Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 27.03.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 33 Guúbjörg Bárðardótt- ir Isafirði — Kveðja Hinsta kveðja frá samstarfsfólki Skarð er fyrir skildi skjótt hneifj að velli verknaður góður í víngarði Drottins. Við, samstarfsmenn Guðbjargar Bárðardóttur við Barnaskóla fsa- fjarðar, viljum með þessum fá- tæklegu orðum færa henni þakkir fyrir samstarf á liðnum árum og votta samúð okkar öllum aðstand- endum hennar. Guðbjörg hóf kennslustörf við Bamaskóla ísafjarðar fyrir tæp- um tveimur tugum ára, eða á því tímabili þegar það var nánast stórfrétt ef maður með próf frá kennaraskóla sótti um kennara- stöðu utan landnáms Ingólfs Arn- arsonar. Það veganesti sem Guð- björg lagði sér til þegar hún hóf kennarastarfið var, auk góðrar greindar og margvíslegrar þekk- ingar, sú dýrmæta reynsla að hafa fætt og alið upp sjö börn og fylgst með þeim og hjálpað í námi og leik. Auk þess hafði hún margra ára reynslu af margs konar félags- störfum, svo sem leikstarfsemi og störfum í þágu bæjarfélagsins. Þetta veganesti nýttist henni svo vel að aldrei varð vart að það háði henni í starfi að hafa ekki bréf upp á að hún mætti kenna börn- um. Ef við, sem höfum verið sam- verkamenn Guðbjargar um lengri eða skemmri tíma, værum spurð: „Hver eða hvernið var Guðbjörg Báðardóttir?", yrði okkur varla greitt um svör. Við getum þó, án allrar minningagreinamærðar, nefnt ýmislegt sem við sáum og heyrðum daglega. Svo sem það að framkoma hennar einkenndist af hógværð og prúðmennsku, en þó jafnframt af reisn og virðuleik. Að jafnan var hún tillögugóð á kenn- arafundum eða í einhverjum hóp öðrum þar sem mál voru rædd. Að einatt var hún hógvær í ummæl- um um menn og málefni. Að ein- arðlega bar hún blak af þeim sem henni þótti ómaklega hallað á. Að störf sín rækti hún af stakri trúmennsku og reglusemi. Sam- viskusemi var henni í blóð borin. Upptalning sem þessi segir ef til vill ekki margt — og þó —. Sagt hefur verið: „Sá sem elur með sér ljótar hugsanir og temur sér stór- yrði er líklegur til illra verka. En sá sem elur með sér fagrar hugs- anir og er hógvær í orðum er lík- legur til góðra verka." Með þetta í huga væntum við að þeir, sem átt hafa nokkra samleið með Guðbjörgu Bárðardóttur, geti í einlægni tekið undir kveðjuna: „Þar fór góð kona.“ Fræðslufundur um einkunnir og kynbótagildi hrossa Heldur ber vel í veiði hjá áhugamönnum um hrossa- rækt næstkomandi þriðju- dagskvöld, en þá gengst hestamannafélagið Gustur í Kópavogi fyrir fræðslufundi og er fundarefnið einkunna- gjöf kynbótahrossa. Einnig verða sýndar ljósmyndir (slides) af kynbótahrossum sem fram komu á Landsmótinu að Vindheimamelum á síðasta ári. Skýringar við myndirnar flytur Þorkell Bjarnason hrossaræktar- ráðunautur. Framsögumaður á fundinum verður Þorvaldur Árna- son erfðafræðingur en hann hefur á undanförnum árum stundað rannsóknir á sviði hrossaræktar bæði innanlands og utan. { sam- tali við Þorvald kom fram að er- indi hans er nokkurskonar úr- dráttur úr doktorsritgerð sem hann vinnur að. Kemur hann einnig inn á hvernig reikna megi kynbótagildi hrossa eftir einkunn- um þeirra. Að sögn Þorvaldar mun hann fara utan til Svíþjóðar í maílok og mun hann verja ritgerð- ina næsta haust við Landbún- aðarháskólann í Uppsala. Ef að líkum lætur má búast við fjörugum umræðum og er í því sambandi skemmst að minnast fundar, sem hestamannafélagið Fákur hélt áínum tíma en sá fund- ur verður vafalaust lengi í minn- um hafður. Eins og áður sagði verður fund- urinn haldinn næstkomandi þriðjudagskvöld að Hótel Sögu og hefst hann klukkan 8 og er hann öllum opinn. KENWOOD CHEF 8ESJ/ «£? HJALPARKOKKUWNN KENWOOD CHEF fylgir þeytari, hrærari, hnoðari, grænmetis- og ávaxtakvörn, plasthlíf yfir skál. KENWOOD CHEF er til í þremur mism. litum. Ennfremur er ávallt fyrirliggj'andi úrval aukahluta, svo sem, hakkavél, grænmetisrifjárn, grænmetis- og ávaxtapressa, kartöflu- afhýðari, dósahnífur ofl. UMBOÐSMENN: J L-húsið, Hringbraut 121, Reykjavík Rafha hf., Austurveri, Reykjavík. Rafþjónusta Sigurd. Skagabraut 6, Akranesi Húsprýði, Borgarnesi. Húsiö, Stykkishólmi. Verslun Einars Stefánssonar, Búðardal. Kaupféiag Saurbæinga, Skriðuiandi, Dal. Póllinn h/f, ísafirði. Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík. Verslun Sigurðar Pálmasonar, Hvammstanga Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi. Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki. Radío- og sjónvarpsþjónustan, Sauðárkróki. Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri. Grímur og Árni, Húsavík. Verslun Sveins Guðmundssonar, Egilsstööum. Mosfell, Hellu. Kaupfélag Árnesinga, Selfossi. Radío- og sjónvarpsþjónustan, Selfossi. Kjarni, Vestmannaeyjum. Rafvörur, Þorlákshöfn. Verslunin Bára, Grindavík. Stapafeli h/f, Keflavík. RAFTÆKJADEILD [hIhekiahf LAUGAVEGI 170-172 SÍMAR 11687 ■ 21240 Perla 4889 frá Kaðalstöðum er eitt af fáum kynbótahro8sum sem fengið hafa tíu fyrir vilja en þá einkunn fékk hún einmitt á síðasta lands- móti. Knapi er Bragi Andrésson. Bifreiðaeigendur Chrysler Plymouth Dodge þjónusta NISSAN DATSUN i IIK1MI hHTALBOT Simca Talbot Horizon þjónusta Og nú höfum viö tekiö að okkur þjónustu á Datsun Nissan fyrir Ingvar Helgason. Viö önnumst m.a.: — Mótorstillingar í fullkomnustu tækjum — Ljósastillingar — Sjálfskiptingaviögeröir — Boddýviögeröir — Almennar viögeröir Varahlutir ávallt til á staönum. Bifreiöaverkstæöi í alfaraleiö. Reyniö viöskiptin. Bifreiöaverkstæöi Þórðar Sigurðssonar Ármúla 36 — Sími 84363.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.