Morgunblaðið - 19.04.1983, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
Friðarviðleitninni
verður haldið áfram
Poul Reumert slapp en
Kaj Munk var myrtur
DANSKI leikarinn Poul Reumert,
mikill íslandsvinur og eiginmaAur
Önnu heitinnar Borg leikkonu, var á
„dauöalista nazista" og leiða átti
hann fyrir aftökusvbeit nazista
1943.
Dr. Werner Best, fulltrúi þýzku
stjórnarinnar, kom i veg fyrir
þetta á siðustu stundu, „þar sem
honum þætti Reumert svo góður
leikari", og i staðinn var skáldið
og presturinn Kaj Munk tekinn af
lífi.
Kaj Munk er einnig vel kunnur
hér á landi, m.a. fyrir leikrit sitt
„Orðið".
Danska blaðið B.T. hefur skýrt
frá þessu og upplýsingarnar koma
fram í bók, sem danskur lýðhá-
hjúpar svokallaðan „fræðilegan
morðingja" Munks. Hann var
Hans Wásche, menningarmála-
fulltrúi Þjóðverja í Danmörku.
Wásche stóð fyrir því ásamt Dr
Best og SS-foringjanum að ákveð-
ið var að taka Kaj Munk af lífi.
Samkvæmt skipun frá Berlín átti
að sýna Dönum með aftöku „mik-
ils menningarmanns" að and-
spyrnan gegn Þjóðverjum borgaði
sig ekki.
Bókarhöfundur telur að Wásche
hafi þekkt Munk á árunum eftir
fyrri heimsstyrjöldina og aðdáun
hans á honum hafi snúizt upp í
hatur.
Nánar verður sagt frá þessu
máli í blaðinu síðar.
skólamaður, Bjarne Nielsen
Brovst, sendir frá sér í haust.
Bókin fær nafnið „Morðið á Kaj
Munk“.
Það vekur einnig athygli í
Danmörku að bókarhöfundur af-
Kmj
Munk
Poul
Reumert
segir Dillon, sendiherra Bandaríkjanna í Líbanon
Janusz Onyszkiewicz, einn af leiðtogum Samstöðu, flutti ávarp á sunnudag
við athöfn, sem fram fór í Varsjá á vegum Samstöðu til þess að minnast
þeirra, sem létu lífið í Gyðingauppreisninni gegn nazistum 1943.
Glemp, kardínáli í Póllandi:
Beirút, 18. aprfl. AP.
ROBERT Dillon, sendiherra Banda-
ríkjanna í Beirút, var einn þeirra sem
festust í rústum sendiráðsbyggingar
Bandaríkjamanna, er hún hrundi í
sprengingunni í dag. Honum tókst þó
að losna ómeiddur að mestu. í viðtali
við fréttamenn, sem fram fór fyrir
framan sendiráðsbygginguna stór-
skemmda eftir sprenginguna, sagði
Dillon: „Hvað sem á dynur, þá verð-
um við að halda friðarviðleitninni
„Höfum verið auðmýktir
frammi fyrir heiminumu
Varsjá, 18. aprfl. AP.
JOSEF Glemp, kardínáli í Póllandi, ræddi í gær við Lech Walesa, leiðtoga
Samstöðu, samtaka hinna frjálsu verkalýðsfélaga, en áður hafði Glemp lýst því
yfir í mcssu, sem 10.000 manns tóku þátt í, að kommúnistastjórnin í Póllandi
hefði „auðmýkt" pólsku þjóðina með því að neita tilmælum um að taka upp
viðræður við verkalýðshreyfinguna.
I Varsjá tvístraði lögreglan 1.000
manna fundi stuðningsmanna
Samstöðu, sem safnast höfðu sam-
an við óopinbera athöfn til þess að
minnast þess, að 40 ár eru liðin frá
uppreisninni í Gyðingahverfinu í
Varsjá gegn nazistum 1943. Lög-
reglan handtók þrjá menn, þeirra á
meðal Janusz Onyszkiewics, fyrr-
verandi talsmann Samstöðu, sem
lýst hafði því yfir í ræðu, er hann
flutti, að þeir sem uppreisnina ger-
ðu í Varsjá á sínum tíma, myndu
hafa gengið í lið með Samstöðu í
baráttu hennar fyrir „sannleika,
frelsi og mannlegri reisn", hefðu
þeir lifað í dag.
Glemp kardínáli, sem er æðsti
maður pólsku kirkjunnar, gaf til
kynna eindreginn stuðning kirkj-
unnar við Samstöðu, sem bönnuð
hefur verið af herstjórninni. í
predikun, sem Glemp flutti fyrir
utan kirkju heilagrar Önnu í
Varsjá að viðstöddum 10.000
manns, skírskotaði hann til þess,
hve stjórnvöld hafa reynzt ófús til
þess að viðurkenna Samstöðu og
ræða við leiðtoga hennar og sagði:
„Við höfum verið auðmýktir
frammi fyrir heiminum."
Pólsk stjórnvöld létu handtaka
26 félaga Samstöðu á laugardag og
var það greinilega gert í því skyni
að hindra eftir megni, að áskorun
Samstöðu til pólsku þjóðarinnar
um allsherjar mótmælaaðgerðir 1.
maí nk. nái fram að ganga.
Við athöfn þá, sem Samstaða
gekkst fyrir til þess að minnast
Gyðingauppreisnarinnar í Varsjá,
var lesið bréf frá Marek Edelmann,
en hann er eini núlifandi foringi
uppreisnarmanna, sem búsettur er
í Póllandi. Honum hafði verið
meinað af yfirvöldum að fara frá
heimili sínu i borginni Lodz til þess
að vera viðstaddur athöfnina i
Varsjá.
áfram. Samningaviöræðum veröur
ekki hætt. Þetta er harmleikur og all-
ir geta gert sér í hugarlund, hve hrygg
við erum öll og reið, en það breytir
engu. Bandaríska sendinefndin í frið-
arviðræðunum mun halda áfram
starfi sínu.“
„Ég var sjálfur rétt í þann mund
að fara út og skokka mér til heilsu-
bótar, þegar sprengingin varð og
byggingin hrundi," sagði Dillon.
Hún var sjö hæða og skrifstofa
Dillons var á efstu hæð. „Ég gat
ekki hrært legg né lið, þar til ein-
hver kom að mér og týndi ofan af
mér grjótið," sagði Dillon. Hann
hlaut þó ekki nema nokkra skurði í
andlitið, sem gert var að strax, og
síðdegis í dag hafði hann náð sér
svo, að hann sneri til baka til
sendiráðsbyggingarinnar til þess
að kynna sér betur skemmdir á
byggingunni og til að fylgjast með
hjálparstarfinu í þágu þeirra sem
komist höfðu lífs af úr sprenging-
unni, en margir þeirra voru stór-
slasaðir.
Ekki eru allir Bandaríkjamenn
jafn vissir og Dillon um áframhald
friðarviðræðnanna í Líbanon.
Barry Goldwater, öldungardeildar-
þingmaður, sem er í hópi helztu
leiðtoga repúblikana á þingi, sagði
í dag í kjölfar fréttarinnar um
sendiráðssprenginguna, að kalla
bæri allt herlið Bandaríkjanna
heim frá Líbanon.
Úrum fyrir
5 millj. dollara
stolið úr safni
Jerúsalem, 18. aprfl. AP.
ÞJÓFAR, sem brutust inn í mú-
hameðskt listasafn f Jerúsalem
fyrir helgi, stálu um 100 vasaúr-
um, sem voru um 200 ára gömul
og þóttu einstök listasmfð. Lög-
reglan f ísrael telur þetta ein-
hvern mesta þjófnað í sögu
landsins og í ísraelskum blöðum
sagði í dag, aö verðmæti úranna
væri um 5 millj. dollarar. Gabri-
el Moriah, forstööumaður safns-
ins sagði, að verðmæti úranna
væri ekki unnt að reikna til fjár,
þar sem þau væru ómetanleg.
„Þessi úr voru skoðuð sem
gimsteinar af sérfræðingum á
þessu sviði," sagði Moriah.
„Þau voru smíðuð handa kon-
ungum og prinsum."
Korchnoi sigradi Portisch
AP. Bad KisHÍngen, Velden og Alicante.
VIKTOR Korchnoi tryggði sér sigur í
einvígi sínu við Ungverjann Lajos
Portisch með því að vinna níundu
skákina sem tefld var á laugardaginn.
Úrslit einvígisins, sem háð var í Bad
Kissingen í V-I>ýzkalandi, urðu því
6—3 Korchnoi í vil. Hann heldur þvf
áfram í undanúrslitin og mætir Garry
Kasparov frá Sovétríkjunum í sumar,
en í vetur vann Kasparov landa sinna
Alexander Beljavsky 6—3 í einvígi.
Staður og stund þess einvígis hefur
enn ekki verið ákveðin.
Ungverjinn Zoltan Ribli hefur nú
náð góðri forystu í einvígi sínu við
Eugenio Torre frá Filippseyjum sem
fram fer í Alicante á Spáni. Eftir að
fjórum fyrstu skákunum hafði lokið
með stuttum jafnteflum vann Ribli
fimmtu skákina í 35 leikjum og þá
sjöttu í aðeins 20 leikjum, en það er
langstyzta vinningsskákin í áskor-
endaeinvígjunum nú. Sjöundu skák-
ina átti að tefla á sunnudaginn, en
þá bað Torre um frest.
Mesta spennan ríkir í einvígi
þeirra Vassily Smyslovs, fyrrum
heimsmeistara frá Sovétríkjunum,
og Robert Hubners, frá V-Þýzka-
landi, en það fer fram í Velden i
Austurríki. Því varð að framlengja
eftir tíu skákir því leikar stóðu þá
jafnir, 5—5. Tefla átti fjórar skákir
til viðbótar. Um helgina lauk elleftu
og tólftu skákunum með jafntefli,
en sú þrettánda fór í bið.
Ný plata
Viðar og Ari: Minningar mætar
Hinir landskunnu söngvarar og hljóöfæraleikarar Viöar Jónsson og Ari Jónsson syngja
saman á þessari nýju plötu gamalkunn lög, sem flestir kannast viö. En fæst þessara
laga hafa áöur komið út á íslenskum plötum.
Þetta er frábær plata: Einkar fallegur söngur á nokkrum bestu
lögum áranna 1940 til 1950 í vönduöum útsetningum Ólafs Gauks.
Plata og/eöa kassetta fæst í
hljómplötuverslunum um land allt. sG-hijómpiötur hf.
Ármúla 38. Sími 84549.