Morgunblaðið - 08.05.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ1983
71
i
Ævintýrakastalar, frábærar verslanir, lítskrúðug skotapils,
sólböðuð vatnahéruð og grænar hlíðar.
Skotland
er óskastaður ferðamannsíns
Skotland er ennþá óbreytt: óspillt náttúru-
fegurð í aðlaðandi umhverfi. Hvert sem þú
ferð mætir þér rómuð skosk gestrisni. Hún er
alltaf jafn innileg.
Þegar þú heimsækir stórverslanimar í Glasgow
og Edinborg er enginn sem ýtir á eftir þér. Þú
getur gengíð um og skoðað af hjartans Iyst,
t.d. í fataverslunum eða í lístmunaverslunum.
Það er enginn sem segir að þú þurfir endílega
að kaupa þér skotapils eða kasmír peysu, en
Glamiskastalinn
það er oft ansi erfitt að standast allar
freistingamar.
Skotland er ekki bara sólbað og sveitasæla.
Þú getur notið leíkhúslífsins, farið í kvik-
myndahús, skoðað söfn og lístasýníngar,
borðað á góðum veitingastöðum eða dansað
á næturklúbbum í skosku borgunum, en dvöl
á skoskri sveitakrá í kyrrlátu umhverfi er samt
sem áður engu lík.
Það er fatt sem jafnast á við skosku sveitasetrin
og kastalana. Þeir líta ennþá út eins og myndir
úr ævintýrabókum. Tökum til dæmis kastalana
í Glamís og Blair. Þú
trúir því kannski ekki
en hertoginn af
Atholl hefúr
enn þá sína
eígin hermenn
í Blairkastal-
Skotar em íþróttaþjóð. Það vitum við
íslendingar manna best. Hver vill ekki fara
nokkrar holur á golfvelli, þar sem golfleíkurinn
varð til á sínum tíma? Ef þú spilar ekki golf,
þá er upplagt að bregða sér í laxveíðí, fara í
siglingaklúbb, eða hressandi gönguferð upp á
hálendi.
Ekki verður umferðin á skosku sveítavegunum
neitt til þess að angra þig.
Þú þarft ekkí einu sinni að keyra bíl til þess
að njóta skosku hálandanna. Það er auðvelt
og ódýrt að ferðast með jámbrautalest.
Útsýnið er það sama.
Komdu sem fyrst í heimsókn. Það er ekki Iengi
veríð að bregða sér til Glasgow með
Flugleiðum.
FLUGLEIDIR
Gott tótk hjá traustu tólagi
Þú færð allar upplýsingar hjá söluskrifstofúm
þeirra og hjá.
Ferdaskrifstofa
KJARTANS
HELCASONAR
Vtð bjóðum sérstaklega áhugaverðar sumarleyfis-
ferðir til Skotlands í sumar. Hafið samband við
skrifstofu okkar um gististaði, ferðamáta,
bílaleígubíla og kynnisferðir um Skotland.
Frábærar ferðir víð allra hæfi.
Laxveiðar í Loch Tay
Grampian hljómsveitin
i Craigievarkastala
anum.
i
1