Morgunblaðið - 01.06.1983, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983
Kanada mesta þorsk-
veiðiþjóðin við norð-
anvert Atlantshafið
Aflaaukningin frá 1978 nemur 92%
Þorskveiðar Kanadamanna hafa
aukizt um 92,9% á árunum 1978 til
1982, samkvæmt yfirliti um þorsk-
veiðar helztu fiskveiðiþjóða við norð-
anvert Atlantshaf. Árið 1978 veiddu
þeir samtals 296.900 lestir en í fyrra
572.900. Eru Kanadamenn þar með
orðin mesta þorskveiðiþjóðin á þess-
um slóðum. Til samanburðar má
geta þess að á síðasta ári veiddu
Islendingar 381.800 lestir af þorski
og næstir komu Norðmenn með
340.000 lestir.
Hér fer á eftir yfirlit yfir þorsk-
afla helztu fiskveiðiþjóða í Vest-
ur-Evrópu og Norður-Ameríku.
Tekur yfirlitið yfir árin 1978 til
1982 að báðum meðtöldum og afla-
tölur eru sýndar í þúsundum
tonna.
1978 1979 1980 1981 1982
lOOOt lOOOt lOOOt lOOOt lOOOt
Danmörk 125,4 122,1 154,8 184,9 vantar
Belgía 15,2 10,3 7,5 7,8 5,9
Færeyjar vantar vantar vantar 23,6 23,8
Frakkland vantar 17,4 17,7 21,4 17,5
fsland 318,4 359,5 426,2 458,8 381,8
Holland 41,0 30,1 39,2 44,1 29,3
Noregur vantar 334,6 281,2 338,9 340,0
Svíþjóð 14,4 22,7 31,5 43,7 42,2
Bretland 126,4 109,3 104,3 115,9 113,9
Kanada 296,9 378,0 422,1 456,4 572,9
V-Þýskaland 72.8 50,9 58,9 58,5 65,5
Af þessu yfirliti sést m.a. að á
aðeins 5 árum hafa veiðar á þorski
í Kanada aukist um 276.000 smál.
eða 92,9%. Er hér um gífurlega
aukningu að ræða. Þá virðist veiði
á þorski Breta og Vestur-Þjóð-
verja árvissar. Mikil aukning er á
veiðum Dana og sömuleiðis hjá
Svíum.
(Ljósm. Mbl. KÖE)
Eldri borgarar í Reykjavík skemmtu sér vel í Þórskaffí á fímmtudaginn og
hér fylgjast þeir með Júlíusi Brjánssyni í einu atriðinu í Þórskabarett.
Aldraðir skemmta
sér í Þórskaffi
ÞAÐ var glatt á hjalla í veitingahús-
inu Þórskaffí á fimmtudaginn sl. en
þar voru saman komnir eldri borgar-
ar úr Reykjavík í boði forráðamanna
og starfsfólks hússins.
Gamla fólkinu var boðið í kvöld-
verð og síðan skemmti Þórskabar-
ett, en að lokum var stiginn dans
við undirleik hljómsveitar húss-
ins, Dansbandsins og söngkonunn-
ar Önnu Vilhjálms. Var greinilegt
að gamla fólkið kunni vel að meta
það sem boðið var upp á og voru
Björgvini Árnasyni veitinga-
manni, Kristni Guðmundssyni
veitingastjóra og svo starfsfólki
hússins færðar sérstakar þakkir
fyrir höfðinglegt boð, en þetta er
þriðja árið sem Þórskaffi býður
eldri borgurum upp á veitingar og
skemmtun. Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar sá um akstur
til og frá húsinu.
Tímaritið Skák:
Gengst fyrir skákmóti
í Reykhólaskóla í júlí
MiAhúsum, 30. maí.
TÍMARITIÐ Skák gengst fyri helg-
armóti í Reykhólaskóla 1., 2. og 3.
júlí nk. Boðið verður 15—20 beztu
skákmönnum landsins til leiks og
mun ritstjóri Skákar, Jóhann Þórir
Jónsson, sjá um þá hlið mótsins.
Auk þess er öllum áhugamönnum
heimil þátttaka á meðan rúm leyfir.
Skákfélag Austur-Barðastrand-
arsýslu sér um undirbúning hér
heima fyrir. Formaður félagsins
er Indíana Ólafsdóttir Reykhól-
um. Samkvæmt heimildum ræðst
þetta litla félag í stórvirki því
ætia má að skákmenn hafi áhuga
á að leiða saman taflmenn sina og
búast við að þátttakan verði
60—100 manns.
Þó eflaust verði menn tímunum
saman bundnir við skákborðin og
hugurinn þar fastur, sakar ekki að
geta þess að útsýni frá Reykhólum
er með því fegursta á landi hér og
ætti því að örva menn til dáða.
Sveinn.
LjÓNmynd Mbl./KÖE
Listatrimm Stúdentaleikhússins hófst á sunnudaginn og er hér hluti þess hóps sem að því stendur. Talið frá
vinstri: Már Jónsson, Rúnar Guðbrandsson, Kristrún Gunnarsdóttir og Kolbeinn Bjarnason með meðleikara
sinn, segulbandið í höndunura. Fyrir aftan eru þeir Karl Aspelund leikmyndateiknari og Andrés Sigurvinsson
framkvæmdastjóri Stúdentaleikhússins.
I Félagsstofnun stúdenta:
Listatrimm Stúdentaleik-
hússins sumarið 1983
Rúnar Guðbrandsson í hlutverki sínu í Skýrsla til Akademíunnar.
Listatrimm stúdentaleikhússins
sumarið 1983 hófst sunnudaginn
29. maí, en þetta heiti hefur verið
valið þeirri starfsemi sem Stúd-
entaleikhúsið og Félagsstofnun
stúdenta ætla að gera tilraunir
með í sumar. Ætlunin er að halda
uppi dagskrá sem flest kvöld vik-
unnar í Félagsstofnuninni, sem
verður breytt í kaffíleikhús, þ.e.
veitingar verða seldar fyrir sýn-
ingar í hléi og eftir sýningar.
Dagskráin fyrir júní er svotil full-
mótuð og ef vel tekst til verður
haldið áfram.
Aðeins eitt skref heitir sýn-
ingin sem verður 29. og 31. maí.
Föstudagskvöld 3. júní verða
rokktónleikar. 5. og 7. júní
verður upplestur skálda og
performans, fram koma Einar
Ólafsson, Ingibjörg Haralds,
Elísabet Þorgeirsdóttir og
Sjón, auk þeirra mun Blásara-
kvintettinn spila. 10., 11. og 12.
júní verður flutt dagskrá úr
verkum Jökuls Jakobssonar,
16. júní verða jasstónleikar, 21.
júní verður sólrisuhátíð, þar
sem nýtt íslenskt tónverk verð-
ur frumflutt, og í enda mánað-
arins verður settur á svið leik-
þáttur.
Með síðari sumarmánuðina
er ekki algerlega afráðið og
getur hver sem er boðið sig
fram með efni og hugmyndir.
Mbl. ræddi við framkvæmda-
stjóra Stúdentaleikhússins,
Andrés Sigurvinsson, en ásamt
honum er í því starfi ólafur
Sveinsson. „Með þessu lista-
trimmi erum við að reyna að
fylla upp í það tómarúm sem
myndast í listalífinu á sumrin.
Við erum að gera tilraun með
samstarf og starfsemi fólks úr
sem flestum listgreinum, og er
markmiðið að skapa einstakl-
ingum og hópum aðstöðu til að
koma hugmyndum sínum og
verkefnum á framfæri. Við
viijum sýna að með góðri sam-
vinnu má opna nýjar leiðir í
sköpun og flutningi.
Aðeins eitt skref
Um hverja dagskrá sem flutt
verður myndast hópur sem síð-
an starfar sjálfstætt að sínu
verkefni. Fyrsta dagskráin
„Aðeins eitt skref" inniheldur
þrjú verk sem eru öll úr sitt-
hvorri áttinni en tengjast sam-
an samt sem áður. Fyrst verð-
ur flutt Steinaspil sem er tón-
verk leikið á íslenskt fjalla-
grjót. Uppruni þessa er afr-
ískur en útfærslan íslensk.
Hlutverk Steinaspilsins í
dagskránni er að undirstrika
hið frumstæða, hinn frumlega
tón.
Annað verkið er „skýrsla til
Akademíunnar", einþáttungur
fyrir einn leikara eftir einni af
smásögum Kafka í flutningi
Rúnars Guðbrandssonar. Fjall-
ar þessi þáttur um apa sem
tekinn hefur verið frá heim-
kynnum sínum og fluttur til
siðmenningarinnar þar sem
hann er taminn og menntaður.
Hann reynist hæfur til að vera
meðal manna og tileinkar sér
siði þeirra og hugsun. Hér
stendur hann í ræðustól og
ávarpar háttvirta heiðursmenn
lærdómslistafélags, greinir frá
minningum sínum sem apa og
reynslu sinni í mannheiminum.
Spurningin er hvað er hann
þegar hann hvorki er api né
maður.
Síðasta verkið, „Solo un
Paso“ eða Aðeins eitt skref, er
verk eftir spænska tónskáldið
Luis de Pablo fyrir flautuleik-
ara, söngkonu, segulband, ljós
og hluti. Þetta verk er 50 mín-
útur af baráttu milli söngkon-
unnar, sem er kennarinn og
flautuleikarans, sem er nem-
andinn.
En það sem einmitt er megin
inntak þessara verka, er
menntun og afstaða til hennar.
Dagskráin verður flutt í kvöld
og hefst sýning kl. 20.30.
Stúdentaleikhúsið er opinn
félagsskapur og hvet ég alla
sem áhuga hafa að kynna sér
starfsemina og taka þátt í
henni."