Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 43

Morgunblaðið - 11.01.1983, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 1983 23 Stjarnan í annað sætið — 42. mín. töf þar sem engir dómarar mættu „Viö spiluðum ekki á sama rythma nú og fyrir áramót og við töpuöum stiginu í þessum leik á því að viö undirbjuggum okkur ekki nógu vel. Viö notuðum jólin ekki rétt,“ sagói Gunnar Einars- son, þjálfari Stjörnunnar, eftir leíkinn vió Þrótt í Hafnarfiröi á sunnudagskvöldiö. Leikurinn endaði meö jafntefli, hvort liö skoraöi 16 mörk, en Þróttur hafói tvö mörk (7:9) yfir í hálfleik. Eins og annars staöar kemur fram tafðist leikurinn um 42 mínútur vegna þess að dómara vantaöi. Þeir dómarar sem skráóir voru á leikinn höfðu aldrei verið boóaöir að því er sagt var en Hauka- mennirnir Jón Hauksson og Ingi- mar Haraldsson fengust til aö koma, og sáu þeir um dómgæsl- una. Eiga þeir ekki annað en þakkir skildar fyrir aö bregöast svo skjótt vió. Fyrri hálfleikurinn var frekar slakur hjá báöum liöum — fram undir miöjan hálfleikinn var jafnt og er 11 mín. voru liönar haföi hvort lið aöeins gert þrjú mörk. En Þróttarar tóku þá kipp og komust þrjú mörk yfir (4:7). Munurinn í háifleik síðan tvö mörk og fyrri hálfleikurinn bar þess ekki merki aö um mikla skemmtun yröi aö ræöa í síöari hálfleik. „Fyrri hálfleikurinn mótaö- ist af töfinni sem varö vegna dóm- aranna — þetta var svona slakt vegna þess aö leikmenn þurftu aö bíöa,“ sagöi Gunnar Einarsson eft- ir leikinn. En síöari hálfleikurinn var mun betri en sá fyrri. Varnarleikur liö- anna var góöur mest allan tímann, og þá sérstaklega hjá Þrótti. Hjá Stjörnugjöfin STJARNAN: Brynjar Kvaran ★ ★★ Guómundur Þórðarson ★★ Eyjólfur Bragason ★★ Magnús Teitsson ★ Viðar Símonarson ★ Guðmundur Óskarsson ★ ÞRÓTTUR: Ólafur H. Jónsson ★★ Páll Ólafsson ★★ Siguröur Ragnarsson ★★ Guðmundur Sveinsson ★ Stjörnunni lak mikiö inn um vörn- ina á einum staö og var ekki skipt þar um leikmann fyrr en nokkuö var liöið á hálfleikinn og varö þá gjörbreyting á. Stjarnan skoraöi tvö fyrstu mörkin eftir hlé — Eyjólfur og Ólafur Lárusson úr vítaköstum og var þá oröiö jafnt aftur. Það stóö ekki'lengi því Guömundur Sveins- son og Konráö komu Þrótti tvö mörk yfir á ný, og höföu Þróttarar ávallt forystu þar til Stjarnan jafn- aöi, 16:16. Stjarnan skoraöi tvö síöustu mörkin — 16. markið fjór- um min. fyrir leikslok. Síöustu mínúturnar var mikill barningur inni á vellinum og áhangendur Stjörnunnar létu vel í sér heyra, en stuöningsmenn Þróttar voru harla fáir aö því er virtist. Ekki náöu liðin aö skora lokakaflann en á síðustu sekúnd- unni fékk Stjarnan aukakast. Viöar Símonarson, sem lék með liöinu á ný, sendi knöttinn á Magnús Andr- ésson sem skoraöi, en leiktíminn var útrunninn áöur en knötturinn fór inn fyrir marklínuna. Brynjar Kvaran var enn einu sinni besti maður Stjörnunnar og varöi mjög vel — hátt í tuttugu skot. Guömundur Þóröarson var sterkur í vörninni eins og hann virðist alltaf vera, og Eyjólfur og Magnús geröu iaglega hluti. Sig- uröur Ragnarsson stóö sig vel í marki Þróttar þó ekki veröi hann eins mikiö og Brynjar. Ólafur H. Jónsson lók mun meira meö liöinu en venjulega og var góöur — batt vörnina saman. Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur Bragason 5/2, Magnús Teitsson 4, Ólafur Lárusson 3/2, Guömundur Þóröarson 2, Guðmundur Óskarsson 1, Viöar Símonarson 1. Mörk Þróttar: Páll Ólafsson 4, Guömundur Sveinsson 3/1, Ólafur H. Jónsson 3, Jens Jensson 2, Magnús Margeirsson 1, Konráö Jónsson 1, Einar Sveinsson 1 og Lárus Karl Ingason 1. Brottrekstrar: Magnús Andrés- son, Stjörnunni, í tvær mín., og Magnús Margeirsson og Páll Ólafsson, Þrótti, í tvær mín. hvor. Brynjar Kvaran varöi eitt vítakast og einnig Siguröur Ragnarsson, Þrótti. — SH. isiandsmðHð 1. delld Víkingar nú með þriggja stiga forskot ÚRSLIT síöustu leikja í 1. deild- inni í handbolta voru þessi: Víkingur — Fram 26:20 Stjarnan — Þróttur 16:16 Víkingur — FH 28:23 Staðan í deildinni eftir þessa leiki er þannig: Víkingur Stjarnan KR FH Valur Þróttur Fram ÍR Næstu leikir eru nú í vikunni. Á miövikudagskvöldiö kl. 20.00 leika KR og ÍR í Höllinni og á sama tíma mætast FH og Valur ( Hafnarfirði. — SH. 12 8 12 7 11 11 11 12 12 11 259:237 18 246:239 15 264:210 14 285:246 14 227:208 11 241:249 11 259:277 9 194:309 0 • Guðmundur Guömundsson Víking var besti maður vatlarins er liö hans burstaði FH. Hér sést hvar Guðmundur vindur sig inn úr horninu og skorar laglega. Ljó«m. Arni saberg. Víkingar léku á alls oddi gegn FH íslandsmeistarar Víkings unnu öruggan sigur á FH í 1. deild ís- landsmótsins í handknattleik í Laugardalshöll á sunnudag — 28—23. Víkingar höfðu öll ráö FH-inga í hendi sér og um tíma í síðari hálfleik skildu 9 mörk að — 24—15. Meö sigrinum hefur Vík- ingur tryggt sér sæti í 4ra liða úrslitum Islandsmótsins. Allir leikmenn Víkings sýndu góöan leik í Höllinni og áttu hinir ungu leikmenn FH ekkert svar viö stórleik þeirra. Vörn Víkings var mjög sterk og batt Árni Indriðason hana vel saman. Ellert Vigfússon varöi meö tilþrifum í markinu og í sókninni léku Vikingar á als oddi. Sigurður Gunnarsson skoraöi meö miklum þrumuskotum og lók mjög vel, en enginn lék þó betur en Guðmundur Guömundsson. Guömundur er einn skemmti- legasti hornamaöur sem island hefur eignast. Eldfljótur, fylginn • Hans Guðmundsson FH horfir á Víkingarnir Steinar og Hilmar. eftir þrumuskoti sínu, það gera líka Ljósm. Árni Sæberg. Víkingur—FH 28:23 sér og gegn FH skoraði Guömund- ur 9 mörk á fjölbreyttan hátt. Hann lék í horninu hægra megin í fyrri hálfleik en vinstra megin í síöari hálfleik og var hreint óstöðvandi þar. Ekki aðeins var Guömundur markhæstur Víkinga meö 9 mörk, heldur fiskaöi hann þrjú víti og nokkrum sinnum var FH-ingum vísaö af leikvelli eftir gróf brot — þegar þeir reyndu aö stööva Guö- mund. Gegn FH sýndi Guömundur leik í heimsklassa — stór orö en sannmæli engu aö síöur. Jafnræöi var meö liöunum fram- an af fyrri hálfleik, FH haföi þó lengst af frumkvæöiö og þegar 20 mínútur voru liönar af fyrri hálfleik haföi FH eitt mark yfir, 8—9. En þá sögðu Víkingar hingaö og ekki lengra. Víkingar náöu að þétta vörn sína svo, aö FH-ingar komust ekkert áleiðis og í markinu stóö Ellert Vigfússon og varöi meö til- þrifum. Víkingar skoruöu sjö síöustu mörk fyrri hálfleiks og breyttu stööunni í 15—9. Siguröur Gunn- arsson jafnaöi, 9—9, Steinar kom Víkingi yfir, síöan skoruöu Sigurö- ur, tvívegis, Guömundur, Viggó Sigurösson og Guömundur aftur og grunnur var lagöur aö öruggum sigri Víkings. FH náöi aldrei að ógna sigri Víkings í síöari hálfleik. Mestur varö munurinn níu mörk, 24—15 og skömmu fyrir leikslok skildu sjö mörk. Víkingur hefur aö undanförnu veriö aö ná sér á strik eftir slaka leiki lengst af í vetur. Þaö mátti glöggt sjá í viðureign Víkinga viö Dukla Prag og Ijóst er aö það verður erfitt fyrir önnur liö aö velta“ Víkingum af stalli. Vörnin var mjög sterk meö þá Árna Indriöason, Steinar Birgisson og Hilmar Sigur- gíslason sem bestu menn. Þá tók Páll Björgvinsson Kristján Arason úr umferð, svo Kristján skoraöi aö- eins eitt mark. Þá vakti ungur pilt- ur hjá Víkingi athygli — Karl Þrá- insson, nafn sem vert er aö leggja á minnið fyrir framtíöina. Sterkur hornamaður. Hinir ungu leikmenn FH mættu ofjörlum sínum á sunnudag. Krist- ján Arason náöi sér aldrei á strik enda í strangri gpezlu. Langbestu menn FH voru þeir Þorgils Óttar Mathiesen og Hans Guömundsson — hvor um sig skoraöi átta mörk, en FH-ingar náöu aldrei aö mynda þá sterku liðsheild sem Víkingar. Mörk Víkings skoruöu: Guö- mundur Guömundsson 9, Siguröur Gunnarsson, 7, 2 víti, Viggó Sig- urðsson 4, 3 víti, Steinar Birgisson 3, Páll Björgvinsson og Árni Indr- iöason 2 mörk og Karl Þráinsson 1 mark. Mörk FH: Hans Guðmundsson og Þorgils Óttar Mathiesen 8 mörk hvor, Guöjón Guðmundsson og Guðmundur Magnússon 2 mörk hvor, Kristján Arason, Pálmi Jónsson og Sæmundur Stefáns- son 1 mark hver. Leikmönnum FH var fjórum sinnum vísaö af velli, einnig Víking- um. Kristján Arason átti tvivegis skot í stöng úr vítaköstum og Karl Þráinsson skaut í stöng í vítakasti. Leikinn dæmdu Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli Ólsen. H.Halls. Liö Víkings: Guðmundur Guðmundsson Siguröur Gunnarsson Ellert Vigfússon Árni Indriðason Steinar Birgisson Páll Björgvinsson Lið FH: Hans Guðmundsson Þorgils Óttar Mathiesen Guðjón Guðmundsson ro ro co

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.