Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 2

Morgunblaðið - 05.06.1983, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚNÍ 1983_____________________ -------------- Eggjaþjófar komnir á kreik Ljósmynd Mbl. KÖE. Fyrsta skóflustungan tekin GUÐMUNDUR H. Oddsson, fyrrverandi skipstjóri, tók fyrstu skóflustunguna að raðhúsum fyrir aldraða við Hrafnistu í Hafnarfirði í gærmorgun. Guð- mundur hefur um langt árabil starfað ötullega að málefnum sjómanna og var m.a. í fyrstu stjórn Sjómannadagsráðs. Stefnt er að því, að fyrstu íbú- arnir flytji inn í hús sín þegar á næsta ári. Lóðaframboð í Reykjavík meira en eftirspurn: Um 600 umsókn- ir um 978 lóðir UM 600 lóðaumsóknir höfðu borist á skrifstofu borgarverkfræðings laust eftir klukkan 16 á fóstudag, en nýlega voru auglýstar 978 bygg- ingarlóðir í Reykjavík. Að vísu eru inni í þessum tölum umsóknir frá byggingarmeisturum sem sækja um fleiri en eina lóð, t.d. heila raðhúsa- lengju og þess háttar, þannig að lóð- irnar sem sótt hefur verið um, eru fleiri en umsóknirnar gefa til kynna, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Hjörleifi B. Kvaran, skrif- stofustjóra borgarverkfræðings. Þetta er í fyrsta skipti um ára- bil sem lóðaframboð í Reykjavík er meira en eftirspurn, að sögn Hjörleifs, en hinsvegar var gert ráð fyrir að eitthvað af umsóknum kæmi í póstkassa borgarverkfræð- ings á föstudagskvöld, en unnt var að skila inn umsóknum til klukkan 24 þá um kvöldið. Um ástæður fyrir þessari tregu eftirspurn taldi Hjörleifur þær, að fólk hræddist efnahagsástandið framundan, kjaraskerðingin þann 1. júní hefði haft áhrif og fleira. Hjörleifur taldi engar líkur á því að umsókn- arfrestur yrði framlengdur, eftir helgina yrði byrjað að vinna úr umsóknunum og síðan yrði um- sækjendum úthlutað lóðum og yrði niðurstöðu af því að vænta í júlíbyrjun. Hvort hugsanlega verður aug- lýst lóðaúthlutun síðar á þessu ári, sagði Hjörleifur alls óvíst, því nú þyrfti að endurskoða fjár- hagsáætlun, því gert hafi verið ráð fyrir meiri tekjum af lóðun- um, en líkur bentu til að skiluðu sér. Hér sést Sigurður Helgason gróðursetja eitt af þeim trjám sem Viktor Borge gaf. Flugvallarsvædid hreinsaö og fegrað Á föstudag tóku um 100 starfs- menn þriggja aðila þátt í hreinsun og fegrun flugvallarsvæðisins við Hótel Lofleiðir. Starfsmennirnir sem tóku þátt í þessu vinna hjá Klugmálastjórn, Flugleiðum og Hótel Loftleiðum, en þeir tóku þetta að sér í sjálfboðavinnu. Þetta framtak sjálfboðalið- anna er hluti af framkvæmdum við flugvallarsvæðið sem ráðast á i í sumar og á að stuðla að fegrun svæðisins. í því skyni var í gær einnig ráðist í það að hefja gróðursetningu á trjám við Loft- leiðahótelið, en í ráði er að gróð- ursetja allt að 150 tré þar. Þeir sem gróðursettu fyrstu trén voru Pétur Einarsson, flugmálstjóri, Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða og Emil Guðmunds- son, hótelstjóri Loftleiða, en Viktor Borge gaf trén þrjú sem þeir gróðursettu. Einnig hefur verið stofnaður sérstakur vinnu- hópur sem í sumar mun vinna að hreinsun svæðisins og annast gróðursetningu. Framkvæmdir þessar eru allar í samráði við Reykjavíkurborg, en jafnframt því að fegra flugvallarsvæðið er einnig í bígerð að slétta og fegra svæðið upp að Miklatorgi. Þeir sem að þessum fram- kvæmdum standa auk Reykja- víkurborgar eru Flugmálastjórn, Flugleiðir og Hótel Loftleiðir. Leitað á tveim- ur útlending- um við brottför „VIÐ HÖFUM langan lista manna, sem líklegir eru taldir til þess að ræna eggjum úr hreiðrum. Enginn þeirra hefur komið hingað til lands í ár, enn sem komið er. Við höfum vakandi auga með eggjaþjófum. Fyrir skömmu barst ábending um grunsamlegar ferðir tveggja manna. Nákvæm leit var gerð á þeim og far- angri þeirra þegar þeir yfirgáfu land- ið, en þeir reyndust hafa hreinan skjöld,“ sagði Árni Sigurjónsson, fulltrúi í Útlendingaeftirlitinu, í sam- tali við Mbl. vegna fréttar í blaðinu í gær þess efnis, að öllum eggjum hefði verið stolið úr fálkahreiðri við Mývatn og að spor hefðu fundist í snjónum við önnur hreiður á svæð- inu. „Sumarið er rétt að byrja og enn getur því allt gerst. Við höfum á undanförnum árum fengið margar ábendingar og kannað allar og það munum við gera i sumar,“ sagði Árni ennfremur. I samtali við Mbl. sagði Ævar Petersen, fuglafræðingur, að frést hefði af grunsamlegum ferðum manna á Tjörnesi, en hann hefur dvalið við Mývatn í vikunni. Menn fylgdust náið með ferðum útlend- inga, sem líklegir væru til að ræna hreiður. Hann sagði að spor hefðu verið við öll fálkahreiður í frið- landinu við Mývatn.____ INNLENT Morgunblaðift/ Ól.K.M. Farþegaskipið Eddan í upphafi farar sinnar til Newcastle. Eddan í blíðskapar- veðri til Bretlands Frá Arnóri Kagnar.ssvni, blaðamanni Mbl., um bord í Kddunni, 3. júní. BLÍÐSKAPARVEÐUR hefur verið frá því Eddan lagði upp frá Reykja- vík á miðnætti á miðvikudag; rennisjór en þó ekki sólskin. Farþegar hafa notið ferðarinnar og þægilegt andrúmsloft hefur ríkt. Við sigldum suður á bóginn milli Pentiandseyja og Orkneyja og suður með austur- strönd Skotlands í dag. Hljómsveit skipsins hefur leikið fyrir dansi í reyksal, en hana skipa pólskir hljómlist- armenn; fimm manna band ásamt söngkonu og mun hljóm- sveitin hafa leikið hér í sjö ár. Björgvin Halldórsson og Magnús Kjartansson hafa troðið upp á hverju kvöldi farþegum til óblandinnar ánægju og Gísli Sveinn Loftsson hefur stjórnað „diskóinu" í næturklúbbnum, en þar dansa þeir hörðustu frá mið- nætti til klukkan fjögur um nóttina. Aðstaða er öll þægileg og góð, en nokkurrar óánægju gætti í upphafi með káetur, margir töldu þær helst til litlar. Þær raddir hafa nú þagnað og menn njóta blíðunnar og fararinnar. Vilhjálmur Einarsson: „Árangur Einars kom mér ekki á óvart“ „ÞAÐ VORU okkur foreldrum Einars gledileg tíðindi þegar við fréttum af árangri hans. í sjálfu sér kom mér árangur hans ekki á óvart. Ég veit hversu hart hann hefur lagt að sér á æfingum að undanförnu. Hann hefur verið að kasta 88 metra á æfingum og á því að geta ná góðu kasti í sjálfri úrslita- kcppninni," sagði faðir Einars, Vilhjálmur Einarsson, í spjalli við Mbl. í gær. En eins og skýrt hefur verið frá, setti Einar stórglæsilegt ís- landsmet í spjótkasti í forkeppni bandaríska háskólameistaramóts- ins í frjálsum íþróttum í fyrradag. Úrslitakeppnin í spjótkastinu fer fram í dag. „Nú er bara að krossleggja putt- ana og vona að allt gangi vel í úrslitakeppninni. Það er erfitt að bíða eftir úrslitum í svona keppni þegar vel hefur gengið í forkeppn- inni. Nú er um að gera fyrir Einar að ná góðu andlegu jafnvægi og sameina allan þann kraft sem hann á. Ég þekki það af eigin raun, að það er andlega hliðin sem ræður mestu um hvernig fer svo um sjálf úrslitin. Nú er ekki leng- ur hægt að bæta stíl og kraft fyrir þessa keppni og því verður það sálræna hliðin sem skiptir mestu máli,“ sagði Vilhjálmur Einars- son, silfurverðlaunahafi í þrí- stökki á OL-leikunum i Melbourne 1956.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.