Morgunblaðið - 05.06.1983, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.06.1983, Qupperneq 1
96 SÍÐUR 125. tbl. 70. árg. SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 Prentsmiðja Morgunbladsins Dæturnar víxluðust ('ockermouth, Englandi, 4. júní. AP. MARGRÉT WHEELER og Blanche Rjlatt víxluðu dætrum sínum í misgrip- um á fæðingardeild fvrir 46 árum og ólu þær upp eins og sínar eigin, jafnvel eftir að staðfest var að mistök hefðu átt sér stað. Sannleikurinn kom í Ijós þegar dætur þeirra voru sjö ára gamlar. Valerie Wheeler var í rauninni Val- erie Rylatt og Peggy Rylatt var í rauninni Peggy Wheeler. En með að- stoð lögfræðings gerðu þær sam- komulag um að segja ekki dætrunum frá því fyrr en þær hefðu náð átján ára aldri. „Það hefði reynst þeim alltof erfitt að skipta um umhverfi á þennan hátt,“ sagði frú Wheeler í gær, en hún hélt þá upp á gullbrúðkaup sitt ásamt fjölskyldunum báðum. „Þegar sannleikurinn kom i ljós ákváðum við að halda sem nánustu sambandi þannig að við gætum séð dætur okkar dafna og þroskast. Það fylgir þessu engin eftirsjá. Ég held miklu fremur að við höfum öll grætt eitt- hvað á þessu,“ sagði frú Wheeler. Það voru heilbrigðisyfirvöld í Nottingham sem komust að sann- leikanum í málinu sjö árum eftir að mistökin áttu sér stað og var fæð- ingarheimilinu sem ábyrgð bar á mistökunum lokað þegar i stað. Það hefur ekki verið starfrækt síðan. Hitabylgja banar 22 Nýju Delí, 4. júní. AP. GÍFURLEGIR hitar ganga nú yfir Ind- land og í gær mældist hitastigið 47 gráður í forsælu í Nýju Delí. Vitað er um a.m.k. 22 dauðsfoll f borginni einni af þessum sökum, en talið er að tala látinna sé miklu hærri. Útlitið er ekki bjart, því sam- kvæmt veðurspánni eru ekki neinar líkur á að þessum hitum linni í bráð. Reykingamenn verða nú aðskildir frá þeim sem ekki reykja í San Francisco. Fyrirskipa aðskilnað San Francisco, 4. júní. AP. BORGARYFIRVÖLD í San Franc- isco hafa nú sett ströngustu reglu- gerð um reykingar sem fyrirfinnst í Bandaríkjunum. Borgarstjórinn, Dianne Feinstein, skrifaði í gær undir reglugerð, sem hljóðar upp á, að banna megi reykingar alfarið í skrifstofuhúsnæði borgaryfir- valda og einkafyrirtækja verði kröfum um nægilegan aðskilnað á milli þeirra sem reykja og hinna ekki framfylgt. Vinnuveitendum hefur verið veittur 90 daga frestur til að breyta vinnustöðum sínum í samræmi við þessa nýju reglu- gerð. Verði henni ekki framfylgt eiga menn yfir höfði sér 500 doll- ara sekt fyrir hvern dag sem dregst að ganga frá breytingun- um. HANA NU! Mynd þessa tók Ijósmyndari Morgunblaðsins, RAX, þegar hann var á Seyðisfírði fyrir skemmstu. Vorið hefur verið með seinna móti fyrir austan, en samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar á hádegi í gær eru allar horfur á heiðrikju seinni part dags. Vopnuð átök inn- an PLO Beirút, 4. júní. AP. ÁTÖK brutust út í morgun á milli andstæðinga og stuðningsmanna Yasser Arafats í austurhluta Líbanon, skammt frá borginni Baalbek. Engin staðfesting lá fyrir á þessum átökum, en samkvæmt útvarpsfregnum a.m.k. tveggja stöðva kom til harðra átaka þessara hópa. Önnur stöðin sagðist þó ekki geta staðfest hvaða hópar hefðu verið þarna á ferö. Andstæðingar Arafats, undir stjórn Saeed Mousa, réðust þá á bækistöð stuðningsmanna hans skammt vestur af Baalbek í Bekaa- dalnum. Beittu uppreisnarmennirn- ir eldflaugum, auk venjulegra skopvopna. Ekki höfðu borist nein- ar fregnir af mannfalli þegar Mbl. fór í prentun, en reynist fréttirnar réttar eru þetta fyrstu vopnuðu átökin á milli andstæðra fylkinga innan PLO. Kandahar í Afganistan: Sovétmenn hervæðast Islamabad, Pakistan, 4. júní. AP. MIKIL hernaðaruppbygging á sér nú stað hjá Sovétmönnum í Kandahar og er talið að nú sé í uppsiglingu áhlaup á þessa næst stærstu borg Afganistan, að því er áreiðanlegar fregnir hermdu í gærkvöldi. Herflutningabifreiðir tóku að streyma inn í borgina 28. maí og i níu klukkustundir fóru skriðdrekar og vörubifreiðir um götur borgarinn- ar. Þessar fregnir hafa ekki verið staðfestar af vestrænum stjórnarer- indrekum á þessum slóðum, en fréttaskýrendur telja ljóst að miklar heræfingar fari þarna fram. Fyrr í þessari viku tilkynntu vest- rænir stjórnarerindrekar á þessum slóðum, að sovéskum hermönnum á Kandahar-flugvelli hefði fjölgað um 20 af hundraði á síðustu þremur mánuðum. Staöa Verkamannaflokksins breska talin mjög alvarleg: Stefiiir í mesta afhroð í kosningum í fimmtíu ár Lundúnum, 4. júní. AP. LOKASPRETTUR kosningabaráttunnar í Bretlandi hófst í morgun. Eins og staðan er nú eru yfírgnæfandi líkur á að Margaret Thatcher, forsætisráð- herra, og íhaldsflokkur hennar sigri í kosningunum nk. fímmtudag. Niður- stöður allra skoðanakannana til þessa hafa verið keimlíkar og gefið til kynna stórsigur íhaldsflokksins. I fréttum frá Bretlandi sagði i morgun, að ef engin stórbreyting yrði á biði Verkamannaflokkurinn sinn versta kosningaósigur í hálfa öld. Sagt er að flokurinn hafi ekki lagt fram jafn róttæka kosninga- stefnuskrá og nú í 83ja ára sögu sinni. Máttlítil og ómarkviss stjórnun kosningabaráttunnar hefur vakið athygli og jafnvel menn innan íhaldsflokksins óska þess, að betur væri haldið á mál- um hjá Verkamannaflokknum þó ekki væri nema til þess að veita íhaldsflokknum meira aðhald í kosningabaráttunni. „Við gerum okkur auðvitað grein fyrir því, að við sitjum ekki að völdum til eilífðar, en ég vildi mega upplifa þá stund, að sjá stefnu Verkamannaflokksins komast í mannlegar hendur á ný,“ sagði Sir Geoffrey Howe, fjár- málaráðherra og einn Ihalds- flokksmanna. Þrátt fyrir að skoðanakannanir spái íhaldsflokknum brautargengi í kosningunum er ekki laust við að efasemda gæti innan hans. Margir þeirra eldri og reyndari eru efins um að hinn mikli munur haldist þegar talið verður upp úr kjör- kössunum. Benda þeir, máli sínu til stuðnings, á tengsl á milli fyrri skoðanakannana og kosninga. Allt stefnir samt í að útkoma Verkamannaflokksins verði keim- lík því sem var 1931. Þá fékk hann 30,6% atkvæða og fékk aðeins 52 þingmenn kjörna af 615 á þinginu. Þær kosningar leiddu til mikillar uppstokkunar í flokknum og hann bar sigur úr býtum í næstu sex þingkosningum. Hófst sigurgang- an 1945 er Clement Athlee vann Winston Churchill. Margir stjórnmálaskýrendur eru þeirrar skoðunar, að einungis algert fylgishrun Verkamanna- flokksins geti bjargað honum frá glötun. Komist hann þótt ekki sé nema þokkalega frá þessum þing- kosningum telja þeir, að leiðin liggi áfram niður á við. Með fylg- ishruni neyddust leiðtogar hans hings vegar til að setjast niður og stokka upp spilin. Aðeins með þeim hætti er talið að uppræta megi harðlínumennina á vinstri kanti flokksins, sem taldir eru vera meginorsökin fyrir slæmri stöðu hans nú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.