Morgunblaðið - 27.02.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983
Ekkert samkomulag um frumvarp til lánsfjárlaga og lánsfjáraætlun:
Beiðnir ráðuneytanna um
5 milljarða kr. ný lán
— Stefnt aö því að halda þeim innan við
10% af þjóðartekjum, sem áætlaðar eru
um 45 milljarðar kr.
Talsmenn Landssarabands vörubifreiðastjóra afhenda Ragnari Arnalds, fjár-
málaráðherra, mótmæli sín í Alþingi í gær. MorgunblaðiA/ól.K.M.
Landssamband vörubifreiðastjóra:
Reiðubúnir til aðgerða
„LANDSSAMBAND vörubifreiðastjóra hefur fengið skeyti frá flestum aðildarfé-
lögum sínum, þar sem þessari skattheimtu er harðlega mótmælt. Við erum
reiðubúnir til þess að fylgja málinu eftir með einhverjum aðgerðum, ef þörf
krefur," sagði Herluf Clausen, formaður Landssambands vörubifreiðastjóra, í
samtali við Mbl. í gær.
BEIÐNIR ráðherra um nýjar lántök-
ur á lánsfjárlögum og áætlun til
ráðuneyta sinna nema samtals 5
milljörðum króna samkvæmt heim-
ildum Mbl., en áætluð þjóðarfram-
leiðsla ársins er um 45 milljarðar
króna. Stjórnvöld hafa stefnt að því
að halda lántökunum nokkru innan
Siglufjörður:
Atvinnulífið
að Iifna við
SigluHrði, 26. febrúar.
í DAG er unnið í báðum frystihúsun-
um, þormóði ramma og ísafold, og er
þetta fyrsti laugardagurinn á þessu ári,
sem svo er. Þá kom Stálvíkin inn í
morgun með 130 lestir, mest karfa og
ufsa, enda var hún að taka út þorsk-
veiðibann.
Það er því að glaðna yfir atvinnu-
lífinu hér eftir nokkra deyfð að und-
anförnu og með vaxandi afla lifnar
staðurinn á ný. Þá er afli að glæðast
hjá netabátum hér fyrir Norðurlandi
og á svæðinu frá Húsavík til Eyja-
fjarðar hafa þeir verið að fá 14 til 15
lestir í róðri, sem þykir gott hér
norðan lands. Fréttaritari.
við 10% af þjóðarframleiðslu og er
mikill ágreiningur innan stjórnar-
liðsins hvar skera á niður. Ragnar
Arnalds lýsti því yfir í umræðum á
Alþingi fyrir helgi, að frumvarp um
lánsfjárlög og -áætlun yrði lagt fyrir
í þessari viku. Samkvæmt lögum á
að leggja frumvarpið fram um leið
og fjárlagafrumvarpið í upphafi
þings og er frumvarpið því um hálfu
ári á eftir lögboðnum framlagn-
ingartíma.
Málið var til umfjöllunar í ríkis-
stjórn á föstudag og var ekkert
samkomulag um málið þar. Átti
PÉTUR EINARSSON hefur verið
skipaður flugmálastjóri frá 1. marz
nk., eins og skýrt hefur verið frá.
Auk Péturs sóttu um starfið 10
manns. Þau eru Birgir Þorgilsson,
markaðsstjóri Ferðamálaráðs,
Erna Hjaltalín, fyrrverandi yfir-
flugfreyja, Grétar H. óskarsson,
framkvæmdastjóri loftferðaeftir-
lits flugmálastjórnar, Gunnar
Finnsson, starfsmaður Alþjóða
flugmálastofnunarinnar, Gunnar
að fjalla um það innan þingflokk-
anna um helgina. Stærstu liðir
lántökubeiðna eru á sviði orku-
mála og er beiðni til verkefna
Landsvirkjunar langstærst, eða
hálfur annar milljarður króna.
Stærstu verkefni Landsvirkjunar
eru byggðalínur og Blönduvirkjun.
Þá hefur mikill ágreiningur verið
um lántökubeiðnir til kísilmálm-
verksmiðju og fleiri verkefna sem
iðnaðarráðherra hefur farið fram
á lánveitingar til.
Þess má geta að niðurstöðutölur
á lánsfjáráætlun og lánsfjárlögum
ársins 1982 voru 2 milljarðar og
250 milljónir króna, en ekki hefur
fengizt uppgefið hverjar tölurnar
urðu í reynd. Þjóðartekjur ársins
1982 voru um 30 milljarðar kr.
Helgason, hæstaréttarlögmaður,
Gunnar Sigurðsson, flugvallar-
stjóri Reykjavíkurflugvallar,
Haukur Hauksson, framkvæmda-
stjóri flugöryggisþjónustu flug-
málastjórnar, Læifur Magnússon,
framkvæmdastjóri flugrekstrar-
sviðs Flugleiða, Þorgeir Pálsson,
dósent í kerfisfræði við Háskóla
íslands og Þorsteinn Þorsteinsson,
tæknistjóri Landhelgisgæzlunnar.
Herluf mætti við þriðja mann í
Alþingi í gær og afhentu þeir Ragn-
ari Arnalds, fjármálaráðherra,
Steingrími Hermannssyni, sam-
gönguráðherra, og fulltrúum sam-
göngumálanefndar efri deildar mót-
mæli vörubifreiðastjóra við skatt-
heimtu ríkisins.
í yfirlýsingu Landssambandsins
segir m.a.:
„Við bendum á í þessu sambandi
að 1977 er bundið með lögum frá Al-
þingi að þungaskattur skuli fytgja
byggingarvísitölu. En hvað skeður?
Allt frá árinu 1978 eru samdar
reglugerðir í ráðuneytum, sem
hækka þungaskatt af vörubifreiðum
milli áranna ’78 til '83 um hvorki
meira né minna en 1.286% umfram
byggingarvísitölu, þrátt fyrir laga-
ákvæði frá Alþingi frá 1977.
Á þessu sama árabili hefur
dekkjakostnaður hækkað nær 633%,
olíukostnaður um nær 507%, en á
þessu sama tímabili hefur vinnu-
taxti vörubifreiða hækkað um 321%.
Þessari gegndarlausu skattpín-
ingu ríkisvaldsins mótmælum við
vörubifreiðastjórar harðlega. Leng-
ur munum við ekki sætta okkur við
að vera skattlagðir langt umfram
aðra þjóðfélagsþegna.
Við förum þess á leit að hinn
fyrirhugaði nýi skattur verði alls
ekki lagður á vörubifreiðar sem
menn hafa sitt lífsviðurværi af.“
Umsækjendur voru 11
MORGUNBLAÐIÐ innti flugráðsmenn álits á skipan Péturs Einarssonar í embætti
flugmálastjóra, en með því gekk samgönguráðherra þvert á einróma tilmæli flugráðs um
skipun Leifs Magnússonar í embættið. Ennfremur innti Mbl. Steingrím Hermannsson
eftir ástæðum þess, að hann sniðgekk vilja flugráðs. Fara svör þeirra hér á eftir:
Þessi skipan
jaðrar við
siðleysi
— segir Hilmar B.
Baldursson, varafor-
maður flugráðs
„ÞESSI skipan jaðrar við siðleysi að
mínu mati,“ sagði Ililmar B. Bald-
ursson, varaformaður flugráðs, í
samtali við Mbl„ er hann var inntur
álits á þeirri ákvörðun samgöngu-
ráðherra að skipa Pétur Einarsson
flugmálastjóra gegn samróma til-
mælum flugráðs um skipan Leifs
Magnússonar í embættið.
„Skipan Péturs kemur mér
ennfremur mjög á óvart með
hliðsjón af samróma afgreiðslu
flugráðs á málinu. Það er því
augljóslega um stórpólitíska emb-
ættisveitingu að ræða. Reyndar
held ég að fá dæmi séu til um
framkomu af þessu tagi, þegar all-
ir aðalmenn og varamenn í flug-
ráði skrifa undir stuðning við ann-
an umsækjanda," sagði Hilmar B.
Baldursson ennfremur.
Þá sagði Hilmar ennfremur, að
við skoðun umsókna hefði ekki ver-
ið neinum blöðum um það að fletta,
að Leifur Magnússon hafi verið
umsækjenda hæfastur. „Flugráð
mun síðan koma saman fljótlega
til að ræða málið og lætur þá
væntanlega frá sér heyra," sagði
Hilmar að síðustu.
Steingrímur
Hermannsson,
samgönguráðherra:
Erum mjög
ánægöir með
störf Péturs
„ÞAÐ FER ekki á milli mála, að
bæði Pétur Einarsson og Leifur
Magnússon eru hæfir menn, eins og
reyndar margir aðrir umsækjendur,
sem flugráð hefði mátt velta fyrir sér.
Þá hef ég ekki fengið nema beztu
umsagnir um störf Péturs, en hann
hefur starfað á þriðja ár sem vara-
flugmálastjóri, aðfinnslulaust, og við
í samgönguráðuneytinu erum mjög
ánægðir með hans störf og ég held að
ég geti fullyrt að svo er ennfremur
með fjármálaráðuneyti," sagði
Steingrímur Hermannsson, sam-
gönguráðherra, í samtali við MbL, er
hann var inntur eftir ástæðum þess,
að hann skipaði Pétur Einarsson
flugmálastjóra frá 1. marz nk. þvert
ofan í einróma stuðningssamþykkt
flugráðs við skipan Leifs Magnús-
sonar.
„Mér finnst reyndar ekki drengi-
legt að ganga fram hjá manni, sem
hefur gegnt starfinu aðfinnslu-
laust, við erfiðar aðstæður í veik-
indum fyrrverandi flugmálastjóra.
Þá hafa mér borizt mörg meðmæli
með Pétri og stuðningsyfirlýs-
ingar, t.d. frá öllum umdæmis-
stjórum flugmálastjórnar, frá
formanni Félags fíugumferðar-
stjóra og mörgum einstaklingum.
Reyndar hafa komið margar
stuðningsyfirlýsingar með Leifi,
þannig að ég tel báða mennina
hæfa,“ eins og ég sagði áður.
„Það, sem hins vegar vegur
þyngst hjá mér, er sú staðreynd að
ég hef ekki fengið neinar aðfinnsl-
ur við störf Péturs og því finnst
mér ekki drengilegt að ganga
framhjá honum," sagði Steingrím-
ur ennfremur.
Var ekki óþarfi að leggja málið
fyrir flugráð, með hliðsjón af
framgangi málsins? „Mér finnst
ákaflega einkennilegt hvernig
staðið var að málum í flugráði.
Einn ráðsmaður skrifar upp tillög-
una fyrir fund ráðsins og lætur
síðan hina skrifa undir fyrir fund-
inn.
Þeir höfðu ekki einu sinni
fyrir því að skoða umsóknirnar og
ræða þær á fundinum. Ég er alls
ekki ánægður með afgreiðslu af
þessu tagi. Málið er reyndar af-
greitt fyrirfram, sem er ákaflega
einkennilegt," sagði Steingrímur
Hermannsson að síðustu.
Höfum orðið
varir við
virðingarleysi
ráðherra
— segir Ragnar
Karlsson
„ÞAÐ ER í raun ákveðin lífsreynsla
að lenda í því, aó ráðherra telur sig
ekki þurfa að fara eftir vilja flugráðs
aftur og aftur í mörgum veigamiklum
málum. í þessu máli er verið að velja
flugmálastjóra, en ekki pólitískan
frambjóðanda og ég er því mjög
ósáttur við þessa veitingu persónu-
lega,“ sagði Ragnar Karlsson, flug-
ráðsmaöur, í samtali við Mbl.
„Eftir að hafa farið yfir umsókn-
irnar fannst mér það liggja ljóst
fyrir, að Leifur Magnússon er
langhæfasti maðurinn," sagði
Ragnar Karlsson ennfremur.
Aðspurður um hvort þessi af-
greiðsla ráðherra væri einsdæmi
sagðist Ragnar ekki vita það.
„Þessi afgreiðsla ráðherra er hins
vegar alveg í samræmi við af-
greiðslur annarra meiriháttar
mála, sem komið hafa frá flugráði
undanfarið. Við höfum óneitanlega
orðið töluvert varir við virðingar-
leysi núverandi samgönguráð-
herra. Það virðist hreinlega vera
þannig, að samgönguráðherra
þurfi enga ráðgjöf í þessum mál-
um,“ sagði Ragnar Karlsson.
Þá kom það fram hjá Ragnari
Karlssyni, að það hafi verið stefna
samgönguráðherra og reyndar
hins nýja flugmálastjóra, að draga
sem allra mest úr valdi flugráðs.
Ragnar sagði nýlegt frumvarp á
Alþingi bera þess glöggt vitni.
„Reyndar hafa orðið á því nokkrar
breytingar frá upphaflegri mynd,
en ef það nær fram að ganga rýrir
það óneitanlega vald flugráðs. Ég
persónulega get því ekki ályktað
öðru vísi en að ráðherra hafi ákaf-
lega slæma reynslu af okkur.
Spurningin hlýtur því að vera sú,
hvers vegna ráðherra var að senda
þetta mál til flugráðs. Það hefði
verið mun einfaldara að sleppa því
í stað þess að vanvirða okkur eins
og raun ber vitni."
Ákaflega
undrandi
— segir Jóhannes
Snorrason
„ÉG ER ákaflega undrandi á að ráð-
herra skuli ganga gegn aðalmönnum
og öllum varamönnum í flugráði á
þennan hátt, en það var einhuga
ákvörðun ráðsins að mæla með Leifi
Magnússyni, eftir að það hafði farið í
gegnum öll þau gögn um umsækj-
endurna, sem fyrir lágu,“ sagði Jó-
hannes Snorrason, flugstjóri, sem er
varafulltrúi í flugráði.
„Ég vil helst ekki segja neitt
frekar að svo komnu máli, en
flugráð hlýtur að koma saman
fljótlega og skoða þetta,“ sagði Jó-
hannes ennfremur.
Of snemmt að
segja hvern-
ig brugðist
verður við
— segir Albert
Guðmundsson
„ÞAD ER ekkert um þetta að segja
að svo stöddu annað en það, að það
kemur mjög á óvart að ráðherra skuli
ganga þvert á vilja flugráðs, sem lýsti
eindregið yfir stuðningi við Leif
Magnússon, scm það taldi hæfastan
umsækjenda og best undir embætt-
isstörf flugmálastjóra búin,“ sagði
Albert Guðmundsson, alþingismað-
ur, sem sæti á í flugráði.
Kemur til greina að flugráð segi
af sér vegna þessa máls?
„Það er alltof snemmt að tala
um að flugráð segi af sér, þó að
ráðherra misbjóði sínum trúnaðar-
mönnum með þessum hætti. Því er
ekki að leyna að ráðherra hefur
notað það vald, sem hann telur sig
hafa, til hins ýtrasta. Hvernig
brugðist verður við er of snemmt
að segja, en ekki er þetta trausts-
yfirlýsing ráðherra á flugráðs-
mönnum og flugráðsmenn verða að
meta það hver og einn, hvort þeir
taka það sem vantraust eða ekki.
Framsóknarflokkurinn á sinn
trúnaðarfulltrúa í flugráði og ráð-
herra hefur gengið framhjá hon-
um, eins og okkur hinum með þess-
ari ákvörðun sinni. Ég reikna með
að flugráð komi saman fljótlega og
þá skýrast línur. Það er augljóst að
það er ekki öllum gefið að fara með
völd,“ sagði Albert Guðmundsson
að lokum.
Vilhelm Júlíusson:
Kemur mjög
á óvart
„AUÐVITAÐ kemur manni það mjög
á óvart að ráðherra skuli skipa í
stöðu flugmálastjóra, þvert ofan í
vilja flugráðs," sagði Vilhelm Júlíus-
son, sem er varamaður í flugráði.
Það hafði náðst alger samstaða í
ráðinu, bæði aðalmanna og vara-
manna, og þó er ráðið pólitískt
skipað, en það virðist ekki hafa
breytt neinu," sagði Vilhelm enn-
fremur.
Harma þessa
afstöðu
rádherra
— segir Skúli
Alexandersson
„ÉG HARMA þessa afstöðu ráð-
herra," sagði Skúli Alexandersson,
alþingismaður, sem sæti á í flugráði.
„Eins og fram kemur í samþykkt
flugráðs, þá var alger samstaða í ráð-
inu um að mæla með Leifi Magnús-
syni í stöðu flugmálastjóra og ég hef
litlu við það að bæta.“
Ber að líta á þetta sem vantraust
á flugráð og kemur til greina að
ráðið segi af sér?
„Ekki segi ég það, það liggur í
það minnsta ekki í loftinu og stofn-
un eins og flugráð verður að taka
ýmsum aðgerðum ráðherra án þess
að segja af sér, þó ég sé ekki að
mæla fyrir munn annarra manna í
flugráði en sjálfs mín,“ sagði Skúli
Alexandersson.
Ólafur Haraldsson:
Átti ekki
von á þessu
„ÉG ER nú bara nýbúinn að frétta
þetta, en ég átti svo sannarlega ekki
von á þessu, að það yrði ekki farið að
tillögu flugráðs, en algjör samstaða
var í ráðinu um að mæla með Leifi
Magnússyni," sagði Ólafur Har-
aldsson, sem sæti á í Bugráði, þegar
Morgunblaðið talaði við hann.
Morgunblaðið hafði éinnig tal af
Guðmundi Guðmundssyni, slökkvi-
liðsstjóra á Reykjavíkurflugvelli,
sem er varamaður 1 flugráði. Hann
vildi ekkert láta hafa eftir sér um
málið að svo stöddu.__