Morgunblaðið - 21.01.1983, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 1983
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn oy skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 150 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakiö.
Lögregla gegn
verðbólgu
Mikil gleði ríkir yfir því á
Þjóðviljanum í gær, að
sett hafi verið lögbann á þá
ákvörðun . borgarstjórnar
Reykjavíkur að hækka far-
gjöld með strætisvögnum
borgarinnar. í forystugrein
Þjóðviljans er lögbannið túlk-
að sem mikill sigur fyrir Al-
þýðubandalagið en eins og
fyrir liggur hjá Davíð
Oddssyni, borgarstjóra, mun
af því leiða margvíslegt
óhagræði fyrir notendur
vagnanna, þar sem skerða
verður þjónustuna eigi að
gæta nauðsynlegs aðhalds og
sníða sér stakk eftir vexti.
Hér er um það að ræða, hvort
tap á rekstri SVR eigi að vera
80 milljónir á þessu ári eða 50
milljónir. í krafti aðstöðu í
sjálfu fjármálaráðuneytinu
beita alþýðubandalagsmenn
sér fyrir því að tapið verði 80
milljónir króna. Það fer svo
sannarlega vel á því að á
sama tíma sem Ragnar Arn-
alds, fjármálaráðherra jafn-
réttisins með láglaunabæt-
urnar í gunnfána sínum,
fagnar sigri í þessu lög-
bannsmáli ásamt með niður-
talningarmeistaranum, ráð-
herra verðlagsmála, Tómasi
Árnasyni, skuli þeir félagar
standa að því að hækka enn
verð á bensíni en eins og
kunnugt er tekur ríkið í sinn
hlut 56% af því verði. Ekki
minnkar tapið á Strætisvögn-
um Reykjavíkur við það að
eldsneyti þeirra hækkar.
Kannski fjölgar þó farþegum
þeirra, því að eins og menn
vita er það stefnumál komm-
únista að koma í veg fyrir að
menn eigi einkabíl.
Samkvæmt því sem segir í
leiðara Þjóðviljans í gær eru
fargjöld SVR einn helsti verð-
bólguvaldurinn á íslandi. Tel-
ur ríkisstjórnin sig vera búna
að vinna sigur á verðbólgunni
með lögbanninu á hækkun
fargjaldanna? Haldi nú verð-
bólgan áfram að vaxa þrátt
fyrir þetta lögbann hljóta
valdsmennirnir í stjórnarráð-
inu að huga að því, hvar grípa
skuli niður næst með þessum
hætti og aðstoð lögreglu. Þeir
hefðu svo sem getað staldrað
við og skoðað bensínverðið
með þetta í huga, en vegna
umhyggjunnar fyrir ríkis-
sjóði kemur það að sjálfsögðu
ekki til álita hjá þeim. Eins
og kunnugt er telja Ragnar
Arnalds og alþýðubandalags-
menn allar hækkanir rétt-
lætanlegar sem skapa ríkis-
sjóði tekjur, en eigi að beita
skynsamlegum aðferðum við
fjármálastjórn höfuðborgar-
innar grípa þeir til lögreglu-
aðgerða og framsókn dinglar
með eins og við var að búast.
Auðvitað mun verðbólgu-
hjólið snúast með sífellt meiri
hraða undir þessari ríkis-
stjórn hvað svo sem tilraun-
um hennar til að stöðva hjól
strætisvagnanna í höfuðborg-
inni líður. En það fara nú að
vera sannkölluð öfugmæli hjá
kommúnistum og framsókn-
armönnum þegar þeir
hneykslast á því, að sjálf-
stæðismenn hafi ætlað að
sigrast á verðbólgunni með
efnahagsúrræðum sem þeir
kenndu við leiftursókn.
Sjálfstæðismönnum hefur
áreiðanlega aldrei komið til
hugar að hefja leiftursókn
með lögreglu gegn verðbólg-
unni. í ýmsum Suður-Amer-
íkuríkjum þar sem verðbólga
hefur farið upp í svipaðar
hæðir og hér og meiri hafa
herforingjar tekið sér einræð-
isvald á þeim forsendum, að
annars færi allt efnahagslífið
á annan endann. Lögregluað-
gerðirnar sem ríkisvaldið
heimtaði gegn SVR og borg-
arstjórn Reykjavíkur sverja
sig í ætt við hugsunarhátt
herforingjanna í Suður-
Ameríku — lýðræðinu er
fórnað á altari verðbólgunn-
ar. Á milli fasisma og komm-
únisma hefur aldrei verið
langt bil, eins og dæmin
sanna, og talsmenn beggja
líta á sig sem sjálfskipaða
forsvarsmenn þeirra sem
minnst mega sín þegar þeir
brjótast til valda.
Þvergirðingsháttur ríkis-
valdsins gagnvart ákvörðun-
um borgarstjórnar Reykja-
víkur um fargjöld SVR dæmir
sig sjálfur hvað svo sem öll-
um lögbannsmálum líður, en
vert er að hafa í huga nú á
kosningarári að hann kann að
vera upphaf að öðru verra hjá
purkunarlausum ráðherrum
kommúnista og framsóknar.
Skrif Þjóðviljans um þetta
mál sýna, að kommúnistar
líta ekki á það með hagsmuni
farþega SVR í huga þótt þeir
að hætti skoðanabræðra
sinna annars staðar segist
gera það. Hér er miklu stærra
mál á ferðinni. Það er rétt
ákvörðun hjá Davíð Oddssyni
að láta eftirleik lögbannsins
ekki bitna á farþegum stræt-
isvagnanna. Reykvíkingar
treysta borgarstjóranum og
samflokksmönnum hans til
að leita hinna skynsamleg-
ustu leiða í þessu máli. Og
þeir munu svo með verðugum
hætti fella pólitískan dóm yf-
ir málssvörum lögregluað-
gerða gegn verðbólgu í kom-
andi þingkosningum.
Fljótsdalur:
Árangur skógræktar hefur
farið fram úr björtustu vonum
Haustveðráttan var hagstæð hér
í Fljótsdal, snjólítið og frost væg.
Nokkuð var um hvassviðri í nóv-
ember, aðallega af vestan, án þess
að tjón yrði.
Þann 19. desember gekk í hvasst
austanveður með slyddu og síðan
snjókomu. Mjög mikill snjóþungi
lagðist á síma og rafmagnsvíra, svo
og trjágróður. I veðrinu brotnuðu
raflinustaurar og heimtaug rofnaði
frá heimarafstöð á Droplaugarstöð-
um. Ekki var hægt að komast að
stöðinni fyrr en næsta dag, og var
þá rafallinn ónýtur.
Hátíðahald um jólin fór fram
með venjubundnum hætti.
Fyrsta sunnudag í aðventu var
aðventukvöld í Valþjófsstaðar-
kirkju.
Þar hélt Jónas Pétursson
fyrrv. alþingismaður ræðu, ungl-
ingar úr sveitinni lásu upp kvæði
og sögur, en söng og hljóðfæra-
leik önnuðust Jón Ólafur Sig-
urðsson organisti, David Knowl-
es, Ragnheiður Þórarinsdóttir og
kirkjukór Valþjófsstaðarsóknar.
Á jóladag var fyrirhuguð
messa, en sökum mikils skaf-
rennings var henni aflýst. Að
öðru leyti var veður yfir hátíð-
arnar mjög gott, hægviðri og
nætur tunglskinsbjartar.
Fjórða dag jóla var haldin fjöl-
skylduhátíð í Végarði, félags-
heimili sveitarinnar. Þar voru
saman komin svo til öll börn í
hreppnum og margir fullorðnir,
og skemmtu allir sér fram eftir
kvöldi.
Félagsvist var einnig spiluð
milli hátíðanna.
Á gamlárskvöld var bjart og
fagurt veður. Undir miðnættið
mátti sjá flugelda á lofti víða um
Héraðið, og mikil brenna var á
Hallormsstað.
Lagarfljót er íslaust eftir að
kemur inn fyrir Egilsstaði, enda
fátítt að það leggi fyrr en eftir
áramót hér uppfrá.
Af „Fljótsdalsáætluninni" um
skógrækt er það að segja, að í
haust var Iokið við skógræktar-
girðingu í Víðivallagerði, um 50
ha að stærð. Eru þá girðingarnar
orðnar fimm að tölu á 9 jörðum,
Skógrækt í Fljótsdal.
alls um 330 ha.
Heildarplöntun er nú röskar
395 þúsund plöntur, þar af var
plantað sl. sumar 57 þúsund
plöntum. Er þá eftir að fylla í um
það bil Víi friðaðs lands.
Fyrsta gróðursetningin er frá
árinu 1970. Segja má, að árangur
þessarar ræktunar hafi farið
framúr björtustu vonum.
Skógrækt ríkisins á Hall-
ormsstað hefur séð um plöntu-
uppeldið og framkvæmdir við
gróðursetningu. Nýjar aðferðir
við plöntuuppeldið þar valda
byltingu í sambandi við fram-
leiðsluna.
Þá sá skógræktin um uppsetn-
ingu á skógræktargirðingu við
Litlu-Grund, sem er í eigu
starfsmannafélags Búnaðar-
bankans og er hún 2,3 ha að
stærð.
F.V.Þ.
Um helgina:
Prófkjör sjálfstæðismanna á
Suðurlandi og Norðurlandi eystra
- Prófkjör Alþýðuflokks á Suðurlandi, forval, síðari
umferð, Alþýðubandalags á Vestfjörðum
PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi fer fram um
helgina, einnig prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins á Norðurlandi eystra. Hjá
Alþýðuflokki fer fram prófkjör um
annað sæti listans á Suðurlandi um
helgina. Síðari umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins hefst á morgun, laugar-
dag, á Vestfjörðum og stendur hún
yfir fram til 30. þ.m.
Sjálfstæðisflokkurinn
á Suðurlandi
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Suðurlandi verður kosið báða dag-
ana. Kosningarétt hafa allir
flokksbundnir sjálfstæðismenn 16
ára og eldri, svo og allir stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins 20
ára og eldri og jafnframt þeir
stuðningsmenn sem ná 20 ára aldri
á yfirstandandi ári. Kjósa skal 4
frambjóðendur, einn úr hverju um-
dæmi (hólfi), með þeim hætti að
númera 1, 2, 3, 4 fyrir framan nafn
viðkomandi frambjóðenda. Ekki
skal númera við fleiri og ekki færri,
eigi seðill að teljast gildur.
I framboði eru 12 en þeir eru:
Fyrir Selfoss og Árnessýslu: Bryn-
leifur H. Steingrímsson, Óli Þ. Guð-
bjartsson og Þorsteinn Pálsson.
Rangárvallasýslu: Eiggert Haukdal,
Jón Þorgilsson og Óli Már Arons-
son. Vestmannaeyjar: Árni John-
sen, Guðmundur Karlsson og
Kristján Torfason. Fyrir V-Skafta-
fellssýslu: Björn Þorláksson, Einar
Kjartansson og Siggeir Björnsson.
Kjörstaðir eru eftirtaldir og
opnunartími þeirra um helgina:
Kirkjubæjarklaustri og Vík báða
dagana kl. 14—18. Skógum laugar-
dag kl. 16—20, sunnudag kl. 13—18.
Félagsheimilinu Vestur-Eyjafjalla-
hreppi kl. 12—18, Gunnarshólma og
Njálsbúð laugardag kl. 11—18.
Fljótshlíðarskóla laugardag kl.
12— 18. Félagsheimilinu Hvoli
laugardag kl. 10—19, sunnudag kl.
10—20. Hellubíói báða daga kl.
10—20. Félagsheimilinu Brúarlundi
laugardag kl. 13—18. Laugalandi
Ásmundarstöðum báða daga kl.
13— 16 og Samkomuhúsinu Djúp-
árhreppi laugardag kl. 17—20,
sunnudag kl. 13—20. Árnesi, Flúð-
um og Aratungu báða dagana kl.
14— 18. Selfossi, Eyrarbakka,
Stokkseyri, Hveragerði, Þorláks-
höfn og Vestmannaeyjum kl. 10—20
báða dagana.
Sjálfstædisflokkurinn
á Norðurlandi eystra
Þátttökurétt hafa allir félagar
sjálfstæðisfélaganna sem náð hafa
16 ára aldri, auk þess þeir stuðn-
ingsmenn sem eiga munu kosn-
ingarétt í kjördæminu við kosn-
ingarnar og undirritað hafa inn-
tökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjör-
dæminu fyrir lok kjörfundar eða
hafa skráð sig til þátttöku í próf-
kjörinu innan tveggja sólarhringa
áður en kjörfundur hefst. Númera
skal við nöfn frambjóðenda í þeirri
röð sem kjósandi vill að þeir skipi
listann, hið fæsta skal númera við
fjögur nöfn, flest sex.
Frambjóðendur eru eftirtaldir:
Björn Dagbjartsson, Halldór Blön-
dal, Júlíus Sólnes, Lárus Jónsson,
Svavar B. Magnússon, Sverrir
Leósson og Vigfús B. Jónsson.
Kjörstaðir eru: Akureyri í Kaup-
angi við Mýrarveg, Hauganesi,
Dalvík, Ólafsfirði, Eyjafirði, Greni-
vík, Húsavík, Mývatnssveit, Öxar-
firði, Kópaskeri, Raufarhöfn og
Þórshöfn.
Alþýöuflokkurinn
á Suðurlandi
Rétt til þátttöku í prófkjöri Al-
þýðuflokksins hafa allir þeir sem
náð hafa átján ára aldri og eru ekki
flokksbundnir í öðrum stjórnmála-
flokkum. Kjörstaðir verða opnir
sem hér segir: í Vestmannaeyjum,
Tryggvaskála Selfossi, Hveragerði,
Þorlákshöfn, Stað Eyrarbakka,
Gimli Stokkseyri, Verkalýðsfélags-
húsinu Hellu og símstöðvarhúsinu
Hvolsvelli, laugardag milli 10 og 16
og sunnudag milli 13 og 18. Á laug-
ardag verður opið í hreppshúsinu á
Laugarvatni milli 10 og 12, í félags-
heimilinu Aratungu milli 13 og 15, í
Asparlundi í Laugarási milli 16 og
18 og í Leikskálum Vík milli 13 og
16. Á sunnudag verður opið í Búr-
felli milli 10 og 12, í félagsheimilinu
að Flúðum milli 13 og 15, í Braut-
arholti milli 16 og 18 og í Brúar-
landi Landsveit milli 13 og 15.
Magnús H. Magnússon alþingis-
maður er sjálfkjörinn í fyrsta sætið,
en þrír bjóða sig fram í annað sætið,
þeir Guðlaugur Tryggvi Karlsson,
Hreinn Erlendsson og Steingrímur
Ingvarsson.
Alþýðubandalagið
á Vestfjörðum
Síðari umferð forvals fer fram
dagana 22.—30. janúar. Velja skal
menn í þrjú efstu sæti listans úr
hópi þeirra sjö einstaklinga sem í
kjöri eru. Kjósandi merkir með við-
eigandi tölustaf við nöfn þeirra.
Kosningarétt hafa félagar í alþýðu-
bandalagsfélögum Vestfjarða og
stuðningsmenn flokksins þar sem
engin félög eru starfandi. Kjörstjór-
ar á hverjum stað sjá um kosning-
una og ber kjósendum að snúa sér
til þeirra. Þá er hægt að kjósa utan-
kjörstaðar í Reykjavík í skrifstofu
flokksins.
Frambjóðendur í síðari hluta for-
valsins eru eftirtaldir: Finnbogi
Hermannsson, Gestur Kristinsson,
Halldór G. Jónsson, Kjartan Ólafs-
son, Kristinn H. Gunnarsson, Pálmi
Sigurðsson og Þuríður Pétursdóttir.
Kagna Hall og Jóhanna Kjartansdóttir.
Mynd Mbl./ KÖE
Bing og Gröndal
veita verðlaun
- úrslit í samkeppni um postulínsskreytingar
Postulínsfyrirtækið Bing &
Gröndahl efndi nýlega til sam-
keppni hérlendis um skreytingar á
diska.
Um 200 tóku þátt í keppninni
og skiluðu inn skreytingum sín-
um á pappadiska sem afhentir
voru þátttakendum. Listráðgjaf-
ar fyrirtækisins í Kaupmanna-
höfn skáru svo úr um hverjir
skyldu hljóta verðlaun. í fyrsta
sæti varð Ragna Björg Sigrún-
ardóttir með platta sem hún
kallar Ráðhústorgið, í öðru sæti
var Ragna Hall og í þriðja Jó-
hanna Kjartansdóttir. Hlutu
þær í verðlaun styttur frá Bing
& Gröndahl.
Plattarnir verða til sýnis í
glugga Rammagerðarinnar
næstu daga.
Ragna Björg Sigrúnardóttir með
verðlaunaplatta sinn. IJómb. kök
Þórshöfn:
Stakfell með 110 tonn,
eftir níu daga úthald
bórshöfn, 20. janúar.
TOGARINN Stakfell kom í morgun eftir niu daga veidiferd med 110 tonn,
mestallt þorskur. Er þetta hans önnur veiðiferð frá áramótum, en fyrr i
mánuðinum landaði hann hér um 85 tonnum. Veðurfar hefur verið erFitt frá
áramótum fyrir minni bátana og er bátafiskur um 25 tonn frá áramótum.
Atvinnuleysi hefur ekkert verið hér nema hvað hraðfrystistöðin stoppaði milli
jóla og nýárs til þess að mála og laga til.
Verið er að ljúka við byggingu
fjögurra íbúða í verkamannabú-
stöðum og verða þær afhentar
kaupendum í dag. Eru þetta
tveggja, þriggja og fjögurra her-
bergja íbúðir. Verktaki var Kaup-
félag Langnesinga. Sveitarstjóra-
skipti urðu hjá Þórshafnarhreppi
um áramótin. Ólafur Rafn Jóns-
son sem verið hefur sveitarstjóri
hér sl. fjögur ár gerðist lögreglu-
þjónn og við tók Stefán Þór Jóns-
son frá Fáskrúðsfirði. Hann starf-
aði sem byggingarfulltrúi og
skrifstofumaður hjá Búðahreppi
auk þess sem hann gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum. Hann er 34 ára,
kvæntur Elísu Guðjónsdóttur og
eiga þau þrjár dætur.
Þorkell
Hveragerði:
Illt yfirferðar í
hálku og krapi
llveragerói, 20. janúar. ^ JL
ÓBLIÐ veðrátta hefur verið hér í Hverageröi það sem af er þessu nýja ári.
Hefur snjóað flesta daga eitthvað og suma sólarhringana verið glórulaus
bylur og fannkoma. Hér var því allt komið á kaf í snjó, en í gær tók að rigna
og er nú illt yfirferðar í hálku og krapi.
Færðin í bænum er og hefur
verið erfið, brátt fyrir þrotlausan
snjómokstur, en snjóruðningstæk-
in hafa verið að frá morgni til
kvölds síðustu vikur. Segja elstu
menn varla muna svo óslitinn
óveðurskafla hér um slóðir. Nú
þegar hlánar má sjá að tré og
runnar eru mikið skemmd og brot-
in. Verið er að ryðja Hellisheiði,
en hún er búin að vera ófær frá
áramótum. Skólahald hefur fallið
niður nokkra daga og erfitt hefur
verið að kotna börnum til og frá
skóla. Þá hafa margir átt mjög
erfitt með að sækja sér vistir í
búðirnar, einkum aldraðir og sjúk-
ir. Hreppsnefndin brá á það ráð að
láta starfsmenn hreppsins flytja
pantanir úr verzlununum til þessa
fólks og einnig ryðja snjó frá bif-
reiðum þeirra, sem þær eiga.
Hér er einnig hjálparsveit skáta
og veitti hún mörgum aðstoð þeg-
ar mesta óveðrið gekk yfir. Eru
þeir félagar ævinlega fúsir til
starfa.
Sigrún