Morgunblaðið - 27.03.1983, Blaðsíða 48
Wam II' ....... ■
^/\skriftar-
síminn er 83033
SUNNUDAGUR 27. MARZ 1983
^Ayglýsinga-
síminn er 2 24 80
Æ'
Alafoss:
Framleiðsla
hefst að nýju
á mánudag
FRAMLEIÐSLA hefst að nýju í Ála-
fossverksmiðjunni á mánudag, eftir
eldsvoða, sem varð í spunasal verk-
smiðjunnar 15. marz sl., að sögn Guð-
jóns Kristinssonar tæknilegs fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunnar, og er
við því búist að um miðja næstu viku
veröi unnið með fullum afköstum í
verksmiðjunni.
Guðjón sagði að ýmsar vélar í
spunasalnum hefðu verið reynslu-
keyrðar í gær, föstudag, og verið
væri að ljúka við að pússa sót af
öðrum. Búið væri að hreinsa allt
húsið og mála.
„Það hefur gengið ótrúlega vel að
hreinsa hér út og koma þessu af stað
að nýju. Hér hafa margar hendur
unnið létt verk, en mest hefur mun-
að um framlag starfsfólks verk-
smiðjunnar," sagði Guðjón.
Húsavík:
Gaf aðeins
einu sinni á
Þessi leiktæki við Fellaskóla voru sett upp í satnbandi við starfsviku, sem þar var haldin nú í vikunni. Eins og sjá má kunni unga
kynslóðin vel að meta tækin. Morgunbiaðið/KöE
sjó í vikunni
Vetrarvertíð með daufasta
móti í flestum verstöðvum
Húsavík, 26. marz.
AFLAMAGN sett á land á Húsavík
frá áramótum til 15. marz var 940
lestir á móti 2.030 á sama tíma í
fyrra.
Gæftaleysi og aflaleysi hafa
verið orsakir þessa. I þessari viku
hefur aðeins einu sinni gefið á sjó
þó til landsins hafi verið sæmi-
legasta veður. Þetta ástand hefur
orsakað það, að sex bátar héðan
fóru til verstöðva við Breiðafjörð
og á Suðurlandi. Togararnir hafa
aflað mun minna en í fyrra. At-
vinna hefur því verið stopul og
fleiri skráðir atvinnulausir en
undanfarið ár.
— Fréttaritari.
í fréttatilkynningu frá ráðu-
neytinu segir, að syðri mörk Frí-
merkisins skuli frá þeim degi
miðast við 63 gráður, 10 mínútur
norðlægrar breiddar, í stað 63
gráða áður. í tilkynningu ráðu-
neytisins segir ennfremur:
„Þessi breyting er gerð vegna til-
mæla fjölmargra togaraskip-
stjóra og að fengnum umsögnum
Fiskifélags íslands og
Hafrannsóknastofnunar, en báð-
ar þessar stofnanir voru þessari
breytingu meðmæltar. í umsögn
Hafrannsóknastofnunar segir I
VETRARVERTÍÐIN að þessu sinni
er með daufasta móti í flestum ver-
stöðvum sunnan lands og vantar sums
staðar um 30% upp á að sama afla-
magni sé náð nú og á sama tíma í
fyrra, þrátt fyrir verkfall í janúar þá.
Gæftaleysi hefur hamlað veiðum
nokkuð á vertíðinni, en þegar gefur á
sjó aflast treglega. Morgunblaðið afl-
aði sér f gær upplýsinga um gang mála
meðal annars: „Til eru nokkrar
athuganir rannsóknarskipa á því
svæði, sem um getur í skeyti
skipstjóranna. Samkvæmt þeim
upplýsingum hefur yfirleitt
fengist sáralítill þorskafli á
þessu svæði á þeim tíma, sem
hólfið er lokað, en aftur á móti
þó nokkur karfaafli-
Af þessum sökum getur Haf-
rannsóknastofnun fyrir sitt leyti
samþykkt, að syðri mörk þessa
svæðis verði 63 gráður, 10 mín-
útur norðlægrar breiddar.““
á hafnarvigtum nokkurra staöa.
í Grindavík fengust þær upplýs-
ingar að þessi vertíð væri nánast
ömurleg, með því lélegasta, sem
menn þar muna eftir og fæst varla
bein úr sjó. Þann 20. þessa mánaðar
var aflinn um 30% minni en á sama
tíma í fyrra. Bátasjómenn þar eru
ennfremur mjög óánægðir með þá
ákvörðun sjávarútvegsráðuneytis-
ins, að togurum skuli hleypt inn á
syðri hluta Frímerkisins. Sagði við-
mælandi Morgunblaðsins þar, að
fáfræði fiskifræðinga virtust engin
takmörk sett, svo virtist sem þeir
héldu að fiskurinn kæmi með rútu
til Grindavíkur, en ekki inn á
hrygningarsvæðin eins og Frímerk-
ið, sem togarar ættu nú að fá að
þurrka upp. Aflahæstu bátar í
Grindavík voru um miðjan mánuð-
inn Gaukur með 385,5 lestir,
Hrungnir með 354 og Hrafn með
350.
I Þorlákshöfn var hljóðið einnig
dauft 1 mönnnum og þar skortir nú
á annað þúsund lestir svo sama
aflamagni og í fyrra sé náð. Afla-
hæstu bátar þar eru Friðrik Sig-
urðsson með 608 lestir, Húnaröst
með 431 og Stokksnes með 415.
Segja menn þar, að miklu muni um
að ufsann virðist vanta í aflann.
í Keflavík er svipaða sögu að
segja. Afli er talsvert minni en í
fyrra og eru bátarnir með á milli 10
og 20 lestir í róðri. Hins vegar ber
óvenjulega mikið á loðnu á veiði-
svæðum báta þaðan og segja menn
að svo hafi ekki verið í fjölda ára. Á
Höfn í Hornafirði hefur afli einnig
verið tregur og nú vantar aflahæsta
bátinn í fyrra, Hvanney, um 300
lestir upp á að hafa náð sama afla-
magni og þá.
1 Vestmannaeyjum var hljóðið
heldur skárra í mönnum og þar var
vertíðin sögð í meðallagi. Afla-
hæstu bátar í Eyjum voru Heimaey
með 602 lestir, Suðurey með 592 og
Sighvatur Bjarnason með 523 lestir.
Afli er heldur að glæðast þar í troll
og hefur farið upp í 45 lestir hjá
einstaka báti. Þá hafa Emma og
Nanna verið á tvílembingstrolli og
náð upp í 56 lestum í róðri.
Sjávarútvegsráðuneytið:
Engin togskip inn
á Tómasarhagann
Sjávarútvegsráduneytið hefur ákveðið að togskip fái ekki
að stunda veiðar á svoköiluðum Tómasarhaga í Grindavík-
urdjúpi. Kemur ákvörðun þessi í kjölfar mótmæia bátasjó-
manna, sem lögðust eindregið gegn þeim hugmyndum, að
togskip fengju að veiða á þessu svæði meðan á páskastoppi
netabáta stæði. Svæðið var opnað togskipum á síðasta ári.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur á hinn bóginn ákveðið að
togskipum sé heimilt að stunda veiðar á ytri hluta Frímerkis-
ins svokallaða á Selvogsbanka frá og með 26. þessa mánaðar.
50% samdráttur í sölu
húsgagna á einu ári
Aukin sala sker úr um hvort uppsagnir 23 trésmiða taka
gildi, segir framkvæmdastjóri Trésmiðjunnar Meiðs
„ACTÆÐAN fyrir uppsögnum 23
manna á trésmíðaverkstæðinu hjá
okkur er sú að sala á húsgögnum
hefur minnkað verulega og lætur
nærri að það sé 50% minni sala nú
en á sama tíma fyrir ári síðan,“
sagði Emil Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri Trésmiðjunnar Meiðs
í Reykjavík í samtali við Mbl. í gær.
„Við sögðum öllum trésmiðun-
um upp á verkstæðinu nema
þremur verkstjórum og þetta
stendur þannig, að uppsagnirnar
taka gildi 1. maí nk. nema staðan
breytist. Framvindan á næstu vik-
um í sölu á húsgögnum, hvort eft-
irspurn eykst aftur, mun ráða úr-
slitum í þessu, því það er ekki
hægt að framleiða húsgögn ef
markaðurinn er ekki fyrir hendi.
Hjá okkur vinna alis um 50
manns, svo þetta er stór hópur af
starfsmönnum fyrirtækisins, en
ég tel að samdrátturinn í hús-
gagnasölu nái jafnt yfir innlenda
framleiðslu og erlenda, en inn-
flutningur á erlendri framleiðslu
heldur stöðugt áfram. Þessi sam-
dráttur kemur fyrst og fremst
niður á allri húsgagnasölunni i
heild, en aðeins hefur gengis-
skráningin að undanförnu átt þátt
í því að rétta við stöðu innlendu
framleiðslunnar og verð hennar er
nú hagstæðara en á erlendu fram-
leiðslunni, enda styrkir það stöðu
innlends iðnaðar verulega að skrá
gengið rétt,“ sagði Emil.