Morgunblaðið - 08.05.1983, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 08.05.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1983 87 AFORNUM VEGI jfl _ *«**>■ . 1 r J.C. Vík 5 ára: Eykur manni víðsýni ad starfa að félagsmálum Rætt við Sigurlaugu Garðarsdóttur, forseta J.C. Víkur Á ÍSLANDI eru 1.400 meðlimir í Junior Chamber í 36 lélögum um land allt. Eitt þessara félaga hefur nokkra sérstöðu, JC Vík, en í því félagi eru eingöngu konur. Það er ekki tilviljun að svo er, karlmenn eiga einfaldlega ekki kost á því að ganga í JC Vík. Óréttlátt? Kannski, en það er huggun harmi gegn að Reykjavíkurfélagið JC Borg er skipað karlmönnum. Og það er hcldur engin tilviljun. JC Vík átti 5 ára afmæli um daginn, 6. apríl nánar tiltekið. Stórafmæli í rauninni, sérstak- lega þegar það er haft í huga að tveimur árum fyrir stofnun fé- lagsins var ekki ein einasta kona JC félagi á íslandi. Og þó festi JC hér rætur í kringum 1960. Nú eru um einn þriðji JC félaga kon- ur. Þetta eru breyttir tímar. Forseti JC Víkur á þessu starfsári er Sigurlaug Garðars- dóttir. Við ræddum lítillega við Sigurlaugu um „kvenfélagið" JC Vík og spurðum hana fyrst hver hafi verið tildrögin að stofnun félagsins. Var það uppreisn gegn karlaveldinu í JC hérlendis? „Uppreisn held ég nú ekki að það hafi verið. En á þessum tíma sóttu konur mjög á um að ganga í JC. Valgerður Sigurðardóttir rauf múrinn, gekk í JC Reykja- vík, og það varð til þess að nokkrar konur ákváðu að kanna hvort hljómgrunnur væri fyrir stofnun kvennafélags. Það reyndist vera og um 60 konur stofnuðu félagið þann 6. apríl 1978.“ — Voru þetta mest eiginkon- ur JC-manna? „Því er ekki að neita að þær voru stóru hluti af stofnendum. ' Sigurlaug Garðarsdóttir forseti JC Víkur á skrifstofu sinni í Mjólk- ursamsölunni. En það er gjörbreytt núna. Nú eru í félaginu konur úr öllum áttum.“ — Hvers konar starfsemi fer fram í JC félagi? „Þetta er fyrst og fremst fé- lagsmálaskóli. Það eru haldin námskeið, þar sem fólk lærir undirstöðuatriði í ræðumennsku, fundarsköpum, fundarstjórn og skipulögðum vinnubrögðum al- mennt. Fólk fær þjálfun í því að koma fram og tjá sig. Og þótt JC sé ekki beinlínis góðgerðarfélag, þá lætur það gott af sér leiða á margan hátt, með því að vinna að ýmsum umbótaverkefnum í þjóðfélaginu." — Er nauðsynlegt að vera með sérstakt kvennafélag? „Það er kannski ekki nauð- synlegt, en því ekki? Það er til karlafélag líka. Ég sé í rauninni ekkert athugavert við það að hafa félög sem eru skipuð öðru kyninu eingöngu. Og ef kona er að hugsa um að ganga í JC, á hún kost á því að ganga í okkar félag eða blandað félag. Hún er ekki neydd til að ganga í JC Vík þótt hún sé kvenmaður." — Fylgja því einhverjar kvað- ir eða skilyrði að ganga í JC? „Nei, ekki nema það að taka þátt í starfinu, mæta á fundum, taka þátt í námskeiðum og starfa í nefndum. Fólk þarf ekki að gera þetta allt, en eitthvað af þessu. Ef menn eru ekki tilbúnir til að taka þátt í starfinu, þjónar engum tilgangi að ganga í JC. Menn hafa ekkert gagn af því að vera í félaginu nema þeir séu virkir." — Hvaða gagn hafa menn af því að starfa í JC? „Svo ég svari fyrir sjálfa mig þá hefur sjálfstraust mitt og sjálfsþekking aukist verulega við að starfa í JC. Og ég er víðsýnni en ég var áður, og það held ég að flestir verði við starf að félags- málum. Sérstaklega konur, sem lifa kannski í þröngri veröld heimilisins, þær verða miklu víð- sýnni, sjá hlutina í nýju ljósi og uppgötva oft nýjar hliðar á sjálf- um sér. Svo má ekki gleyma því að maður eignast marga nýja og góða vini. Kannski er það mik- ilvægasta atriðið." — Hvernig ber kona sig að sem er að velta því fyrir sér að ganga í JC Vík? „Bara að hafa samband við einhvern úr félaginu og drífa sig síðan á fund. Það þarf ekki meira til.“ Gáfnapróf Þetta er gáfnapróf. Spurningin er, hvað er löggan að segja við piltinn? (a) Sæll frændi. Langt síðan við höfum sést (byrjun á handabandi). (b) Togaðu mig upp, mig langar líka til að klifra. (c) Komdu niður strákur, þetta er bannað. (d) Ekkert af þessu. Fyrir rétt svar fást engin verðlaun. En myndina tók Ólafur K. Magn- ússon, Ijósmyndari Mbl. nýlega, í Austurstræti á drungalegum vordegi. SPUNNIÐ UM STALÍN íftir MATTHÍAS JOHANNESSEN hyggja krefst blóðs og fórna. Það hafa umrót ávallt gert. Án hreyfingar verður lífið sjálft dauði. Söguleg efnis- hyggja krefst fórna eins og annað hreyfiafl náttúrunnar. Eitt þessara fórnardýra situr í landi gleymskunnar, þar sem karlar eru geltir og konum nauðgað; þar sem harð- stjórinn plantar þrælabúðum eins og eitruðum sveppum. Á víð og dreif. Katorga: vinnubúðir; gamalt orð. Stalín er veikur fyrir gömlum orðum. Eins og allir sérvitringar. En blæs í þau nýrri merkingu með afskræmdri reynslu. Eins og veruleikann, sem hann breytir í martröð. Þeir kalla mig zlodéj en það er illvirki, samt er ég hvorki nauðgari né bankaræningi né hef ég framið aðra glæpi en þann að brjóta af mér handjárn hugans, þessi eitruðu peð á svörtum reitum gúlagsins en það dugir engin sikileyjarvörn þar sem kærleikurinn er jafn úrelt hugtak og guðisélof! Óþekkti fanginn er einn með hugsun sinni eins og cinvaldurinn. Eins og þau örlög sem bera ábyrgð á því, að hann hímir nú á heljarslóð og hugsar sitt; Alexander I. Solzhenitsyn, fyrrum liðsforingi í Rauða hernum. Nú drottinssvikari, þótt nafn hans sé Stalín ókunnugt, enda óþekktur með öllu. Framan á hlífðarúlpu hans stendur stórum svörtum stöfum talan 232. Fangi no. 232 er sískrifandi á snepla í vinnubúðum, sem eru í raun og veru ekki til. Oftast kaldur og krók- loppinn. Hættir lífi sínu með því að smyggla viðar- kubbum inn í braggann til að halda við glóð í eldstónni. Hann hefur nánar gætur á varðmönnunum. Hann ætlar sér ekkert minna hlutskipti, ef hann kemst lífs af til meginlandsins, en segja mönnum frá nýrri óþekktri álfu, Eyjaklasanum. Eins og Kólumbus. Þcssi óþekkti land- könnuður hugsar á þessari stundu, að harðstjórinn hafi ekki einasta breytt Sovétríkjunum í þrælabúðir, heldur fjöldagröf. Ummerkin alls staðar í kringum hann. En hann hefur ekki enn lesið Myrkur um miðjan dag, eftir rithöfund, sem vekur hvað mesta athygli á mcginlandinu uni þcssar mundir, Stalín til sárrar raunar: Arthur Köstl- er. Fyrsti samfylgdarmáðurinn, sem reynir að opna augu „nytsamra saklcysingja" í ljósi Búkharinsréttarhaldanna. Hann hafði minnt á, að Móses hafði aldrei fengið að stíga fæti á fyrirheitna landið frckar cn byltingarforingjarnir, sem stóðu andspænis aftökusveitinni í paradís Stalíns. Fangi no. 232 hefur ekki enn lesið þessa lýsingu Köstl- crs: Einkennilegt var það, að hann hafði ekki fundið til tannpínu síðan á því augnabliki, er hin blessaða kyrrð hafði komið yfir hann í réttarsalnum. Ef til vill hafði kýlið sprungið einmitt á því augnabliki. Hvað var það nú aftur, sem hann sagði þá? „Ég beygi kné mín fyrir land- inu, fyrir almúganum, fyrir þjóðinni allri . . .“ Og hvað svo? Hvað lá fyrir þessum almúga — og þessari þjóð? í fjörutíu ár hafði þjóðin verið rckin áfram yfir eyðimörk- ina með hótunum og loforðum, með ímynduðum ógnum og ímyndaðri umbun. En hvar var fyrirheitna landið? . . . Hljóðlaust högg féll aftan á hnakka hans . . . Minningar bylgjuðust um hann eins og þokurákir á lygnu vatni. . . Hann dreymdi, að þeir væru komnif til að handtaka hann . . . Einhver skuggaleg vera beygði sig yfir hann. Hann fann nýjan leðurþef af skammbyssubeltinu . . . Annað roknahvellt högg féll á eyra hans. Svo varð allt hljótt. Aftur kom hafið niðandi úr fjarska. Ein bylgjan hóf hann mjúklega á loft. Hún kom úr órafjarlægð og brunaði óstöðvandi áfram, — borin á herðum cilífðarinn- ar. Solzhenitsyn er tíðhugsað til Dante og ferðar hans til Vítis. Fyrsti hringurinn í Infernó er áleitinn. Hver er sú KRAMIIAI I)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.