Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
21
gæti orðið til ómælds gagns í þess-
ari borg sem bæði Gyðingar og
Arabar líta á sem sitt helgasta vé.
Borgarstjórinn í Jerúsalem, Teddy
Kollek, hefur vissulega unnið stór-
virki á ferli sínum í þá átt að
reyna að bæta samskipti Gyðinga
og Araba. Það hefðu fáir sýnt ann-
að eins langlundargeð, útsjónar-
semi og lipurð. Og við höfum þá
trú, að slík menningarmiðstöð
myndi verða til mikilla heilla í
Jerúsalem.
Við lukum úr tebollunum, dóm-
arinn og bankastjórinn drifu sig í
vinnuna aftur, en þær Houlda
og Laura fóru með mér um bygg-
ingarnar þrjár og þar var margt
fróðlegt að sjá. Listmálarar voru
að leggja síðustu hönd á að hengja
upp verk sín í einum sal og átti að
opna sýningu síðar þennan dag. í
tengslum við málverkasýninguna
voru svo áform á prjónunum um
fyrirlestra og tónleika og ef til vill
þjóðdansasýningu. f annarri bygg-
ingu var stór íþróttasalur, vel bú-
inn tækjum, að því er mér sýndist,
þar var stórt skólaeldhús, bóka-
safnið sem áður er nefnt og í ein-
um sal stóð yfir ljósaæfing vegna
leiksýningar sem átti að frumsýna
einhvern næstu daga. Við litum
inn í eina kennslustofu, þar voru
arabískar telpur í handavinnu-
kennslu. Laura segir mér að þetta
sé eins konar hjálparbekkur,
stúlkunum hefur ekki beinlínis
gengið vel í bóklegu námi og fá nú
leiðsögn í alls konar verklegum
greinum til að búa þær undir að
velja sér aðra braut. Sumar eiga
við önnur vandamál að glíma líka
og koma frá heimilum, þar sem
erfiðar aðstæður eru. Allar voru
Frá Beit Hagefen.
þetta kátar og hressar stelpur,
sem voru áfjáðar í að sýna okkur
það sem þær voru að fást við.
Það er af öllu ljóst að Haifa-
búar eru stoltir af menningar-
miðstöð sinni og þeir eru stoltir af
borginni sinni og mega vera það.
Lífsmáti þeirra virðist vera ljúfur
og alþýðlegur, fólk er vinnusamt,
næturlíf er ekki teljandi í borg-
inni. Það er mjög athyglisvert að
íhuga, að sá eldmóður sem varð til
þess að Beit Hagefen var komið á
laggirnar fyrir tuttugu árum, hef-
ur ekki kulnað. Dugnaður og
áhugasemi setur svip sinn á rekst-
ur stöðvarinnar. Astandið væri
kannski bétra í ísrael ef að slíkum
málum væri unnið af jafnmikilli
einlægni og í Beit Hagefen í
Haifa.
Jóhanna Kristjónsdóttir
T.f.v. Houlda Gourevitch, Aaron Gafny, fylgdarmaður minn frá utanríkis-
ráðuneytinu, Laura Tabarani, ritari stjórnar og starfsmaður Beit Hagefen,
Mordecay Schocher, dómari og Sliman Shaheen, bankastjóri.
Hjálp er veitt við heimanám.
„Lög, ólög
og viðurlög“
Fyrirlestur um
réttarpósitífisma
John Austins
FRÆÐAFUNDUR í Félagi áhuga-
manna um réttarsögu verður hald-
inn mánudaginn 28. mars 1983 í
stofu 103 í Lögbergi, húsi Lagadeild-
ar Háskólans, og hefst hann kl.
20.30 (stundvíslega).
Fundarefni: Mikael M. Karlsson
dósent flytur erindi er hann nefn-
ir: „Lög, ólög og viðurlög. — Um
réttarpósitívisma John Austins".
Að loknu framsöguerindi verða al-
mennar umræður.
Félagsmenn og aðrir áhuga-
menn um sögu og heimspeki eru
hvattir til að fjölmenna.
(Fréttatilkynning)
Þreföldun
stóriðju
þýðir 1200 —
1500 ný störf
— sagði Víglundur
Þorsteinsson m.a.
í ræðu á árs-
fundi iðnrekenda
„ÞREFÖLDUN núverandi stóriðju-
fraraleiðslu á 10—12 árum þýðir
1.200—1.500 ný störf við stóriðju á
þeim tíma og nokkur þúsund afleidd
störf,“ sagði Víglundur Þorsteins-
son, formaður Félags íslenzkra iðn-
rekenda, meðal annars í ræðu sinni
á ársfundi félagsins á miðvikudag.
Víglundur sagði, að jafnframt
stækkun stóriðjuveranna þyrfti að
hefja undirbúning að orkusölu til
nýrrar stóriðju, sem næmi allt að
tvöföldun núverandi orkusölu ís-
lendinga til ÍSAL.
Þá sagði hann meðal annars í
ræðu sinni: „Nú dugir ekki lengur
að ástunda það aðgerðar- og
stefnuleysi, sem ríkt hefur hér á
landi mest allan tímann frá 1971.
Þegar í stað verður að móta þá
efnahagsstefnu, sem telin var
nauðsynleg í kjölfar fríverslunar-
þátttöku okkar í upphafi áttunda
áratugsins, en hefur enn ekki séð
dagsins ljós.“
Nafn féll
niöur
NAFN fermingarbarnsins, Brynju
Ingólfsdóttur, Hólagötu 45 í Ytri-
Njarðvík, hefur fallið niður í
nafnalistanum yfir fermingarbörn
í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 10.30 í
dag, sunnudag.
Karlakórinn Heimir fer í söng-
ferð til suðvesturlandsins
Bæ, Höfd&strönd, 24. marz.
KARLAKÓRINN Heimir í Skaga-
firði ætlar að fara í söngferð til suð-
vcsturlandsins í páskavikunni. Áætl-
að er að syngja í Borgarnesi, þriðju-
daginn 29. mars kl. 9. í Bæjarbíói í
Hafnarfirði, miðvikudaginn 30. marz
kl. 9. í Gamla Bíói, fimmtudaginn
31. mars kl. 4 og 9 og í Félagsbíói,
Keflavík, Föstudaginn 1. aprfl kl. 9.
Söngmenn í kórnum eru 50 tals-
ins, söngstjóri er Jiri Hlavacek,
tékkneskur tónlistarmaður sem
starfar nú annað árið við Tónlist-
arskóla Skagafjarðarsýslu. Hann
var áður stjórnandi við þjóðar-
óperuna í Prag. Undirleikari með
kórnum er kona söngstjórans,
Stanislava Hlavacekova, en hún
starfaði áður sem kennari við
tónlistarháskóla í Prag.
Á söngskrá eru lög eftir innlend
og erlend tónskáld og má nefna
meðal annars, Pílagrímakórinn úr
óp. Tannháser eftir Wagner,
Veiðimannakór úr óp. Töfraskytt-
urnar eftir Weber, Hermannakór
úr II Trovatore eftir Verdi, Þýtur í
skógum úr Finlandia eftir Sibeli-
us, Sögur úr Vínarskógi eftir
Strauss, íslands hrafnistumenn
eftir Inga T. Lárusson.
Ekki er ólíklegt að tónlistarunn-
endum þykir forvitnilegt að sjá og
heyra kórinn í höndum þessa
ágæta tónlistarfólks.
Fréttaritari.
Karlakórinn Heimir