjávarútvegsins
við síðustu verðákvörðun, taldi ég
það rétt að þetta yrði tekið til skoð-
unar af hálfu stjórna samtaka sjó-
manna. Sjómannasambandið er
ekki eitt aðili að Verðlagsráðinu, að
auki eru það bæði Farmanna- og
fiskimannasambandið og Alþýðu-
sambandið, sem standa að fulltrúum
í Verðlagsráði sjávarútvegsins,"
sagði Óskar Vigfússon, formaður
Sjómannasambands íslands, meðal
aaaars er Morgunblaðið bar undir
hann hugmyndir um, að sjómenn
drsgju sig út úr Verðlagsráði sjávar-
útvegsins, og fiskverð yrði bundið
vísitölu.
„Ekki má svo skilja, að þar sé
aðeins tekin verðákvörðun í sam-
bandi við hið almenna fiskverð,
það er að segja botnfiskaflann.
Það þarf að verðleggja aðrar teg-
undir líka, sem eru háðar miklum
sveiflum á markaði eins og loðnu,
síld, rækju, hörpudisk og margar
fleiri. Því er það ekki einfalt ráð
að draga sig út úr Verðlagsráði
með það að fororði, að vísitölu-
binding verði á verði þeirra teg-
unda, sem verðlagðar hafa verið,
svo sem bolfiskinum. Það þarf
fleira að koma til.
Það sem ég hafði í huga varð-
andi þetta og síendurtekin af-
skipti stjórnavalda af hlutaskipta-
kjörum sjómanna og útvegsmanna
í gegnum verðlagsráð, sem er með
þeim hætti, að ég held að við séum
komnir á yztu nöf að geta haldið í
þetta svokallaða hlutaskiptakerfi,
er, að ef við drögum okkur út úr
verðlagsráði, þurfum við að hafa
fyrir eitthvert breytt launakerfi
sjómanna, sem tryggir það, að við
verðum ekki háðir neinum sveifl-
GÖT VORU stungin á dekk undir
sex bifreiðum í Hafnarfirði
aðfaranótt fimmtudags. Fimm bíl-
anna voru við verzlunarmiðstöð-
ina að Reykjavíkurvegi 50 og sá
sjötti í Arnarhrauni. Göt voru
um á fiskverði. Hvernig það gæti
verið gert er ég ekki tilbúinn að
tjá mig um. En þetta er mál, sem
við þurfum að ræða alvarlega um í
samtökum sjómanna, en það verð-
ur ekki hlaupið beint úr Verð-
lagsráði með vísitölubindingu á
hluta af því, sem við verðleggjum,
það er alveg fráleitt. Vegna þessa
hefur verið boðað til fundar for-
manna aðildarfélaga Sjómanna-
sambandsins, sem að vísu hefur
orðið að fresta vegna ófærðar. Það
er mikill áhugi meðal sjómanna að
ræða þessi mál og kryfja þau til
mergjar," sagði Óskar.
stungin með síl á öll dekk bifreið-
anna. I lok nóvember voru göt
stungin á dekk fjögurra bifreiða í
Garðabæ. Allar upplýsingar um
spellvirki þessi eru þakksamlega
þegnar.
Göt stungin á dekk bifreiða
MAZDA
SUBARU
V0LV0
CITROEN
MAZDA
PESSIRKQMUST
TILVINNU
PRATTFYRIR
OFÆRÐINA
0
Þessi mynd er tekin á bílastæðinu við Lágmúla 5, þriðjudaginn 4/1 1983 klukkan 13:52, þegar óveðrinu hafði
slotað og þeir voru mættir til vinnu sem á annað borð komust þann daginn. 14 bílar á svæðinu — þar af 6 SAAB.
Þarf frekari vitnavið um getu SAAB í íslenskri vetrarófærð.
TÖGGURHF.
UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530