Morgunblaðið - 08.05.1983, Page 6

Morgunblaðið - 08.05.1983, Page 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 DEILURNAR um hvort „dagbækur Hitlers“ séu rétt feðradar geta orðið langlífar, þótt yfirgnæfandi líkur séu taldar á því að þær séu falsaðar. Aðeins einn sagnfræðingur hefur séð dagbækurnar, þar sem þær eru geymdar í bankahólfi í Ziirich, Dacre lávarður, sem skrifar enn undir nafninu Hugh Trevor-Roper (því nafni sem hann hét áður en hann var aðlaður). Hann lýsti því fyrst yfir að hann teldi dagbækurnar ósviknar, en dró síðan í land og viðurkenndi að sér kynni að hafa skjátlazt. Falsaðar eða ósviknar? ,J)AGBÆKUR“ HTTLERS Aðrir sagnfræðingar hafa nær undantekningarlaust sagt að þeir telji þær falsaðar. Á það er bent m.a. að í öllum þeim mörgu lestum af skjölum nazista, sem tekin voru herfangi í stríðslok, er hvergi minnzt á dagbækur. Dacre lávarður er heimskunnur sagnfræðingur og sérfræðingur í Hitlerstímanum. Winston Churc- hill sendi hann út af örkinni 1945 til þess að fá söguna um dauða Hitlers staðfesta og árangurinn var bókin „Síðustu dagar Hitlers". Hann á sæti í stjórn forlagsins sem gefur út The Times og Sunday Times. Sunday Times tryggði sér rétt- inn til að birta útdrætti úr dag- bókunum í Bretlandi fyrir 400.000 dali. Fyrsti útdrátturinn hefur verið birtur, en Sunday Times ákvað síðan að birta ekki fleiri út- drætti nema úr því fengist skorið hvort dagbækurnar væru falsaðar eða ekki. Þýzka tímaritið Stern, sem komst yfir dagbækurnar, á við erfiðleika að stríða. Sala þess hef- ur minnkað um 20% í ár og það hefur verið sakað um að vilja auka útbreiðslu sína með birtingu dag- bókanna og hagnast á sölu birt- ingarréttarins til erlendra blaða. „Stern vill selja eins mörg eintök af tímaritinu og það getur með æsifréttinni," sagði dr. Karl Bracher við háskólann í Bonn. „Fræðilegum vinnubrögðum kann að hafa verið fórnað." Stern fékk birtingarréttinn hjá einum af blaðamönnum sínum, Gerd Heidemann, sem segist hafa haft upp á dagbókunum í þorpi í Austur-Þýzkalandi fyrir þremur árum. Stern segir að dagbækurnar nái frá árinu 1932 til síðustu daga Hitlers í neðanjarðarbyrginu í Berlín. Dagbækurnar séu 60 tals- ins, stílabækur upp á 100 blaðsíð- ur hver, skrifaðar með bleki. Flest heftin séu innsigluð með arnar- og hakakrossmerki nazista og hver síða undirrituð af Hitler, aðstoð- armanni hans, Martin Bormann, eða staðgengli hans, Rudolf Hess. Með dagbókunum fylgdu hundr- uð skjala, minnismiða, sendibréfa, fundaboðana, fundargerða, grein- argerða, persónulegir munir, árit- uð málverk og teikningar eftir Hitler. Nokkrar teikninganna munu vera af Evu Braun, sumar af henni hálfnakinni. Flugslysið Frásögn Stern af því hvernig dagbækurnar komu fram í dags- ljósið er í aðalatriðum á þessa leið: Kvöldið 21. apríl 1945 fóru tvær flugvélar af gerðinni Junker 359 frá Tempelhof-flugveili í Berlín með fimm mínútna millibili. önn- ur flugvélin flaug suður á bóginn og hrapaði við Börnersdorf í Erz- fjöllum, nálægt Dresden og landa- mærum Tékkóslóvakíu. Flugmað- urinn, Friedrich Anton Grundl- inger, beið bana. Þegar Hitler var tilkynnt þetta í einu síðasta sím- talinu til neðanjarðarbyrgisins hrópaði hann að dagbækurnar hefðu verið einkaskjalasafn sitt og erfðaskrá fyrir síðari tíma. Nálægar herdeildir skoðuðu flakið, en í ringulreiðinni sem ríkti var það sem fannst í flakinu ekki opinberlega skráð. Liðsfor- ingi nokkur, sem ekki hefur verið nafngreindur, fann stálkassa með dagbókunum og hafði þá á brott með sér. Hann faldi dagbækurnar í heyhlöðu í Austur-Þýzkalandi þar sem þær voru í mörg ár. Hitler sagði Bormann einum frá dagbókunum. Hann sá um að þeim var komið fyrir í stálkössunum og að þeir voru sendir frá Berlín með einni síðustu flugvélinni. Dacre lávarður sagði að Hitler hefði talað um dagbækurnar við flugmann sinn, Hans Baur hers- höfðingja. Hann kvað það hafa verið mikilvæga vfsbendingu í til- raununum til að hafa upp á skjöl- unum og staðfesta að þau væru ósvikin. Rússar tóku Baur til fanga ásamt öðrum flóttamönnum úr neðanjarðarbyrgi Hitlers og var hann í níu ár í sovézkum fanga- búðum. Hann birti endurminn- ingar sínar 1956 og gat þess þar að Hitler hefði brugðizt reiður við þegar hann frétti að flugvélin með dagbókunum hefði farizt. Stern tilgreindi ekki nákvæm- lega í fyrstu hvernig dagbókunum var komið til Vesturlanda. Aust- ur-þýzk yfirvöld hefðu ugglaust lagt hald á þær, ef þau hefðu vitað um þær, og allir, sem hefðu tekið þátt í að smygla þeim úr landi, hefðu verið skotnir. Síðasti eigandi dagbókanna setti sig í samband við Stern, að sögn tímaritsins, fyrir þremur ár- um þegar flestum skjölunum hafði þegar verið komið fyrir í svissn- eskum banka. Stern kveðst ætla að birta mestallt efni dagbókanna og flokka það niður undir fyrir- sögnum eins og „Hitler og Gyð- ingar", „Hitler og kvenfólkið" og „Stalíngrad". Birtir verða 28 kafl- ar þangað til seint á næsta ári. Ný „uppljóstrun“ Heidemann hefur staðfastlega neitað að gefa upp nafn þýzka liðsforingjans, sem hann segir að hafi bjargað dagbókunum í apríl 1945. En samkvæmt nýjum upp- lýsingum Heidemanns í Sunday Times um helgina var skjölunum smyglað vestur á bóginn í áföng- um skömmu eftir að þeim var bjargað úr flakinu. Heidemann segir nú að skjölin hafi verið geymd í heyhlöðunni aðeins í nokkra daga, en ekki 35 ár eins og hann hafði áður sagt. Hann segir að þegar skjölunum hafi verið bjargað hafi þau verið flutt frá einum stað til annars, „lengra og lengra í vestur", unz þeim hafi verið smyglað að lokum til vestræns ríkis í stórum kassa. Skjölin hafi alltaf verið í vörzlu liðsforingjans — ættingjar og vin- ir kunni að hafa gætt nokkurra þeirra — þar til hann afhenti þau Heidemann gegn „verulegri þókn- un“ og loforði um nafnleynd. Eftir fjaðrafokið, sem skjölin ollu í síðustu viku, kveðst Heide- mann hafa rætt við liðsforingjann á ný. Sem fyrr neitaði hann að samþykkja að nafn hans yrði birt, þótt Heidemann segði honum frá ónæði, sem hann og fjölskylda sín hefðu orðið fyrir. Stern kveðst hafa átt í löngum bréfaskiptum um dagbækurnar við ríkisstjórnina í Bonn og segir að þær verði afhentar þýzka þjóð- skjalasafninu. Fullyrðingar rits- ins um að það hafi beðið heims- þekkta sagnfræðinga og rithand- arsérfræðinga að kanna dagbæk- urnar eru dregnar í efa. Sama er að segja um efnafræðilegar athug- anir, sem það segir að hafi verið gerðar á pappírnum og blekinu. í ljós kom að hvorki blek né fingra- för voru rannsökuð. Rithandarsér- fræðingar neita þvi að hafa skoð- að dagbækurnar. Enginn sagn- fræðingur virðist hafa skoðað þær. Stern segir einnig að ítarlegar rannsóknir hafi farið fram á veg- um tímaritsins í Austur- og Vestur-Þýzkalandi, Sviss, Ítalíu, Spáni og Suður-Ameríku. Heidemann hefur sagt að hann og Karl Wolff hershöfðingi hafi dvalizt í Suður-Ameríku í nokkra mánuði og kynnzt nokkrum fyrr- verandi nazistum, þeirra á meðal Klaus Barbie, „slátraranum frá Lyon“, sem síðan hefur verið send- ur til Frakklands, ákærður fyrir stríðsglæpi. (Heidemann hafði einnig upp á þýzkum rithöfundi, sem var talinn óskilgetinn sonur Vilhjálms II keisara.) Dagbókun- um var haldið leyndum fyrir öll- um nema nokkrum yfirmönnum tímaritsins. „Vissi um för Hess“ Fáar stórkostlegar „uppljóstr- anir“ koma fram í dagbókunum, sem eru smásmyglislegar og fjalla aðallega um hversdagslega hluti og bera þess merki að ómenntaður maður hefur skrifað þær. Nokkrar þær helztu eru: Hitler vissi frá upphafi um sérvizkulega „friðarferð“ Hess til Skotlands í maí 1941. Hann á að hafa lagt blessun sína yfir ferðina og vonað að Bretar hættu þátttöku í stríðinu áður en hann réðist á Rússland. Hitler gaf sjálfur skipun um að herlið Þjóðverja skyldi ekki eyða brezka leiðangurshernum þegar hann var innikróaður í Dunkerque 1940 í von um að með því að auð- mýkja ekki brezka heimsveldið gæti hann samið sérfrið við brezku stjórnina. Hitler taldi Neville Chamber- lain, forsætisráðherra Breta, sem var gagnrýndur fyrir að reyna kaupa frið við Þjóðverja, snjallan og harðan samningamann. Þegar Bretar gáfu út stríðsyfirlýsingu sína varð Hitler undrandi og hryggur. Hitler gefur aldrei til kynna að hann hafi haft beina vitneskju um útrýmingu Gyðinga eða átt þátt í að skipuleggja útrýmingarher- ferðina. En „Kristalsnóttina" frægu 1938, þegar Gyðingar voru ofsóttir, harmaði Hitler eyðilegg- inguna, ekki sízt þar sem mikið af dýrmætu gleri fór forgörðum. Þegar útrýming Gyðinga var ákveóin á Wannsee-ráðstefnunni í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.