Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 Eftírfarandi grein birtist upphaflega í blaðinu Commentary sem gefið er út af bandarísku Gyðingasamtökunum, og birtist hér allmikið stytt. í henni fjallar höfundurinn, blaðamaðurinn og rithöfundurinn Richard Grenier, um kvikmyndir gríska kvikmyndaleikstjórans Costa-Gavras og er fyrirsógnin „Hin undarlegi ferill Costa-Gavras“. Hér verður aðeins sagt frá orðum hans um kvikmyndina „Missing" eða „Týndur", sem nú er verið að sýna í Laugarásbíói. Sú mynd hefur verið mjög umdeild eins og kunnugt er en þar er því slegið föstu, að Bandaríkjastjórn hafi skipað fyrir um eða í það minnsta samþykkt morðið á Bandaríkjamanninum Charles Hauser. Hverjar eru staðreynd- irnar um kvikmyndina „Týndur“? Henry Kissinger meó Nancy konu sinni. Horman-fjölskyldan höfð- Consiantin Costa-Gavras, leik- aói mál á hendur honum og tíu öðrum bandarískum embættis- stjóri myndarinnar „Týndur“. mönnum og kvaó þá bera ábyrgð á dauða Charles Horman. Seinna báðu þau um að málið yrði fellt niður. Frá byltingunni í Chile í september 1973. Eldur logar í forsetahöll- inni. Árið 1973 var ungur Bandaríkjamaður, Charles Horman að nafni, drepinn í Chile. Það var á þeim dögum þegar Augusto Pinoch- et var að steypa stjórn Állendes forseta af stóli. í síðustu mynd kvikmyndaleikstjórans Costa- Gavras, „Týndur“, reynir hann að sanna, að Bandaríkjastjórn hafi staðið að baki bylting- unni og að hún hafi skipað fyrir um eða fallist á aftöku Hormans vegna þess, að hann „vissi of mikið“. EFTIR RICHARD GRENIER Nefnd á vegum Öldungadeildar Bandaríkjaþings, sem Frank Church var í forsæti fyrir, fann „engar sannanir" fyrir því, að Bandaríkjastjórn hefði átt beinan þátt í byltinguni í Chile árið 1973 og Seymour Hersh, sem staðið hefur fyrir mörgum rannsóknum á chileönskum málefnum og varð fyrstur blaðamanna til að segja frá tilraunum CIA til að hindra valdatöku Allendes árið 1970, seg- ist hafa rannsakað hvarf Charles Hormans og hvorki hafa fundið sannanir fyrir aðild Bandaríkja- stjórnar að því né að byltingu Pin- ochets. Árið 1977, fjórum árum eftir dauða Charles Hormans, höfðuðu ekkja hans, faðir og móðir skaða- bótamál á hendur Henry Kissing- er og tíu öðrum bandariskum embættismönnum, kváðu þá bera ábyrgð á dauða Hormans og kröfðust 4,5 milljóna dollara í bætur. Fjórum árum síðar, eftir að þeim hafði ekki tekist að færa hinar minnstu sönnur á mál sitt, báðu þau réttinn um að fella málið niður. Costa-Gavras hefur heldur eng- ar sannanir. Hann hefur aðeins sitt fræga innsæi. Þegar að honum var lagt, nefnir hann þetta máli sínu til sönnunar: Víetnam, Kam- bódía, Dóminikanska lýðveldið, E1 Salvador. Costa-Gavras dregur þó enga dul á, að hann vinnur úr inn- sæi sínu sem „listamaður". Ekkert af þessu kemur þó í veg fyrir, að hann byrji kvikmynd sína með þessari fáránlegu firru: „Þessi kvikmynd er gerð eftir sannri sögu. Atburðir allir og staðreyndir eru skjalfestir." Þetta er háttur Costa-Gavras. Enginn skyldi þó ætla, að Costa-Gavras hafi ekkert kynnt sér áður en hann gerði kvikmynd- ina. Að vísu las hann ekki skýrslu kirkjunnar eða skýrslur saksókn- arans um málið „Joyce Horman o.fl. gegn Henry Kissinger o.fl.“, en hann hitti Horman-fjölskyld- una og las bókina „Aftaka Charles Hormans" eftir Thomas Hausev Thomas Hauser er ungur lög- fræðingur, sem Horman-fjöl- skyldan bað upphaflega að reka fyrir sig málið, en lét sér nægja að skrifa þessa bók. Heiti bókarinnar gefur nokkuð til kynna hvaða tök- um efnið er tekið, hún er næstum því jafn einhliða og kvikmynd Costa-Gavras. Þó ekki alveg. í kvikmyndinni birtist okkur Charl- es Horman sem geðugur meinleys- ingi — ópólitískur með öllu, að sjálfsögðu — sem er að vinna að myndabók þar sem sögurpersón- urnar virðast flestar vera í andar- líki. Hann er kannski dálítið bó- hemskur í lifnaðarháttum sínum, en þó augljóslega ekkert nema ofvaxið barn. Hann og bandarfskir vinir hans í Santiago dreifa neð- anjarðar dálitlu blaði, en þegar faðir hans spyr seinna tengdadótt- ur sína að því hvort það hafi verið „róttækt" segir hún í ávítandi tón „ó, Ed“ og á þá við, að það hafi ekki verið róttækt. Af bók Hausers má þó lesa, að þetta litla blað hafi haft inni að halda fréttir fyrir Chile-búa um „baráttuna gegn styrjöldum" og um „athafnir Bandaríkjastjórnar í Chile"; að það hafi verið Joyce Horman, ekki eiginmaður hennar, sem hafi unnið að andabókinni, og að Charles Horman hafi lent í átökum við lögregluna í Grand Park í Chicago árið 1968 (mótmæli gegn Víetnam-stríðinu) og verið blaðamaður við blaðið „Nation" (vinstrisinnað blað í Bandaríkjun- um). Hvað ef Charles Horman hefði verið sýndur í myndinni sem ung- ur, bandarískur róttæklingur, sem dáðst hefði að stjórn marxista í Chile og unnið gegn stjórnvöldum í sínu eigin landi? Er þá ekki hætt við, að sumir áhorfendur hefðu ekki talið hann alveg jafn saklaus- an og látið er í veðri vaka og öðr- um jafnvel fundist hann (rang- lega, að sjálfsögðu) eiga örlög sín skilið? Nei, slíkt er ótækt fyrir Costa-Gavras. Annað athyglisvert, sem kemur fram í bókinni, er samband Hor- mans við foreldra sína. í kvik- myndinni er reynt að telja áhorf- endum trú um, að þar hafi kyn- slóðabilið verið í breiðara lagi og sérstaklega á milli þeirra feðg- anna, Ed (Jack Lemmon) og Charles (John Shea). Ed er lýst sem mjög íhaldssömum kaup- sýslumanni, sem hefur hina mestu skömm á „grautarlegum hugsjón- um“ sonar síns og tengdadóttur. Enginn vafi er á því, að honum er svona lýst til að okkur skiljist, að þegar jafnvel „svona maður" finn- ur að hans eigin stjórnvöld eru ill, þá hljóti þau einfaldlega að vera það. Með þetta í huga er fróðlegt að vitna í setningu í bókinni, sem höfð er eftir móður Charles Horman: „Við skulum átta okkur á því, að Chile er ekkert einangrað fyrirbrigði. ítalia og Frakkland munu fá marxíska stjórn einhvern tíma í framtíðinni og önnur vest- ræn ríki munu fylgja í kjölfarið. Okkur má ekki leyfast að gera

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.