Morgunblaðið - 01.06.1983, Síða 1
56 SÍÐUR
121. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Á kafi í aur
Bíll á kafi í aur skammt frá Reno í Nevada-ríki í Bandaríkjunum í gær,
en þar höfðu þá flóð og aurskriður orðid a.m.k. tveimur mönnum að
bana og sex höfðu slasast.
Nautabani fer halloka
Mynd þessi sýnir hvar portúgalski nautabaninn Victor Mendes hefur orðið að láta í minni pokann fyrir nauti á
nautaati sem haldið var á „San Isidoro“-hátíðinni í Madrid. Hann var stunginn í tvígang í lærið, en meiðsli hans
munu ekki hafa verið alvarlegs eðlis.
Tyrkir banna
stjórnmálaflokk
Herstjórnin sendir stjórnmálaleiðtoga í útlegð
Ankara, Tyrklandi, 31. maí. AP.
Herforingjastjórnin skipaði í dag
að lagður yrði niður nýstofnaður
tyrkneskur stjórnmálaflokkur og
nokkrum stjórnmálamönnum var
skipað í útlegð til héraösins Canakk-
ale í vesturhluta landsins.
í tilkynningu stjórnvalda segir
að meðal þeirra sem gerðir hafi
verið útlægir frá Ankara hafi verið
Suleyman Demirel, fyrrverandi
forsætisráðherra, og Ihsan Sabri
Caglayangil, fyrrverandi utanrík-
isráðherra. Mönnum þessum er
gert skylt að gera grein fvrir máli
sínu við herlagayfirvöld í Canakk-
ale á fimmtudag og vera undir „eft-
irliti" þeirra.
Stofnun nýrra stjórnmálaflokka
var leyfð 16. maí síðastliðinn og í
framhaldi af því var tilkynnt að 6.
nóvember nk. færu fram almennar
þingkosningar í landinu.
Stjórnmálaflokkurinn sem var
bannaður í dag var stofnaður 20.
maí síðastliðinn og var iinn fjög-
urra nýrra flokka sem stofnaðir
hafa verið frá því hjrforingja-
stjórnin leyfði starfsemi stjórn-
málaflokka.
Reynt að miðla málum
innan Fatah-fylkingar
DamaskuN, Sýrlandi, 31. maí. AP.
SÝRLENDINGAR og tvær róttækar
fylkingar Palestínuskæruliða reyndu
í dag að stilla til friðar innan Fatah-
fylkingarinnar, en miklar deilur hafa
risið þar og stendur styrinn um for-
ystu Yasser Arafats, leiðtoga PLO.
Talsmaður uppreisnarmannanna
í fylkingunni sagði þá ekki tilbúna
til samningaviðræðna við Arafat
fyrr en hann léti af hógværri
stefnu sinni og tæki upp vopnaða
baráttu við ísraela. Hann sagði:
„Við ræðum hvorki við Arafat né
aðstoðarmenn hans fyrr en við höf-
um staðfestingu á því að þeir ætli
sér að snúa sér aftur að vopnaðri
baráttu."
Talsmaðurinn, Jihad Saleh, sagði
ástæðurnar fyrir uppreisninni vera
eftirfarandi: vilji Arafats til að
ræða friðartillögur Ronald Reag-
ans um frið í Miðausturlöndum,
sem byggðar eru á samvinnu við
Jórdani, samþykkt Arafats á því að
Hussein Jórdaníukonungur semji
við ísraela fyrir hönd palestínsku
þjóðarinnar og ákvörðun Arafats
að draga til baka alla hermenn frá
austur- og norðurhluta Líbanons.
Arafat er staddur í Líbanon um
þessar mundir og herma óstaðfest-
ar fregnir að hann hafi tekið þá
ákvörðun að flytja höfuðstöðvar
PLO til Trípólí.
Minni spenna virtist ríkja í dag
milli Sýrlendinga og ísraela í Líb-
anon, en Sýrlendingar vöruðu samt
við því að ef til styrjaldar kæmi,
yrði Bandaríkjamönnum í engu
hlíft. Svo virðist sem yfirlýsing
þessi eigi við Bandaríkjamenn í
friðargæsluliðinu.
Sofnaði við
eigin flug-
ránstilraun
Boston. Massachusetts, 31. maí. AP.
ARABI nokkur gerði í dag til-
raun til flugráns með borðhníf
um borð í Jumbo-þotu á leið frá
Saudi-Arabíu til New York, en
sofnaöi síðan og var handtekinn
þegar þotan varð að lenda í Bost-
on vegna slæmra flugskilyrða.
Engan sakaði af 145 farþeg-
um eða 25 manna áhöfn.
Hnífurinn, sem maðurinn
ógnaði starfsfólki þotunnar
með, kom með kvöldverði sem
var framreiddur um borð og
var maðurinn afvopnaður af
flugstjóra þotunnar. Hann
hélt þó áfram að ógna farþeg-
um og áhöfn með ýmsu móti
þar til hann fékk sér blund
þegar hann tók að lengja eftir
að kröfum sínum væri fram-
fylgt.
Eldflaugaáætlun
verður haldin
Bonn, 31. maí. AP.
RÁÐAGERÐ NATO um að koma fyrir
572 nýjum kjarnorkueldflaugum í
Vestur-Evrópu gengur „samkvæmt
áætlun" og byrjað verður að setja
flaugarnar upp síðar á þessu ári, sagði
Caspar Weinberger, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, í dag.
„Allt gengur samkvæmt áætlun,“
sagði Weinberger á fundi með
fréttamönnum þar sem hann sat
fyrir svörum ásamt Manfred Wörn-
er, varnarmálaráðherra Vestur-
Þýskalands. Hann sagði Atlants-
hafsbandalagsríkin staðráðin í að
fylgja eftir samkomulagi frá 1979
— sagði Wein-
berger á
fundi í dag
um að byrjað yrði að koma flaugun-
um fyrir síðla þessa árs, en hann
gat ekki nánar um tímasetningu. Ef
um verður að ræða samkomulag
milli stórveldanna í afvopnunarvið-
ræðunum í Genf, „getum við annað
hvort stöðvað aðgerðir eða tekið
niður flaugar sem þegar hafa verið
settar upp,“ sagði Weinberger á
fundinum, sem haldinn var í Bonn
eftir tveggja daga viðræður hans og
Wörners.
Weinberger neitaði ítrekað á
fundinum að svara spurningum um
það hvort Bandaríkjastjórn mundi
sættast á málamiðlunarsamkomu-
lag í Genf þar sem gert væri ráð
fyrir að hætt yrði við að koma
Pershing Il-flaugunum fyrir, og
látið nægja að koma fyrir þeim
stýrieldflaugum, sem ná minnstum
hraða.
Hann sagði að Reagan og stjórn
hans héldi enn við „núlllausnina“
sem hina einu raunhæfu lausn.