Morgunblaðið - 19.04.1983, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 19.04.1983, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983 Eiginkona mín, ÓLÖF SIGFÚSDÓTTIR, frá Aðalbóli, lést í sjúkrahúsinu á Hvammstanga 17. þ.m. Benedikt Jónsson. Móðir mín, tengdamóöir og amma, SIGRÍDUR JÓNSDÓTTIR, frá Kirkjubæ, lést sunnudaginn 17. apríl. Höröur Daníelsson, Kristín Þorkelsdóttir, Heiöar Rafn Haröarson, Daði Haröarson, Þorkell Sígurður Haröarson. + Móðir okkar og tengdamóðir. GUDRUN JÓNSDÓTTIR BACHMANN, lést laugardaginn 16. apríl. Jón G. Hallgrímsson, Þórdís Þorvaldsdóttir, Helgi Bachmann, Halla Bachmann, Helga Bachmann, Helgi Skúlason, Hanna Bachmann, Jón K. Ólafsson. Bróöir minn, JÓN JÚLÍUSSON, frá Noröurkoti, Kjalarnesi, andaöist í Borgarspítalanum laugardaginn 16. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Guöfinna Júlíusdóttir. t Faðir okkar, VILHELM FRÍMANN FRÍMANNSSON, Hringbraut 46, lést aö morgni 18. apríl aö Hrafnistu í Reykjavík. Synir hins látna. + Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir, PÁLLPÁLSSON, Drápuhlíö 19, lést í Landspítalanum 17. april. Sólveig Kolbeinsdóttir, Kolbeinn Pálsson, Málfríöur Pálsdóttir, Björgólfur Jóhannsson, Steinunn Pálsdóttir, Faöir okkar, KRISTJÁN EGGERTSSON, Þverholti 18B, lést aö helmili sínu laugardaginn 16. apríl. Fyrir hönd vandamanna, Katrín Kristjánsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson, Kristján Kristjánsson, Rósa Kristjánsdóttir. + Eiginmaöur minn, sonur, faöir og afi, INGÓLFUR A. MAGNÚSSON, lést á heimili sínu aöfaranótt 16. apríl. Kolbrún Óskarsdóttir, Magnús Grímsson, Ásdís Magnea Ingólfsdóttir, Bjarni Þórarinsson, María Ingólfsdóttir, Hreiðar Elmers, og barnabörn. Minning: Jóhannes Sœmunds- son íþróttakennari Fæddur 25. júlí 1940 Dáinn 10. aprfl 1983 Kveðja frá nemendum Þegar við kvöddum Menntaskól- ann sl. vor, hefði enginn trúað því, að þar færi síðasti hópurinn, sem Jóhannes Sæmundsson útskrifaði. Erfitt er að sætta sig við, að svo hraustur maður, sem var fyrir- mynd annarra, hafi verið burt- kallaður. Vegir guðs eru órann- sakanlegir. Kallið kemur sem sig- þung alda af sæ, og allir eru jafnir að leikslokum. Fjögur ár undir handleiðslu Jó- hannesar marka djúp spor. Hann hreif alla, er hlustuðu á hann tala um mikilvægi þess að rækta lík- amann og nota uppvaxtarárin tii uppbyggingar hans. Hann lagði ríka áherslu á heilbrigt líferni og vonandi berum við gæfu til að lifa í þeim anda, sem hann kenndi okkur. Jóhannes tók virkan þátt í fé- lagslífi Menntaskólans. Hjá hon- um mátti jafnan væntan liðsinnis, og var því gott að leita til hans. Hann kom fram við okkur strák- ana sem jafningja, skildi sjónar- mið okkar hverju sinni. Viðmót hans og einlægni vakti virðingu okkar. Jóhannes mun lifa í hugum okkar. Hann miðlaði okkur af þekkingu sinni, þekkingu, sem mun reynast hverjum manni gott veganesti. Stórt skarð er höggvið. Skarð, sem ekki verður fyllt. Fyrir hönd nemenda Jóhannes- ar Sæmundssonar vottum við eig- inkonu hans, börnum og foreldr- um innilega samúð. Strákarnir í útskriftarárgangi MR 1982. Kveðja frá íþróttakennurum Menntaskólans í Reykjavík Jóhannes Sæmundsson hóf kennslu hér í skóla haustið 1967. Hann var reyndar okkur þá ekki með öllu ókunnur. Nokkru áður hafði hann verið í hópi efniiegustu frjálsíþróttamanna landsins. Þeg- ar hann hélt til háskólanáms í Bandaríkjunum, töldu margir að hann ætlaði að notfæra sér að- stæður þar til þess að bæta árang- ur sinn í íþróttum. Framabraut afreksmannsins blasti við honum. Hann sneri heim að námi loknu og var þá sannarlega afreksmaður, þótt á annan hátt væri en margir höfðu búizt við. Hann hafði aflað sér traustrar menntunar í þjálfun íþróttamanna og kennslu. Tók hann þegar til starfa í íþróttafé- lögum og í skólum. Kom strax í Ijós, að hann var einkar vel fallinn til þeirra starfa. Hér í skóla hlóðust á hann verk- efni, bæði í kennslu og umsjón með félagslífi nemenda. Varð hann félagsmálafulltrúi skólans, þegar það embætti var stofnað. Leysti hann það af hendi af mikilli alúð og dugnaði. Hann hélt sam- bandi við marga nemendur sína, löngu eftir að þeir voru farnir héð- an úr skóla. í hópi samkennara sinna var Jóhannes jafnan hrókur alls fagnaðar. Hann var gæddur ríkri kímnigáfu, víðlesinn, lét sér ekkert mannlegt óviðkomandi og vildi leysa hvers manns vanda. Við söknum góðs samkennara og vin- ar. Margréti, eiginkonu hans, son- um og öðrum vandamönnum vott- um við innilega samúð okkar. Kiríkur Haraldsson, Fríða Eyfjörð, Gunnar Gíslason, Lára Sveinsdóttir, Ragna Lára Ragnarsdóttir. Kveðja frá Hand- knattleiksdeild KR Jóhannes Sæmundsson íþrótta- kennari við Menntaskólann í Reykjavík andaðist 10. apríl síð- astliðinn eftir erfiða sjúkdóms- legu. Jóhannes hafði um langt árabil verið einn ötulasti íþróttafrömuð- ur landsins, og var sífellt að bæta við þekkingu sína á íþróttum og var ávallt reiðubúinn að miðla henni til annarra. Keppnistímabilið 1981—82 áttu leikmenn og forystumenn hand- knattleiksdeildar KR þess kost að njóta leiðsagnar og félagsskapar Jóhannesar. Það var mikið að ger- ast í félaginu og markið var sett hátt. Hópurinn var mikið saman og reyndi því oft á félagslega hæfileika þeirra, sem að hópnum stóðu. Jóhannes Sæmundsson var einn þeirra og tókst honum oftast með sinni einlægu og heiðarlegu framkomu að hressa menn við, þegar illa gekk. Jóhannes Sæmundsson var einn þeirra manna, sem áunnu sér virð- ingu þeirra, sem þeir umgengust vegna heiðarleika síns, kunnáttu og léttrar lundar. Um hann eigum við aðeins góðar minningar. Handknattleiksdeild KR vottar eftirlifandi eiginkonu og börnum sína dýpstu samúð. Ragnar II. Kilífd, eilífð, ord á mannsins tungu, andans bæn vid daudasporin þungu. (E.B.) Þau döpru sannindi eru öllum ljós, að dauðinn er það eina, sem enginn fær umflúið. Sumir lifa löngu lífi, aðrir ekki, en víst er, að æviferill einstaklinganna verður ekki rakinn í árafjöida jarðvistar- innar, heldur í því, hvernig hver og einn nær að verja sínum tíma hér á jörð. Ég hygg, að við getum sagt um Jóhannes Sæmundsson, sem í dag er kvaddur í hinzta sinn, að hann hafi varið sínum jarðvist- artíma vel og lifað lífinu lifandi og frjór. Fyrir þá sök verður sorgin jafnvel enn þungbærari og óskilj- anlegt hvers vegna slíkur hæfi- leika- og mannkostamaður varð að kveðja svo skjótt. Svo sannarlega átti hann verkefni óleyst, fullur af kappi og áætlunum. Eg kynntist Jóhannesi fyrst að ráði fyrir tæplega 4 árum, er við störfuðum saman á pólitískum vettvangi. Upp frá því urðum við góðir vinir og ég lærði að meta manninn bak við einstaklinginn. Jóhannes var stór og glæsilegur á velli og hann hafði til að bera ein- hverja þá beztu kosti, sem prýða mega fólk: hann var hress, glað- legur og einlægur. Aldrei var neitt vol eða kvörtunartónn, heldur sannur baráttuhugur og fram- sækni, enda var hann íþróttamað- ur og lifði og starfaði í þeim anda. Jóhannes var líka hamingju- maður í einkalífinu. Margrét og hann voru gæfa hvort annars og það er sjaldan, sem manni finnst fólk eiga saman eins og var með þau. Þau voru hvort öðru nóg; gátu talað, hlegið, grátið og þagað sam- an. En umfram allt — hvorugt vildi af hinu sjá og bæði alltaf að hugsa um velferð hins aðilans. Þess vegna hlýtur sársaukinn að vera nær óbærilegur og ekkjan unga mest af öllum að spyrja sig spurningarinnar um tilganginn með því að hrífa mann í blóma lífsins svo miskunnarlaust burt. Ekkert okkar skilur þann tilgang, en einhver hlýtur og verður hann að vera. Margrét er svo vel gerð, að Drottinn veit, að hún stendur undir þeirri byrði, sem hann hefur lagt á hana nú. Hún mun verða sonunum þremur móðir og faðir og kenna þeim að lifa eins og faðir þeirra gerði: í anda góðs drengs, sem öllum vildi gott gera, því að hann var hamingjusamur og vissi, að einungis hamingja og hugar- friður gefa jákvætt viðhorf. Við, sem stöndum álengdar, get- um lítið annað gert en votta sam- úð okkar og orðin megna lítils, en þau eru samt það eina, sem við getum tjáð okkur með. Ég ætla ekki að rekja æviferil Jóhannesar; þetta eru einungis ör- fá kveðjuorð, en Jóhannes kvaddi þennan heim þannig, að hann skil- ur eftir sig heiðríkju í hugum þeirra, er hann þekktu. Mig langar til að votta foreldr- um hans og öðrum ættingjum innilega samúð, og ég bið góðan Guð að styrkja Margréti og synina þrjá, sem hafa misst svo mikið, en mega ekki gleyma því, að þau áttu í Jóhannesi fjársjóð, sem tíma- bundinn aðskilnaður fær ekki grandað. Tími er svipstund ein, sem aldrei liður, algeims rúm, ein sjón, einn dýrðarbjarmi. (Einar Ben.) Arndís Björnsdóttir Jóhannes Sæmundsson íþrótta- kennari og fræðslufulltrúi ÍSÍ er látinn langt um aldur fram, aðeins 42 ára. Stórt skarð er fyrir skildi. Jóhannes fæddist 25. júlí 1940, sonur hjónanna Sæmundar Jó- hannessonar og konu hans, Sigur- veigar Guðmundsdóttur. Jóhannes lauk íþróttakennaraprófi frá há- skólanum í San Jose í Kaliforníu í Bandaríkjunum 1965. Frá árinu 1968 til dánardags starfaði hann sem íþróttakennari við Mennta- skólann í Reykjavik. Leiðir okkar Jóhannesar lágu fyrst saman fyrir um 13 árum. Störfuðum við þá saman eitt sumar á ms. Eldvík. Jóhannes starfaði sem háseti, en ég sem léttadrengur. Skipið var þá meðal annars í ferðum milli íslands og Portúgals með saltfisk. Það líður mér seint úr minni hvílík ham- hleypa Jóhannes var til vinnu. Ekki var verið að staldra of lengi við í matar- og kaffitímum, því vinnan var númer eitt hjá honum. Þetta sumar hefur verið mér ætíð síðan mjög minnisstætt, því svo ótal margt kenndi Jóhannes mér, þá óhörðnuðum unglingi, til góðra verka og kann ég honum mikla þökk fyrir. Árið 1974 lágu leiðir okkar sam- an að nýju, en þá var hann íþróttakennari minn við Mennta- skólann í Reykjavík og næstu fjögur árin þar á eftir. Ég ætla ekki að tíunda hér kennsluhæfil- eika Jóhannesar en við fundum það vel nemendur hans að fjórum árum liðnum hversu góðan kenn- ara við höfðum haft. Hann hugs- aði ekki aðeins um þessi fjögur ár sem hann átti að kenna okkur, það voru líka árin eftir að skólagöngu lyki. Hann lagði ríka áherslu á að hver nemandi kæmi sér upp sínu eigin æfingaprógrammi, því hann taldi það sjálfsagðan hlut að menn héldu líkamsþjálfun áfram eftir að skólagöngu lyki. Jóhannes tal- aði alltaf með miklum sannfær- ingarkrafti. Orð hans hafa fest mér í minni og hef ég ætíð síðan stundað líkamsþjálfun eftir hans fyrirmynd og tel ég þá kennslu sem hann veitti mér í mennta- skóla hafa orðið mér gott vega- nesti. Síðastliðið haust lágu leiðir okkar aftur saman en þá leituðum við tveir félagar til hans, eftir ábendingu, varðandi ráðleggingu um verkefni sem við unnum að og tengdist hans áhugamálum og starfi, fræðslu um líkamsþjálfun. Tók hann okkur opnum örmum, eins og hans var von og vísa og sýndi þessu verkefni okkar mikinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.