Morgunblaðið - 01.06.1983, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983
Marel Þorsteins-
son — Minningarorð
Húsavík:
Aðalfundur Norræna
áhugaleikhússráðs-
ins hefst í dag
Kynslóðir koma og kynslóðir
fara það er lífsins gangur. í dag er
kvaddur hinstu kveðju Marel Þor-
steinsson, verkamaður, sem lést
hér í borg 20 maí síðastliðinn eftir
langvarandi heilsubrest og sjúkra-
húsvist síðustu árin. Hann var
faeddur 1. ágúst 1911 i Holtsmúla í
Landsveit i Rangárvallasýslu og
komin af alþýðufólki. Ungur mað-
ur gerðist hann bóndi i ölversholti
i Holtahreppi í Rangárvallasýslu á
þeirri tíð er sveitabúskapur var að
mörgu leyti erfiðari og frumstæð-
ari en síðar varð. Árið 1939, hinn
7. október, kvæntist Marel Mar-
gréti Ágústu Snælaugsdóttur frá
Arskógsströnd i Eyjafjarðarsýslu,
fædd 29. júli árið 1921. Þau bjuggu
i ölversholti til ársins 1947 að þau
fiytja suður til Reykjavíkur og
setjast þar að. Marel og Margrét
Ágústa eiga einn son, Þorstein,
rithöfund, sem er fæddur árið
1941. Það má nærri geta þvílikt
áfall það varð Marel Þorsteins-
syni, ungum manni, að Margrét
Agústa átti við langvarandi
heilsuleysi að stríða og eftir að
þau koma suður tii Reykjavikur
dvaldi hún á sjúkrahúsum síðustu
æviár sín og andaðist árið 1958
aðeins þrjátíu og sjö ára að aldri.
Kynni mín af Marel Þorsteins-
syni hófust fyrir um það bil tutt-
ugu árum. Við Þorsteinn, sonur
hans, störfuðum saman nokkur ár
i Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg
og urðum brátt góðir félagar og
vinir. Ég fór að venja komur mín-
ar á heimilið að Mánagötu 6 i frí-
stundum frá vinnu. Marel hélt
heimili með syni sínum og tengda-
dóttur, Hólmfríði Geirdal, og
snemma fórum við Marel að
spjalla saman um lífið og tilver-
una. í minningu frá þeim árum er
hann í huga mínum tengdur góðri
viðkynningu. Hann var þá er ég
kynntist honum fyrst kominn á
sextugsaldur og kom mér þannig
fyrir sjónir að hann hefði átt
starfsama ævi, unnið við margs-
konar erfiðisvinnu frá unglingsár-
um. Hann var víðlesinn og fróður
um marga hluti þó lítil væri
menntunin eins og títt er um
margan alþýðumanninn.
í gleði þeirra daga þegar Þor-
steinn og Hólmfríður höfðu stofn-
að til heimilis var Marel oft hrók-
ur alls fagnaðar á góðri stundu.
Hann bauð mér í nefið sem ég
oftast þáði, síðan teygði hann sig
eftir bók úr bókasafni sínu, las þá
oft úr íslendingasögunum eða úr
bók eftir meistara Þórberg, valinn
kafla, og er liða tók á kvöldið sett-
ist hann við orgelið sitt og lék
kunnan sálm eða þekkt selskaps-
lag og við Þorsteinn sungum oft
hraustlega þegar stemmningin
var í hámarki. Marel Þorsteinsson
hafði yndi af góðri tónlist og lék
árum saman á orgel Marteins-
tungukirkju í Rangárvallasýslu og
eftir að hann fluttist suður til
Reykjavíkur söng hann f nokkur
ár með Kirkjukór öháða safnað-
arins.
Marel starfaði lengst af hér í
Reykjavík við almenna verka-
mannavinnu og hin síðari ár vann
hann hjá Reykjavíkurhöfn. Hann
gekk til alirar vinnu af samvisku-
semi og trúnaði. Hann varð þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að fá að fylgj-
ast með uppvexti og þroska barna-
barna sinna, Margrétar Guðrúnar,
Árna Freys og Marels, og þau
veittu honum mikla gleði og upp-
örvun í erfiðum veikindum hans.
Marel Þorsteinsson var af þeirri
kynslóð íslendinga sem vann
hörðum höndum til að tryggja af-
komu sína. Sem ungur drengur
kynnist hann sveitastörfum og
gerðist síðar bóndi. Það voru að
flestu leyti aðrir tímar en þeir er
við nú lifum og tilheyra næstum
annarri öld, breytingarnar eru
miklar og hafa að mörgu leyti
reynst afdrifaríkar fyrir land og
þjóð. Ekki er það ólíklegt að við-
brigðin hafi verið mikil þegar
Marel tekur sig upp sem ungur
maður flyst úr sveitinni fyrir
austan og sest að hér í þéttbýlinu
fyrir sunnan. Hann háði sína
lífsbaráttu að mörgu leyti við erf-
iðar aðstæður en margt varð til að
létta þann róður. Með Marel og
syni hans, Þorsteini, var alla tíð
mikil og góð vinátta, og Þorsteinn
reyndist honum góður sonur. Með
þeim feðgum var mikill kærleikur
alla tíð.
Nú, þegar Marel Þorsteinsson er
horfinn af sjónarsviðinu þá kveð-
ur góður maður sem öllum þótti
vænt um sem kynntust honum af
einhverju ráði. Hans nánustu, vini
mínum Þorsteini, Hólmfríði,
Margréti Guðrúnu, Árna Frey og
Marel sendi ég innilegar samúð-
arkveðjur. Guð blessi minningu
Marels Þorsteinssonar.
Ólafur Ormsson.
DAGANA 1.—5. júní verður haldin
á Húsavík árleg ráðstefna og aðal-
fundur Norræna áhugaleikhúsráðs-
ins (NAR). Aðild að NAR eiga öll
sambönd áhugaleikfélaga á Norð-
urlöndum. Þetta er í annað sinn
sem ráðstefnan er haldin hér á
landi, en hún er haldin til skiptis á
Norðurlöndunum.
Efni ráðstefnunnar I þetta
sinn er „Norrænn menningararf-
ur, sem örvun í nútímaleikhúsi".
Sameiginlegur menningararfur
Norðurlandaþjóðanna, þ.e. nor-
ræn goðafræði, liggur til grund-
vallar og möguleikarnir á að
nýta hana og umbreyta í leik-
rænt form. Fyrirlesarar verða
Henning Nielssen frá Danmörku,
Böðvar Guðmundsson og Hjálm-
ar Árnason. Þátttakendur verða
um 50 á ráðstefnunni, þar af 15
íslendingar.
ísland hefur tekið þátt í þessu
norræna.samstarfi frá 1970 og
hefur það komið okkar áhuga-
leikhúsi til góða á margvíslegan
hátt. Menntun og þjálfun í öllum
greinum leikhússins er eitt af að-
almarkmiðum NAR. Árlega er
haldið eitt eða fleiri námskeið á
þess vegum, þar sem ferðir og
uppihald er þátttakendum að
mestu að kostnaðarlausu. Auk
þess eru haldin fjölmörg nám-
skeið á hverju sumri á vegum
leikfélagasambandanna í hverju
landi fyrir sig, þar sem allur
kostnaður er í lágmarki. Fjöldi
íslendinga fer árlega utan á þessi
námskeið.
Nú í sumar verður haldin önn-
ur leiklistarhátíð NAR. Verður
hún í Ósló. Þangað fer Leikfélag
Hornafjarðar með Skáld-Rósu
Birgis Sigurðssonar í leikstjórn
Jóns Sigurbjörnssonar. Fyrir
tveimur árum fór Leikfélag
Sauðárkróks til Ábo á fyrstu
leiklistarhátíð NAR og sýndi þar
Týndu teskeiðina eftir Kjartan
Ragnarsson. Auk leiklistarhátið-
anna er leikfélögum reglulega
boðið að koma og leika gestaleiki
á hinum Norðurlöndunum og
hafa mörg islensk leikfélög farið
utan, en einnig verið sótt heim.
T.d. er von á dönskum og finnsk-
um leikflokkum hingað i sumar.
Má segja að á þessum vettvangi
taki hinn almenni borgari á
Norðurlöndum virkan þátt í
norrænu samstarfi og gefast
tækifæri til að kynnast grann-
þjóðunum í návígi, því í þessum
leikferðum býr fólk á heimilum
gestgjafanna.
Á undan ráðstefnunni á Húsa-
vík verður haldinn sérstakur
fundur þar sem menntunarmál
áhugaleikara verða í brennidepli.
Hér á landi er mikill áhugi á
hvers konar námskeiðum hjá
leikfélögunum, en nú eiga 81 fé-
lag aðild að Bandalagi íslenskra
leikfélaga. Formaður Bandalags-
ins, Einar Njálsson, er varafor-
maður Norræna áhugaleikhús-
ráðsins.
(FrétUtilkynning.)
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Atvinnurekendur
Hjá atvinnumiölun námsmanna eru skráöir
nemendur úr öllum framhaldsskólum lands-
ins. Fjölhæfir starfskraftar á öllum aldri.
Atvinnumiðlun námsmanna,
Stúdentaheimilinu v/Hringbraut,
sími 15959. Opið frá 9—17.
Kennarar
Kennara vantar viö Hafnarskóla Höfn í
Hornafirði. Æskilegar kennslugreinar eru:
Almenn kennsla í 0.—5. bekk.
Smíðakennsla í 0.—9. bekk.
Tónmenntakennsla.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í símum
97-8148 og 97-8142.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
Ritari
Takiö eftir
Aö gefnu tilefni eru félagsmenn neöan-
greindra félaga sem hyggjast sækja um
vinnu hjá íslenska álfélaginu h.f. bent á aö
hafa samband við sitt stéttarfélag.
Verkamannafélagið Hlíf,
Verkakvennafélagið Framtíöin,
Félag bifvéiavirkja,
Félag blikksmiða,
Félag járniðnaöarmanna,
Rafiðnaðarsamband íslands,
Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar,
Félag byggingariðnaðarmanna í Hafnarfirði,
Félag matreiðslumanna.
Smurbrauðsdama
Vön smurbrauðsdama óskast strax. Aðeins
dagvinna.
Upplýsingar í dag og næstu daga í Matstofu
Miðfells sf. sími 84939.
Plötusmiðir
Óskum eftir aö ráöa plötusmiöi eöa rafsuöu-
menn.
Uppl. hjá verkstjóra í síma 20680.
Óskum eftir aö ráöa ritara til framtíöarstarfa
í afgreiðslu rannsóknadeildar sem fyrst.
Uppl. um starfið veitir Brynjólfur Jónsson í
síma 81200—368 milli kl. 13 og 15.
Reykjavík, 31. maí 1983,
BORGARSPÍTALINN
0 81 200
Landssmiðjan.
Viljum ráða smiði
og mann á byggingarkrana, mikil vinna.
Upplýsingar í síma 54524 og 52248 eftir kl. 7.
Röst hf.
#>Hurai m
, 1 [,—H ,
^1^71,1, 1
1—I-JJJIILJ nl
Vant starfsfólk óskast viö framleiöslustörf í
sumar. Upplýsingar hjá veitingjastjóra frá kl.
8—17.00.
Kennarar athugið
Kennara vantar aö Húnavallarskóla næsta
haust.
Almenn kennsla: Enska, myndmennt í Vá—2
stööur. Gott og ódýrt húsnæöi til staöar
Nánari uppl. gefur Eggert J. Levy skólastjóri,
símar 95-4313 eöa 95-4370.
vantar á 200 lesta útlegubát frá Grindavík.
Símar 92-8086 og 92-8364.
Hótelstörf
Starfskraftur óskast í gestamóttöku til afleys-
inga. Tungumálakunnátta t.d. enska, þýzka
og Noröurlandamál æskilegt.
Einnig óskum viö eftir starfskrafti til ræstinga
á herbergi o.fl.
Uppl. á staönum í dag frá kl. 5—7.
City Hótel, Ránargötu 4A.