Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 Bolli — þegar öllu er á botn- inn hvolft? Leiklist Jóhann Hjálmarsson l>órunn SigurAardóttir: GIIÐRÚN, sjónleikur, byggður á Laxdælasögu. Tónlist: Jón Ásgeirsson. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir. Lýsing: David Walters. Leikstjóri: Þórunn Sigurðardóttir. Þórunn Sigurðardóttir sýnir mikinn kjark að taka eina vin- sælustu íslendingasöguna og freista þess að búa til dramatískt verk úr henni. Laxdæla er umfram flestar sagnanna ástríðusaga, þó að þar sé talað hljótt eins og í mörgum þeirra og lesandi verði að leita milli lína oft og einatt. Ýmsir höfundar fyrr og síðar hafa gert ámóta tilraunir með ærið misjöfn- un árangri, enda viðkvæmni okkar mikil fyrir sögunum og að vonum. Þegar Laxdæla var mælt af munni fram við okkur krakkana í ellefu ára bekk Landakotsskóla á sínum tíma, af frásagnarsnillingnum Guðrúnu Jónsdóttur, kom ekkert annað til greina en dást að Guð- rúnu og Kjartani. Guðrún var feg- urst allra kvenna, málsnjöll, vitur, sem sagt heillandi manneskja. Kjartan var bæði hraustur og ít- urvaxinn og örlögin voru grá að skilja þau sundur. Þegar ég las Laxdælu síðar öðlaðist ég töluvert annan skilning á henni; Guðrún ofdekruð, hrokafull með afbrigðum og málsnillin heldur þynnkuleg, Kjartan eftirlætisbarn, eigingjarn, fjarska duglegur að kaffæra kónga, en harðsvíraðri frekjudall- ur en Bolli fóstbróðir hans, sem jafnan stendur í skugganum af Kjartani. Hvað þessu viðkemur er- um við Þórunn ekki svo ýkja fjarri hvor annarri. Svo er aftur annað mál, hvernig til tekst að flytja þessa sögu upp á svið; er ekki hætt við að I of mikið sé ráðist og út- Ragnheiður Arnardóttir (Guðrún) og Valgerður Dan (Hrefna). koman verði einhvers konar ung- mennafélagssögusýning, sem hefði sómt sér mætavel á Alþingishátíð- inni 1930 eða svo? Nema Þórunn hafi einhverjar nýjar og ferskar hugmyndir, sem eru til þess falln- ar að henni takizt þetta metnað- arsama verk sem hún ræðst í? Ég kom ekki auga á nýja útfærslu á persónunum, né hugmyndir sem gætu gert verkið ferskt og áhuga- vert með skírskotun til nútímans. Að því þó undanskildu, að gefið er í skyn að hin fleygu orð Guðrúnar á efri árum „þeim var ég verst er ég unni rnest" hafi átt við Bolla, en ekki Kjartan, eins og við höfum sjálfsagt flest talið. Út frá þessari hugmynd er unnið í sýningunni og kemst þetta ljómandi til skila. Annað finnst mér takast vel, það er að Þórunni heppnast að synda milli skers og báru með málfar persóna og það eitt út af fyrir sig er býsna mikið afrek. Ég dreg í efa að vísu, að fólk í „dentíð" hafi not- að sögnina að elska jafnmikið og gert var hér, en það eru svo sem bara smáatriði hjá hinu sem tekst vel. Niðurstaða mín um leikritið verður sú eftir þessar hugleiðingar að þar er nokkuð margt vel unnið, fallega skrifaðar senur, en margt of lauslega tengt og ferskleika skortir. Leikmynd fannst mér ekki hjálpa leikritinu né sýningunni; tilgangur með slæðum og álpappír, hver ætti hann nú að vera? Mér hefði persónulega fundizt fara bet- ur á því að leikmynd væri engin, en ljós hefði átt að nota langtum meira en gert var. En það er auð- vitað smekksatriði eins og allt annað. Alténd var þessi stfllseraða útfærsla umhverfisins var sýning- unni ekki til framdráttar að mín- um dómi. Tónlist Jóns Ásgeirsson- ar fannst mér á hinn bóginn að hefði hæft vel — það er að segja ef höfundi hefði tekizt það sem án efa var miðað að — búa til dramatískt leikverk. En varð kannski of sterk fyrir verk sem var ekki nær því sem að var stefnt. Leikstjórn höfundar var lipur og hugmyndarík að mörgu leyti, sýn- ingin rann áfram áreynslulaust og Þórunn hefur haft tök á því að leysa ágætlega tíðar atriðaskipt- ingar. Plaseringar fannst mér fag- mennlega unnar. Níu leikarar fóru með hlutverk, þar af þau Soffía Jakobsdóttir, Hanna Marfa Karlsdóttir og Valgerður Dan, Að- alsteinn Bergdal, Jón Hjartarson og Jón Júlíusson með mörg, og gerðu flest vel. Valgerður Dan sómdi sér þó einna bezt í hlutverki Hrefnu. Það fannst mér ágætlega unnið hlutverk. Jón Hjartarson var afskaplega lítið konunglegur Ólafur konungur, kannski það hafi verið kórónunni að henna. Hún var hreinlega hallærisleg. Sofffa Auglýsing um innlausn happd rættisskuldabréfa ríkissjóös B f lokkur 1973 Hinn 30. mars hefst innlausn happdrættisskuldabréfa ríkissjóðs í B flokki 1973, (litur: raudur). Hvert skuldabréf, sem upphaflega varað nafnverði gkr. 1.000, nú kr. 10,00, verður innleyst með verðbótum samkvæmt breytingum, sem orðið hafa á vísitölu framfærslukostnaðar frá útgáfudegi á árinu 1973 til gjalddaga í ár. Innlausnarverð hvers skuldabréfs er kr. 428,70 Til leiðbeiningar fyrir handhafa happdrættisskuldabréfanna viljum vér benda á, að bréfin eru eingöngu innleyst í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar- stræti 10, Reykjavík. Þeir handhafar skuldabréfa, sem ekki geta sjálfir komið í afgreiðslu Seðla- bankans, geta snúið sér til banka, bankaútibúa eða sparisjóða hvar sem er á landinu, sem sjá um innheimtu þeirra úr hendi Seðlabankans. Eftir gjalddaga greiðast engar verðbætur vegna hækkunar vísitölu framfærslukostnaðar. Skuldabréfin fyrnast á 10 árum, talið frá gjalddaga hinn 1. apríl 1983 Reykjavík, mars 1983. SEÐLABANKI ÍSLANDS STJÖRNUNARFIUEflSLA REKSTRAR- OG ARÐSEMISEFTIRLIT Á BIFREIÐAVERKSTÆÐUM MARKMIÐ: Tilgangur námskeiðsins er að kynna rekstrar- og arösemiseftirlitskerfi á bifreiðaverkstæöum og hvernig nota má slíkt eftirlit til aö stuöla aö bættum rekstri og traustari ákvaröanagrundvelli, ásamt möguleikum á tölvuvæöingu þessara kerfa. Á námskeiöinu veröa sérstaklega kynnt sérsmíöuö tölvu- kerfi fyrir rekstur og arösemiseftirlit á bifreiöaverkstæöum. EFNI: Fjallaö veröur um eftirtalin atriöi: — grundvallaratriöi framlegöarútreikn- inga — notkun framlegöarútreikninga á bif- reiðaverkstæöum — uppbygging skráningakerfis — verk- efnastýringar og eyöublaöaferils á einstökum verkstæöum — rekstrareftirlit og upplýsingavinnsla — stjórnskipulag og verkaskipting á verkstæöum — bókhald sem stýritæki og áætlana- gerö porour n. ranniftton, cmd. m#rc. ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiöiö er ætlaö fram- kvæmdastjórum úr bílgreininni, þjónustustjórum umboös- verkstæöa ásamt eigendum og/eða verkstjórum almennra þjónustuverkstæöa. LEIÐBEINANDI: Þórður H. Hilmarsson, cand. merc. Lauk H.A. og cand. merc. prófi frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn. Starfar nú sem rekstrarráögjafi hjá ráö- gjafafyrirtækinu Hagvangi hf. Ennfremur mun Sturla Guö- mundsson segja frá lönþróunarverkefni SMS, eins og þaö tengist bílgreininni. TÍMI: 11. og 12. apríl kl. 9.00—17.00. STAÐUR: Síðumúli 23, 3. hæð. Þátttaka tilkynniat til Stjórnunarfélagsins í síma 82930 STJðRNUNARFÉLAG ISLANDS SÍÐUMULA 23 SÍMI82930 p [ttQgtmlFl bihlh Askriftarsíminn er 83033

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.