Morgunblaðið - 13.03.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1983
3
Færeyingarnir
mest innan
eigin lögsögu
Rætt við Gísla Ólafsson, sem í vetur og fyrravet-
ur hefur fylgst með laxveiðum Færeyinga
Gert er að laxinum áður en hann er hengdur upp og frystur þannig, svo
fiskurinn verði beinn og áferðarfallegur.
MEÐAN Gísli Ólafsson, fiskrann-
sóknarmaður hjá Hafrannsóknastofn-
un, var fyrir nokkru í 11 daga um
borð í færeyska laxveiðibátnum
Hvítakletti, fundust níu laxamerki.
Sex þei'ra voru norsk, tvö skosk og
eitt sænskt. Þá fundust fjórir veiði-
uggaklipptir laxar þennan tíma, sem
Gísli var um borð í skipinu á vegum
Veiðimálastofnunar. Nú er verið að
kanna hvort í þeim finnist örmerki og
þá hugsanlega íslenskt. í fyrra fund-
ust níu veiðiuggaklipptir laxar í afla
Færeyinga og reyndist irskt örmerki
vera í einum þeirra. Fjögur örmerki
hafa fundist í Færeyjum í vetur og
verið er að kanna hvaðan þau eru.
Gísli Ólafsson sagði, að Færey-
ingarnir stunduðu laxveiðarnar
með flotlínu og lina þeirra á Hvita-
kletti hefði verið um 25 sjómilur að
lengd. Línan er 2—3 millimetrar í
þvermál. Níu faðmar eru á milli
króka og flot á milli þeirra. taum-
arnir eru fimm metra langir úr
girni og beitan er 12—18 cm stór
brislingur. Gísli sagði, að í síðustu
veiðiferð hefðu mest verið 2.800
önglar á línunni, en þeir voru að
veiðum 160—180 sjómílur NNA af
Færeyjum.
Á síðasta ári fór Gísli einnig með
færeyskum laxveiðibáti og frá því
þá, sagði hann að veruleg breyting
hefði orðið að því leyti, að nú voru
tveir rannsóknamenn um borð í
veiðiskipinu, Gísli og enskur fiski-
fræðingur. Nú voru tekin sýni úr
blóði, hreistri, lifur, hrognum og
hjarta laxins og verða þau rannsök-
uð í Bretlandi.
— Það kom mér á óvart hversu
margir færeyskir skipstjórar senda
inn merki til Fiskrannsóknastofn-
unar í Þórshöfn og finnst mér
greinilegt, að Færeyingar, eins og
aðrir, vilja fá að vita hvaðan laxinn
er, sem þeir eru að veiða, sagði
Gísli. — Enn hefur ekki verið sann-
að hvaðan laxinn er og ég get nefnt
sem dæmi, að lax sem veiddist aust-
norðaustur af íslandi í fyrravetur
reyndist vera kominn frá Bretlandi.
I vetur hafa Færeyingar verið að
langmestu leyti innan eigin lög-
sögu. Danir hafa hins vegar verið á
alþjóðiega svæðinu austur af Is-
landi. Mér finnst það líka athyglis-
vert, að í norskum ám fást á hverju
sumri laxar með úthafskróka í
kjaftvikunum. Um slíkt hef ég ekki
heyrt hér á landi.
Það er margt sem komið hefur
mér á óvart í þessum veiðiferðum
með Færeyingunum. Til dæmis það,
að þrjár hrygnur virðast bíta á
önglana á móti hverjum einum
hæng. Þá er vaxtarhraði laxins í
sjónum með ólíkindum. Fiskurinn
er yfirleitt um 15 cm langur er
hann gengur í sjó, en eftir tvö ár
þar er hann orðinn um 75 cm að
lengd, sagði Gísli ólafsson.
Gísli Ólafsson rannsóknarmaður
með vænan lax um borð i færeysku
veiðiskipi.
ferðir ársins eru vorferðirnar til sólarlanda,
þegar s u mar iðerkomiðviðMi ðjarðar hafið,
en vorkuldinn ríkir enn í Norður-Evrópu
COSTA DEL SOL —TorremolmosB MALLORCA — Palma Nova/Magaluf
Brottför 10. apríl — 26 dagar fyrir aöeins
kr. 11.000 (La Nogalera)
eöa rúmar 400 krónur á dag,
sem er varla dýrara en aö lifa hér heima.
Torremolinos er staður, sem býður mesta fjölbreytni; frábæra gisti-
staði og veitingahús, fjörugt skemmtanalíf, bezta veðurfar álfunnar
og góða möguleika á hvers konar heilsurækt og uppbyggingu
likama og sálar. Þú kemur endurnærður úr ferð frá Costa del Sol.
PORTUGAL — Algarve
Brottför 18. maí frá kr. 12.400
(Vila Magna) í 3 vikur.
Nýr, glæsilegur áfangastaöur Útsýnarfarþega, sannkölluð sólskins-
paradís — Gullströndin í Albufeira — Draumastaöur sóldýrkenda,
sem kunna aö njóta lífsins.
Brottför 4. maí frá kr. 11.700
(Porto Nova) í þrjár vikur.
Eftirsóttur og sívinsæll dvalarstaöur fólks á öllum aldri. Valdir gisti-
staðir á bestu baðströndunum. Heimur glaðværðar og gestrisni,
frjálsræðis og fjölbreytni.
Hin GULLNA STRÖND ÍTALÍU —
LIGNANO Sabbiadoro
Brottför 31. maí frá kr. 12.900
(Luna) í 3 vikur.
Þetta er 10. árið, sem Útsýn býöur ferðir til þessa vinsæla staöar,
sem er sannkölluö „sumarparadís" allrar fjölskyldunnar. Frjálslegt,
glaðvært andrúmsloft, frábær baðströnd og ferðamöguleikar til
fornfrægra borga s.s. Feneyja, Flórens og Rómar, gefa Lignano
ómótstæðilegt aödráttarafl fyrir þá sem vilja víkka sjóndeildar-
hringinn um leið og þeir sækja sér hvíld og nýjan þrótt í sumarleyf-
börn 1
Feróaskrlfstofan
OTSÝN
Austurstræti 17,
Reykjavík,
sími 26611.
Hafnarstræti 98,
Akureyri,
sími 22911.