Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
45
NQACK
FYRIR ALLA BÍLA OG TÆKI
Sænsku bilaframleiðendurnir VOLVO, SAAB og SCANIA
nota NOACK rafgeyma vegna kosta þeirra.
Frá vitna-
leiöslunum
í Osló
hvernig óbreyttir borgarar máttu
horfa upp á Sovétmenn mis-
þyrma eiginkonum þeirra.
Farida Ahmadi, sem barist
hefur meö uppreisnarmönnum,
var pyntuö af hernum i margar
vikur. Hún var t.d. þvinguö til aö
taka inn töflur sem valda innvort-
is blæóingum og fékk sprautur
sem leiddu til þess aö hún missti
meðvitund. Ahmati þurfti einnig
aö þola rafmagnslost og bar-
smíöar og var brennd meö gló-
andi prjónum. Um tveggja vikna
skeið þurfti hún aö standa upp-
rétt.
Fullyrt var viö vitnaleiðslurnar,
aó þúsundir Afgana hafi látið lífið
vegna pyntinga í Kabúl.
Michael Barry, sem er banda-
rískur mannfræöingur og sér-
fróöur um málefni Afganistan,
telur að um fjóröungur lands-
manna hafi látiö lífið vegna
stríðsins hingað til í landinu.
„Sovétmenn eru aö fremja þarna
raunverulegt þjóöarmorð," sagöi
hann viö vitnaleiöslurnar.
Tvö vitni sem áöur störfuöu í
afganska hernum sögöu frá því
hvernig sovéskir ráögjafar heföu
leitt herinn þegar hundruð sak-
lausra borgara voru myrt í litlu
sveitaþorpi. Atvik þetta átti sér
staö í bænum Kerala áriö 1979,
en eitt vitnanna, Abdul Azim,
stóð vörö viö bæinn þegar afg-
anskir hermenn, undir forystu
Sovétmanna, flykktust þangað.
Erindiö var aö leita andstæöinga
stjórnvalda og þegar enginn slík-
ur fannst gengu þeir berserk?
gang og skutu u.þ.b. 350 sak-
lausa borgara til bana. Síðar
voru líkin grafin meö aöstoö
skriðdreka. Azim gekk til liðs viö
uppreisnarmenn eftir aö hafa
horft á þennan atburö.
Fleiri vitni sögöu frá fjölda-
moröum hersins úti á lands-
byggðinni, þar sem uppreisnar-
mennirnir berjast. Á einum staö
var ungbarn hálshöggviö fyrir
augum móðurinnar til aö fá hana
tl aö tjá sig um aöseturstaö
uppreisnarmanna.
Hermenn hafa einnig sagt frá
eiturefnahernaði Sovétmanna í
landinu. Efnunum er varpaö úr
flugvélum á svæöi uppreisnar-
manna og hafa fjölmargir látist af
þeim sökum.
Fjölmörg atriöi komu fram í
þessum alþjóðlegu vitnaleiöslum
í Osló. Vitnin fullyröa aö Sovét-
menn gangi stööugt haröara
fram gegn borgurum og hreyfing
uppreisnarmanna veröi stööugt
öflugri.
Mikill fjöldi blaðamanna hefur
fylgst meö vitnaleiöslum þessum,
en þær voru haldnar eftir aö
norskur blaðamaöur, sem starf-
aöi sjálfstætt, var drepinn á síö-
astliðnu ári, þar sem hann var á
ferli meö uppreisnarmönnum í
Afganistan.
/
^ TsMtfreýðcmdi
%Us Hvítöl
A adeins /1 krónnr líterinn
> ;V
Komið við í cifgreiðs/u okkar í Pverholúna og kaupið
ódýrt páskaöl í lítratali.
• '
V-- Ssis-
• •
HF. OLGERÐIN
EGILL SKALLAGRÍMSSON
Þverholti 22