Morgunblaðið - 27.03.1983, Page 43

Morgunblaðið - 27.03.1983, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983 43 Sparsemi er dyggð, en ... Sparsemi er dyggð, eða hvað? Á þeim tímum óðaverðbólgu og fjármálaóðagots, sem nú ganga yfir þjóðina, bögglast þetta víst fyrir brjóstinu á mörgum. Að- haldssemi eða fyrirhyggja, hvað þá dyggð sparseminnar, þykir lítt einkenna athafnir stjórnarfor- kólfa þjóðarinnar undanfarið. Sí- fellt tognar úr ríkisjötunni en þar moða Sæði sauðir og hafrar í þeim sjóði sem kallaður er eign allra landsmanna. Skuttogarar eru keyptir til að hafa þá bundna við bryggju og heilu skipunum fleygt svo hægt sé að fá lán fyrir nýjum. Og „Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það,“ kvað sr. Hallgrímur Pét- ursson og verðbólgudansinn dun- ar. En það virðist skammt öfgana í milli hjá tslendingum varðandi fjármálin er marka skal gamlar sagnir. f „Skruddu" Ragnars Ás- geirssonar, fyrsta bindi sem út kom 1972, greinir frá aðhalds- semi þjóðarinnar hér áður fyrr. í skruddu segir m.a.:. „Til dæmis er sagan um prestinn, sem dró tvo aura af árskaupi vinnumanns síns fyrir það að hann hafði flutt rjólbita fyrir sjálfan sig heim, þegar presturinn hafði sent hann í kaupstaðinn." Þá er saga um efnaðan bónda, „sem dró fáeina aura af kaupi vinnufólksins," ef það leit í „Þjóð- ólf“ eða „ísafold" sem hann keypti. Sami bóndi dró einnig af kaupinu fyrir skóslit, ef vinnu- hjúin fóru af bæ í eigin þágu, en ekki heimilisins. Á þeim bæ var það venja að gefa heyskaparfólk- inu kaffi aukreitis út á tún, ef allt var hirt upp. Einn dag var mikil heyhirðing, og kaffið var komið, en þá gerði skúr í síðasta flekkinn — og kaffið var sent heim aftur. Merkur maður sagði mér, að jafnan hefði verið sent kaffi á engjar á einum bæ í hans fæð- ingarsveit og kandísmoli með. Var svo kandísmolinn látinn ganga manna á milli, úr munni f munn, og sá er síðastur drakk, varð að skila því sem eftir var af honum og það geymt til næsta dags. Þá var ljósmetið sparað sem mest mátti. Vinnukona ein kom til bónda og bað um eldspýtur. „Hvað er að heyra!,“ sagði hann, „eldspýtustokkurinn búinn! Og ekki komin jól!“ Hagsýnn og vel metinn bóndi hrósaði sér af því, að hann hefði komist af með fjóra potta af steinolíu, fyrir sitt heimili yfir veturinn. En hann dró jafnan niður í týrunni, þegar ekki var verið að vinna neitt „ljósvant" í baðstofunni. Þá var ekki óráðsían hjá þeim hjónum Gils og Málfríði í Krossa- nesi á Mýrum, en um þau segir í Skruddu: „Þau áttu margar og myndarlegar dætur. Ein þeirra fór suður til Reykjavíkur og trú- lofaðist þar stúdent, sem var í prestaskólanum. Um haustið fór hún heim til að sýna foreldrum sínum hinn tilvonandi tengdason. Þau komu heim með kvöldi, þegar dimmt var orðið, og gengu til baðstofu, þar sem gömlu hjónin voru. Þegar hún hafði kynnt unn- ustann, segir Gils: „Kveiktu Málfríður." Málfríður kveikti, og Gils leit framan í guðfræðinginn og sagði svo eftir augnablik: „Slökktu Málfríður." Óskirnar hans Helga Sérkennilegir og skrítnir menn hafa ætíð notið athygli meðal ís- lendinga og margar sögur til um þá frá fyrri tíð. I bókinni „Sögur og sagnir úr Bolungavík" eftir Finnboga Bernódusson, er að finna eftirfarandi frásögn: „Helgi Eiríksson hét maður ... Helgi var frægur í Bolungavík á tímabili fyrir fráleitar óskir, sem hann lét sér um munn fara. Eitt sinn óskaði Helgi, að Syðridalurinn í Bolungavík væri orðinn að einu sykurkeri, og hann ætti það ker fullt af rauðum plötukandíssykri. Öðru sinni óskaði hann þess, að þrekkurinn úr sér væri orðinn að svo löngum og sterkum ás, að hann næði milli Rits og Stiga, en það er þvert yfir mynni ísafjarð- ardjúps, og að hann ætti þennan ás fullan af uppspyrtum hvölum. Enn óskaði Helgi þess, að munnur sinn væri orðinn að nausti svo stóru, að hann rúmaði öll skipin (um 80), er þá reru frá Bolungavík, svo að hann gæti fengið alla matartollana, þ.e. uppsátursgj öldin. Þá var það einu sinni, er Helgi var á sjó, að hann óskaði að fá að sjá svo stóran tröllkarl, að reður- inn á honum væri eins langur og Stigahlíðin. Eitt sinn er Helgi sat að snæð- ingi í verbúðinni og kæfubitinn gerðist lítill, er hann átti ofan á þrauðið, óskaði hann þess, að hann ætti eins stóran kæfubelg og Tunguhornið. Einu sinni, þegar félagar Helga voru að hrekkja hann, sagði hann: „Það vildi ég, að kominn væri rá milli Ernis og Traðar- horns og þið væruð allir spyrtir og hengdir uppá hana á helv. löppunum." Margar fleiri voru óskir Helga og margvíslegar, og verða hér ekki fleiri taldar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.