Morgunblaðið - 10.05.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ 1983
41
fclk í
fréttum
+ Líkamsræktarfólk er margt í Dan-
mörku og meðal þeirra þau tvö, sem
eru á þessari mynd. Þaö eru þau Majo
Issa og Michael Barnekow, en þau
fengu bæöi silfur á danska meistara-
mótinu þegar þaö var síöast haldiö.
COSPER
Goldie Hawn
hefur fundið
rétta manninn
+ Kvikmyndaleikkonan
Goldie Hawn, sem á tvö
hjónabönd að baki og ótal
ástarævintýri, segist nú
loksins hafa fundiö eina
rétta manninn í lífi sínu.
Sá lukkulegi er leikarinn
Kurt Russell, sem fer meö
aðalhlutverkið ásamt
Goldie í myndinni „Swing
Shift". Kurt hefur leikiö í
ýmsum myndum, t.d. í „The
Thing“ og einnig sem Elvis
Presley í mynd um ævi
þeirrar stóru stjörnu.
Goldie Hawn er 37 ára aö
aldri en Kurt Russell 32.
Goldie lauk viö þaö nú fyrir
skemmstu aö skilja viö ann-
an mann sinn og þótt hún
hafi verið orðuð viö ýmsa
þá er hún bara einstæð
móöir meö tvö börn eins og
sakir standa. Úr því ætlar
Kurt Russell þó aö bæta.
Nudd- og gufubað-
stofa Óla
Hamrahlíö 17
Konur — Karlar
Eigum lausa nokkra nuddtíma. Ennfremur nokkra
tíma fyrir konur í Ijósalampa. Pantanir í síma 22118.
NÝTT
vonumaötakaupp þessar
qlœsilequ veqqhillusamstœöur
áaóein$kr.
20,900
qóóir qneióúluúkilmálan
Smiðtuvegi 6 Simi 44544
SPUNNIÐ LM STALÍN
eftír MATTHÍAS JOHANNESSEN
Beatrica, sem getur leitt hann út úr vondum minningum?
Dante fór í ferðalag til helvítis í huganum. Solzhenitsyn
er staddur þar sjálfur. Sendur til heljar fyrir það eitt að
hafa í bréfi frá vígstöðvunum gagnrýnt hernaðarleg mis-
tök „mannsins með yfirskeggið". Hann er staðráðinn í að
koma með undirheima með sér í ferðatöskunni, ef honum
auðnast að sleppa úr Eyjaklasanum. Og gera heyrin-
kunnugt: að stalínismi er ekki til. Einungis marxismi.
30
Já, Búkharin. Ekkja Osips Mandelstams situr í kytru
sinni í Moskvu og skrifar um ævi manns síns. Þetta
kvöld er hún að rifja upp, hve Búkharin hafi verið
honum ómetanlegt skjól, meðan hann var og hét. En svo
sló í bakseglið. Vinátta hans dugði engum framar. Hann
hafði ávallt reynt að segja satt, t.a.m. í ræðu 1932, þegar
erfitt var um vik: Boris Pasternak er eitt þeirra skálda,
sem hafa dregið sig út úr skarkala nútímans ... Hann
hefur yfirgefið þennan heim og horfið inn í perluskel
tilfinninga sinna, þar sem hann heldur áfram að greiða úr
vandamálum síns særða hjarta, með óendanlegri við-
kvæmni og blíðu ...
Nú situr Pasternak dag og nótt við skrifborðið sitt í
Peredelkínó og hripar niður uppkastið að Sívago lækni,
en Nadezhda Mandelstam setur punkt aftan við setningu
um Búkharin. Það er eins gott að Stalín fái aldrei að vita,
hvað hún er að sýsla. Bjarga ljóðum og minningu manns
síns úr ísköldu myrkri túndrunnar. Af skyldurækni, en
ekki ódauðlegri ást, eyðir hún lífi sínu í dauða hans:
Hvers vegna ættir þú að vera hamingjusöm? hafði hann
spurt. Hann var trúaður. Og kristnin gerir ekki endilega
ráð fyrir þessa heims hamingju. Menntamenn allir horfn-
ir. Bændur horfnir. Og lífið úr andliti mergðarinnar.
Einungis hungur og harmkvæli, hugsar hún.
Aðeins tæplega fimmtug situr |jessi kona og rifjar upp
ævi manns síns. Ég hef lifað í 47 ár, segir hún við sjálfa
sig. Og af þeim eru einungis 17 það sem kalla má eðlileg.
Hún hripar á blaðsnepil: Búkharin fær ekki uppreisn. Það
getur ekki gerzt í dauðu landi. Hún hefur glatað allri von.
Samt heitir hún Nadezhda, en það útleggst: von.
Skáldið vissi, að ung hélt kona hans framhjá honum.
Hví ekki? Sjálfur var hann erfiður maður. Eins og skáld
eru.
Hún slekkur. En í Kreml logar ljós í skrifstofu einvald-
ans. Hann hefur ekki áhyggjur af neinu, nema minning-
um sínum. Þær ónáða hann, stundum. Ef það væri nú
hægt að afmá þær með öllu? Þá fyrst yrði hægt að skapa
raunverulegan sovétmann. Hann hefur einnig áhyggjur af
helsprengjú Bandaríkjamanna. Hún stendur í vegi fyrir
áformum hans. Ástríðufullri freistingu um heimsyfirráð.
Og svo hefur hann áhyggjur af Svetlönu, auðvitað. Finnst
hún oflaus á kostunum.
Stalín man einungis eftir einni setningu Búkharins:
Vyshinsky: Er það rétt, að andstaða gegn Flokknum
jafngildi styrjöld við hann?
Búkharin: Já, yfirleitt er það svo. Það er rökrétt álykt-
un.
31
að er eins og margar eilífðir séu frá 1937. Hvað þá
1924. Samt man Stalín sumt. Hann gengur að
skrifborðinu og tekur upp síðasta bréfið, sem Len-
in sendi honum af banasænginni. Hann geymir það, þrátt
fyrir allt. Ber það enn einu sinni augum: harðorð áminn-
ing til lærisveinsins um að biðja félaga Nadya Krupskaya
afsökunar á ruddaskap í símtali. Að öðrum kosti sé vin-
átta þeirra fyrir bí. Stalín biðst afsökunar. Samt skrifar
Lenin í pólitíska erfðaskrá sína, þar sem hann gerir úttekt
FRAMHALD