Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983
27
Gunnar Haukur Ingimundarson
Séra ólafur Jóhannsson
„Enn um heilagan anda“
Það var komið að skilnaðar-
stund Jesú og lærisveina hans og
hann bjó þá undir viðskilnaðinn
með því að gefa þeim fyrirheit:
„Þér munuð öðlast kraft, er heil-
agur andi kemur yfir yður.“
Hann vissi, að ekki var vanþðrf á
sterku fyrirheiti á þeirri stundu,
því margt mundi bíða lærisvein-
anna í því mikla hlutverki, sem
hann hafði falið þeim, þ.e. að
breiða hans ríki út um allan
heiminn. Jesús hafði áður sagt
við lærisveinana: „Vertu ekki
hrædd litla hjörð, því að föður
yðar hefur þóknast að gefa yður
ríkið.“
En eftir upprisu Jesú og
himnaför voru lærisveinarnir
hræddir og ráðalausir. Samt
héldu þeir hópinn og tvístruðust
ekki. Þeir biðu saman eftir fyrir-
heitinu, þeirri gjöf sem Jesús
hafði heitið þeim.
Svo kom hvítasunnan. Þá kom
heilagur andi yfir lærisveinana
með slíkum krafti, að þeir gjör-
breyttust. Síðan fóru þeir af stað
út í heiminn, bornir uppi af
fyrirheitinu og reyndu þann
kraft sem Jesús hafði heitið
þeim.
Það duldist engum, sem fylgd-
ist með starfi þeirra, hvílíkur
kraftur bjó með lærisveinunum.
Og áhrifin urðu stórmikil, þrátt
fyrir ofsóknir, pyndingar og líf-
lát. Alltaf fluttu þeir vitnisburð-
inn um hinn upprisna Drottin
með miklum sannfæringarkrafti
og djörfung.
Áheyrendurnir létu sannfær-
ast um nálægð Jesú. Þeir vökn-
uðu til meðvitundar, tóku trú og
voru skírðir þúsundum saman.
Þetta var verk heilags anda og
mesta vakning allra tíma. Ná-
kvæmlega það sama gerist enn í
dag. Heilagur andi vekur menn
til lifandi trúar á hinn upprisna
Jesúm Krist, Guðs son.
Gunnar H. Ingim.
Barnahornið
Nú þegar sumar-
ið er komið og skól-
arnir eru búnir för-
um við öll að gera
okkur ýmislegt til
skemmtunar, sem
við getum ekki gert
á veturna. Dragðu
nú strik á milli
punktanna eftir
tölunum og þá
sérðu hvað þessi
strákur á myndinni
hefur sér til
skemmtunar í góða
veðrinu. Sumir af
lærisveinum Jesú
höfðu það að at-
vinnu, sem strákur-
inn er að leika sér
við. En þegar Jesús
kallaði þá gaf hann
þeim nýtt verk, sem
samt var skylt
þessu. Hvað var
það? í mörgum
sunnudagaskólum
er sunginn söngur
um það, syngdu
hann, ef þú kannt.
Hann er svona:
Ég mun gera yður
að mannaveiðurum,
mannaveiðurum,
mannaveiðurum.
Ég mun gera yður
að mannaveiðurum,
ef þér fylgið mér.
Peningar
1. sunnudagur eftir trinitatis
Lúk. 12.13—21
Guðspjallið í dag er um ríka bóndann, sem ætlaði að rífa
hlöður sínar og byggja aðrar stærri yfir korn sitt og auðæfi.
En Guð sagði við hann: „Heimskingi, á þessari nóttu verður
sál þin af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem þú hefur
aflað?“ Svo fer-þeim er safna sér fé, en eru ekki rík hjá Guði.
Þessi aldagömlu orð eru eins og töluð um efnishyggju og
lífsgæðakapphlaupið víðfræga á okkar dögum. En sleppum
samt hugleiðingum um það hvernig Jón og Gunna sólunda fé
sínu í sófa og sólarlandaferðir. Hugleiðum okkar eigið hjarta-
lag. Keppum við óhóflega eftir fjármunum? Látum við menn-
ingu okkar fyrir eftirsókn eftir fjármunum og trúrækni okkar
fyrir sífellt úður? Erum við hamingjusöm í störfum okkar og
þökkum Guði þau eða erum við að kafna í streitu, sem við
ráðum ekki við? Erum við rík hjá Guði?
Við teljum að spurningar um fjármál og frítíma geti stund-
um orðið flóknar. Þeir koma tlmar í lífi flestra okkar að við
verðum að leggja hart að okkur, sætta okkur við streitu og
meiri vinnu en okkur þykir gott. Þeir koma tímar að við
kunnum ekki að skipuleggja tíma okkar, kunnum ekki að eiga
frí, þótt við gætum, og nota það til hollustu fyrir sálir okkar og
eflingu trúar okkar. En við megum biðja Guð að leysa úr
vanda^pkkar, kenna okkur að allt hefur sinn tíma og það er
tilgangslaust að safna okkur fé en vera ekki rík hjá Guði.
Hugleiðum hvað það eiginlega er að vera rík hjá Guði og
biðjum um þá miklu gjöf að eiga auðæfi okkar i trúnni á hann.
Biblíulestur
vikuna 5.—11. júní
Sunnud. 5. júní: Matt. 8:23—27.
a) í neyð sinni leita lœrisveinamir til Jesú, v.25.
b) Hvers vegna kallar Jesús lœrisveinana trúlitla?
c) íhugadu áhrjf krafiaverksins á þá, sem sáu það gerask
Minud. 6. júní: /. Mós. 26:1—31.
a) V.2—5 og 24: Fyrirheiti Guðs til Abrahams nœr nú til ísaks.
b) V.12—14: Hin ytri velmegun var talin merki um blessun
Drottins.
2.Þriðjud. 7. júnv I. Mós. 27:1—29.
a) Mikilvcegi blessunarinnar var meira en við getum ímynd-
að okkur. Þess vegna var margt tilvinnandi að hljóta hana.
b) thugaðu hvaða áhrifslœgð Rebekku og Jakobs hefur á sög-
una.
Miðrikud. S. júní: I. Mós. 27:30—45.
a) Blessunin er nánast eins og hlutur, sem gengur frá manni
til manns og er því ekki til skiptanna.
b) Svik Jakobs vaída hatri hjá Esaú. Lcerum af atburðarás-
inni!
Fimmtud. 9. júní: 1. Mós. 28:10—22.
a) V.,13—15: Fyrirheit Drottins nœr nú til Jakobs. Drottinn
breytist ekki kynslóð eftir kynslóð.
b) V.18—22: Jakob gengur Drottni á hönd sem þjónn — bless-
unin naer tilgangi sínum.
Föstud. 10. júní: 1. Mós. 29:1—35.
a Leikið er á svikarann! Er það refsing Guðs? Hvað getum rið
lœrt af þessari frásögn?
b? V.Sl—35: Drottinn lítur til hinnar fyrirlitnu og miskunnar.
Laueard. U.júní: 1. Mós. 30:1—24.
a) íhugaðu þá mannlegu togstreitu, sem frásagan um bam-
cignimar lýsir.
b) V.23—24: Drottinn lítur til Rebekku. Höfundur lifsins er í
þessum versum áiitinn gefa bðm og hindra bameignir. Þcer
eru blessun hans.
Auglýtingar &r hÞnmat tf.
Flug
VIÐ ERUM: Alþjóðleg Ferðaskrifstofa.
VIÐ BJÓÐUM ÞÉR: Alhliða farseðla-
þjónustu,
erlendis og innanlands.
Draumaferð
með rútu um
héruð Þýska
2ja og 3ja vikna ferðir til Þýskalands Siglt meö
M/S Eddu til Bremerhaven og sfðan ekið með fs-
lenskum langferöabflum um fegurstu héruö og
borgir Þýskalands. Ejolbreytt og áhyggjulaus ferð.
Brottför 15. júní - örfá sæti laus í þessa ferð.
Mallorca paradísin
& bíll
þar sem þér hentar...
Við útvegum þér flug og bíl til allra helstu
22ja daga sólarferð til perlu Miðjarðar- \ borga heims. Til daemis: Luxemborgar,
hafsins, Mallorca. Brottför 15. júní og \ Frankfurt, Parísar, Osló, Kaup-
6. júlí. Örfá sæti laus. Góðar fbúðir og \ mannahafnar, London, Stokk-
hótel, m.a. hótel Jardin del Sol, nýtt og \ hólmso.fl. Þú bara hringir viö i
glæsilegt hótel á Santa Ponsa-ströndinni \ könnum málið strax fyrir þig j
AÐSETUR OKKAR ER:
Kirkjustræti 8,
SÍMAR: 19296 & 26660
FERDA