Morgunblaðið - 27.05.1983, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 27.05.1983, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1988 5 Átta listamenn hlutu dvalarstyrki úr Menningarsjóði ÁTTA listamenn hlutu styrki til dvalar erlendis úr Menningarsjóði, — 15 þúsund krónur hver. Einar Laxness, formaður Menntamálaráös afhenti styrkina í hófi ( gær. Þeir listamenn sem styrki hlutu eru Björn Bjarman, rithöfundur, Guð- munda Elíasdóttir, óperusöngvari, Guðrún Tómasdóttir, söngvari, Kjartan Guðjónsson, myndlistar- maður, Kristbjörg Kjeld, leikari, Oddur Björnsson, rithöfundur, Svava Jakobsdóttir, rithöfundur og Örn Guðmundsson, listdansari. Alls nam úthlutun styrkja til menningarstarfsemi 240 þúsund krónum, en markaður tekjustofn Menningarsjóðs samkvæmt fjár- lögum var rétt um 1,6 milljón krónur. Um styrki til dvalar er- lendis sóttu 37 manns, en einnig voru veittir styrkir til tónverka- útgáfu og fræðistarfa. Fimm lista- mannanna voru við afhendinguna, sem fram fór í gær — þau Björn, Guðmunda, Guðrún, Oddur og Svava. „Ég hef um nokkurt skeið átt við vanheilsu að stríða — en nú hefur bjartsýni gripið mig og ég vil láta reyna á hvort ég enn hef einhverja hæfileika til að skrifa; ef ég þá nokkurn tíma hef haft þá. Fer til Norðurlanda, en læt ekki uppi hvað ég tek mér fyrir hendur. Hef ýmislegt í handraðanum," sagði Björn Bjarman í stuttu spjalli við blaðamann Mbl. Guðmunda Elíasdóttir hlaut styrk til tónlistarnáms í Þýzka- landi. „Ég fer til Weimar í A-Þýzkalandi með þrjá nemendur mína úr Tónlistarskólanum i Reykjavík, þær Kolbrúnu av Heyj- um og Hönnu Eiríksdóttur, sem báðar eru á 8. stigi og Svanhildi Sveinbjörnsdóttur, sem er á sjöunda stigi. Þar sest ég á skóla- bekk með þeim í sumar en fer síð- an til Danmerkur og verð í radd- þjálfun hjá fyrrum bekkjarsystur minni, Lis Engel, prófessor," sagði Guðmunda Elíasdóttir. „Hvað mig áhrærir, þá fer ég til New York — i nokkurs konar klössun ef svo má að orði komast og síðan í söngleikaför til Islend- ingabyggða í Kanada," sagði Guð- Listmunahúsið: Bragi Asgeirsson sýnir gaml- ar og nýjar grafíkmyndir LAUGARDAGINN 28. maí kl. 14 verður opnuð í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2, sýning Braga Ás- geirssonar á gömlum og nýjum grafíkmyndum. Eftir nær tveggja áratuga hlé hefur Bragi tekið til við listgraf- ík á ný og út er komin grafísk mappa með sex steinþrykkjum, auk þriggja stakra mynda, sem eru til sýnis og sölu í Listmuna- húsinu. Sýningin er opin daglega frá kl. 10—18, laugardaga og sunnu- daga frá kl. 14—18. Lokað mánu- daga. Sýningin stendur til 5. júní. Frá úthlutun dvalarstyrks Menningarsjóðs ( gær. Frá vinstri: Svava Jakobsdóttir, Björn Bjarman, Einar Laxness, formaður menntamálaráðs, Guðrún Tómasdóttir og Guðmunda EKasdóttir. MorgunbiaðiA/Kristján Einaruon. rún Tómasdóttir, en hún kennir við Tónskóla þjóðkirkjunnar. „Ég fer til Lundúna til þess að kynna mér leikhúslífið og ef efna- hagurinn leyfir til Berlínar. Þá neita ég því ekki, að ég mun stel- ast á konserta í Lundúnum," sagði Oddur Björnsson, sem um þessar mundir stjórnar æfingum í Þjóð- leikhúsinu á verki. sínu „Eftir konsertinn". Svava Jakobsdóttir kvaðst ætla dvelja vetrarlangt í Lundúnum. „Ég mun kynna mér leiklist eftir megni, en jafnframt vinna að skáldsögu og leikriti, sem ekki er tímabært að skýra nánar frá,“ sagði Svava. Þrír hlutu styrki til tónverka- útgáfu, alls 24 þúsund krónur. Þeir eru Birgir Helgason, tónlist- armaður til útgáfu nótnabóka með eigin sönglögum að upphæð 8 þús- und krónur, Gramm sf. til útgáfu á tónverkum Áskels Mássonar, krónur 6 þúsund og þeir Leifur Þórarinsson og Páll P. Pálsson til útgáfu hljómplötu með konsert fyrir klarinett og hljómsveit eftir Pál og obókonsert eftir Leif, að upphæð 10 þúsund krónur. Þá var tíu fræðimönnum veitt viðurkenning, þrjú þúsund krónur hverjum. „Umsækjendur um styrki til fræðistarfa og náttúru- fræðirannsókna voru alls 24, en heildarstyrkupphæð var ákveðin af Alþingi — krónur 22 þúsund. Menntamálaráð hefur haft þann hátt á eins og oft áður, að veita viðurkenningu nokkrum fræði- mönnum, sem fengist hafa við þjóðleg fræði og rannsóknir af áhuga og eigin frumkvæði, en hljóta yfirleitt lítinn eða engan opinberan styrk. Þessir fræði- menn eru nú tíu að tölu og hefur Menntamálaráð ekki séð sér ann- að fært en að hlaupa undir bagga með Alþingi til þess að þeir gætu allir hlotið sömu upphæð — krón- ur þrjú þúsund," sagði Einar Laxness meðal annars í stuttri ræðu, sem hann hélt í gær. Fræðimennirnir sem hlutu við- urkenningu eru: Einar H. Einars- son frá Skammadalshóli, Friðrik Sigurbjömsson, Reykjavík, Guð- mundur A. Finnbogason, Innri- Njarðvík, Haraldur Jóhannsson, Reykjavík, Jón Gíslason, Reykja- vík, Jón Guðmundsson, Fjalli, Skúli Helgason, Reykjavík, Val- geir Sigurðsson, Þingskálum, Þórður Jónsson, Hveragerði og Þórður Tómasson, Skógum. — H.Halls. Gunnar Miðasala og borðapantanir í dag í Broadway kl. 9 Pantanir óskast staðfestar í síma 77500. -6. c Astrid Góðir gestir frá Noregi í tilefni þessarar síöustu hátíöar höfum viö fengiö til landsins eina vinsælustu dans- hljómsveit Norðmanna, Four Jets, og mun hún leika fyrir dansi aö loknu rokkstuðinu. Four Jets hafa sent frá sér 13 LP-plötur og nokkrar litlar og hafa mörg laga þeirra kom- ist í 1. sæti norska listans. Þor*teinn Anna Berti f* Óteljandi áskoranir og eilífar hringingar og gífurlegar hvatningar hafa nú borið þann árangur að ákveðið hefur verið að halda AUKA ROKKHÁTÍÐ jt.í, BccACwakY Nú er því allra síöasta tækifæriö til aö sjá þessa stórkostlegustu rokkhátíö allra tíma þar sem allir gömlu góöu og síungu söngvarar rokktímabilsins koma fram meö hinni frábæru hljómsveit Björg- vins Halldórssonar og nú meö Gunnari Þóröar- syni. Matsedill: Hörpuskelfiskur í hvítvínssósu. Lambakryddsteik með rauóvínssósu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.