Morgunblaðið - 19.04.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
SÁÁ skori á yfirvöld landsins
og þjóðina að minnka áfengiskaup
Valdimar Guðmundsson skrifar:
„Fyrir nokkru sendu SÁÁ-
samtökin frá sér hjálparbeiðni og
fóru fram á 1800 króna framlag til
húsbyggingar fyrir drykkjusjúkl-
inga. Fyrst þegar ég man eftir, á
fyrsta tug þessarar aidar, voru al-
gengustu sjúkdómarnir sullaveiki,
lungnabólga, barnaveiki og berkl-
ar. Krabbamein heyrðist nú talað
um líka eða átumein. Flestir þess-
ara sjúkdóma eru nú orðnir lækn-
anlegir og fátíðir á móti því sem
áður var. En krabbameinið virðist
vera erfitt viðfangs, þrátt fyrir
mikla vinnu sem lögð er af mörk-
um til að lækna það og útrýma
því. Mér er sagt að menn viti ekki
af hverju það kemur eða hver séu
tildrögin.
En um þennan svokallaða
drykkjuskapssjúkdóm er öðru
máli að gegna, og hvort sem á að
nefna hann sjúkdóm eða eitthvað
annað, þá er margt illt búið að
hljótast af drykkjuskapnum. Mörg
hörmuleg slys og ógæfuverk er oft
hægt að rekja til ölvunar, og
margt heimilisbölið, fátækt og
fjölskylduraunir á víst oft sömu
tildrög. Því er það rétt, að hér þarf
hjálpar við, en það þarf að byrja á
réttum enda.
Leiðinlegur
misskilning-
ur leiðréttur
„f tilefni af skrifum Jónasar
Péturssonar varðandi útboð í
Kvíslaveitu, þar sem því er haldið
fram, að Landsvirkjun sé að óska
tilboða í stórfelld mannvirki til
vatnaflutninga frá Norðurlandi til
Suðurlands, vill undirritaður
vekja athygli á eftirfarandi:
Vatnsföll þau, sem tilheyra
Kvíslaveitu, eru öll á vatnasvæði
Þjórsár og Tungnaár. Fram-
kvæmdir við Kvíslaveitu fela því á
engan hátt í sér neina vatnaflutn-
inga á milli landsfjórðunga og
byggist upphrópun Jónasar á leið-
inlegum misskilningi, sem hér
með er leiðréttur.
Jóhann Már Maríusson,
y firverkf ræðingur.
Þessir hringdu . . .
Gormana á
listahátíð
Sveinn Dal Sigmarsson hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Ég hef séð það í dálkunum hjá þér,
að menn hafa verið að stinga upp
á ýmsum hljómsveitum, sem vert
væri að fá á listahátíð í sumar.
Þar hafa t.d. verið til nefndar
hljómsveitir eins og Culture Club,
Ultravox o.fl. Mér fyndist hins
vegar ríkari ástæða til að fá sam-
bærilegar íslenskar hljómsveitir
til að koma fram við þetta tæki-
færi og dettur mér þá fyrst i hug
sú þeirra sem hvað rækilegast
hefur slegið í gegn og heitir Gorm-
arnir, upprunnin í Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti. Það væri ekki
amalegt að fá þá til að troða upp á
listahátíð. T.d. má geta þess, að
Rolling Stones var eitt sinn upp-
hitunarhljómsveit hjá þeim í
Bandaríkjunum.
Á komandi vori, um Jónsmessu-
leytið, eru liðin fimmtíu og þrjú ár
síðan haldin var hátíð á Þingvöll-
um, því að þá voru liðin þúsund ár
frá stofnun Alþingis Islendinga á
Þingvöllum. Þangað kom þá fleira
fólk en nokkurn tíma hafði safn-
ast saman í einn hóp á íslandi. Og
allt fór svo vel fram, að erlendir
gestir, sem voru margir, dáðust að
og töldu samkomuna vera þjóðinni
til sóma. En þar sást ekki vín á
nokkrum manni, vegna þess að
Jónas Jónsson frá Hriflu, sem þá
var dóms- og kirkjumálaráðherra,
lét án fyrirvara loka áfengisversl-
uninni í Reykjavík, sem þá var sú
eina á íslandi.
Nú eru þær margar og nýbúið
að opna vínverslun á Akranesi og
aðra væntanlega á Sauðárkróki?
Hvað er hér að gerast? Um leið og
beðið er um stór fjárframlög til að
byggja yfir sjúklingana, er notað
óbrigðult ráð til að útbreiða veik-
ina sem allra mest. Og eitt er víst:
Ef ofdrykkja er sjúkdomur, þá er
sá sjúkdómur bráðsmitandi, þvl að
flestir og sennilega allir byrja að
drekka með öðrum. Þó að sagt sé
að það megi lækna sjúkdóminn,
fylgir sú sögn að hann geti tekið
sig upp eftir mörg ár.
Að öllu þessu athuguðu er hér
víst um mjög alvarlegan sjúkdóm
að ræða, en þó hægara við að fást
en marga sjúkdóma, sem læknum
og vísindamönnum hefur tekist að
finna bót á, því að það hefur þó
aldrei heyrst, að þessi drykkju-
sjúkdómur komi í fólk, sem aldrei
hefur smakkað vín.
Þess vegna held ég, að þessi
blessuð SÁÁ-samtök eigi að skora
á yfirvöld landsins og alla þjóðina
að minnka áfengiskaupin og þá
miklu virðingu, sem vínið hefur
notið sem viðhafnardrykkur á
veisluborðum."
Birtist með gjöf-
ina á heimili ferm-
ingarbarnsins
A.S. skrifar:
„Velvakandi.
Sunnudaginn 27. mars ók ég
aldraðri móður minni til ferm-
ingarveislu. Gjöfina hafði hún
látið í umslag, en er hún settist
upp í bílinn, hefur hún misst það
án þess að verða þess vör. Hið
rétta kom hins vegar í ljós, er á
áfangastað var komið. Mikil leit
var gerð, en án árangurs.
En hvað gerist? Tveim dögum
síðar birtist elskulegur maður á
heimili fermingarbarnsins með
gjöfina. Hafði hann ásamt konu
sinni átt leið um miðbæinn
þennan sunnudag og fundið um-
slagið á gangstétt. Þar sem fullt
nafn drengsins, en ekki heimil-
isfang, var á kortinu, lásu hjónin
nafnalista allra þeirra barna, er
fermdust þennan dag, og fundu
nafn og heimilisfang og komu
bréfinu til skila.
Vonandi lesa þessi elskulegu
hjón þessar línur og um leið fær-
um við mæðgur þeim okkar
bestu þakkir og kveðjur fyrir
alla fyrirhöfnina og heiðarleik-
Með fíkjublað og geislabaug
Kolskeggur skrifar:
„Velvakandi.
Meiri menn hafa séð aumur á
Alusuisse og safna peningum til
að rétta slagsíðu álfyrirtækisins.
Almenningur hefur þó ekki sýnt
þá taumlausu hrifningu og stuðn-
ing sem bjargvættina dreymdi
um. Svefnfarir stærðanna hafa
verið erfiðar undanfarið: Áhyggj-
ur af lögtaki og skuldadögum
vegna kostnaðar.
Sem eldheitur aðdáandi þessara
sönnu íslendinga vil ég leggja
fram minn skerf til bjargar
bjargvættunum og benda þeim á
fjáröflunarleið: Einn bjargvættur
í einu verði til sýnis í Vaxmynda-
safni ríkisins (sem stendur autt)
dag hvern kl. 16—20. Klæðnaður
þeirra verði fikjublað og geisla-
baugur. Aðgangur verði 50 aurar,
10 aurar fyrir börn. (Bannað verð-
ur að pota í sýningargripina og
bannað að gefa þeim.) Ef hópar,
fjölmennari en 15 manns, koma
má veita 25% afslátt. Hugsanlega
tækju Landleiðir að sér flutning
sýningargesta. Lögreglan yrði að
vera í viðbragðsstöðu vegna vænt-
anlegra umferðarhnúta.
Með þessu ættu fjárhagsáhyggj-
ur velgerðarmanna Alusuisse að
vera úr sögunni; jafnframt þörf
þeirra fyrir athyglisþörf (exhibit-
ionisma) að vera svalað."
GÆTUM TUNGUNNAR
Sést hefur: Um næstu mánaðarmót.
Rétt væri: Um næstu mánaðamót.
(Ath.: Mánaða-mót eins og ára-mót, ekki árs-
mót.)
Agætu
viðskiptavinir
Vegna orlofslengingar hefur Kristján Ó. Skagfjörö hf.
lokað föstudaginn 22. apríl nk. (daginn eftir sumar-
daginn fyrsta).
Allar deildir fyrirtækisins verða lokaðar þennan dag,
nema tölvuviögerðarmenn verða á vakt til að sinna
útköllum sem kunna að berast. Viðskiptavinir vorir
eru beðnir aö huga að þessu.
IKRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRÐ HF.
Hólmsqata 4- pósthólf 906 - sími 24120 -121 Reykjavík
TQLVUFRÆDSLA
Ritvinnsla á smátölvur
Markmið: Námskeiöinu er ætlað aö veita yfirsýn yfir
notkunarmöguleika ritvinnslunnar í dag og kynna
þær breytingar sem hún hefur í för með sér á almenn
skrifstofustörf. Lofóboínandl:
Efni:
— Undirstööuatriði ritvinnslu.
— Æfingar á ritvinnslukerfi.
— BSG; kennt á Northstar.
— Applewriter; kennt á Apple III.
— Scripsit II; kennt á Radio Shack.
Þátttakendur: Námskeiöiö er ætlaö
öllum sem vilja kynnast kostum rit-
vinnslunnar og meta kosti mismun-
andi ritvinnslukerfa.
Ragna
Siguröardóttir
Guójohnaan
Tími: 25.-28. apríl 1983 kl. 09:00—13:00.
Leiöbeinandi: Ragna Siguröardóttir Guðjohnsen ritvinnslu-
kennari.
Bókhald með smátölvum
Markmið: Námskeiöinu er ætlaö aö gefa þátttakend-
um innsýn í og þjálfun viö tölvuvætt fjárhags-, viö-
skiptamanna- og birgðabókhald og kynna hvaöa
möguleikar skapast meö samtengingu þessara kerfa.
Efni: Leióbeinandi:
— Tölvuvæöing bókhalds- og skrán-
ingarkerfa.
— Sambyggö tölvukerfi og möguleik-
ar þeirra.
— Æfingar og kennsla á tölvur.
Þátttakendur: Námskeiöiö er ætlaö
þeim aöilum er hafa tölvuvætt eöa
ætla aö tölvuvæöa fjárhags-, viö-
skiptamanna- og birgöabókhald sitt
og einnig þeim sem vinna viö kerfiö. Hilmir Hilmitson
Gert er ráö fyrir þekkingu í bókfærslu. vió»kipt»fr»óinflur
Tími: 25.-27. apríl 1983 kl. 13:30—17:30.
Leiöbeinandi: Hilmir Hilmisson viöskiptafræöingur, ráögjafi
og endurskoöandi hjá Hagvangi hf.
Ath.: Starfsmenntunarsjóöur Starfsmannafé-
lags ríkisstofnana greiöir þátttökugjald fyrir fé-
lagsmenn sína á þessum námskeiöum og skal
sækja um þaö til skrifstofu SFR.
Einnig greiðir Verslunarmannafélag Reykjavík-
ur þátttökugjald fyrir félagsmenn sína á þess-
um námskeíöum og skal sækja um þaö til
skrifstofu VR.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST TIL STJÓRNUNAR-
FÉLAGSINS í SÍMA 82930.
lUÉRMIMlRfRU
OMwnunnin Lifw
(SLftHK SlOUMÚLA 23 SlMI 82930
RWI Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar
'í’ Heimili óskast
á suövesturlandi fyrir 10 ára gamlan, talsvert heyrn-
arskertan dreng. Einnig kemur til greina heimili sem
gæti tekiö hann aö sér um helgar og skólaleyfum.
Uppl. gefur Félagsmálastofnun ReykjavíkurPorgar í
síma 74544.