Morgunblaðið - 28.05.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. MAl 1983
21
Hafliöi Halldórsson tamningamaöur á hestinum Glcsi, fyrsta vinningi í happ-
drætti Fáks. Þetta er hágengur töltari, fangreistur og meö allan gang að sögn
þeirra sem til þekkja. Glæsir er undan hryssunni Sóleyju frá Bergþórshvoli og
hann er sonarsonur Hyls 721 frá Kirkjubæ, rauðblesóttur eins og önnur hross
frá Kirkjubæ.
Happdrætti Fáks:
Gæðingur í vinning
FIMM vetra gæðingur, Glæsir frá
Bergþórshvoli í Landeyjum, er
fyrsti vinningur í „Happdrætti
Fáks 1983“, en dregið verður í því
hinn 1. júní næstkomandi. Aðrir
vinningar eru flugferðir fyrir tvo
á innanlandsleiðum með Flugleið-
um, þriðji vinningur er beisli frá
versluninni Hestamanninum og
fjórði vinningur er matur fyrir tvo
á Hótel Sögu.
Það er Kvennadeild Hesta-
mannafélagsins Fáks í Reykjavík,
sem efnir til happdrættisins, en
allur ágóði af því rennur til upp-
byggingar á félagssvæði Fáks i
Reykjavík. Dregið verður í happ-
drættinu 7. júní.
Fákskonur viö sölu happdrættismiða {Austurstræti í Reykjavík.
Ljósm.: OtK.Mag.
GLÆSILEGUR
SUMARBÚSTAÐUR
FRÁ
HUSASMIÐJUNNI
Til sýnis á svæöi Skógræktarfélags
Reykjavíkur í Fossvogi um helgina
og næstu daga.
Komið og skoöið bústaðinn í fallegu umhverfi.
Leitið upplýsinga um möguleikana sem
sumarbústaðir okkar bjóða.
HÚSASMIÐJAN HF.
Súöavogi 3-5,104 Reykjavík, sími: 84599
NÝLEGA kom út hjá bókaútgáf-
unni Bjöllunni bókin „Ása, Jón og
Agnarögn“ eftir Grethe Fager-
ström og Gunilla Hansson. í for-
mála að bókinni segir þýðandinn
Helga Guðmundsdóttir meðal ann-
ars:
„Bókin Ása, Jón og Agnarögn er
kynfræðsla handa börnum. Þetta
er myndasaga með samtölum, þar
sem segir frá Ásu og Jóni, sem
eignast systkini. Bókinni er ætlað
að auðvelda börnum að fá opinská
og hreinskilningsleg svör við
spurningum sínum um kynlífið og
auðvelda fullorðnu fólki að gefa
slík svör.
Bókin er auðlesin og myndasag-
an auðveldar börnunum að rifja
upp hina ýmsu kafla á eigin spýt-
ur, einnig þeim, sem ekki eru læs.
En það varðar miklu að bókin sé
lesin með einhverjum fullorðnum
fyrst.
Bókin er gefin út í samvinnu við
sænsku útgáfuna Gávle. Prent-
stofa G. Benediktssonar sá um
umbrot og filmuvinnu.
Sjúkrastöð SAA
Laugardaginn 28. maí kl. tvö til sex eh. verður sjúkrastöð SÁÁ til sýnis.
SÁÁ býður öllum landsmönnum að koma í heimsókn og skoða hina nýju
sjúkrastöð sem nú er komin undir þak.
Öllum gestum verður boðið upp á kökur og kaffi eða gosdrykk.
Skemmtiatriði hefjast kl. 3. Þá mætir Tóti trúður og Dixielandhljómsveit leikur.
Fjölmennið og njótið dagsins með SÁÁ.