Morgunblaðið - 27.05.1983, Page 19

Morgunblaðið - 27.05.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1983 19 Hjörleifur Guttormsson og Ragnar Arnalds koma út af Bessastööum. „Hvíldinni feginn“ — segir Tómas Arnason „Kg Á ágætar minningar úr við- skiptaráöuneytinu og þeim störfum þar. En það er léttir að vera laus. Ég er búinn að vera ráöherra í hálft fimmta ár bráðum og þetta hafa ver- ið nokkuð erfið ár að ýmsu leyti, þannig að ég er nú hvíldinni feginn, satt að segja," sagði Tómas Árnason er hann var spurður hvort hann mundi sakna viðskiptaráðuneytisins, í samtali við Mbl. í gær. „Á þessum tímamótum finnst mér það vera mjög þýðingarmikið að það skuli vera komin á þing- ræðisstjórn fyrir landið, stjórn sem komið hefur sér saman um stjórnarsamning, sem ég álít að muni geta að verulegu leyti unnið bug á verðbólgunni sem er hættu- leg, ef hann verður framkvæmdur. Hyggstu snúa aftur til Fram- kvæmdastofnunarinnar? „Já, það geri ég ráð fyrir, sér- staklega vegna þess að Sverrir er orðinn ráðherra og stofnunin því framkvæmdastjóralaus. Ég fékk leyfi frá störfum þar meðan ég gengdi ráðherrastörfum, þannig að ég reikna með því að taka þar upp mín fyrri störf," sagði Tómas. Formaður friðarnefndar Svía flytur fyrirlestur SÆNSKI þingmaðurinn Maj Britt Thcorin er stödd hér á landi í boði friðarhóps kvenna og mun í dag kl. 5 flytja fyrirlestur í Norræna húsinu um afvopnunarmál. Maj Britt Theorin er formaður afvopnunarnefndar Svía, þingmað- ur sósíaldemókrata og í forsvari fyrir fjölda þingnefnda. Hún veitir forystu sendinefndum Svía á af- vopnunarráðstefnum hjá Samein- uðu þjóðunum og víðar. Meðan hún dvelur hér hittir hún utanríkis- ráðherra, formann Alþýðuflokks- ins og konur úr öllum flokkum og félagasamtökum, sem hafa í vetur myndað hóp til að ræða friðar- og afvopnunarmál. I Norræna húsinu verður um kvöldið fundur um myndun frið- arsamtaka kvenna á íslandi. Henrik Sv. Björnsson sæmir Constantin Lyberopoulos riddarakrossi fálka- orðunnar. Til vinstri er Emilía Kofoed-Hansen, kona hans, og Yannis, sonur ræðismannshjónanna. Sæmdur riddarakrossi CONffTANTIN Lyberopoulos, ræðis- maður fslands í Grikklandi, var fyrir nokkru sæmdur riddarakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu og við athöfn á heimili ræðismannsins og fjölskyldu hans í Aþenu afhenti Henrik Sv. Björnsson Lyberopoulos heiðurs- merkið. Constantin Lyberopoulos hefur verið ræðismaður íslands í tíu ár. Henrik Sv. Björnsson sagði í stuttu ávarpi að framlag Lyberopoulos í þágu aukinna samskipta Grikk- lands og íslands á sviði viðskipta, ferðamanna og menningar hefði verið ómetanlegt og fyrir það skyldi þakkað. Ræðismaðurinn minntist á í svari sínu er hann þakkaði sér sýndan sóma, að hann hefði síðustu tuttugu og tvö ár unnið að því að efla íslenzka hags- muni í Grikklandi og myndi gera það unz yfir lyki. Viðstaddir athöfnina voru ýmsir erlendir sendiherrar í Grikklandi, svo og nokkrir f slendingar og vinir ræðismannshjónanna. Constantin Lyberopoulos er kvæntur Emilíu Kofoed-Hansen og eiga þau hjón tvö börn. Áhugamál Sverris eru á ýmsa lund hin sömu og mín — segir Hjörleifur Guttormsson „l'að eru þáttaskil fyrir mig sjálfan að fá loksins tækifæri til að verða óbreyttur þingmaður. I>að er reynsla sem ég hef tæpast orðið aönjótandi til þessa,“ sagði Hjör- leifur Guttormsson í samtali við Mbl. er hann hafði afhent Sverri Hermannssyni lyklana að iðnað- arráðuneytinu í gær. „Ég kom inn í þetta ráðuneyti án þess að hafa stigið fæti mínum inn á Alþingi, kom fyrst á Alþingi héðan eftir mánaðar starf. Var að vísu tvo mánuði á þingi án ráðu- neytis kringum áramótin 1979/1980. Og því horfi ég til þess með tilhlökkun að geta sinnt þeim þætti mála og þá fengið ögn rýmri tíma til að tala við það fólk sem hefur veitt mér þann trúnað að kjósa mig á Alþingi. Mér er efst í huga að þrátt fyrir þessi stjórnarskipti, sem eru all skörp þáttaskil, takist að tryggja hér vissa samfellu í málum, sem unnið hefur verið að og lögð mikil vinna í af hálfu fyrrverandi ríkis- stjórnar. Við höfum reynt hér að marka stefnu talsvert fram í tímann. Um hana hefur tekist nokkuð góð sam- staða á Alþingi, svo ég vona að það sé nokkur trygging fyrir því að ekki verði snúið við blaði. Og þó að ég viti að þann iðnaðarráðherra sem hér tekur við af mór greini á við mig um ýmsa þætti, sem eðli- legt er, þá þykist ég þó vita að áhugamál hans séu á ýmsa lund hin sömu og ég treysti honum til þess að athuga vel stöðuna eins og „ÉG HELD að þetta stjórnarsam- starf hafi tekist með ágætum þegar á allt er litið," sagði Ragnar Arnalds, fráfarandi fjármálaráðherra í lok síðasta ríkisstjórnarfundar ráðu- neytis Gunnars Thoroddsen. Hann var þá spurður hvort hann væri ánægður með viðskiln- aðinn hvað varðar hans mála- flokk, fjármál ríkissjóðs. Hann svaraði: „Auðvitað verður maður að viðurkenna það að ef við hefð- um haft þingmeirihluta á síðast- liðnum vetri, þá hefðum við getað tekið málin föstum tökum og vissulega hefur þessi ríkisstjórn verið óheppin að þessi gífurlegi hún liggur nú fyrir áður en hann sveigir of skarpt af leið,“ sagði Hjörleifur. samdráttur hefur orðið í fiskveið- um og þar með þjóðartekjum. Hún hefur lent í einhverri mestu við- skiptakreppu sem hér hefur geng- ið yfir og auðvitað setur það sinn svip á ástandið eins og það er. En það hefði auðvitað hlotið að koma fyrir hverja þá sem við völd voru.“ Aðspurður um viðtakandi ríkis- stjórn sagði hann: „Ég vil nú sem minnst segja um þá. Ég þekki þessa menn alla persónulega og hef ekkert nema gott um þá að segja, en við verðum að sjá hvers þeir verða megnugir málefnalega séð, áður en við förum að dæma þá.“ Ríkisstjórnin verið óheppin — segir Ragnar Arnalds fráfar- andi fjármálaráðherra Það hefur aldrei verið auðveldara að skipta á gömlum og nýjum DAIHATSU DAIHATSU er nr. 1 í endursölu. DAIHATSU er því bezta bílafjárfestingin. Viö tökum gamla DAIHATSUINN upp í, eöa seljum hann fyrir þig og gerum þér svo auðvelt aö greiöa mismuninn, aö þú finnur ekki fyrir því aö fara af ’79 eöa '80 árgerðum á árgerö 1983. Komdu við og kannaðu málið. Opið á morgun DAIHATSUUMBOÐIÐ, ÁRMÚLA 23. S. 85870-81733

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.