Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
Leiðrétting
I blaðinu í gær misritaðist nafn
eins fermingardrengs, sem ferm-
ast á frá Hallgrímskirkju. Hann
heitir Björgúlfur Rúnar ólafsson
til heimilis að Baldurshaga 5 við
Suðurlandsbraut. Hlutaðeigendur
eru beðnir velvirðingar á þessu.
Þá féll niður nafn fermingar-
stúlku, sem fermast á frá Njarð-
víkurkirkju. Nafn hennar er
Brynja Ingólfsdóttir, Holtagötu
45, Njarðvík.
húsgögn
Ármúla 44
Símar
32035 — 85153
Óperan Silkitromm-
an á sviðið að nýju
SILKITROMMAN, ópera Atla
Heimis Sveinssonar, við texta Örn-
ólfs Árnasonar, kemur nú upp að
nýju hjá Þjóðleikhúsinu, en hún var
sýnd hér á síðustu listahátíð við
mjög góðar undirtektir og einróma
lof gagnrýnenda. Ástæða þess að
hún er nú sýnd að nýju, er að farið
verður með uppfærsluna á alþjóð-
lega leiklistarhátíð í Caracas í Ven-
esúela, sem haldin er í minningu
Símons Bólivars, en þangað hafði
Þjóðleikhúsinu verið boðið að
koma með óperuna og verður Silki-
tromman önnur af tveimur óperum
sem boðið er upp á á hátíðinni.
f Venesúela verða fjórar sýn-
ingar á óperunni, sú fyrsta 24.
apríl, á opnunardegi hátíðarinnar,
en áður en farið verður af landi
brott verða fimm sýningar hér á
landi, sú fyrsta á skírdag og önnur
á annan í páskum.
Þjóðleikhúsið hefur fengið til-
boð um að koma með óperuna á
fleiri hátíðir, svo sem á óperuhátíð
í Rennes í Frakklandi, leiklistar-
hátíð í Nancy, einnig í Frakklandi,
boð frá Belgrad í Júgóslavíu og frá
Konunglega leikhúsinu i Kaup-
mannahöfn og leikhúsinu í
Óðinsvéum.
Aðspurður kvaðst Sveinn Ein-
arsson þjóðleikhússtjóri ekki geta
fullyrt um hvort hægt væri að
taka einhverju af þessum tilboð-
um sökum kostnaðarins sem því
fylgdi, en hann væri töluverður.
Kostnaðurinn við þessa ferð til
Caracas lægi ekki endanlega fyrir,
en uppihald og gisting væru
greidd af þeim sem að boðinu
stæðu, sem og æfing hljómsveitar
og uppsetning leiktjalda sem væri
óvenjulegt. Hins vegar væri gildi
ferða sem þessara tvímælalaust.
Reynslan sýndi það bæði í sam-
bandi við ferðir Inúk-hópsins á
sínum tíma og förina með leikrit
Guðmundar Steinssonar, Stundar-
frið, að svona ferðir kynntu menn-
ingu okkar vel. Nú væri farið að
spyrja af fyrra bragði um öll ný
íslensk verk, en það hefði verið
óþekkt fyrirbæri fyrir tíu árum.
Efni óperunnar er sótt í alda-
gamla japanska sögu, en færð til
nútímans og gerist í tískuheimi
Vesturlanda dagsins í dag.
Leikstjóri Silkitrommunnar er
Sveinn Einarsson og hljómsveit-
arstjóri Gilbert Levine. Leik-
myndin er eftir Sigurjón Jóhanns-
son, búninga teiknaði Helga
Björnsson, Árni Baldvinsson ann-
ast lýsingu, og Nanna Ólafsdóttir
samdi danshreyfingar.
Ein breyting hefur orðið á hlut-
verkaskipun, Garðar Cortes mun
syngja í stað Kristins Sigmunds-
sonar, sem dvelur erlendis við
nám. Aðrir sem syngja í óperunni
eru Guðmundur Jónsson, ólöf
Kolbrún Harðardóttir, Rut Magn-
ússon, Sigurður Björnsson og Jón
Sigurbjörnsson en Helena Jó-
hannsdóttir dansar.
Höfundar texta, leikstjóri og hljómsveitarstjóri óperunnar taldir frá vinstri:
Örnólfur Árnason, Sveinn Einarsson og Gilbert Levine. Atli Heimir Sveins-
son, höfundur tónlistarinnar er ekki á landinu. MorminbUðMt/ Emilia.
Hljomsveitir
á Þjóðhátíð
Vestmanna-
eyja 1983
Þjóöhátíöarnefnd Týs í Vestmannaeyjum auglýsir eft-
ir hljómsveitum á Þjóöhátíö Vestmannaeyja um verzl-
unarmannahelgina. Um er aö ræöa flutning hljómlist-
ar á föstudags- og laugardagskvöldi kl. 11—04 og á
sunnudagskvöldi kl. 10—1.
Tilboö óskast sent til Rafns Pálssonar, Heiöarvegi
20, Vestmannaeyjum, fyrir 10. apríl.
Þjóðhátíðarnefnd Týs.
Það al fínasta
Nú höfum við fengið hágæða húsgögn sem eiga sér ekki hliðstæðu.
Borðstofuhúsgögn í Lúðvíks 15. stíl.
Þetta eru
húsgögn
fyrir fólk
með
hágœða kröfur.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
JHeruwahlnfotfo