Morgunblaðið - 08.05.1983, Síða 46

Morgunblaðið - 08.05.1983, Síða 46
94 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ1983 .. ve\e* #s8isgj&IS&*0'. t*?- .«*>*’*** (yrð ^Sssá^sgsr k^§0s% ,íS“,SXh“"SmS‘sl’^“!lÍkV“ ^<>1 Safnar öllu pele Þetta sérstaka viðhorf til knattspyrnunnar kemur ekki einungis fram innan marka grasvallarins. En hvernig það samræmist háleitum markmið- um íþróttamanns sem skarar framúr er Zico besta dæmið um. Ásókn hans í alls kyns minjagripi um leiki eru engin takmörk sett. „Hann tekur allt sem býðst,“ sagði einn félaga hans. En það eru ekki einungis alls kyns hlutir sem Zico dreg- ur fram og sýnir gestum sínum á heimili fjölskyldunnar í út- hverfinu Barra Da Tijuca. Hann, eins og fleiri leikmenn, hefur haft mikla ánægju af að skipta á treyju við aðra leik- menn eftir stórleiki, enda á hann í dag, eftir 10 ára leikfer- il, um eitt hundrað peysur, flestar eru þær með tölunni 10 en það er einmitt númerið hans þegar hann leikur með Flam- engo og með brasilíska lands- liðinu. Velgengni sína á sl. ári á Zico fyrst og fremst að þakka pers- ónuleika sínum. Dagblaðið „E1 Mundo“ í Venezuela kaus hann í þriðja skiptið besta leikmann Suður-Ameríku, aðalkeppi- nautar hans um þann titil voru þeir Paulo Roberto Falcao og Diego Maradona. Þegar ákvörðun var tekin um útnefn- inguna var þyngst á metunum frammistaða Zicos á Spáni og útkoma Flamengo í keppninni um meistaratitil Rio de Jan- eiro, en þar lentu þeir í öðru sæti. Zico var heldur ekki ánægður með að verða annar markahæsti leikmaðurinn 1982 með sín 42 mörk. „Samt sem áður álít ég að þetta hafi verið gott leikár, hvað mig snertir, þrátt fyrir það að mér gekk ekki sem best í úrslitaleiknum á Spáni. Það var vegna þess að ég var gjörsamlega útkeyrður andlega og líkamlega." Fimm bræður Fjórir eldri bræður Zicos eiga allir knattspyrnuferil að baki og hafa allir lagt skóna á hilluna, en Edu, sem áður lék með landsliðinu, er nú þjálfari hjá America í Rio de Janeiro. Enginn bræðranna komst eins langt á þeirri braut og Artur Antunes Coimbra, öðru nafni Zico. Zico er í dag einn af hæstlaunuðu knattspyrnu- mönnum heims þegar með eru taldar auglýsingatekjur hans. Zico hefur alltaf leikið með sama félaginu, Flamengo. Stjórn félagsins geymir í læst- um skáp uppdrátt að skipulagi þjálfunar og mataræði sem þessi ungi, pervisni piltur varð að hlíta þar til hann var búinn að ná líkamsbyggingu knatt- spyrnumanns á heimsmæli- kvarða. Eftirtektarvert er hve Zico hefur eðlilega líkamsbygg- ingu og er laus við öll helstu einkenni knattspyrnukappa, svo sem óvenjustór og mikil læri. En Flamengo tókst ekki að halda „Zico-prógramminu“ leyndu og ljóst er, að suður- amerískir ávextir voru hans helstu vítamíngjafar. Þar var ekki um neinar pillur eða lyf að ræða. íþróttablaðið brasilíska „Placar“ afhjúpaði mikið svindl varðandi knattspyrnu- getraunirnar og ljóst varð, að leikmönnum og þjálfurum var mútað þannig að liðin léku ekki alltaf af fullri getu. Eftir að upp komst um þetta hneyksli, var Zico valinn einhvers konar eftirlitsmaður til að koma í veg fyrir að slíkt gæti endurtekið sig. Jafnframt mun Zico leika lykilstöðu hjá félagi sínu, Flamengo, næstu ár. Uppgjörið við Santana Litlar líkur eru taldar á að hann dragi sig út úr lands- liðshópnum í bráð, enda hefur brottför þjálfarans Tele Sant- ana, sem fór til Saudi-Arabíu, aukið áhuga hans á að halda áfram. í úrslitakeppninni um heimsmeistaratitilinn sauð upp úr milli Zicos og Santana t eiga allir knattspyrnuferil að upp úr milli Zicos og í Ég rona ég verði heimsmeistari í knattspyrnu /þriðja skiptið var brasilíski knattspyrnu- maðurinn Zico valinn besti leikmaður Suður-Ameríku, en vonin um heimsmeist• aratitilinn er enn fjarlœgur draumur, en þegar hann rœtist, „þá hafa allar mínar óskir rœst, “ segir Zico. egar Brasilíumenn töp- uðu leiknum móti Ítalíu í heimsmeistarakeppn- inni á Spáni í fyrra með 3 mörkum gegn 2, ríkti þjóðarsorg í Brasilíu. Þjóðin vill fá heimsmeistaratitilinn sinn aftur, valið á Zico þykir benda til þess, og greinilegt er að leikurinn á Spáni gegn ít- alíu hefur sett sitt mark á brasilíska knattspyrnu. „Hvorki leikmenn né áhorf- endur hafa jafnað sig á þeim leik,“ segir Zico og hann bætir við: „Á sama tíma er leikjunum raðað svo þétt niður að það hlýtur að koma niður á knattspyrnunni sem leikin er og jafnframt að draga úr að- sókn að leikjunum. Undan- farna mánuði höfum við keppt þrisvar í viku hverri." Uppbygging knattspyrnunn- ar er allt öðru vísi í Brasilíu en í Evrópu, þrátt fyrir að liðin í Brasilíu séu einnig atvinnu- mannalið sem eru rekin á við- skiptalegum grundvelli. Hin takmarkalausa ást þjóðarinnar á íþróttinni er einstök, sem hefur án efa mikil áhrif á leik- mennina og hlýtur að hvetja þá til dáða. Zico á mikið verðlaunasafn á heimili sínu. Hér silur hann fyrir framan það. Zico ásamt eiginkonu sinni, er hann veitti móttöku verðlaunum Adidas

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.