Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983
Þing Landssambands
vörubifreiðastjóra
15. ÞING Landssambands vörubif-
reiðastjóra var haldið í Reykjavík
dagana 7. og 8. maí 1983. Formaður
sambandsins Herluf Clausen, setti
þingið með ávarpi og minntist lát-
inna félaga og þá sérstaklega Val-
geirs Guðjónssonar, Daufá í Nkaga-
firði. Við setningu þingsins flutti for-
seti Alþýðusambandsins Ásmundur
Stefánsson ávarp.
hingið sátu 29 fulltrúar frá 24
sambandsfélögum.
Þingið gerði margar samþykktir
varðandi hagsmunamál stéttar-
innar. M.a. samþykkti þingið eft-
irfarandi um umferðar- og trygg-
ingamál:
„15. þing Landssambands vöru-
bifreiðastjóra leggur ríka áherslu
á eftirfarandi:
1. Verulega aukningu á fé til
vegaviðhalds og nýbygginga.
2. Áframhald á lagningu bundis
slitlags á þjóðvegi landsins næsta
áratug.
3. Aukið samstarf opinberra
aðila og félagasamtaka í því skyni
að efla umferðaröryggi og umferð-
armenningu.
4. Þrátt fyrir ósk um aukið fjár-
framlag til vegagerðar, fer þingið
fram á það við ríkisvaldið að það
stilli álögum á atvinnutækin í hóf.
5. Að sambandsstjórn komi því
til leiðar að bílstjórar verði ávallt
tryggðir við vinnu sína.
6. Að sambandsstjórn kanni
möguleika á að bjóða út trygg-
ingar á vörubílum allra félaga
sinna."
f lok þingsins var kosið í stjórn
og trúnaðarmannaráð. Formaður
sambandsins var endurkjörinn
Herluf Clausen, Reykjavík og
meðstjórnendur voru kjörnir:
Björn Pálsson, Egilsstöðum, Guð-
laugur Tómasson, Keflavík, Guð-
mundur Helgason, Sauðárkróki,
Sigurður Ingimarsson, Reykjavík,
Þorsteinn Jónsson, Árnessýslu og
Ævar Þórðarson, Akranesi. I
varastjórn voru kjörnir: Ásgeir
Sigurðsson, Reykjavík, Pétur
Jónsson, Akureyri, Jón Sigur-
grímsson, Árnessýslu og Magnús
Guðjónsson, Vestmannaeyjum.
Nemendur íslenska barnaskólans f London.
rn
H II P
1 l
n\
/a\
Staflanlegi stóllinn sem sló í gegn
íslenskir húsgagnaframleiöendur og hönnuðir hafa líklega aldrei náö jafn
merkum árangri sem Stálhúsgagnagerð Steinars með Stacco stólnum. Þessi
glæsilega íslenska framleiðsla hefur náð miklum vinsældum í öllum helstu
nágrannalöndum okkar, svo og i Bandaríkjunum, Japan, Nýja Sjálandi og víðar.
Allt frá því Stacco var fyrst kynntur á Skandinavísku húsgagnasýningunni í
Kaupmannahöfn 1981 hefur hróður hans farið vaxandi, gagnrýnendur hafa
farið um hann lofsamlegum orðum og virt húsgagnatímarit um allan heim'hafa
gert honum góð skil.
Séreiginleikar Stacco stólsins eru fjölmargir og afar þýðingarmiklir:
• Hann staflast hreint frábæriega; 40 stólar mynda stafla sem er
rúmur metri á hæð!
• Hann er sterkbyggður úr massívu gæðastáli, sbr. styrkleika-
prófun dönsku tæknistofnunarinnar.
• Honum fylgja aukahlutir s.s. skrifplata sem fest er á án
fyrirhafnar, armar, tengingar á hliðar og vagnar.
• Hann er einkar þægilegur, styður vel við bakið og ber
gæðastimpil Möbelfakta.
Hvassaleitisskóli fékk 150 Stacco
stóla hjá Stálhúsgagnagerð Steinars
fyrir h.u.b. einu ári.
Stólarnir eru notaðir í samkomu- og
íþróttasal, „fjölnýtisal". Þeim er
staflað á þar til gerða vagna og
geymdir þannig. Þeir hafa reynst vel,
því get ég gefið þeim góð meðmæli.
Virðingarfyllst,
Kristján Sigtryggsson
skólastjóri.
Kynntu þér yfirburði Stacco stólsins.
Hann er varanleg lausn fyrir skólann,
félagsheimilið, fundarsalinn, mötuneytið,
samkomusalinn og fyrirtækið.
Æskulýðsráð Reykjavíkur hefur á
undanförnum árum notast mjög mikið
við Stacco stóla frá Stálhúsgagna-
gerð Steinars h/f.
Æskulýðsráð var einn fyrsti
kaupandinn að verulegu magni af
Stacco stólum og hafa stólarnir verið
notaðir í félagsmiðstöðvum og
samkomusölum við ágæta reynslu.
Auðveldlega er hægt að mæla með
Stacco stólum fyrir samkomuhús og
félagsheimili.
Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs Reykjavíkur.
Arkitekt: Pétur B. Lúthersson
%
STÁLHÚSGAGNAGERO
STEINARS HF.
SKEIFUNNt 6, SlMAR: 35110,39555.33590
Islenskur barnaskóli
og bókasafn í London
UNDANFARIN fjögur ár hefur
starfað í London barnaskóli fyrir ís-
lensk börn og hafa að jafnaði 10—12
sótt skólann í vetur. Núverandi
kennari við skólann er Ingibjörg
Ásgeirsdóttir en skólinn, sem er lið-
ur í starfsemi íslendingafélagsins í
London, hefur aðsetur á heimili
tveggja nemenda.
Markmið skólans er að leggja
rækt við íslenskukunnáttu nem-
enda og er í tengslum við skólann
barnabókasafn sem stofnað var í
minningu eins af fyrstu nemend-
um hans, Einars Vésteins Val-
garðssonar. Safnið er ekki stórt en
til bókakaupa er notaður hluti
styrks sem Menntamálaráðuneyt-
ið veitir skólanum svo og framlög
foreldra. Framlög til safnsins eru
vel þegin og ef einhver sæi sér
fært að sjá af nokkrum bókum má
senda þær til Bókasafns íslenska
barnaskólans í London, c/o Guð-
rún Sveinbjarnardóttir, 26 Pat-
shull Road, London NW5.
(Fréttatilkynning.)
Menntaskólinn í Reykjavík:
Fleiri stóðust
próf en í fyrra
2,6% hlutu ágætiseinkunn á stúdentsprófi
MENNTASKÓLANUM í Reykjavík
var slitið í Háskólabíói fimmtudag-
inn 26. maí, og voru þá brautskráðir
frá skólanum 182 stúdentar, 181
innan og 1 utan skóla.
865 nemendur hófu nám í skólan-
um á sl. hausti. Nemendum fskkaði
nokkuð eftir því sem leið á vetur og
gengu 825 nemendur alls undir próf
í vor. Kennt var í 39 bekkjardeild-
um, 29 árdegis og 10 síðdegis. 10
bekkjardeildir rúmuðust í gamla
húsinu, en öðrum var kennt í Fjósi,
Casa Nova, Þrúðvangi við Laufásveg
og í Miðbæjarskólanum við Frí-
kirkjuveg.
Svo sem verið hefur rúman ára-
tug, voru prófin tekin í tvennu
lagi, í desember eftir fyrra misseri
og í apríl/ maí eftir síðara miss-
eri. Hjá neðri bekkingum gilda
þessi tvennu próf jafnt, en hjá
stúdentsefnum eru desemberpróf-
in aðeins til ábendingar. Þykir
ástæða til að benda á þetta, því að
enn gætir misskilnings varðandi
þetta atriði hjá þeim, sem á sínum
tíma vöndust því að gildandi próf
væru aðeins tekin á vorin.
Úrslit prófa í 3., 4. og 5. bekk
urðu þau, að af 680 nemendum,
sem innritaðir voru í þessa bekki,
fóru 643 í vorpróf og stóðust alls
593, allmargir eftir endurtekningu
prófa. Miðað við árið á undan
stóðust þó fleiri athugasemda-
laust, færri féllu, en endurtekn-
ingar prófa voru svo til jafnmarg-
ar.
Stúdentspróf hófust 18. apríl og
lauk 24. maí. Til stúdentsprófs
voru innritaðir 184, en tveir
hættu. Einkunnaskipting í stú-
dentspróf varð: Ágætiseinkunn
(9—10) hlutu 2,6%, I. einkunn
(7,25-8,99) hlutu 37,9%, II. ein-
kunn (6,00—7,24) hlutu 45,1% og
III. einkunn (5,00—5,99) hlutu
14,3%.
Hæstu einkunnir á stúdents-
prófi hlutu Gylfi Zoega, 9,68, Ing-
ólfur Johannessen, 9,56, Kolbeinn
Guðmundsson, 9,49, Ólafur Mar
Jósefsson, 9,14 og Logi Gunnars-
son, 9,00.
Við skólaslit voru veitt margvís-
leg verðlaun fyrir góðan árangur í
námi og félagsstarfi, sem of langt
væri upp að telja.
Við skólaslit voru viðstaddir
margir af afmælisstúdentum skól-
ans og færðu þeir skólanum marg-
ar góðar gjafir, sem rektor þakk-
aði, en ekki síður hlýhug þeirra og
velvild.
(FréUatilkynning frá MR)
19. starfsári
Tækniskóla
Islands lokið
19 STARFSÁRI Tækniskóla íslands
lauk 28. maí sl. Voru nemendur í ár
435 þar með taldir nemendur á Ak-
ureyri og ísafirði.
Á næsta ári á skólinn 20 ára
starfsafmæli og er stefnt að því að
þá verði lokið áætlun um framtíð-
arverkefni hans, en um það mál
sér starfshópur undir forystu
Hannesar J. Valdimarssonar,
verkfræðings og formanns skóla-
nefndar. Á liðnum vetri bárust
skólanum um 1.200 bækur að gjöf
frá Iðntæknistofnun og þrefaldað-
ist þar með bókakostur bókasafns
skólans.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!