Morgunblaðið - 11.01.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JANUAR 1983
31
íslenzk málnefnd:
Þágufall skal notað í heimilisföngum
ÍSLENZK málnefnd ályktar aö
beina því til opinberra stofnana og
annarra, sem senda frá sér tölvurit-
uö eyöublöö og annað tölvuprent, að
kosta kapps um aö stafsetja nöfn og
annað lesmál í samræmi viö þær
reglur, sem kenndar eru í skólum
landsins, og koma sér upp fullnægj-
andi tækjum til slíkrar prentunar.
Sérstaklega telur nefndin mikils um
vert, að þjóöskránni veröi komiö í
betra horf.
Ennfremur vill íslenzk málnefnd
vekja athygli á því, aö samkvæmt
venju ber aö hafa heimilisfang í
þágufalli, þegar það fylgir nafni á
viötakanda sendingar.
Ályktun íslenzkrar málnefndar
fylgdi greinargerð, sem er svo-
hljóðandi:
„Um langt árabil hefur tíðkast
að tölvuprenta á ýmiss konar
eyðublöð opinberra stofnana á
þann veg, að ekki samræmist
opinberum reglum eða aimennum
venjum um íslenska stafsetningu.
Algengast hefir verið að nota há-
stafi eingöngu, en hitt er þó verra,
þegar ekki er gerður greinarmun-
ur á o, og ó, u og ú o.s.frv. Slíkt
brýtur í bága við venjur og reglur,
gefur fordæmi, sem torveldar
störf íslenskukennara og getur
jafnvel boðið misskilningi heim.
í hinni tölvuprentuðu þjóðskrá
eru engir lágstafir og ekki notaðir
stafirnir í, ó, ú, ý. Af því leiðir, að
nöfn flestra eru rangrituð í þjóð-
skránni, þar á meðal nöfn allra
kvenna, sem kenna sig til föður
með því að skeyta orðinu dóttir við
nafn hans.
Á ýmsum plöggum, sem hið
opinbera sendir frá sér, vill einnig
verða misbrestur á, að notað sé
þágufall í heimilisföngum.
Á eyðublöðum, þar sem sérstak-
ur reitur er hafður fyrir nafn
heimilis, er ekki óeðlilegt að skrifa
það nafn í nefnifalli, hvort sem
það er bæjarheiti (Skógar) eða
götunafn og númer (Aðalgata 10).
Um heimilisfang gegnir öðru
máli. Það svarar spurningunni um
það, hvar einhver eða eitthvað er
eða á heima, og er það nokkurn
veginn sama og nafn heimilis í
þágufalli. Dæmi: Jón Jónsson,
Skógum; Fjórðungssamband Vest-
firðinga, Isafirði; Guðrún Jóns-
dóttir, Aðalgötu 10. Enn getur
þurft að bæta við staðarnafni til
nánari ákvörðunar, og ber þá
einnig að hafa það í þágufalli, þeg-
ar það svarar spurningunni hvar?
Dæmi:
Jón Jónsson, Skógum, Fnjóska-
dal, Suður-Þingeyjarsýslu;
Guðrún Jónsdóttir, Aðalgötu 10,
Siglufirði.
Póst- og símamálastjórnin hefir
gefið út leiðbeiningar um póstárit-
anir (sjá Símaskrá 1982, bls. 293).
Þar er gert ráð fyrir, að nafn
póststöðvar sé í nefnifalli, vegna
þess að stöðin er viðtakandi póst-
sendingar. Dæmi:
Hr. Jón Jónsson
Irafossi
Grímsnesshreppi
801 SELFOSS
írafoss er í Grímsnesshreppi, en
Grímsnesshreppur er ekki á Sel-
fossi, þótt póststöðin beri það
nafn.
Oft fer þó saman, að nafn sveit-
arfélags er jafnframt heiti póst-
stöðvar, þ.e. viðtökustöðvar. Þá
mætti skrifa t.d.:
Rannsóknarlögregla ríkisins
Auðbrekku 61
Kópavogi
200 KÓPAVOGUR
En þegar þannig stendur á,
nægir að skrifar:
Rannsóknarlögregla ríkisins
Auðbrekku 61
200 KÓPAVOGUR
Slíka áritun má alls ekki túlka á
þann veg, að þágufall sé óþarft í
heimilisföngum, enda er göUiheiti
þarna í þágufalli.
Staðarnafn í þágufalli svarar
einnig spurningunni um það, hvar
eitthvað gerist eða er gert. Þess
vegna er þágufall notað við dag-
setningu bréfa, skjala, formála
bóka o.s.frv. Dæmi: Þingvöllum 17.
júní 1944; Árnagarði 15. nóvember
1982.
Minnt er á öll þesi atriði hér að
gefnu tilefni. Hætt er við, að lang-
vinn vanhirða í þessum efnum
hafi þegar haft sljóvgandi áhrif.
Nemendur úr 9. bekk Dalvíkurskóla fyrir utan sölutjald sitt, þar sem vegfar-
endur gátu keypt sér heitt kakó.
Tjölduðu við ráðhúsið
Dalvík, 4. janiiar.
VEÐURFAR yfir jóladagana og ára-
mót var með ágætum hér á Dalvik.
Sköramu fyrir jól setti mikinn snjó
niöur og hlóðst í skafla svo allar göt-
ur í bænum urðu ófærar. Öll tiltæk
snjóruðningstæki á staðnum voru
notuð til snjóruðnings og tókst að
hreinsa allar götur skömmu fyrir jól.
Milli jóla og nýárs gerði þíðviðri, svo
töluvert tók upp og snjófjöll sem
myndast höfðu í bænum sigu saman.
Nú hefur fryst aftur og því harðfenni.
Undirbúningur jólanna hjá
Dalvíkingum var með nokkuð
hefðbundnum hætti og notuðu
menn óspart ljós til að minna á
komu jólanna. Eins og víðar voru
verslanir opnar á laugardögum í
desember og fram eftir kvöldi á
Þorláksdag. Nemendur í 9. bekk í
Dalvikurskóla tóku sig til, síðasta
laugardag fyrir jól, slógu upp tjaldi
á lóð ráðhússins, beint á móti
kaupfélaginu, og buðu bæjarbúum
sem leið áttu um, að kaupa heitt
kakó í kuldanum. Var þetta gert til
fjáröflunar í ferðasjóð nemenda en
venja er að nemendur 9. bekkjar
fara í skólaferðalag að vori.
Á aðfangadag fjölmenntu Dal-
víkingar til messu. Að þessu sinni
messaði séra Hannes Örn Blandon,
prestur í Óiafsfirði, en sökum veik-
inda gat Stefán Snævarr, sókn-
arprestur á Dalvík, ekki annast
guðsþjónustuhald nú um þessi jól.
Af þessum sökum var messað
nokkuð fyrr á aðfangadag en venja
er til, svo séra Hannes næði að
syngja messu í Ólafsfirði á að-
fangadag. Á nýársdag messaði svo
sóknarprestur Ólafsfirðinga öðru
sinni á Dalvík.
Lítið var um opinberar skemmt-
anir milli jóla og nýárs. Dansleikur
var í Víkurröst annan dag jóla og
að venju áramótadansleikur. Þann
29. desember voru haldnir tónleik-
ar á Dalvik. Tónleikar þessir voru
drifnir upp af nókkrum tónlistar-
áhugamönnum og byggðust þeir að
öllu leyti upp á framlagi heima-
fólks. Var þar einsöngur, kórsöng-
ur, harmonikkuleikur, flautuleikur
og píanóleikur. Á þessum tónleik-
um var vígður nýr flygill sem
keyptur var til Dalvíkur í nafni
Tónlistarfélagsins. Féll það í hlut
Gests Hjörleifssonar, tónlistar-
kennara og söngstjóra, að slá
fyrstu hljómana á þennan nýja
flygil en Gestur hefur um margra
ára skeið verið frumkvöðull í tón-
listarlífi á Dalvík, stjórnað kórum
og annast kennslu á píaiió.
Að sjálfsögðu voru haldnar
barnaskemmtanir hér með jóla-
sveinum og ýmsum gamanmálum
og stóðu hin ýmsu félagasamtök
sameiginlega að jólatrésskemmt-
uninni að þessu sinni.
Fréttaritarar
Heildsöluútsala
á vörulager okkar aö
Bröttugötu 36^1
(gegnt Fjalakettinum, Aðalstræti 8).
stendur nú sem hæst. Látiö ekki þetta einstæða tækifæri
ganga ykkur úr greipum. Komiö og geriö ótrúlega hagstæö
kaup á nýjum og nýlegum fatnaöi á alla fjölskylduna.
Buxur Skyrtur Peysur Bolir Jakkar
Verö frá kr.
Verö frá kr.
Verð frá kr.
Verö frá kr. Verö frá kr.
100 50 50 50 10
og margt margt fleira
Við munum aldrei aftur geta
boðið upp á slíkt tombóluverð.
flðeins örfáir dagar eftir.
Herluf Clausen,
HEILDVERSLUN
Bröttugötu 3B (móti Fjalakettinum v. Aöalstræti).