Morgunblaðið - 08.05.1983, Qupperneq 10
MAGIRUS DEUTZ / IVECO
Við höfum nú tekið að okkur umboð á íslandi fyrir hina heimsþekktu
Iveco vörubílasamsteypu. Iveco er næststærsti framleiðandi vörubíla í Evrópu.
Vörubílar frá Iveco eru ráðandi á mörgum sviðum í Evrópu, en hvað
þekktastir eru þeir fyrir mikið úrval sterkbyggðra vinnubíla með drifi á öllum hjólum.
Hafðu samband við okkur og kannaðu hvort við höfum ekki rétta sex
eða tíu hjóla bílinn fyrir þig, með eða án framdrifs.
Iveco bílar eru sterkbyggðir vinnuþjarkar sem komast leiðar sinnar í misjöfnu færi.
iveco/LBje
Qfl
\F
Höfðabakka 9 Sími 8-52-60
58______________________
Kirkjudag-
ur Kefla-
víkurkirkju
Á BÆNADAGINN er hinn árlegi
kirkjudagur Keflavíkursafnaðar.
Guðsþjónusta verður í kirkjunni kl.
14. Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Einsöngvarar verða Sverrir Guð-
mundsson og Steinn Erlingsson.
Organisti og söngstjóri er Siguróli
Geirsson. Systrafélagið hefur kaffi-
sölu í Kirkjulundi eftir messu eins
og undanfarin ár. Allur ágóði rennur
í líknarsjóð kirkjunnar.
Þess er vænst að sem flestir
leggi góðu máli lið um leið og þeir
sækja sér andlega og líkamlega
hressingu á bænadaginn.
Þann 17. apríl sl. var söfnuðin-
um afhent vegleg gjöf, lágmynd af
sr. Eiríki Brynjólfssyni, sem þjón-
aði Keflavík frá 1928 til 1952. Gef-
endur voru fermingarbörn hans
vorið 1943.17 þeirra afhentu sókn-
arnefnd gjöfina að viðstaddri
ekkju sr. Eiríks, Guðrúnu Guð-
mundsdóttur, og börnum þeirra
hjóna, Guðmundi, alþjóðalögfræð-
ingi og Guðnýju, lífefnafræðingi.
Lágmyndinni, sem er eftir lista-
manninn Erling Jónsson, hefur
verið komið fyrir í Kirkjulundi og
verður þar til sýnis á sunnudag.
Sóknarprestur
Heyrist í
fyrstu vor-
fuglunum
SkinnastaA, Öxarfirdi, 30. apríl.
EFTIK 9 daga stanslaust hríðarveð-
ur, sem stytti upp nóttina fyrir kosn-
ingadaginn, hefur verið hér hægð-
arveður með næturfrostum og
2°—4° stiga hita á daginn. Kyngdi
niður mesta snjó vetrarins. Fannir
hafa sjatnað hægt og landið er enn-
þá eins og jökull.
Samkomum hefur fjölgað stór-
um eftir hretið, eins og títt er á
vorin, og snúast margir eins og
þeytispjald að eltast við fundi og
aðrar samkomur. Heyrst hefur í
fyrstu vorfuglum, en fáir sést
nema villigæsir, álftir og skógar-
þrestir. Hér bíða menn nú eftir því
að fannir sjatni, skólum ljúki og
sauðburður hefjist. Fyrstu lömbin
hafa þó þegar litið ljós dagsins.
— Sigurvin
GERÐIR
PHILCO
KÆLISKAP