Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983 45 Áfram hélt hann að mála Eftir Pétur Sigurðsson alþingismann, Reykjavík Ragnar Agústsson skipstjóri hjá Eimskip er gamansamur og mikill húmoristi. Við lukum farmanna- prófi saman frá Stýrimannaskólan- um vorið 1951. Þegar ég hóf störf hjá þessu félagi 1952 var það á Goðafossi, og þar var Ragnar sem afleysingastýrimaður, en ég var bátsmaður. Við höfðum átt margar skemmtilegar stundir saman í skóla og svo varð einnig á Goða- fossi. Líklega hafa sumar tiltekt- ir okkar þótt grallaralegar, en í flestum tilfellum var um mein- laust og græskulaust gaman að ræða. Bátsmaður stjórnaði vinnu háseta, en í þá daga voru þeir allt að tíu að tölu með timbur- manni og messagutt. Þeir voru margir fyrirferðarmiklir, sér- staklega við land, en aöeins harðduglegir menn ílentust i þessu starfi þá. Landganga að kvöldi hafði óneitanlega oft áhrif á afköst daginn eftir. Jón hét háseti, sem fékk með öðrum það verkefni að mála utanborðs af stigapalli. Hann hékk í tveim köðlum sem flestir voru á þilfari og þaðan þurfti að láta pallinn síga eftir því sem málningar- vinnu miðaði í átt að sjólínu. Málningarfata stóð á pallinum milli háseta, hékk þar í snúru og þurfti að láta hana síga á eftir lækkun pallsins. Sá ég um það ásamt vakthafandi stýrimanni ef háseti var ekki til staðar. Að mati okkar Ragnars bar Jón um of með sér þreytu næt- urlífsins. Héldum við því fram við félaga hans af sigpallinum að Jón svæfi þar, en pensilstrokur hans væru ósjálfráðar, fram- kvæmdar í svefni. Þetta var áður en málningarrúllurnar komu til sögunnar. Það verður úr að ákveðið er að sanna kenningu okkar um „svefnfarir" Jóns og það gerðum við á eftirfarandi hátt. Við litum út fyrir og þar sat Jón og málaði með sínum hægu — mjög hægu reglubundnu strokum — vinstri hægri, upp niður. Við losuðum festingarnar og létum pallinn síga hægt og rólega niður en fylgdumst með Jóni. Áfram hélt hann að mála og „dýfa í“ málningardolluna, þótt hún væri nú langt fyrir ofan höf- uð hans, hangandi í öryggislín- unni. Neðar var haldið með Jón, fætur snertu sjó og allt að því vatnaði yfir pallinn sem Jón sat á og „málaði". En þótt við teld- um á þessu stigi sýnt að kenning okkar væri sönnuð sögðum við frá því eftirá, að eftir hefði verið að finna út í hve djúpum „trans" hann væri, því hefði verið ákveð- - ið að láta Jón síga áfram. Og báðir höfum við Ragnar „hér- umbil getað svarið það“, að það var ekki fyrr en háttbundin strokukreyfing hægri handar fyllti munn og nef Jóns af sjó — að hann vaknaði. Þroun afvopnunarmála Sýning í Menningarstofnun Bandaríkjanna NÚ ER að Ijúka undirbúningi sýn- ingarinnar „Long search for peace“ í sýningarsal Menningarstofnunar Bandaríkjanna að Neshaga 16. Sýn- ingin, sem gerð er af upplýsingaþjón- ustu Bandaríkjanna rekur þróun af- vopnunarstefnu stórveldanna frá 1940 til 1982. Er tilgangurinn að sýna sem flestar hliðar á þeim málum með ljósmyndum, línuritum og vopna- líkönum. „Long search for peace" var fyrst sett upp í tengslum við af- vopnunarþing Sameinuðu Þjóð- anna síðasta sumar en hefur verið sýnd víðsvegar um heim. Sýningin hefst klukkan 15.30 mánudaginn 16. júní og verður opnuð af próf- essor Richard Thornton sem kom hingað til lands sem ráðgjafi við uppsetningu hennar. Ný bílasala í Kópavogi Ný bílasala í eigu Péturs M. Birgissonar hefur verið opnuð f Kópavogi. Nefnist hún „Bíllinn" og er til húsa á Smiðjuvegi 22. Pétur er á myndinni ásamt Harry T. Hilsman, sölumanni. T Nýja línan frá HAFA nú einnig fáanleg í hvítu Nýtísku HAFA baöinnréttingar f baöherbergiö yöar. Mjög fjölbreytt úrval. Afgreiöum samdægurs. Einnig nýkomnar sauna-huröir. VALD. POULSEK' SUÐURLANDSBRAUT 10 sfmi 86499 NC plast bakrennur norsk gæóavara NC plast-þakrennur eru sérhannaðar fyrir breytilegt veðurlar og standa því auðveldlega aí sér harða íslenska vetur. Sérlega létt og einföld uppsetning gerir þér kleift að ganga frd rennunum sjdlíur dn mikillar fyrirhafnar. NC plast-þakrennur eru skynsöm fjárfesting GLERBORG HF DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIROI - SÍMI 53333

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.