Morgunblaðið - 01.06.1983, Síða 35

Morgunblaðið - 01.06.1983, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983 35 Minning: Árni Pálsson, trésmíðameistari í dag verður til moldar borinn tengdafaðir minn, Árni Pálsson, trésmíðameistari. Árni fæddist 24. mars, 1904, á Sevðisfirði, sonur hjónanna Páls Árnasonar út- vegsbónda frá Seyðisfirði og Guð- rúnar Erlendsdóttur, sem ættuð var frá Jarðlangsstöðum í Borg- arfirði. Árni var næstelstur fjög- urra systkina; Guðlaug var elst, en bræðurnir Erlendur og Guðmund- ur yngri. Nú er Guðmundur einn á lífi þeirra systkina. Á uppvaxtar- árum Árna á Seyðisfirði var mikil athafnasemi hjá föður hans við útgerðina, en hugur Árna stóð ekki til útgerðar eða sjómanns- vinnu. Hann hóf trésmíðanám á Seyðisfirði hjá Stefáni Runólfs- syni, húsasmíðameistara, en lauk því eftir að hann hafði flust til Reykjavíkur. Tókst ævarandi tryggð með Árna og Stefáni og Pálínu Andrésdóttur, konu Stef- áns. Árið 1930 kvæntist Árni Andreu Þóru Eiríksdóttur. Hún var fædd og uppalin í Garði í Gerðahreppi, dóttir hjónanna Eiríks Guð- mundssonar og Guðrúnar Sveinsdóttur. Höfðu þau Árni og Þóra, eins og hún var jafnan köll- uð, kynnst á Seyðisfirði. Þóra og Árni eignuðust sjö börn, en fimm þeirra komust til fullorðinsára, þrjár dætur, Vilborg, Guðrún og Edda og tveir synir, Páll og Garð- ar. Þá ólu þau upp Þórdísi Ólafs- dóttur, systurdóttur Þóru og kom hún á heimili þeirra tveggja ára gömul, skömmu eftir að þau höfðu hafið búskap og eignast sitt fyrsta barn. Syni sína báða misstu Árni og Þóra, þegar þeir voru í blóma lífsins. Var það þeim mikið áfall og harmurinn djúpstæður. Árið 1968 missti Árni konu sína eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Kynntist ég því þá að Árni hafði breitt bak og bar raunir sínar af þeim dug sem mest einkenndi hann alla tíð. Árið 1970 giftist Árni Hólmfríði Guðjónsdóttur og lifir hún mann sinn. Voru þau hvort öðru góðir fylginautar og fé- lagar síðustu árin sem Árni lifði. Skömu eftir að Árni og Þóra hófu búskap byggðu þau timbur- hús í Laugarásnum, sem þá var fyrir utan bæinn. Nefndu þau hús- ið Steinholt og stendur það enn og sómir sér vel innan um stærri hús, steinsteypt, sem síðar voru byggð. Seinna var byggt að Vífilsgötu 5 og þar bjó fjölskyldan lengst af. Þó byggði Árni enn einu sinni, 1962-63, í Hjálmholti 7. Lengst af vann Árni sem verk- taki við húsbyggingar, en um tíu ára skeið var hann verkstjóri hjá Aðalverktökum á Keflavíkur- flugvelli, á fimmta og sjötta ára- tugnum. Síðustu árin eða til 1979, þegar hann varð 75 ára, vann Árni svo á trésmíðaverkstæði Reykja- víkurborgar. Árni Pálsson var alla tíð dug- mikill og bjartsýnn maður, bar sig alltaf vel og var aldrei með bar- lóm. Hafði aldrei vantað peninga í lífinu, alveg sama hvort hann átti einhverja eða enga. Oft hefur mér fundist lífsskoðun Árna stangast á við tíðaranda síðustu áratuga og efast ég ekki um að þjóðarbúið væri betur á vegi statt ef fleiri hefðu haft til að bera sama dug og Árni og þá reglu að gera fyrst kröfu til sjálfs sín. Hraustur var Árni alla ævi, ef undan eru skilin síðustu 1—2 árin. Lagðist hann í fyrsta skipti á spítala vorið 1982, en lét þau veikindi þó ekki aftra sér frá því að dvelja með Hólm- fríði, konu sinni, meirihluta sumars í bústað þeirra við Þing- vallavatn. Eins og Árni sagði sjálfur var hann félagsvera. Starfsfélögum sínum bauð hann oft heim til sín og voru margir þeirra góðir félag- ar hans. Ekki var Árni minna fyrir að vera með yngra fólki, börnum, tengdabörnum og barna- börnum. Hann var jafnan léttur í viðræðum og oft spaugsamur. Börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum var hann góður fað- ir, afi og félagi. Sama gilti vissu- lega um börn og barnabörn Hólm- fríðar, síðari konu Árna. Árni var áhugasamur um ferðalög og úti- veru og var hann laxveiðimaður ágætur. Mjög oft fór fjölskyldan með honum í veiðiferðir. Hef ég heyrt margar ævintýralegar lýs- ingar og eftirminnilegar af þess- um ferðalögum. Hin síðustu ár hefur Árni eytt löngum stundum með Hólmfríði, konu sinni, í sumarbústað við Þingvallavatn sem hann byggði fyrir um tuttugu árum. Ég reyndi það að Árni var sér- lega hjálplegur börnum sínum og tengdabörnum, þegar þau stofn- uðu heimili og ætíð tilbúinn að leggja á ráðin og hjálpa til með vinnu sinni þegar ráðist var í hús- byggingar. Þegar ég hafði sjálfur nýlega lokið við að byggja með konu minni, kom Árni eitt sinn í heimsókn og spurði með brosi, sem var blanda af stríðni og ein- lægni, eftir hverju ég sæktist helst i lífinu. Sjálfur sagðist hann öðru fremur sækjast eftir einu, ham- ingjunni. Blessuð sé minning Árna Páls- sonar. Stefán Arnórsson Birting afmœlis- og minningar- greina ATHYGLI skal vakin á því, að afraælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið; stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og raeð góðu línubili. STÓRÚTSÖLU- KUraarð MARKAÐURINN Það borgar sig að líta inn — góðar vörur á hlægilegu verði SUMAR FATNAÐUR— tízkufatnaður í miklu úrvali á alla fjölskylduna. Ungbarna- fatnaður í úrvali Svefnpokar kr. 455. Skór á alla fjölskylduna. Munið ódýra hornið frá kr. 20—90. Sendum í póstkröfu, sími 28640. Kjörgarðs fæst fatnaður áalla fjölskylduna Flauelsbuxur, verð frá kr. 145—225. Sumarbuxur frá kr. 95—150, bolir — peysur — blússur — anorakkar og ótal margt fleira. Kvenbuxur frá kr. 90—390, jakkar kr. 100, skyrtur frá kr. 50—230, sumarjakkar frá kr. 195—490. Stór Utsölumarkaðurinn í kjallara Kjörgarös

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.