Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
Kristín Aðalsteinsdóttir hjá Útsýn í góóum félagsskap ítölsku feróamálafrörauðanna. Frá vinstri: Bruno Da Fre, stjórnandi Olimpo gististaóarins, Sig.
Zeroni, framkvæmdastjóri flugvallarins í Trieste, Antonio Renosto, umboósmaður Útsýnar, Sig., Murello, fulltrúi feróamálaráós, Kristín, Roberto
Forster, feróamálaráði, Isidoro Nadalini, stjórnandi Luna gististaóarins og Sig. Reverdito, forseti flugvallaráós í Trieste.
Gullna ströndin Lignano:
Útsýn efnir til Ítalíuhátíðar í Broadway í dag
og hefur sú þjónusta vakið al-
menna ánægju farþega.
Lignanoferðir Utsýnar hefjast
31. maí og standa fram í septem-
ber. Flogið er í dagflugi beint til
Trieste, en þaðan er rúmlega hálf-
tíma akstur til „Gullnu strandar-
innár" Lignano, þar sem Útsýn-
arfarþegúm ' verður tekið með
kostum og kynjum á 10 ára afmæli
Útsýnar á staðnum.
Það sem er fjarri aug-
anu er nálægt hjartanu
Einsog áður er getið eru staddir
hér á landi ítalskir frámámenn í
ferðamálum. Þessir menn voru á
blaðamannafundi sem Útsýn boð-
aði til á föstudaginn. Þeir voru
spurðir hvaða augum ítalir litu ís-
lenska ferðamenn.
„Sem vini fyrst og fremst. Ekki
síst vegna þess hversu langt að
þeir eru komnir. Það er til orðtak
á ftalíu sem hljóðar svo: Það sem
er fjarri auganu er nálægt hjart-
anu. íslenskir ferðamenn koma
lengst að þeirra ferðamanna sem
reglulega heimsækja Lignano og
þeir eru okkur mjög hjartfólgnir."
Það kom fram í máli ftalana að
straumur ferðamanna til Lignano
væri sífellt að aukast, en u.þ.b.
20.000 manns starfa við ferða-
mannaþjónustu í Lignano einni
saman. Sögðu ftalarnir að í Lign-
ano væri mikil áhersla lögð á
hreinlæti, fagurt útlit, nákvæma
skipulagningu og fjölbreytta þjón-
ustu við ferðamenn. f Lignano er
flest það fóik sem starfar við
ferðamannaþjónustu lært í faginu.
Staðurinn, fólkið og
aðstæðurnar bjóða upp
á fullkomið öryggi
Þorgeir Ástvaldsson er einn af
mörgum fastagestum í Lignano.
Hann hefur farið þangað á hverju
vori í nokkur ár. „Ég kann alveg
einstaklega vel við mig á staðnum,
einkum og sérílagi ítalina, en
þarna hef ég eignast marga vini,“
sagði Þorgeir. „Lignano sameinar
það tvennt, að þú getur bæði tekið
því rólega ef þú vilt hafa þann
háttinn á, eða stundað
skemmtanalífið, sem er mjög fjöl-
breytt. Skemmtistöðum og mat-
sölustöðum hefur farið fjölgandi á
undanförnum árum, og fiölbreyt-
ileikinn er orðinn mikill. Eg finn á
þessu talsverðan mun frá því ég
fór í mína fyrstu ferð.
Það er hvergi betra að vera með
börn og ströndin er sú besta sem
ég þekki, eða hef haft spurnir af.
Staðurinn, fólkið og aðstæðurnar
bjóða upp á fullkomið öryggi, sem
er ekki lítið atriði þegar maður
vill geta slappað af og þjónað lund
sinni.
Þá skiptir það miklu máli að ít-
ölum er upp til hópa einstaklega
hlýtt til Islendinga, sem stafar
kannski af einhverju leyti af því
að þeir hafa Þjóðverja til saman-
burðar, sem eiga það til að vera
ágengir. En í stuttu máli: Lignano
er heimilislegur, hreinlegur og að-
laðandi staður, þar sem allir geta
fengið eitthvað við sitt hæfi. Þá er
staðurinn einstaklega vel I sveit
settur; stutt að fara til Júgóslavíu,
Austurríkis, auk sögufrægra staða
á Ítalíu, sem nóg er af.
Ég er að sjálfsögðu á förum til
ítaliu í vor og er þegar farinn að
hlakka til að hitta gamla vini og
kunningja."
rf
«r
í maí næstkomandi veróa 10 ár lióin frá því að farþegar Útsýnar fóru í
fyrstu ferðina til Lignano á Ítalíu. Þaó markaöi í senn tímamót í utan-
landsferóum íslendinga og samskiptum þjóðanna, ítala og íslendinga.
íslendingar, sem dvalizt hafa í Lignano síðasta áratug, hafa átt mikilli
gcstrisni og hylli að fanga hjá íbúunum, opinberum aöilum og þjónustu-
fyrirtækjum. Til aö undirstrika og efla þau vináttutengsl efnir Utsýn nú
til ítalskrar helgi í Reykjavík frá föstudegi til sunnudags. Þar verður
Italía og Lignano sérstaklega kynnt í máli og myndum, jafnframt því aó
efnt er til veizluhalda meó ítölsku sniði og fjölbreytts skemmtanahalds
meó tízkusýningum, söng, dansi og ítölsku fjöri. Fjöibreytt fjölskyldu-
skemmtun verður haldin í veitingahúsinu Broadway á sunnudag kl.
orgeir Ástvaldsson, árlegur gestur í Lignano. Hann er þama meö dóttur
14.00.
Hópur ítala, frammámenn í
ferðamálum, frá Lignano koma
færandi hendi og gefa börnunum
páskaegg. Þessir Italir eru hér
staddir í tilefni af 10 ára afmæl-
inu. En auk þess verður bingó þar
sem aðalvinningur er Lignanoferð
fyrir alla fjölskylduna. Barna-
söngstjarnan Ingunn Gylfadóttir
syngur ásamt Garðabæjarkórnum
undir stjórn Guðfinnu D. Ólafs-
dóttur, og margt fleira er til
skemmtunar, auk gjafahapp-
drættis með ítölskum leikföngum.
„ítölsku helginni" lýkur með
gala-hátíð í Broadway á sunnu-
dagskvöld, þar bjóða ítölsku gest-
irnir ásamt Útsýn upp á margs
konar veitingar og skemmtun,
veglegt happdrætti og aðalvinn-
ingur kvöldsins verður aftur Lign-
anoferð fyrir alla fjölskylduna.
Lignano — vinsæll
og fjölbreyttur
feröamannastaöur
Ítalía er eitt mesta ferðamanna-
land heimsins, enda hefur hún sér-
stöðu um það, að hafa á boðstólum
flest það sem ferðamenn almennt
sækjast eftir, náttúrufegurð, auð-
legð lista og sögu, sem ekki á sér
hliðstæðu annars staðar í veröld-
inni, litríkt og glaðvært þjóðlíf,
samofið söng og tónlist, matar-
gerðarlist og ljúffeng vín, sem eru
heimsfræg og yndislegt loftslag,
þar sem sólin skín daglangt á
sumrin.
Lignano Sabbiadoro — „Gullna
ströndin" — nýtur sérstöðu sem
sumardvalarstaður. Af náttúrunn-
ar hendi er hún gædd einstökum
töfrum, og alkunn og listrænt ný^
tískuskipulag, með óskir og þarfir
hins þreytta, sólþyrsta ferðalangs
í huga. Litríkur, ilmandi gróður
myndar bakgrunn nútímabygg-
ingarlistar, en 8 km iöng ströndin,
þakin mjúkum, ljósum sandi er
leikvangur þar sem öll fjölskyldan
slappar af og nýtur sólar og hvíld-
ar.
Gististaðir Útsýnar í Lignano
eru í tölu hinna vönduðustu. Það
er til hagræðis fyrir farþega, að
Útsýn hefur opna skriftofu 6 daga
vikunnar bæði í Lunu og Olimpo,
sem jafnframt eru þjónustumið-
stöðvar með fjölda verslana,
matsölustaða, sjálfsafgreiðslu-
stöðum, þar sem bæði fæst hráefni
í mat og tilbúinn matur, sem hægt
er að taka beint upp i íbúð og slá
upp veizlu fyrir lágt verð.
Fjöldi kynnisferða er I boði, t.d.
til Feneyja, sem er í aðeins
klukkustundarfjarlægð og ferðir
til Florenz og Rómar njóta sívax-
andi vinsælda. Svonefnd „þriggja
landa sýn“ er ein hin vinsælasta,
en þá er ekið um Trieste til Júgó-
slavíu og gist við Bled-vatn, en
næsta dag haldið til Wörter See í
Austurríki og síðan til baka til
Lignano. Þá er á boðstólum sigling
um Adriahaf, verzlunarferðir til
Udine, höfuðborgar héraðsins,
dansleikur og ítölsk veizla úti í
sveit og margt fleira mætti telja. I
Lignano er starfræktur 3kemmti-
garður, Luna Park, sem Islend-
ingar kalla Tívolf, og nýtur mikilla
vinsælda, og er rétt hjá gististaðn-
um Luna. Á kvöldin bíður fjöldi
veitingastaða og skemmtistaða
eftir að þjóna sólbökuðum gestum,
sem koma hressir af ströndinni
eftir sólbað dagsins.
Auk farastjóra hefur Útsýn á að
skipa „hirðmeyjum", sem annast
þrif og eftirlit í íbúðum farþega,
m
Sumarleyfisstaður
íslendinga í 10 ár