Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.02.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1983 21 Aðalskipulag Mosfellsshrepps: Áhersla á útivist Jón R. Guðmundsson við yfirlitsmynd af aðalskipulaginu. Morgunblaðift/Öl.K M Angelotti að flýja út úr kirkjunni. Vegna þess lætur Scarpia hand- taka Cavaradossi, setja hann í fangelsi og pynta. Þá læðir Scarpia afbrýðisemi inn hjá Toscu vegna myndarinnar, sem Cavara- dossi hafði málað. Tosca kemur hins vegar upp um Angelotti til að bjarga Cavaradossi, en honum lík- ar það ekki. Tosca reynir síðan að fá Scarpia til að gefa henni og Cavaradossi frelsi til að fara frá Róm. Scarpia vill það aðeins vilji Tosca þýðast hann. Hún þykist ætla að láta undan, en þegar til kemur drepur hún Scarpia með hnífi. Síðar er Cavaradossi fangi í miklum turni og er dæmdur til dauða. Syngur hann þar meðal annars fræga tenóraríu, Turn- aríuna. Tosca hefur haft mikið af dýrgripum frá Scarpia, sem hún ætlar að nota til að múta aftöku- sveitinni til þess að bjarga Cavaradossi. Hún þykist hafa gert það, en hún er svikin og Cavara- dossi skotinn. Þá þykir Toscu ekki lengur ástæða til að lifa og fyrir- fer sér með því að kasta sér niður úr turninum. Það má því segja að Tosca sé mikill harmleikur ástar og afbrýði. Eins og áður sagði verður Tosca fyrst flutt næstkomandi miðviku- dag klukkan 20.00 og er uppselt á þá tónleika, en tónleikarnir verða endurteknir laugardaginn 5. marz klukkan 14. Laugardaginn 12. marz verður Tosca svo flutt í nýja íþróttahúsinu á Akureyri með sömu flytjendum. Kristján Jóhannsson og Sieg- linde Kahman syngja tvö af aðal- hlutverkunum. Verður það í annað sinn, sem þau syngja saman í óperu eftir Puccini, en fyrir um það bil tveimur árum sungu þau hlutverk Mimi og Rudolfo í La Boheme í Þjóðleikhúsinu. Þriðja aðalhlutverkið, Scarpia, syngur amerískur baritónsöngvari, Robert W. Becker, sem hefur þrátt fyrir ungan aldur sungið yfir 20 stór óperuhlutverk á sviði í Bandaríkjunum. Önnur smærri hlutverk eru í höndum Guðmundar Jónssonar, Kristins Hallssonar, Más Magnús- sonar og Elínar Sigurvinsdóttur, en söngsveitin Fílharmónía fer með kórhlutverkið. Kórstjóri er Guðmundur Emilsson, en æfinga- stjóri Gari Di Pasquasio frá Bandaríkjunum. Aðalstjórnandi er Jean-Pierre Jacqúillat. Kristján Jóhannsson fyrir mig og því gaman að koma heim og syngja það, enda finnst mér ég skuldbundinn til þess. Héðan fer ég svo til Florens til að syngja þar í annarri óperu eftir Puccini. Þá hef ég verið að syngja hlutverk Pinkertons í Madame Butterfly í Bretlandi, þannig að mikið er um ferðalög og af þeim hef ég gaman. Maður kemur í ný hús og hittir nýtt fólk. Mér líst vel á þessa uppfærslu, mér líður vel hér og ég mun leggja mig allan fram í hlutverki Cavaradossi. Geri ég þetta ekki vel, geri ég ekkert vel," sagði Kristján. AÐALSKIPULAG fyrir Mosfells- hrepp næstu 20 árin var kynnt á fundi í Hlégarði síðastliðinn föstu- dag og geta hreppsbúar kynnt sér það þar næstu vikurnar og gert sínar athugasemdir við það. Jón R. Guðmundsson, formaður skipulagsnefndar Mosfellshrepps, rakti sögu skipulagsvinnunar og þróun byggðar í Mosfellshreppi undanfarna tvo áratugi. Kom fram hjá honum að undirbúningur að heildarskipulagi hefði tekið á sig fasta mynd, eftir að ákvörðun um að steypa Vesturlandsveg var tekin 1973, en þá hefði þegar tals- vert af gögnum varðandi skipulag legið fyrir. Tveim árum síðar var flutt tillaga í hreppsnefnd um að efna til hugmyndasamkeppni að aðalskipulagi Mosfellshrepps og mikil umræða fór fram í hrepps- nefnd og ýmsum sérnefndum um þessi mál og sérstaka þætti þess. Fræðslufundir voru einnig haídnir í ýmsum félögum og almennur áhugi ríkjandi í hreppnum á skipulagsmálum. 1978 var haldin sýning á verkum þeirra sem þátt tóku í hugmyndasamkeppninni og viðræður fóru fram við verðlauna- hafana. Fjárskortur tafði nokkuð fyrir skipulagsvinnunni, sem og það að nýir menn að nokkru komu til starfa eftir hverjar kosningar og hefði tekið nokkurn tíma fyrir þá að komast inn í málin sem eðli- legt væri. Jón var spurður um hvað ein- kenndi aðalskipulagið fyrst og fremst. „Víðátta hreppsins er mik- il, 230 ferkílómetrar. Þéttbýlið er fyrst og fremst í vesturhorni hans og þetta hvort tveggja setur auð- vitað ríkan svip á skipulagið. Þá liggja hér margs konar þjónustu- veitur í gegn, til höfuðborgar- svæðisins, sem við verðum auðvit- að að taka fullt tillit til í aðalskipulagi. Við erum fyrst og fremst að gera allsherjar landnýt- ingaráætlun með þessu skipulagi, þar sem tekið er tillit til atvinnu- þróunar og annarra þátta. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi þróun þeirra atvinnugreina sem þegar eru fyrir hendi í hreppnum og gert er ráð fyrir að í Mosfells- dalnum þróist sömu atvinnugrein- ar og þar hefur þegar verið til stofnað. I aðalskipulaginu leggjum við áherslu á möguleika til úti- veru, teljum að hér búi fólk sem vill stunda útiveru, og reynum að örva það sem mest. Hér er stutt milli fjalls og fjöru og auðvelt um útiveru, enda gert ráð fyrir sjálf- stæðu kerfi gang-, reið- og hjól- reiðastíga," sagði Jón. Þá kom fram hjá Jóni að í fram- tíðinni er gert ráð fyrir að Vestur- landsvegur verði lagður meðfram sjónum. Hann mun því ekki kljúfa þorpið í framtíðinni. í skipulaginu er gert ráð fyrir að íbúum hrepps- ins fjölgi um helming á skipulags- tímabilinu, íbúarnir verði þá hálft sjöunda þúsund, en íbúatalan á áratugnum 1970—80 þrefaldaðist, fór úr þúsund manns í rúm þrjú þúsund. Aðalskipulag Mosfellshrepps er unnið af teiknistofunni Þverholti, Mosfellssveit. ein fjölbreyttasta og fjörugasta skemmtun ársins í kvöld. Útsýnar 1/8 \/i/ í KARNIVAL á CCCADWAy Kl. 19.00 Fordrykkur handa öllum, ilmvötn og blóm handa henni í tilefni dagsins. Kl. 19.30 Kjötkveðjuveizlan hefst með blönduðum kjötréttum, glóðarsteiktum á sviði Broad- way, meðan lúðrasveit leikur fjöruga tónlist undir stjórn Birgis Sveinssonar. Verð aðeins kr. 270.- Klæðnaður fr jáls en fólk er hvatt til að mæta í karnivalbúningum (grímubúningum) eða á annan hátt frumlega klætt. Óvenjuleg tízkusýning í Karnivalsstíl Módelsamtökin sýna vor- og sumartízkuna frá Quadro. Hár- snyrti- og dans- sýning Hinn óviðjafnanlegi Ómar Ragnarsson skemmtir. Laugavegi 66, 2. hæð sími 22460. Glæsileg ferðaverðlaun að verðmæti kr. 15.000.- verða veitt fyrir skemmtilegasta karnivalbúninginn að mati dómnefndar. Dans: Hljómsveit Björgvins Halldórssonar og diskótek Gísli Sveinn Loftsson. Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson. Stjórnandi: Ingólfur Guðbrandsson. spi'aoat teröi- Fegurðarsamkeppni Leitin aö ungfrú og herra Útsýn 1983 heldur áfram og valin verður Karni- valdrottning 1983 úr hópi gesta. Bleiki pardusinn dans frá steppstúdíó Draumeyjar Aradóttur. Danssýning: Heiðar Ástvaldsson og Auður Haraldsdóttir,, danskennari fyrrv. Ungfrú Útsýn sýna suður- ameríska dansa. Aðgöngumiðar og borðapantanir í Broadway frá kl. 14.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.