Morgunblaðið - 10.05.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983
39
föður Gyðu meðan Eggert rak
hvað mestan stórbúskap þar og er
Gyða var flutt í nágrennið endur-
nýjuðust eðlilega forn og ný vin-
áttutengsl milli þessara fjöl-
skyldna. Ágústa systir mín og
Gyða urðu miklir vinir enda á lík-
um aldri og móðir mín og Gyða
unnu mikið saman í kvenfélagi
sveitarinnar. Þau Gyða og Guð-
mundur eignuðust eina dóttur,
Ásthildi, sem gift er Bjarna Guð-
jónssyni, eftirlitsmanni hjá
Landsvirkjun.
í lok heimsstyrjaldarinnar síð-
ari fór Gyða til Svíþjóðar þegar
leiðir opnuðust og lærði þar kon- ,
fektgerð. Starfaði hún að þeirri *
iðju um stund, en um þær mundir ,
slitu þau Guðmundur samvistir.
Síðar giftist hún Skafta Egilssyni
og settust þau að í Hafnarfirði og
enn síðar eftirlifandi eiginmanni
sínum Páli K. Maríussyni far-
manni. Var hjónaband þeirra hið
farsælasta og ferðaðist Gyða með
manni sínum viða um lönd.
Ekki verður skilist svo við
minningu Gyðu Briem að eigi sé
minnst á einn þátt í fari hennar
sem skóp henni tryggð, vináttu og
þakklæti margra, en það var
hjálpsemi hennar og fórnarlund
við þá sem höfðu orðið fyrir mót-
læti lífsins. Gyða var borin til
auðs og þess glæsileiks sem hon-
um getur fylgt, var um skeið gift
einum ríkasta manni þessa lands
og sómdi sér hvarvetna þar sem
fyrirfólk hittist. En snobbhugsun-
arháttur og hroki, sem slíku fylgir
oft, einkum meðal andlegra smá-
borgara, var henni víðs fjarri.
Hún átti til að yfirgefa viðhafn-
arsali í skrautklæðum og sjást
næsta dag við uppþvott eða elda-
mennsku hjá fátækri vinkonu ef
veikindi eða erfiðleikar steðjuðu
að. Viðmót hennar var jafnhlýtt
og einlægt hvort sem hún skipti
orðum við andleg stórmenni eða
guðs volaða.
Þessum fáu orðum fylgir svo að
lokum kveðja frá þeim sem hún
lagði eitt sinn líknarhönd sem
strákling í frumbernsku. Hann
hafði farið sér svo að voða að
Leiðrétting
í BLAÐINU á sunnudaginn minnt-
ist Trausti Eyjólfsson á Hvann-
eyri í minningargrein Guðlaugar
Sigurðardóttur, Skógum. Þau mis-
tök urðu að myndin sem greininni
fylgdi var ekki af hinni látnu
konu. Um leið og við birtum hér
myndina af Guðlaugu Sigurðar-
dóttur er beðist afsökunar á mis-
tökunum.
nærri lífi hans gekk. Hughreyst-
ingarorðin, brosið og lífskraftur-
inn, sem frá „hjúkrunarkonunni"
ungu streymdi, er ein sú æsku-
minning sem gleymist seint.
Egill Jónasson Stardal
í dag verður til moldar borin
Gyða Eggertsdóttir Briem, Skip-
holti 28. Hún var fædd í Kaup-
mannahöfn 12. maí 1908 og andað-
ist á Vífilstöðum 28. apríl sl. og
var því tæplega 75 ára, er hún lést
eftir langvinnan sjúkdóm.
Foreldrar hennar voru hjónin
Eggert óðalsbóndi í Viðey og kona
hans, Katrín Thorsteinsson frá
Bíldudal. Gyða var fjórða í röð sjö
systkina. Eftirlifandi eru Eiríkur
Briem fyrrv. framkvæmdastjóri
Landsvirkjunar og Pétur Thor-
steinsson, sendiherra.
Viðeyjarfjölskyldan var þó oft í
Reykjvík á veturna, þar sem börn-
in gengu í skóla. Þá kynntist ég
Gyðu, en Rósa kona mín hafði
kynnst henni áður. Seinna sigldi
Gyða til Danmerkur og gekk í hús-
stjórnarskólann í Sorö, sem marg-
ar íslenskar stúlkur sóttu þá.
Árið 1926, 18 ára gömul, giftist
Gyða Héðni Valdemarssyni, for-
stjóra og þingmanni. Þau eignuð-
ust tvíburadætur 1. april 1927.
Önnur dó skömmu eftir fæðingu.
Eftirlifandi er Katrín, gift Magn-
úsi Jónssyni, sjómanni.
Gyða og Héðinn skildu eftir
nokkurra ára hjónaband.
Skömmu síðar giftist Gyða,
Guðmundi Þorkelssyni, fatseigna-
sala. Þau eignuðust eina dóttur,
Ásthildi Jóhönnu, sem fæddist 1.
mars 1934. Hún er gift Bjarna
Guðjónssyni, eftirlitsmanni hjá
Landsvirkjun. Þau eiga tvö börn
og eitt barnabarn. Guðmundur og
Gyða slitu samvistum eftir nokk-
urra ára hjónaband. Þá fór Gyða
til Stokkhólms, til að læra sæl-
gætisgerð, kom heim og hóf sæl-
gætisgerð í Hafnarfirði. Þá giftist
hún Skafta Egilssyni, en það
hjónaband stóð stutt.
Skömmu seinna fór Gyða að
starfa sem vökukona á elli- og
hjúkrunarheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði og var þar elskuð og
virt jafnt af starfsfólki og sjúkl-
ingum, fyrir dugnað, skyldurækni,
hjartgæsku, nærgætni og glað-
lyndi. Þar var hún í nokkur ár. En
þá urðu umskipti í lífi hennar.
Hún kynntist Páli Kristni Marí-
ussyni, skipstjóra. Þau felldu hugi
saman og giftu sig 2. júní 1957 og
entist það hjónaband nærri 26 ár.
Skömmu eftir hjónavígsluna fóru
nýgiftu hjónin í dálítið sérstæða
bruðkaupsferð. Gyða fór til Rúss-
lands í boði bróður síns, Péturs J.
Thorsteinssonar, til nokkurra
vikna dvalar í Moskvu, en Krist-
inn fór í sögulega ferð til Jan May-
en að sækja rekavið. Gyða hætti
að vinna í Sólvangi, þegar hún
gifti sig, og var mjög saknað þar
af öllum. Þau settu saman bú í
Skipholti 28, afar smekklegt heim-
ili þar sem ríkti mikil gestrisni.
En nú tók við líf sjómannskon-
unnar, einvera og bið eftir að
bóndinn kæmi heim úr veiðiferð.
Þetta leiddist Gyðu og fór það svo
að einhvern tíma, þegar vantaði
kokk, þá sagði hún við Kristin:
„Ég fer bara með þér, ég hlýt að
geta eldað eitthvað ofan í ykkur."
Hún var ráðin á skipið og líkaði
öllum vel. Og nú byrjuðu siglingar
um árabil á ýmsum skipum um
úthöfin, allt til Grænlands og allt
austur til Póllands, með ýmsum
hléum í landi og stundum þegar
hún var í landi brá hún sér í vinnu
í frystihúsi því að starfsorkan og
gleðin var einstæð.
Gyða var falleg kona, fríð sýn-
um, sviphrein og vingjarnleg við
alla, gáfuð og fyrirmannleg í
framgöngu og vakti athygli hvar-
vetna þar sem hún kom. Hún var
mjög gestrisin og þau hjón bæði
og manni leið vel í návist þeirra.
Hún var vinamörg og trygglynd
sínum æskuvinum.
Heilsu Gyðu hrakaði hin síðustu
ár. Til þess að geta hjúkrað henni
og annast hana hætti Kristinn
sjómennskunni og helgaði henni
hverja stund. En hann var ekki
einn um það. Báðar dætur hennar
önnuðust móður sína með dugn-
aði, kærleika og gæsku. Og ekki
má gleyma Katrínu systurdóttur
Gyðu, sem var alltaf boðin og búin
til að hjálpa móðursystur sinni á
margvíslegan hátt, með kærleika
og frábærri lipurð. "
Þrátt fyrir veikindi sín og þján-
ingar síðustu árin var Gyða alltaf
bjartsýn um bata. Hún hringdi til
okkar á hverjum degi til að láta
okkur vita um líðan sína og oftast
taldi hún sér vera að skána.
Og nú er okkar æskuvinkona
Gyða Briem dáin. Við fornvinir
hennar og aðrir vinir þökkum
henni samfylgdina og biðjum Guð
að blessa hana á nýjum vegum.
Dætrum hennar og eiginmanni og
öðrum ástvinum vottum við sam-
úð okkar.
Rósa Guðmundsdóttir,
Einar Magnússon.
SÝNINGARFERÐ
MEÐ
SÍÐUSTU
LAPPANA
Síöustu Lapplanderbílarnir frá Volvo veröa seldir
næstu daga á sérstöku verði, aðeins 198.496.00
krónur (gengi 6/5 '83, óyfirbyggðir). Kristján
Tryggvason, þjónustustjóri Veltis hf. verður með tvo
glæsilega Volvo Lappa í ferð sinni til umboðsmanna
víðsvegar um landið.
Kristján sýnir Lapplander Turbo með vökvastýri,
læstu drifi og innbyggðu spili. Hann kynnir líka
möguleika á stálhúsi auk blæjuhúss. Þetta er
einstakt tækifæri fyrir bændur og aðra fram-
kvæmdamenn, hjálparsveitir og fjallamenn - og alla
þá sem vilja notfæra sér þetta einstæða tækifæri.
Kristján sýnir Lappana:
10. maí Höfn í Hornafirði
11. - 12. maí Suðurfirðir
og Fáskrúðsfjörður
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Trúskipti
Getið þér sagt mér, hvernig menn eiga að bera sig til, þegar
þeir skipta um trúarbrögð? Þetta er mér alvörumál.
Það er ekki markmið starfs míns að reyna að fá
fólk til að skipta um trúarbrögð. Kannski kemur
þetta mönnum spánskt fyrir sjónir, þegar á það er
litið, að eg hef alla ævi starfað að því að útbreiða
trúna á Jesúm Krist.
En sjáið þér til: Það gagnar yður ekkert að hverfa
frá einum trúarbrögðum til annarra. Margir þeir,
sem bera þungar byrðar og eru óánægðir með lífið,
telja sér trú um, að það leysi einhvern vanda að
gerast trúskiptingar, en ólíklegt er, að það hafi
nokkur áhrif.
Starf mitt hefur verið fólgið í því að leitast við að
kynna fólki Jesúm Krist. Það er allt annað en að
skipta um trúarbrögð. Það er svo mikil breyting, að
Biblían kallar það að „ganga yfir frá dauðanum til
lífsins".
Biblían kennir mjög skýrt, að menn geti þekkt
Jesúm Krist, og það að þekkja Jesúm Krist er eins og
að fara úr myrkrinu inn í ljósið (1. Jóh. 2.9).
Þessi breyting er svo gjörtæk, að Biblían talar í
því sambandi um andlega krossfestingu og upprisu
(Róm. 6,4), og einu sinni sagði Páll postuli: „Eg er
krossfestur með Kristi. Sjálfur lifi eg ekki framar,
heldur lifir Kristur í mér.“
Þess vegna get eg ekki sagt yður, hvernig það fer
fram, þegar menn skipta um trúarbrögð. Eg get
aðeins sagt yður, hvernig unnt er að þekkja Jesúm
Krist, hann, sem getur breytt lífi yðar!
ð