Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 3

Morgunblaðið - 27.02.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 3 Sönnun þess að ætlaði aldrei að — segir Birgir ísl. Gunnarsson um frum- varp iðnaðarráðherra o.fl. um hækkun raforkuverðs til ÍSAL „ÞAÐ ERU ALGJÖR ósannindi og fólsun aó reyna að klína þessum niöur- stöðum á Verkfræðistofnun Háskóla íslands,“ sagði Birgir Isleifur Gunn- arsson alþingismaður m.a., er Mbl. spuröi hann álits á yfirlýsingum Þjóðvilj- ans í gær þar sem fullyrt er m.a., að raforkusamningurinn við ÍSAL borgi ekki Búrfellsmannvirkin á 45 árum og að forystumenn Sjálfstæðisflokksins fari með ósannindi þegar þeir hafa haldiö því fram, að tekjurnar af ÍSAL greiði mannvirkin niður á 19 árum. Birgir sagði fyrst aðspurður um hverjar fullyrðingar sjálfstæð- ismanna væru í þessu sambandi: „Okkar fullyrðingar um að tekjur af rafmagnssölunni til ÍSAL greiði niður kostnað Búrfells- mannvirkjanna á 19—25 árum eru byggðar á útreikningum Lands- virkjunar. í þeim útreikningum er tekið tillit til þess að Búrfells- virkjun var byggð á mjög hag- stæðum tíma og mjög góð lán fengust til mannvirkjanna. Stuttu eftir að Búrfellsvirkjun var full- INNLENT gerð reið mikil verðbólgualda yfir heim í kjölfar olíuverðshækkana. Þessi verðbólga sem áfram hefur haldið og jafnvel verið vaxandi hefur hjálpað Landsvirkjun til að greiða niður lánin þannig að Landsvirkjun hefur eins og aðrir sem tóku lán á þessum tíma hagn- ast á verðbólgunni." Birgir ísleifur sagði síðan: „í út- reikningum hefur verið tekið tillit til þessa verðbólgugróða enda er hann staðreynd. Nú hefur Hjör- leifur Guttormsson látið reikna tekjur af raforkusölu til ÍSAL og byggir á allt öðrum forsendum, sem bezt verður lýst á eftirfarandi hátt: Fyrstu árin dugðu tekjur frá ÍSAL ekki til að greiða afborganir og vexti sem til féllu svo og allan rekstrarkostnað. Þann mismun sem þannig varð á reiknaði Hjör- leifur í dollurum og verðtryggir með bandarískri vísitölu og leggur síðan að auki 6% raunvexti ofan á. Þessi aðferð er ekki raunveruleg, iðnaðarráðherra semja við ÍSAL útreikningur byggist á séu frá ráðuneyti hans komnar. Tölva Há- skóla íslands hefur því ekki gefið aðra útkomu en Hjörleifur lét setja inn í hana. Það eru því ósannindi og fölsun að reyna að klína þessum niðurstöðum á Verk- fræðistofnun Háskólans. Að auki er rétt að benda á að í útreikningum iðnaðarráðherra er ekkert tillit tekið til ástands og langlífis mannvirkja Búrfells- virkjunar, þegar búið verður að greiða niður lánin. Virkjanir end- ast í áratugi og sem dæmi má nefna, að Ljósafossvirkjun er 45 ára gömul og enn sem ný. Auðvit- að verður einnig að líta til þess þegar meta á hagkvæmni slíkra mannvirkja og þær tekjur sem þær gefa af sér. Hjörleifur Guttormsson hefur nú lagt fram frumvarp um ein- hliða hækkun á orkuverði til ís- lenska álversins. Enginn annar aðili ríkisstjórnarinnar en Al- þýðubandalagið fylgir honum að máli. Æsingaskrif Þjóðviljans nú og allur málfluíningur Hjörleifs er endanleg sönnun þess, að Hjör- leifur hafi aldrei ætlað að ná samningum í þessu mikilsverða máli. Raforkuverðshækkun er okkur nauðsynleg. Því er það alvarlegt að einn ráðherra með einn stjórn- málaflokk að baki skuli nota slíkt hagsmunamál þjóðarinnar ein- göngu í flokkspólitískum tilgangi. Það er greinilegt að þetta mál átti alltaf að nota í komandi kosn- ingabaráttu." Birgir ísleifur Gunnarsson sagði að lokum: „í greinargerð með frumvarpinu úir og grúir af rangfærslum og hálfsannleik, sem ekki gefst færi á að rekja nánar hér, en ég mun gera ítarlega grein fyrir því þegar frumvarpið kemur til umræðu á Alþingi." Birgir ísl. Gunnarsson enda fá dæmi um að fjárfestingar á íslandi hafi skilað slíkum arði. Hjörleifur seilist þarna æði langt til fanga við að reyna að sverta og rífa niður upphaflegu Búrfells- samningana. Annað er mjög athyglisvert í málflutningi iðnaðarráðherra. Hann skýlir sér á .bak við Verk- fræðistofnun Háskóla íslands og lætur að því liggja að þetta séu niðurstöður hennar. Verkfræði- stofnunin tekur þó fram í bréfi sínu til ráðherrans, að þær upp- lýsingar (forsendur) sem þeirra Svartaþoka og snjó- koma í Mintex-rallinu SVARTAÞOKA og snjókoma hefur gert rallköppum okkar í Mintex- rallinu á Englandi erfitt fyrir. Haf- steinn Hauksson og Birgir Viðar Halldórsson voru í gærntorgun í 32. sæti en akstursskilyröi höfðu verið afleit það sem af var rallinu. Var skyggni sumstaðar rétt um 25 metrar vegna þoku, en henni var að létta undir hádegi í gær, þegar þriðjungi rallsins var ólokið. Forystu í Mintex-rallinu hefur Stig Blomqvist á Audi Quatro (1.33,47 mín.), annar er Jimmy McRae á Opel Ascona (1.35,53) og þriðji Per Eklund á Toyota Corolla 1600 (1.36,49). Munið karnivalhátíð Útsýnar á Broadway í kvöld Páskaferð til Costa del Brottför: 30. marz — 12 ENN NOKKUR SÆTI LAUS Voriö er yndislegur tími viö Miöjaröarhafiö þegar ilmurinn frá gróandanum fyllir loftiö sætri angan og sólþyrstur feröamaðurinn skolar af sér þreytu og drunga vetrarrns. Austurstraeti 17, sími 26611, Kaupvangsstræti 4, Akureyri, sími 22911.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.