Morgunblaðið - 08.05.1983, Qupperneq 26
74
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ1983
3E1
A DROTONSm
Hver er maðurinn?
Hvað segir kristin trú um mann-
inn? Kðlilega er oft spurt á þá leið.
Hér á eftir verður leitast við að
gefa nokkra hugmynd um megin-
drætti kristins mannsskilnings.
Skapaður af Guði
Að skilningi kristinnar trúar
er maðurinn sköpun Guðs. Hann
hefur vissulega sérstöðu innan
sköpunarverksins, því hann er
settur sem eins konar ábyrgðar-
maður eða ráðsmaður yfir heim-
inum.
Maðurinn er skapaður í Guðs
mynd, eins og Biblían orðar það.
Það felur í sér hæfileika hans,
umfram aðra sköpun, til samfé-
lags við Guð.
Manninum er ætlað að þrosk-
ast af samfélagi við skapara
sinn, gefnir hæfileikar til að
vera fulltrúi Guðs á jörðu.
Fallinn í synd
En langt er frá því, að allt sé
eins og Guð ætlaði því í þessu
efni. Maðurinn reynist hvað eftir
annað óábyrgur ráðsmaður
þeirra gæða sem Guð hefur falið
honum. Hann sóar nauðsynjum,
misskiptir gæðum og setur vilja
sinn í stað vilja Guðs sem
grundvallarviðmiðun i lífinu.
Þetta er afleiðing þess ástands
sem nefnt er synd og er höfnun
mannsins á því að lifa í sam-
ræmi við sköpunarvilja Guðs.
Allir menn eru syndarar — eru í
sjálfum sér seldir undir það, að
viija gegn Guði.
Vissulega geta þeir sýnt visst
borgaralegt réttlæti og verið
„góðir menn“, en syndin gerir
þeim samt ókleift að lifa því lífi
sem Guð ætlaðist til af mannin-
um og útilokar þá frá samfélagi
við skaparann.
f þeirri aðstöðu er maðurinn
guðvana um eilífð og getur ekk-
ert gert til þess að breyta því,
það er allt líf hans er undir synd.
Endurleystur í Kristi
Vegna kærleika Guðs á mað-
urinn þó von, Jesús Kristur tók í
eitt skipti fyrir öll á sig afleið-
ingu syndar mannsins — dó
dauða hans og stofnaði nýtt líf
með upprisu sinni. Það nýja líf á
hver sá maður sem er skírður til
kristinnar trúar og lifir í trú
sinni.
Þetta nýja líf er endurlausn til
upphaflegs vilja Guðs með
manninn. Þ.e.a.s., kristinn mað-
ur er ráðsmaður Guðs yfir þeim
gáfum, tíma, fjármunum og öðr-
um gæðum sem hann hefur. Það
felur í sér vissu um, að í samfé-
laginu við Guð í Kristi er allt
lífið þjónusta við Guð. Um leið
fylgir því ábyrgð að vita sig
ráðsmann Guðs og vera ábyrgur
gagnvart honum um meðferð
þess, sem hann hefur falið hverj-
um og einum.
Afleiðingar í verki
Kristinn maður kappkostar
því að lifa í vilja Guðs — ekki til
þess að ávinna sér réttlætið, sem
Kristur gefur, heldur til þess að
gjalda Guði þökk í þjónustu. í
krafti Heilags anda stundar
hinn kristni þá þjónustu, sem
miðar að því að vilji Guðs verði
hér í þeim heimi, sem hann hef-
ur skapað.
Vilji Guðs er, að allir menn fái
að heyra fagnaðarerindið og geti
eignast endurlausnina í Kristi.
Guð vill einnig, að gæðum sé
réttlátlega skipt milli íbúa
heimsins. í báðum tilvikum not-
ar hann kristna menn sem þjóna
sína — ráðsmenn með ábyrgð.
Bregðist þeir, dregst að þessi
vilji Guðs verði.
Við gætum því íhugað með
okkur sjálfum:
Er ég endurleystur í Kristi til
samfélags við Guð og ráðs-
mennsku i heimi hans?
Hvað get ég gert til þess að
boða virðingu fyrir öllu lífi —
einnig því, sem aðrir telja óverð-
ugt líf og réttlaust?
Hvað vantar upp á í samfélagi
mínu að jafnréttishugsjón krist-
innar trúar (sjá Galatabr. 3:28)
ráði þar ríkjum?
Biblíulestur vikuna 8.—14. mai
Sunnud. 8. maí: Jóh.
16:23—30.
a) Jesús gefur okkur sam-
félag við Guð föður, skap-
ara okkar.
b) Að biðja í Jesú nafni —
hvað er það? Til hvers?
Mánud. 9. maí: Róm.
4:13—25.
a) V.14: Hvers vegna þessi
mikla áhersla á gagns-
leysi lögmálsins til hjálp-
ræðis?
b) V.20: Hvað er rétt og
sönn trú, skv. þessum orð-
um Páls?
Þríðjud. 10. maí: Róm.
5:1—11.
a) V.l: Áherslan á trúna
til réttlætingar. Sam-
mála?
b) V.8: ítrekar hlutverk
Krists í heiminum.
Miðvikud. 11. maí: Róm.
5:12—21.
a) V.18 er kjarninn — eins
og allir í von um réttlæt-
ingu vegna Krists — hann
er höfundur nýs mann-
kyns í þeim skilningi.
Fimmtud. 12. maí: Mark.
16:14—20.
V.15 er hápunktur kaflans
— sá, sem þekkir Krist af
samfélagi, er sendur með
fagnaðarerindið til þurf-
andi heims. Ihugum for-
réttindi og skyldur þess
að þekkja Krist og hlut-
verk okkar í að koma
fagnaðarerindinu áfram
til annarra.
Föstud. 13. maí: Róm.
6:1—14.
a) V.3—4 lýsa kristnum
skírnarskilningi — dauði
og upprisa með Kristi
felst í skírninni.
b) V.ll—14 eru hvatning
til okkar um, að lifa í
samræmi við það, berjast
við syndina og kappkosta
að gera vilja Guðs.
Laugard. 14. maí: Róm.
6:15—23
a) Kristinn maður er kall-
aður til ábyrgs lífs, en
ekki kæruleysis um líf-
erni. Náð Guðs sviptir
engan ábyrgð!
b) V.23: Erum við örugg-
lega í samfélagi við Krist
til eilífs lífs?
5. sunnud. e. páska Jóh. 17. 1—19
I heiminum
en ekki af heiminum
Guðspjallið í dag er úr skilnaðarræðu Jesú, sem hann
hélt lærisveinum sínum við hina síðustu kvöldmáltíð.
Hann lýkur henni með bæninni, sem við lesum í guðspjall-
inu í dag og nær yfir allan 17. kaflann. Jesús biður fyrir
lærissveinunum. „Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir
heiminum, heldur fyrir þeim, sem þú hefur gefið mér, því
þeir eru þínir, og allt mitt er þitt og þitt er mitt.“ Jesús
talar enn einu sinni um órofa tengsl sín og föðurins og
tengsl lærisveinanna við sig, sem hann mun ekki rjúfa.
Úr þessari bæn eru komin orðin, sem oft eru höfð yfir,
að kristið fólk sé í heiminum en ekki af heiminum. Kirkj-
an leggur nú á tímum mikla áherzlu á að fólk hennar eigi
að þjóna í heiminum, líkna, taka forystu í ýmsum þjóð-
málum og alþjóðamálum. En hún býður líka skjól fjarri
heimsins harki, upp rísa miðstöðvar, þar sem lúterskt fólk
vígist til þjónustu við þá, sem þangað vilja leita bæna-
samfélags og sálusorgunar. Við erum misjöfn í lund, einu
okkar hentar þetta, öðru hitt, sum njóta sín á opinberum
vettvangi en önnur í kyrrð. Við megum þjóna hvert öðru,
veita hvert öðru forystu og skjól. Fyrir öllum okkur bað
Jesús: „Helga þau í sannleikanum, þitt orð er sannleikur."
Orð Drottins er grundvöllur okkar hvað sem við vinnum.
BIÐSTUND
Guð, þú hefur skapað lífið,
og skapar stöðugt nýtt líf.
Þú hefur skapað mig og mitt líf.
Ég get verið meðskapari, en hvernig?
Með því að sá steinselju og planta trjám,
með því að sýna tillitssemi og berjast fyrir kærleika?
Sýndu mér hvað þú vilt með mitt líf.
Á ég að ala börn,
eitt barn, fleiri börn?
Eða á ég að nota krafta mína í þágu
þeirra milljóna jarðarbarna, sem er ógnað?
Lífið er vopnakapphlaup, kjarnorka,
atvinnuleysi, sultur og seyra.
Framtíð og von virðast fjarri lagi.
Að vera þunguð er að hafa kvið sinn fullan af lífi,
að bjóða sig fram til forræðis yfir lífinu,
sem aðeins vex — þrátt fyrir allt.
Að gæta barna er að vera með í að
fá lífið til að vaxa — að vera meðskapari.
Guð, get ég auðsýnt trú mína og hina
aumu von mína á raunhæfari hátt?
Kannski er það sjálfselska að eignast börn
— hindrun fyrir þig, Guð.
Kannski er það ábyrgðarleysi.
Þá áhættu verð ég að taka.
Er ekki einhver áhætta fólgin í því að vilja
ekki ala börn?
Guð, gef mér hugrekki og hugarflug til þess að
meðtaka hvatninguna sem þú hefur gefið
mér til þess að lifa og vera meðskapari.
Hjálpa mér til þess að nota möguleikana
á því að geta alið börn á ábyrgðarfullan hátt
og til gleði. B. Kiihle
VELJUM ÍSLENSKT! VELJUM ÍSLENSKT! VELJUM ÍSLENSKT!
Maöur eyðír 'h af ævinni í svefn og hvíld. For-
senda þess aö vakna hress og endurnæröur að
morgni er að sofa á góðri og hæfilega stífri
dýnu. Vaknir þú þreyttur og lerkaður skaltu að-
gæta dýnuna þína. Ef hún er orðin slakleg
hringir þú í okkur og við munum sækja hana að
morgni. Sama kvöld færðu hana sem nýja og
næsta morgun vaknar þú sem nýr og hressari
maðurl
Ef dýnan er lúin og áklæöið Ijótt
þá lát okkur vita í síma.
Listavel skulum við lag’ana og fljótt,
— þú lagast á örskömmum tímal
Framleiðum einnig nýjar dýnur eftir máli.
DÝNU-OG
BÓLSTURGERÐIN
Smiðjuvegí 28, 202 Kópavogi, sími 79233.
Póstsending
Umsóknarfrestur
um skólavist
í Söngskólanum
í Reykjavík
næsta vetur er til 19. maí nk. Umsóknareyöublöö fást
í Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar og á skrifstofu
Söngskólans, Hverfisgötu 45 R, símar 21942 —
27366, þar sem allar nánari upplýsingar eru veittar
daglega frá kl. 13.00—17.00.
Skólastjóri.
Söngskglinn i Reykjavik
The Reykjavik School of Singino 27366
Hverlisgolu 45 101 Reyk/avik Box 1335 lceland ™ 2194?